Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.1990, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 199(1.
Útlönd
Haffna vopnahléi
Líberískir uppreisnarmenn
sigldu í gasr á fiskibáti til Sierra
Leone til samningaviðræðna en
skýrðu strax frá því að vopnahlé i
borgarastyijöld, sem geisað hefur
í landinu og svipt hefur þúsundir
lífi, kæmi ekki til grcina.
Uppreisnarmenn hafa nýveriö
hertekiö höfuðborgina, Monrovúu,
og hafa nú um nokkum tíma setiö
um höil forseta landsins, Samuel
Doe.
Neyðarástand hefur ríkt í borg- Borgarastyriöld hefur staðið yfir i
innisiðustuvikuenhúnhefurver- Uberíu i hálff ár. Hér sést kven-
ið án rafmagns, vatns og símasam- hermaður úr hópi uppreisnar-
bands aö undaníomu. manna. simamynd Reuter
Dýrkeypt mistök ffrjóvgunarlæknis
Fijóvgunarstöð í Bandaríkjunum hefur samþykkt að greiða tæpar fjög-
ur hundmð milljónir íslenskra króna til þríbura sem fæddust fyrir fimm
árum. Ástæða þessa er sú að foreldramir stefndu frjóvgunarstöðinni
vegna þess aö mistök voru gerð er móðir bamanna fór í aðgerð þar fyrir
nokkrum áram.
Móöurinni var gefið ffjóvgunarlyfið Pergonal og eignaöist hún sjöbura.
Eitt barnið lést við fæðingu, þrjú dóu innan mánaöar frá fæöingu og þau
þrjú sem eftir lifa eiga Öll við heilalömun aö stríða. Síðar kom í ljós að
rangar leiðbeiningar læknis stöðvarinnar um notkun lyfsins höfðu þessi
hörmulegu áhrif á bömin.
Borgarastyrjöld hefur staðlð yfir i
Liberiu i hállt ár. Hér sést kven-
hermaður úr hópi uppreísnar-
manna. Slmamynd Reuter
Ætluðu að stela gulli
Astralir nokkrir hugðust ræna gtfurlegu magni af gulli úr banka á Filipps-
eyjum og höfðu undirbúið ránið vel. En ekkert varð úrfyrirætlan þeirra.
Lögreglan í Sidney í Ástralíu hefur komið upp um ráðageröir manna
sem hugðust gerast gullþjófar fyrir skömrnu. Nokkrir Ástralir, sem ætluð-
u að ræna gulli í banka á Filippseyjum í byrjun júní, höfðu skipulagt
mótmælagöngu í Manila undir þvi yfirskini að veríð væri að mótmæla
ríldsstjórn landsins.
í miöjum mótmælunum átti svo aö ráöast inn í ákveðinn banka og
hafa þaðan út gull aö verðmæti Ijögur hundmð og fimmtíu milljarðar
íslenskra króna. Ekkert varð úr gullþjófnaðinum. Og hafa mennimir, sem
stóðu að baki þessu, játaö að ránið heföi staðið til og aö ýmsar undirbún-
ingaðgerðir heföu verið skipulagðar.
Kvenréttindakona ffram í fingurgóma
Þaö má með sanni segja að kvenréttindakonan og rithöfundurinn Shir-
ley Conran hegöi sér í anda þeirra kenninga og hugmynda sem hún boð-
ar. Það þykir nefnilega mjög gott að hún greiðir konunni sem hreinsar
hús hennar sömu laun og helsta aöstoðarmanni sínum.
Frægust varð Shirley fyrir vérk sitt „Súperkonan", sem kom út fyrír
15 ámm, þar sem hún reifar kvenfrelsishugmyndir sínar. Síðan hafa
margar bækur siglt í kjölfarið, m.a. hagnýt bók með ráöleggingum handa
konum um hvemig þær geta fækkað húsverkunum svo vel fari.
Hella niður mjólk
Austur-þýskir bændur komu
saman fyrir framan stjórnarskrif-
stofur í Austur-Berlín íyrr í vik-
unni, helltu niður mjólk og gáfu
vegfarendum egg, mjóik og græn-
meti. Aðgerðimar vom í mótmæla-
skyni við að vestur-þýsk fram-
leiðsla heföi nú yfirtekiö þeirra
heimamarkað.
í upphafi stóð til að hella niður
10.000 lítrum af mjólk en þegar
starfsmaður stjórnarskrifstofanna
kom út úr byggingunni til að ræða
við bænduma hættu þeir aögerð-
um. En þá höfðu þeir hellt niður
100 lítmm.
Bændumir kröföust svara við því
hvers vegna hætt heföi verið við
aö setja toil á innfluttar vörur og
hvort vænta mætti einhverra að-
gerða til aö vemda bændur og
fraraleíðslu þeirra á hinum nýja
frjálsa markaði.
Bændur í Póllandi efndu í gær
Bændur í Póllandí lokuðu helstu
götum borga Póllands i mótmæla-
skyni við efnahagsstefnu ríkfs-
stjómarinnar.
Sitnamynd Reuter
einnig til mótmælaaögerða gegn efnahagsstefnu ríkisstjómar landsins.
Bændumir mættu á tráktorum og vöruflutningabílum á aöalgötur borga
landsins og lokuðu götunum með bílum sínum.
Reuter
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sem hér sést ásamt nokkrum fulltrúum á þingi sovéska kommúnista-
flokksins, þykir hafa unnið ótvíræðan sigur á þingi flokksins i gær. Símamynd Reuter
Umbótasinni kjörinn hægri hönd Gorbatsjovs:
Ótvíræður sigur
Gorbatsjovs
Jegor Ligatsjov beið lægri hlut í kosningunum til embættis varafram-
kvæmdastjóra sovéska kommúnistaflokksins. Símamynd Reuter
Jegor Lígatsjov, einn helsti for-
ystumaður harðhnumanna í Sovét-
ríkjunum, viðurkenndi í morgun
ósigur sinn fyrir stuðningsmanni
Gorbatsjovs Sovétforseta í embætti
varaleiðtoga sovéska kommúnista-
flokksins. En Lígatsjov sagðist ekki
mundu gefa baráttuna fyrir sínum
skoðunum upp á bátinn.
Vladimir Ivashko, hófsamur
miðjumaður sem Gorbatsjov studdi
í embættið, vann yfirgnæfandi sigur
í þessum kosningum sem fram fóru
á yfirstandandi þingi flokksins í gær.
Hann fékk alls 3.109 atkvæði en
Lígatsjov hlaut 776 atkvæði. Úrslit
kosninganna, sem voru tilkynnt í
morgun, eru tahn ótvíræður sigur
fyrir Gorbatsjov og munu líklega
styrkja enn áhrif og völd hans. Gor-
batsjov hefur síðustu daga látíð æ
meira að sér kveða á þinginu og virð-
ist hafa snúiö því sér í hag. Hann var
endurkjörinn í embætti ílokksleið-
toga fyrr í vikunni og heldur því
áfram bæði forystuembætti lands og
flokks.
Úrslit kosninganna í gær sýna
greinilega andstöðu við Lígatsjov og
baráttu hans gegn perestrojku, um-
bótastefnu Sovétforsetans, meðal
þingfulltrúa. Svo virðist sem harð-
línumanninum Lígatsjov hafi með
þessu verið ýtt til hliðar í stjórn-
málalífinu í Sovétríkjunum. Sumir
stjórnamálafræðingar telja jafnvel
að framboð og tap Lígatsjovs í gær
kunni að vera reynast endapunktur
ferils hans sem áhrifamikils manns
innan flokksins. Nú er talið að end-
urkjör hans í stjómmálaráöiö - eina
valdamestu stofnun flokksins - sé
engan veginn tryggt.
Tugir þúsunda námamanna efndu
til sólarhringsverkfalls í gær þrátt
fyrir hvatningu Sovétforseta um að
leggja ekki niður störf. Með þessu
em þeir að krefjast afsagnar ríkis-
stjórnar Nikolai Ryzhkov forsætis-
ráðherra sem þeir segja hafa gengið
á bak orða sinna. Námamenn efndu
til langs verkfalls í fyrra. Þvi lauk
eftir að stjórnvöld höfðu heitið því
að bæta aðstööu þeirra og laun. Nú
segja fulltrúar námamanna aftur á
móti að stjórnin hafi ekki haldið
þessi loforð og eigi að segja af sér.
Reuter
Pólverjar vilja
landamærasamning
Pólsk stjórnvöld hafa áhyggjur af
því að Vestur-Þjóðverjar muni ekki
samþykkja landamærasamning milh
landanna sem Pólverjar leggja mikla
áherslu á að gangi í gegn fyrir sam-
einingu þýsku ríkjanna í desember.
Yfirvöld í Póllandi kvarta undan
því að vestur-þýska ríkisstjórnin taki
ekki einu sinni viðræður í mál á
næstunni en biðja um aðstoð Banda-
ríkjanna, Sovétríkjanna, Frakklands
og Bretlands til að koma þessu máli
í gegn.
Pólverjar vilja að gerður verði
samningur landanna í milli sem
tryggi að landsvæði í vesturhluta
Póllands, sem landið ávann sér eftir
síðari heimsstyrjöldina, lúti áfram
Pólland og nærliggjandi lönd.
pólskri stjórn. En spurningin um
landamærin kom upp á yfirborðið
fyrr á þessu ári.
Pólsk stjórnvöld vilja aö gerður
verði alþjóðlegur samningur um
þetta mál sem að standi fjögur fyrr-
nefndu löndin og þýsku ríkin tvö.
En þessi lönd hittast til viöræðna í
París í næstu viku. Pólska utanríkis-
ráðherranum hefur veriö boðiö að
vera viðstaddur viðræðurnar. Búist
er við að Frakkar muni standa með
Pólverjum í þessu máli.
í síðasta mánuði virtist sem lausn
væri fundin á máhnu er bæði þýsku
þingin gáfu út yfirlýsingu þess efnis
að tekiö skyldi tillit til umræddra
landamæra. En vestur-þýsk stjóm-
völd hafa síðan ekki viljað ganga
lengra í bili og lýstu því yfir að frek-
ari viðræður um samning kæmu
ekki til greina fyrir sameiningu
þýsku ríkjanna.
Reuter