Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. Færeyingar eru varla búnir að jafna sig af timburmönnunum eftir Ólafsvökuna þegar nýr höf- uðverkur tekur við. Jogvan Sundstein lögmaður hefur til- kynnt að búast megi við uppsögn- um hjá hinu opinbera i nánustu framtíö. Að loknu sumarleyfi þing- manna, sem reyndar var óvenju- stutt, sagði Sundstein í þingræðu að þrátt fyrir niðurskurð á fjár- lögum bæði 1989 og 1990 heföi ekki tekist að rétta við hallann. Fjárveitingar heföu í mörgum til- fellum farið fram úr áætlunum og tekjur hefðu verið ofáætlaðar. Sagði lögmaðurinn að hagnaöur næöist ekki með skattahækkun- um heldur þyrfti að draga úr út- gjöldum. Það gæti haft í fór með sér uppsagnir hjá hinu opinbera. Hinn kosturinn væri lækkun launa, Lögmaðurinn nefndi einnig i ræðu sinni viðræður Færeyja viö EB, Evrópubandalagið, um frí- verslun. Sagði hann það ekkert leyndarmál að færeysk yflrvöld væru óánægð með afstöðu EB. Sundstein sagði að í þeim tillög- um, sem EB hefði Iagt fram um tollirjálsai' flskafuröir, væru tak- markanir sem samsvöruðu ekki þörfumFæreyinga. Sundsteingat þess þó að færeyska landstjórnin heíði ekki gefiö upp alla von um að fiíverslunarsamningur við EB, sem tæki gildi frá og með 1. júh 1991, næðist í haust. Lagöi lögmaðurinn áherslu á nauösyn þess að ræða önnur mikilvæg mál i sambandi viö af- stöðuna til EB. Sama og engin umræða hefur veriö um EB i Færeyjum frá því að ákveðiö var snemma á áttunda áratugnum að hafna aðild að bandalaginu. Ritzau Júgóslavía: Vaxandi þjóðernis- Lögregla í Júgóslavíu beitti valdi í gær til að koma í veg fyrir að andstæðingar kommúnista kæmu saman til fundar í lýðveld- inu Serbíu. Að sögn sjónarvotta særöust einhverjir í átökunum við lögregluna. „Serbneska lög- reglan barði þá líkt og rakka,“ sagði einn félagi i VMRO, Bylt- ingarsamtökum Makedóníu. Félagar í samtökunum höfðu safnast saman í gær fyrir utan serbneskt klaustur citt til að minnast ríkisstöðu Makedóníu. Mótmælendur segja að í klaustr- inu hafi Makedónía árið 1944 hlotið ríkisstöðu innan rikjasam- bands Júgóslaviu. Makedónía er eitt sex lýðvelda Júgóslavíu. Rúmlega eitt hundrað félagar í VMRO og öðrum samtökum and- stæðum kommúnistum komu síðar í gær saman á götum Skopje, höfuðborgar Makedóníu, til að mótmæla valdbeitingu lög- reglu. VMRO-félagar kreijast aukins sjálfstæöis fyrir Make- dóniu. Mótmælin í gær eru aðeins enn eitt dæmið um vaxandi þjóðernis- ólgu í Júgóslaviu en þjóðernis- hyggja hefur aukist mjög i lýð- veldum landsins siöustu vikur og mánuði. Reuter Rúmenía: Leiðtogi námsmanna látinn laus Marian Munteanu, leiðtogi rúm- enskra námsmanna, sem handtekinn var í júní síðastliðnum, var látinn laus í morgun, að því er talsmaður ríkissaksóknarans í Rúmeníu til- kynnti í gær. Þúsundir manna í Búk- arest og öðrum borgum landsins hafa efnt til víðtækra mótmæla vegna handtöku Munteanus og krafist þess að yfirvöld láti hann lausan. Munteanu, sem verið hafði meir en sex vikur í fangelsi, er sakaður um að hafa kynt undir óeirðum sem urðu eftir að lögregla batt enda á sjö vikna mótmæli gegn meintum áhrifum kommúnista í stjórn Þjóðfrelsis- hreyfmgarinnar. Munteanu hefur ekki verið ákærður opinberlega. Hann hefur vísað á bug ásökunum um að hafa kynt undir óeirðunum í júní þegar sex manns létu lífið og hundruð særðust. Forsetinn, Ion Ili- escu, sem var sannfærður um að lög- regla og hermenn gætu ekki bælt niður óeirðirnar, fór þess á leit við námamenn að þeir veittu aðstoð sína. Þúsundir námamanna frá mið- hluta landsins komu til höfuðborgar- innar, börðu á óbreyttum borgurum og réðust inn á skrifstofur stjórnar- andstöðunnar. Munteanu var barinn sundur og saman og fluttur á sjúkrahús. Þar var hann handtekinn og fluttur í fangelsissjúkrahús. Reuter Yfirvöld í Rúmeníu hafa tilkynnt að þau ætli að láta lausan námsmannaleið- togann Marian Munteanu. Hann var handtekinn í júní á sjúkrahúsi þvi sem hann var fluttur á eftir barsmíðar herskárra námamanna. Simamynd Reuter Búist við metuppskeru Búist er við metuppskeru korns í Sovétríkjunum í ár, alls 260 millj- ónum tonna. En þrátt fyrir það er hætta á að matarskortur verði í landinu, að sögn háttsetts embætt- ismanns hjá sovéska landbúnaðar- ráðuneytinu. Á fundi ráðherra 'ríkisstjórnar Ryzhkovs forsætisráðherra í gær sagði Vladlen Nikitin, yfirmaður stjórnarnefndar um matvæh og aðflutninga, að Sovétríkin, stærsta korninnflutningsríki heims, heföu ekki efni á frekari innflutningi kornmetis. Sovétmenn verða að leggjast á eitt til að koma uppsker- unni í hús, að öðrum kosti dragast mataraðföng saman um 20-25 pró- sent, sagði Nikitin á fundinum í gær. Sovéskir embættismenn segja að Sovétríkin eigi við sama vandamál að stríða nú og síðustu ár - skort á vinnuafli, tækjum og tólum og eldsneyti. Þá er einnig skortur á hæfu geymslurými fyrir uppsker- una. Ryzhkov sagði að alhr yrði að leggja fram krafta sína til að bjarga uppskerunni og gaf í skyn að emb- ættismenn kynnu að missa emb- ætti sín tækist ekki að fylla fram- leiðslukvóta. Reuter Uppreisnarmenn 1 Líberíu: Búist við innbyrðis átökum daginn, hreyft sig að vild í höfuð- borginni. Stjórnarhermennirnir tóku aftur veginn að útvarpsstöð nálægt mið- borginni án þess að til átaka kæmi. Fréttaritari Reuterfréttastofunnar sá nokkra stjómarhermenn um fimm hundruð metra frá vegamótum sem áður voru á valdi uppreisnarmanna. Uppreisnarmenn sáust í um fimm hundruð metra fjarlægð hinum meg- in við vegamótin en létu sem þeir sæju ekki stjórnarhermennina. Stjórnarerindrekar í Monróvíu, þar sem skortur á vatni, rafmagni og matvælum hefur ríkt í næstum mánuð, segja að ágreiningurinn milli andstæðra fylkinga uppreisnar- manna gæti orðið til þess að draga átökin á langinn. Johnson sagði á fundi með fréttamönnum á miðviku- daginn að hann myndi ræða við Charles Taylor um sameiginlega á- rás á Doe ef báðar fylkingarnar væru í aðstöðu til að ráðast á forsetahöll- ina. Menn Taylors eru enn í átta kíló- metra fjarlægð frá miðborginni. Ta- ylor hefur hins vegar lýst því yfir að hann ætli að bijóta menn Johnsons á bak aftur og síðan ráðast á Doe. Reuter Þúsundir manna flúðu Monróvíu í Líberíu í gær þegar uppreisnar- menn, sem hræðast árás andstæðrar fylkingar, drógu sig til baka frá lykil- stöðum í borginni. Aðeins örfáir menn undir stjórn Prince Johnsons sáust í gær á þeim svæðum sem þeir höfðu áður hernumið. Þar með gátu hermenn Does forseta, sem slátruðu sex hundruð manns í kirkju á sunnu- Uppreisnarmenn i Liberíu drógu sig til baka frá lykilstöðvum í höfuðborginni í gær og notuðu þá þúsundir borgarbúa tækifærið til að flýja. Simamynd Reuter °4i Útlönd B-2 bjargað Bandaríska öldungadeildin hafnaði í gær breytingatillögu sem hefði haft i för með sér frest- un á framleiðslu B-2 sprengju- flugvélarinnar, torræðu vélar- innar svokölluðu, um eitt ár. Hefði þessi tillaga náð fram að ganga heföi það haft í för með sér að framleiðsla frekari véla en þeirra sex sem þegar eru í smíð- um stöðvaðist. TOlagan, sem lá íyrir öldungadeildinni, gekk mun lengra en fyrirhuguð tillaga full- trúadeildarínnar, sem lögð verð- ur fy rir þing í næsta mánuði, sem gerir ráð fyrir að framleiðsla verði stöðvuð þegar þær fimmtán vélar, sem þegar hefur fengist heimild fyrir smiði á, hafa verið framleiddar. Öldungadeildarþingmenn segja aö Bush Bandaríkjaforseti og helstu ráðgjafar hans hafi barist fyrir þessari niðurstöðu öldunga- deildarinnar i gær. Þeir segja og að Bush muni reyna að þrýsta á aö ná málamiðlunarsamkomu- lagi við fulltrúadeildina en þing- menn hennar ganga til atkvæða um framtíð B-2 vélanna í sept- ember. Bush mun reyna aö ná samkomulagi við fulltrúadeild- ina um að bjarga torræðu sprengjuflugvélunum en tillaga, sem lögð verður fyrir deildina í september, gerir ráð fyrir að frek- ari framleiðslu vélanna verði hætt. Reuter Undirbúa leiðtogafund Utanríkisráöherrar risaveld- anna luku tveggja daga fundi sín- um í Sovétríkjunum í gær með því að samþykkja áætlanir um marga tvihliða og marghliða fundi fulltrúa ríkjanna næstu mánuði. Þessir fundir eru til að undirbúa næsta leiðtogafund þjóðanna en ekki er ljóst hvenær hann veröur haldinn. Sovétmenn vilja að leiðtogar ríkjanna hittist á.þessu ári en Bandaríkjamenn sjá ekki nauðsyn á leiðtogafundi fyrr en á næsta ári þegar fyrir- hugað er að Bush Bandaríkjafor- seti sæki Sovétríkin heim. Sovéski utanríkisráðherrann tflkynnti í gær að Sovétríkin hygðust hætta framleiöslu á hreyfanlegum kjamorkueld- flaugum, sem komið er fyrir á járnbrautarteinum, eigi síðar en 1. janúar næstkomandi. Banda- ríski utanríkisráðherrann tók varlega í þá yfirlýsingu og sagði aö ekki yrði um afstöðubreytingu að ræða hjá fulltrúum Bandaríkj- anna viö START-samningavið- ræðurnar um fækkun lang- drægra kjamorkuvopna. Ekki náðist samkomulag milli ráðherranna um Afganistan þó Sévardnadze segði að um framför heföiveriðaðræða. Reuter VIFTUREIMAR TÍMAREIMAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.