Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. Spumingin Ætlarðu að fara eitthvað um verslunarmanna- helgina? Petrína Rós frönskukennari: Jú, ég fer sem leiðsögumaður með 20 manna hóp á vegum Ferðamiðstöðv- ar Austurlands. Fyrst til Vestmanna- eyja, siðan norður Kjöl og einnig verður komið við á Mývatni. Styrmir Sigurðsson tæknimaður: Nei, er þetta ekki eina helgin sem er líft í bænum? Ég ætla því að hafa það notalegt í bænum. Elín Þóra Friðfinnsdóttir kvik- myndagerðarmaður: Nei, ég ætla ekki að fara neitt. Ég hef ekki farið neitt undanfarin ár. örn Magnússon póstafgreiðslumað- ur: Nei, jú kannski. Gæti verið að maður skellti sér á tónleika sem eru í Skálholtskirkju um helgina. Birna lomasdottir, atvinnulaus: Þa getur verið að ég fari í tjaldútilegu Ásbyrgi, norður í landi. Eða þá a ég fari í Skálholt. Valdís Einarsdóttir: Já, ég ætla í Húnaver. Við' fórum íjögur saman og verðum í tjaldi alla helgina. Ég fór þangað líka í fyrra. Lesendur Versti vegur á íslandi Sigrún Björgvinsdóttir, Egilsstöð- um, skrifar: Ferðamenn sem komið hafa á Hérað í sumar segja að þar sé versti vegur sem þeir hafa ekið á íslandi. Nánar tiltekið er þetta leiöin frá Egilsstöðum út í Eiða. I sumar hefur verið unnið að því að byggja upp þann hluta vegarins sem ekki var kominn með bundið slitlag. Að þessu hefur þannig verið unnið að vegurinn hefur verið nær ófær í margar vikur. Ofaníburður verið mjög grófur, nánast stór- grýti, umferö hefur ekki verið hleypt framhjá vegarstæði og veg- farendur orðið að keyra í nýsturt- uðum hlössum. Margir hafa skemmt bíla sína á þessum óvegi og á bifreiðaverk- stæðið Bílabót í Fellabæ hafa kom- ið bálreiðir ökumenn með skemmda bíla. Einn var með gat á pönnu, pústkerfi hafa losnað og mótorpúðar skemmst. Dæmi er um fólk sem þarf að aka þennan veg fjórum sinnum á dag vegna vinnu sinnar og má nærri geta hvað akst- ur á þessu klungri hefur reynt á bíla og ökumenn. Menn hafa klagað og kvartað, m.a. sendi hreppsnefnd Eiðahrepps kvörtun til vegamálastjóra en því liefur ekki verið sinnt, a.m.k. hafa vinnubrögð verið þau sömu áfram. Sem dæmi má nefna að á einum stað var gamla veginum rutt burt því sprengja þurfti klöpp úr vegar- stæðinu. Það dróst hins vegar í margar vikur að sprengja og á meðan þurfti að aka á klöppunum þar sem bíllinn valt eins og skip í stórsjó. Ekki hefði þurft nema fáein hlöss af ofaníburði til að laga þetta í bili. Gestir í sumarhúsum BSRB á Eiðum segjast margir hverjir hefðu hætt við að koma ef þeir hefðu vit- að hvernig vegurinn er. Er máhð var borið undir Einar Þorvarðarson, yfirverkfræðing Vegagerðarinnar á Austurlandi, sagði hann það ekkert nýtt að ill- fært væri þar sem verið væri að leggja nýjan veg og í þessu tilfelli heföi það þótt of dýrt að beina umferð framhjá nýlagningunni. Aðspurður um hvort Vegagerðin væri bótaskyld ef böar skemmdust sagði hann orðrétt. „Ef hægt væri að sýna fram á vítavert kæruleysi getur hún orðið bótaskyld en það verður að meta hverju sinni. En að sjálfsögðu ber verktaki ábyrgð á meðan á framkvæmdum stend- ur.“ Nú er lokið við að keyra grófa efninu í veginn svo vonandi fer hann að lagast. Ekki er enn ákveð- ið hvort bundið shtlag verður lagt á aUan veginn í haust en hann er um sjö til átta kílómetrar en þó verður örugglega lagt á veginn um Eiðastað og heim að skólanum þar. v O I. v o gKÉjj§i^, |n, i : jL, °5°°Sæ°ffSggS -rreey: r:ámo SKoæa - iT ciiTlrlffffÍTOijS E“fpMjlBWr K Jj "”li ^ m i Híc.tom-Brnjhol’ | 1 ' 11 fSHpi „Ég veit að fólk er hætt að láta börn sín ferðast milli borgarhverfa i straetisvögnum þar sem þar eru ekki öryggis- belti,“ segir bréfritari. - Snæfellsnes: Slæmt ástand vega Þorsteinn Kjartansson hringdi: Hann vildi koma því á framfæri að ástand vegá'fnágrenni Stykk- ishólms væri mjög slæmt. Hann kvaðst nýlega hafa verið þar á ferð og á köflum sé þar varla fólksbilafært. Nú þegar fólk er á faraldsfæti er brýnt að koma þessu í lag sem fyrst. Margir hafa áhuga á að heimsækja Snæfellsnes en lengi hefur það loðað við Nesið að þar séu slæmir vegir. Mennta- skattá Oryggisbelti líka í strætó Skáti skrifar: Það er hreint ótrúlegt að strætis- vagnar skuli vera undanskildir lög- um um öryggisbelti. Hvorki vagn- stjórarnir né farþegar vagnanna hafa möguleika að spenna sig í belti. TU hvers er verið að setja lög þegar þau ná ekki til aUra? Það vita alUr að það er ekki hættulaust aö ferðast með strætisvögnum og ekki eykur það öryggið þega fréttir berast af því aö vagnstjórar eigi það til að vera drukknir við vinnu sína. Ég veit að fólk er hætt að láta böm sín ferðast milU borgarhverfa í stræt- isvögnum þar sem þar eru ekki ör- yggisbelti. Það er erfitt að útskýra fyrir börnunum hvers vegna þau verða að nota öryggisbelti í fjöl- skyldubUnum en ekki í strætisvögn- um sem ókunnugir menn aka og far- þegar vita ekki um leikni þeirra eða hæfileika þeirra til að bregðast við hættuástandi. Ég skora á stjórn SVR að stöðva þetta ófremdarástand strax. Setjið öryggisbelti í vagnana svo hægt sé að ferðast með þeim án þess að eiga á hættu aö stórslasast fyrir það eitt að geta ekki spennt á sig belti. Ég geri mér fuUkomlega grein fyrir aö einhver kann að segja að þetta geti verið erfitt vegna farþega sem fá ekki sæti. Svo er ekki. Það á ein- faldlega að banna að aka bílum þar sem farþegar þurfa að standa. Hugsið ykkur ef bifreiðaframleiðendur færu að framleiða bíla með einu sæti, að- eins fyrir ökumanninn. Getur verið að einhverjir keyptuþannig útbúinn bíl? Ég hugsa ekki. Eg fyllist óhug í hvert sinn sem ég sé strætisvagn koma akandi eftir slysagildrum borgarinnar, sem sumir kalla hrað- brautir, troðna af fólki sem er varn- arlaust gegn þeirri vá sem fylgir nútímaborgarumferð. Það ætti að vera auðvelt að koma í veg fyrir þessa vá og því fyrr sem það er gert þvi betra. Það er of seint að byrgja brunninn eftir að bamið er dottið ofan í hann. Slæm símaþjónusta Héraðsbúi kvartar yfir þvi að ná ekki símasambandi við fyrirtæki á Héraði. Héraðsbúi hringdi: Hér á Egilsstöðum er mjög erfitt að ná símasambandi við mörg fyrirtæki og er Búnaðarbanki íslands þó öllu verstur. Ég held að þetta slæma sam- band sé vegna þess að fólk vantar tíl að svara í símann. Eg hef líka orðiö vör við þetta á skattstofunni. Þetta eru stór fyrir- tæki og mjög óþægilegt og þreytandi getur verið að ná ekki sambandi. Svona stór fyrirtæki ættu að geta haft einhvern á skiptiborðinu svo að hægt sé að ná sambandi. Eldri borgari hringdi: í deilu BHMR og rikisins hefur gleymst að benda á að félagarnir í BHMR voru kostaðir tU náms af almannafé, þar á meðal frá þeim sem nú era orðnir gamlir en áttu þess engan kost að afla sér menntunar. Ég tel eðhlegt að ríkið standi við gerðan samning við BHMR en á móti á að leggja menntunarskatt á þetta fólk og láta það borga það tfl baka sem þjóðfélagið hefur orðið að greiða til að kosta menntun þess. Þetta fólk notaði sér aðstöðu sína og menntun til að knýja fram betri kjör en aörir verða að búa við, t.d. það fólk sem kostaði það til mennta. Það er þvi ekki annað en sjálfsagt að þetta menntalið verði látið greiða skuld sína. Ogeð- felldur Rannveig Sveinsdóttir hringdi: Mér finnst ógeöfellt að sjá þegar verið er að auglýsa sirkus þar sem fóðra á krókódfla og eitur- slöngur á lifandi kjúklingum og kamnum. AUt þetta á svo að sýna börnum og ungUngura. Mér finnst mikil skömm að heyra þetta og undrast að dýraverndun- arsamtök skuli ekki stöðva þetta framferði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.