Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. Fréttir Forstjórar meö rosalaun: Hæst launaði forstjórinn með 1.100 þúsund á mánuði - laun forstjóranna fljúga upp á meðan önnur laun standa í staö Miðað við álagt útsvar á tekjur árs- ins 1989 má gera ráð fyrir að mánðar- tekjur Halldórs H. Jónssonar, stjóm- arformanns Eimskips og stjórnar- manns í fleiri fyrirtækjum, hafi verið um 950 þúsund krónur á síðasta ári. Það jafngildir um 1.099 þúsund krón- um á núvirði, eða 1,1 milljón. Hall- dór, sem kallaður hefur verið „stjómarformaður íslands", er hæst launaði forstjórinn í könnun DV á launum forstjóra hjá nokkmm stærstu fyrirtækjum landsins. Meðallaun forstjóranna um 600 þúsund á mánuði - Samkvæmt könnuninni voru með- aiiaun þessara forstjóra á síðasta ári rétt rúmlega 600 þúsund krónur á mánuði á núvirði. Það em um sjöföld meöallaun samkvæmt útreikningum kjararannsóknar. Sumir forstjó- ranna voru ekki með nema rétt rúm- lega þreföld meöallaun. Halldór H. Jónsson var með rétt rúmlega tólf- föld meðallaun. Næstur á eftir Halldóri kom Thor Ó. Thors, forstjóri íslenskra aðal- verktaka, en laun hans vom um 1.007 þúsund krónur á mánuði á núvirði. Valur Amþórsson var í þriðja sæti með 941 þúsund á mánuði en hann var stjómarformaöur Sambandsins fram á mitt ár og síðan bankastjóri Landsbankans. Hörður Sigurgests- son, forstjóri Eimskips, var með um 930 þúsund krónur á mánuði í fyrra og er þá miöað við núvirði sem fyrr. Fieiri hátt launaðir forstjórar Síðan komu þeir Indriði Pálsson, forstjóri Skeljungs, og Guðjón B. Ól- afsson, forstjóri Sambandsins, með 845 þúsund hvor. Þar á eftir kemur fyrsti ríkisstarfsmaðurinn, Jóhann- es Nordal seðlabankastjóri, en mán- aðartekjur hans vom 785 þúsund á núvirði. Ragnar S. Halldórsson, stjómarformaður ísal, var með um 739 þúsund á núvirði, Friðrik Páls- son, forstjóri SH, með 703 þúsund og Sigurður Helgason, forstjóri Flug- leiða, með 694 þúsund á mánuði. í töflu sem fylgir greininni má sjá þá forstjóra í úttekt DV sem vom með yfir 500 þúsund krónur á nú- virði í mánaðarlaun í fyrra. Við val á forstjómm í úttektina tók DV mið af stærð fyrirtækjanna. For- stjórar flestra stærstu fyrirtækja Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson landsins vom því með. Auk þess var bætt við nokkmm vel þekktum og nafntoguðum forstjómm eins og Davíð Scheving og Jóni Óttari Ragn- arssyni. Launakarfa forstjóranna hækkar um 26 prósent Auk þess að kanna launakjör þess- ara manna á síðasta ári bjó DV til launakörfu forstjórans til að meta launabreytingar þeirra milli áranna 1988 og 1989. í þessa körfu vora valdir eftirtaldir fimmtán forstjórar: Friðrik Pálsson, Halldór H. Jónsson, Hörður Sigur- gestsson, Höskuldur Jónsson, Indriði Pálsson, Jóhannes Nordal, Magnús Gunnarsson, Ólafur Tómasson, Óli Kr. Sigurðsson, Ragnar S. Halldórs- son, Sigurður Helgason, Sigurður Gísli Pálmason, Stefán Hilmarsson, Sverrir Hermannsson og Valur Am- þórsson. Meðallaun þessara forstjóra vom 448 þúsund krónur á mánuöi árið Austurlandsumdæmi: Sveinn Sighvatsson gjaldahæsti ein- staklingurinn Gjaldahæstu einstaklingamir í Austurlandsumdæmi eru Sveinn Sighvatsson, verktaki á Höfn, með 5 milljónir í álögð gjöld. Gunnar Erling Vagnsson, tannlæknir á Egilsstöð- um, með 2,6 milljónir. Jónas Sigur- bergsson, verktaki á Höfn, með 2,6 milljónir. Hjálmar Jóelsson, apótek- ari á Egilsstöðum, með 2 milljónir og Kristín Guttormsson, læknir í Framkvæmdasjóð- ur aldraðra Nú um mánaðamótin fá margjr sendar greiðslur vegna húsnæðis- bóta, vaxtabóta, bamabóta, bama- bótaauka, ofgreiddrar staðgreiðslu eöa ofgreidds útsvars. Hins vegar hafa margir tekið eftir því að gjald upp á 3.160 krónur er dregið frá þeim glaðningi og þeir sem þurfa að borga til baka þurfa að greiða þessa sömu upphæð aukalega. Þetta gjald rennur í framkvæmda- sjóð aldraöra sem á að sjá um fram- kvæmdir og rekstur vegna aldraðra. Gjaldið leggst jafnt á alla frá 16-69 ára aldri nema þá sem em á dvalar- eöa hjúkmnarheimili vegna elli eða örorku. 108 þúsund gjaldendur greiða í sjóðinn þannig aö 340 millj- ónir safnast í hann. Gjaldið var lagt niðudar 1989 en er nú tekið upp aftur. -pj Jóhannes Nordal seðlabankastjóri var hæst launaði ríkisforstjórinn í fyrra með um 785 þúsund krónur á mánuði á núvirði. Halldór H. Jónsson, „stjórnarfor- maður íslands", var hæst launaði forstjórinn á síðasta ári með um 1,1 milljón á mánuði á núvirði. 1988. Meðallaun þeirra voru hins vegar 566 þúsund árið 1989. Þau hækkuðu því um 118 þúsund krónur á milli áranna, eða um 26,2 prósent. 75 þúsund krónur umfram almenna launaþróun Það verður að telja vel af sér vikið hjá forstjómnum þar sem þessi hækkun er um 4,3 prósent umfram verðlagsbreytingar. Kaupmáttur for- stjóranna jókst því um þessi 4,3 pró- sent, eða 23 þúsund krónur á mán- uði, á tímum mikillar kjaraskerðing- ar. Sé launahækkun forstjóranna bor- in saman við almenn launakjör í landinu, sem hækkuðu um 9,4 pró- sent, fengu forsfjóramir 15,4 prósent launahækkun umfram almennt launafólk. Þaö jafngildir því að þeir hafi fengið um 75 þúsund krónum meira á mánuði en þeir hefðu fengið ef laun þeirra hefðu hækkað í takt við laun venjulegs fólks. Neskaupstað, með 1,9 milljónir. Gjaldahæstu fyrirtækin em Síldar- vinnslan í Neskaupstað með 30 millj- ónir í álögð gjöld. Kaupfélag Austur- Skaftfellinga á Höfn með 25 milljón- ir. Hraöfrystihús Eskifjarðar meö 22,4 milljónir. Hraðfrystihús Fá- skrúösfjarðar með 15,3 milljónir og Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum með 13,8 milljónir. -pj 16 TEKJUHÆSTU FORSTJÓRARNIR í ÞÚS. KR Suðurlandsumdæmi: Kaupfélag Amesinga greiðir 43 milljónir Gjaldahæstu einstaklingarnir í Suðurlandsumdæmi eru Brynjar H. Guðmundsson, byggingameist- ari í Þorlákshöfn, með rúmlega 4,6 milljónir í álögð gjöld. Sigfús Krist- insson, byggingameistari á Sel- fossi, með 4,1 milljón. Vigfús Sig- valdason, múrarameistari í Hvera- gerði, með 3,2 milljónir. Bjöm Guð- jónsson, garðyrkjubóndi í Hvera- gerði, með 3,2 milljónir og Bragi Einarsson, garðyrkjubóndi í Hveragerði, með 2,9 milljónir. Gjaldahæstu fyrirtækin í Suður- landsumdæmi em Kaupfélag Ár- nesinga, Selfossi, með 42,7 milljónir í álögð gjöld. Mjólkurbú Flóa- manna, Selfossi, með 21,5 milljónir. Glettingur hf., Þorlákshöfn, með 11,8 milljónir. Kaupfélag Rangæ- inga, Hvolsvelli, með 8,7 miHjónir og Meitillinn hf., Þorlákshöfn, meö 7,9 milljónir. Heildarálagning nam 2,1 mill- jörðum, þar af 1,7 hjá einstakling- um. Hæstu gjöld hjá einstaklingum vom tekjuskattur upp á 800 millj- ónir og útsvar upp á tæplega 700 milljónir. -Pj

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.