Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 21
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. 21 Sparsemin varð hennar bani komið. Blóðsýnið, sem síðar hefði verið tekið úr honum, Ronald, hefði nákvæmlega sömu einkenni og sæðið. Væri því með öllu tilgangs- laust fyrir hann að neita því að hafa myrt Rachel Partridge. Hann hefði alveg eins getað skihð eftir skammbyssu með fingraförunum sínum. Þegar Ronald hafði heyrt þetta sagðist hann þurfa að breyta fram- burði sínum. Sagan og frefcari sönnunargögn Ronald sagði að hugmyndir lög- reglunnar um að hann hefði myrt Rcahel stæðust ekki. Hann sagðist hafa verið að aka frá Chinnor um- rætt kvöld í vörubíl sem hann hefði notað í starfi sínu. Er hann hefði verið búinn að aka um hríð heföi hann séð unga stúlku við vegar- brúnina. Hann hefði tekið hana tali og hefði hún þegið far með hon- um. Er hún heföi verið komin upp í bílinn hefði hann gefið í skyn að hann hefði áhuga á að vera með henni. Hefði hún tekiö hugmynd hans vel og skömmu síðar heföu þau elskast í vörubílnum. Ekki hefði Rachel á neinn hátt reynt að berjast á móti sér. Er þau heföu elskast kvaðst Ronald svo hafa hieypt Rachel út úr bílnum og hefðu þau þá verið í nágrenni hlöð- unnar sem líkið fannst svo í. Sagð- ist hann ekki hafa komið nærri henni. En „Rambó Ron“ tókst ekki að snúa á lögregluna. Honum var nú skýrt frá því að við hlöðuna sem hann heföi ekki sagst hafa komið nærri heföu fundist hjólför eftir bíl og hefði rannsókn leitt í ljós að þau væru eftir sams konar dekk og hann hefði á bíl sínum. Þá heföi í hári Rachelar fundist trefjar úr einangrunarefni og væri ljóst að þær hefðu komist í það við átök sem átt hefðu sér stað. Dómurinn Ronald Cheshire kom fyrir saka- málaréttinn í Reading í mars í fyrra. Þar var fjallað um málsatvik í einstökum atriðum og kom þá meðal annars fram á hve grimmi- legan hátt „Rambó Ron“ hefði komið fram við Ráchel er hann réðst á hana, misbauð henni kyn- ferðislega og myrti hana. Er dómarinn tók saman helstu málsatriði í lok réttarhaldsins svo aö kviðdómendur gætu betur áttað sig á eöli afbrotsins lét hann þau orð falla að því miður hefði dauða- refsing verið felld niður í Bret- landi. Hefði hún enn verið í gildi hefði hann viljað beita henni. Ronald Cheshire fékk þyngsta dóm sem lög leyfa. Frásögnin af því sem kom fram í réttinum vakti óhugnað í nágrenni Oxford sem er þekkt fyrir sveitasælu og rólegt líf íbúanna. Faðir Ronalds, lögreglumaðurinn sem tók þátt í frumrannsókn máls- ins, sagði af sér eftir að ljóst varð að sonur hans var morðinginn. Gaf faðirinn þá skýringu að hann hefði fljótlega fengið um það grunsemdir að Ronald væri sá seki en þar eð um son hans heföi verið að ræða hefði honum þótt rétt að láta lög- regluna um að upplýsa málið. Rachel Partridge vildi heldur geyma peningana sína og nota þá í sumarleyfmu en fara með leigu- bíl. Hún lagði því af stað gangandi í kvöldmyrkrinu... og náði ekki heim til sín. Á leið í sumarleyfi Sparsemin er dyggð, segja marg- ir. Og það er hún vissulega sé hún ástunduð í hófl, eins og reyndar flest annað. Rachel Partridge var ekki þekkt fyrir nísku en nú var hún á leið í sumarleyfi og vildi eyða sem minnstum peningum til að geta látið sem mest eftir sér er þaö hæfist. Heföi Rachel fallist á að hringja á leigubíl í stað þess að leggja gang- andi af stað heim til sín að kvöldi 25. ágúst 1987 hefði hún vafalítið haldið lífi. En það gerði hún ekki. Hún var þó aðeins sautján ára og óvenjulega lagleg. Dagana á undan hafði legið afar vel á henni. Hún haföi ekki áður farið til útlanda en nú ætlaði hún ásamt vini sínum í sumarleyfisferð til Ítalíu. Þar ætluðu þau að dvelj- ast í hálfan mánuð og Rachel hlakkaði afar mikið til ferðarinnar. Er liðið var á dag þann 25. ágúst, daginn áður en lagt skyldi af stað með leiguflugvél, fannst Rachel að hún ætti að reyna að verða svolítið sólbrún. Hún hringdi því til vin- konu sinnar sem átti sóllampa og bað hana um að leyfa sér að nota hann. Var þaö auðsótt mál. Rachel fór því með almenningsvagni frá þorpinu Chinnor í nágrenni ensku borgarinnar Oxford til nágranna- bæjarins Tharme. Fjarlægðin milli þeirra er innan við sex kílómetrar. Hvarf sporlaust Það var þegar orðið dimmt þegar Rachel ætlaði að leggja af stað heim aftur. Lagt var til við hana að hún hringdi á leigubíl af því að dimmt var orðið. Það sagðist hún ekki vilja gera. Leigubíll kostaði allt of mikið og hún ætlaði því að ganga heim. Betra væri að geyma pening- ana til þess tíma er hún yrði komin til Ítalíu. Rachel lagði af stað til Chinnor en hún kom ekki heim um kvöldið. í fyrstu virtist sem jöröin heföi gleypt hana. Foreldrar hennar og vinir leituðu hennar um kvöldið og nóttina en árangurslaust. Er leið að hádegi daginn eftir gerðu foreldramir lögreglunni að- vart. Hún gat þá sagt foreldrunum aö Rachel væri látin. Heföi verið gengið úr skugga um að lík sem fundist haföi í hlöðu þá um morg- uninn væri af henni. Heföi hún verið myrt. Tveir ungir landbúnaðarverka- menn höföu átt leið hjá hlöðunni. Höfðu þeir þá séð eitthvað óvenju- legt í henni. í fyrstu héldu þeir að um væri að ræða útstillingarbrúöu úr verslun en þegar þeir gáðu betur að sáu þeir nakið lík af ungri stúlku. Réttarlæknar gátu skömmu síðar skýrt frá þvi að stiilkunni heföi verið misboðið kynferðislega en síðan heföi hún verið kyrkt. Dökkleitur vörubíll Lögreglan fann brátt fólk sem sagðist hafa séð Rachel á tali við Rachel Partridge. Ronald Cheshire. konur og tilraunir til að misbjóða þeim kynferðislega. Það þótt kaldhæðnislegt að „Rambó Ron“ skyldi vera sonur lögreglumanns sem hafði í upphafi tekið þátt í rannsókn málsins á Rachel Partridge. Neitaði öllum ásökunum Ronald Cheshire var nú tekinn til yfirheyrslu. Kvaðst- hann þá ekkert þekkja til Rachel. Hann sagðist aldrei hafa séð hana og því væri þaö hugarburður einn að hann hefði myrt hana. í raun heföi hann ekki minnstu hugmynd um hver heföi orðið henni að bana. Allar hugmyndir um að hann væri sá seki væru því á misskilningi byggðar. Rannsóknarlögreglumennirnir, sem yfirheyrslunni stýrðu, gerðu Ronald þá grein fyrir aðferðinni sem beitt haföi verið. Sögðu þeir honum að sæði hefði fundist og heföi það haft alveg sérstök ein- kenni. Það væri frá morðingjanum Vinurinn sem ætlaði í sumarleyfið með Rachel. Hlaðan. ökumann lítils vörubíls við veginn milli Chinnor og Tharme. Var talið mögulegt að hann væri morðing- inn. Enginn gat hins vegar gefið neina raunverulega lýsingu á öku- manninum, aðeins var sagt að hann heföi virst dökkur yfirlitum. Þá gat enginn sagt til um skrásetn- ingarnúmer bílsins og óvíst var af hvaða gerð hann var. Brátt fann þó lögreglan vísbend- ingar. Við hlöðuna fundust för eftir hjólbarða af ákveðinni tegund. Að auki fundust nokkrar trefjar af ein- angrunarefni í hári stúlkunnar. Efnið var einkum notað af fólki í byggingariðnaöinum. En hvernig átti að finna bílinn? Óhugsandi var að rannsaka alla vörubíla í Suður-Englandi. Um þetta leyti haföi vísinda- mönnum hins vegar tekist að full- komna nýja aðferð til aö bera kennsl á fólk. Nægir að úr því fmn- ist munnvatn, blóð eða sæði. Það ber séreinkenni þess sem það er úr og má bera það saman við sýni úr viðkomandi. Er nákvæmnin á við fingrafarasamanburð. 4000 blóðsýni Lögreglan gerði nú boð fyrir allra karla á aldrinum fimmtán ára til sextugs sem bjuggu í nágrenni Chinnor og Tharme svo að taka mætti úr þeim blóðsýni. Reyndust þeir vera um fjögur þúsund. Þetta var afar tímfrek rannsókn sem tók í allt fjóra mánuði. Starfsmenn lög- reglunnar og vísindamennirnir sem voru þeim til aðstoðar sýndu hins vegar mikla þolinmæði því þeir höföu þá trú að á þennan hátt mætti varpa ljósi á hver myrt haföi Rachel Partridge. Loks kom þar að einn vísinda- mannanna gat skýrt frá því að hann heföi fundið blóðsýni sem svaraði til sæðisins sem fundist hafði úr morðingjanum. Blóðið reyndist vera úr þrítugum manni, Ronald Cheshire. Hann haföi lengi verið mikill áhugamað- ur um lyftingar og meðal kunn- ingja sinna gekk hann undir nafn- inu „Rambó Ron“. Hann var þekkt- ur fyrir að vera sérstaklega van- stilltur. Þá hafði hann oftar en einu sinni hlotið dóma fyrir árásir á

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.