Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. 5 + Fréttir Húnavershátíðin: Óljóst hvort Stuð- menn greiða virð- isaukaskatt „Samkvæmt lögum er unglingum heimilt að fara á dansleiki verði þeir sextán ára á árinu og það verður þessi almenna regla sem mun gilda í Húnaveri um helginasagði Jón ísberg, sýslumaður Húnvetninga, er hann var spurður hvort ungmenni, sem ætla á rokktónleika í Húnveri, yrðu látin framvísa persónuskilríkj- um við komuna þangað. „Viö munum halda uppi lögum og reglum á mótsstað. Það verða með- limir í mótorhjólaklúbbnum Snigl- unum og lögreglumenn sem munu sjá um að hátíðin fari vel fram. - Nú hefur ríkisskattstjóri gefiö út yfirlýsingu um að það eigi að greiða virðisaukaskatt af öllum útihátíðum um verslunarmannahelgina. Ætlar þú að innheimta virðisaukaskatt af Stuðmönnum? „Ég skal ekkert segja um það. í fyrra taldi ég að lagalega væri ekki hægt að innheimta söluskatt af tón- leikunum sem þá voru haldnir í Húnaveri. Ég mun svo vega það og meta í ár hvort ég innheimti virðis- aukaskattinn. Ég mun taka afstöðu til þess þegar hátíðinni verður lokið og byggja ákvörðun mína á lögreglu- skýrslum og einnig hef ég hugsað mér að bregða mér á mótsstað og sjá hvað er um að vera þar. Það kemur því í ljós eftir helgina hvort ég inn- heimti virðisaukaskatt af hátíðinni," sagði Jón. -J.Mar , n. ifg ‘ ‘ IMISSAIM M9CRA Spennandi bíll á spennandi verði Ingvar Helgason hf. Sævarhöfða 2, sími 67-4000 Austurleið: Uppselt í Þórsmörk „Við erum búnir að selja 1500 sæti í Þórsmörk um helgina og við mun- um ekki selja fieiri,“ sagði.Ómar Óskarsson, framkvæmdastjóri Aust- urleiðar. Samkvæmt upplýsingum, sem fengust hjá lögreglunni á Hvolsvelli, verður ekki takmarkaður fjöldi þeirra sem kjósa að dvelja í Þórs- mörk. „Slíkt hefur ekki verið gert undanfarin ár. Það er það fjölbreytt framboö af útihátíðum um verslun- armannahelgina að það er yfirleitt ekki fleira fólk í Mörkinni um þá helgi en margar aðrar helgar sumar- ins. Við búumst við að það verði í kringum 2000 manns á svæðinu og lögreglan mun verða með sólar- hringsvaktir þar alla helgina," sagði Kristján Guðmundsson lögreglu- þjónn. -J.Mar Noröurlandsumdæmi vestra: Kaupfélag Skagfirðinga langhæst Kaupfélagi Skagfirðinga, Sauðár- króki, er gert að greiða 24,5 milljónir í heildargjöld. Skagstrendingur hf„ Skagaströnd, er með 15,3 milljónir í heildargjöld. Þormóður rammi lif., Siglufirði, 13,5 milljónir. Útgerðarfé- lag Skagfirðinga hf„ Sauðárkróki, 9,5 milljónir og Kaupfélag Vestur-Hún- vetninga, Hvammstanga, 8,5 milljón- ir. Sveinn Ingólfsson, framkvæmda- stjóri á Skagaströnd, er með álögð heildargjöld upp á 2,6 milljónir. Guö- jón Sigtryggsson, skipstjóri á Skaga- strönd, er með 2,5 milljónir. Einar Þorláksson, kaupmaður á Blönduósi, 2,3 milljónir. Jón Dýrfjörð, fram- kvæmdastjóri á Siglufirði, 2,2 millj- ónir og Hjörleifur Júlíusson, húsa- smíðameistari á Blönduósi, 1,9 millj- ón. -pj Koivisto kemur í heimsókn Mauno Koivisto, forseti Finnlands, Tellervo, kona hans, og Assi Komula- inen, dóttir þeirra, koma í heimsókn til íslands dagana 25. til 28. ágúst 1990. Þau munu hitta forseta íslands og forsætisráðherra, fara til Þingvalla og Vestmannaeyja og ef til vill einnig til A-Skaftafellssýslu. -SMJ ÞESSI TOFFARI HANN VERÐUR IBÆNUM ALLA HELGINA This ve.ir's LETHAL WEAPON ACTIÖN JÆCKSOW útgáfud. í ágúst útgáfud. í águst útgáfud. í ágúst iiSHflByyifiaE HRAUNBERGI 4 SÍMI 77770 OPNUNARTÍMI 16 - 23.30 HELGAR 12 - 23.30 LANGHOLTSVEGI 176 SÍMI 685024 OPNUNARTÍMI 14 - 23.30 HELGAR 12 - 23.30 ROFAB/E 9 SÍMI 671170 OPNUNARTÍMI 16 - 23.30 HELGAR 12 - 23.30 MAVAHLIÐ 25 SÍMI 10733 OPNUNARTÍMI 10 - 23.30 HJA OKKUR ER OPIÐ ALLA HELGINA IGUÐANA BÆNUM FARIÐ VARLEGA UM HELGINA ELSKURNAR MÍNAR i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.