Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Blaðsíða 33
45 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. DV Afmæli Ormur Guðjón Ormsson Ormur Guðjón Ormsson, raf- virkjameistari og uppfinningamað- ur, Akurbraut 17, Innri-Njarðvík, er sjötugur í dag. Ormur Guðjón er fæddur í Hafnarfirði en ólst upp hjá foreldrum sínum í Reykjavík þar til hann var 10 ára að hann flutti með þeim að Hofgörðum í Staðarsveit. Þaðan flutti hann að Laxárbakka í Miklaholtshreppi 1936. Hann fór með foður sínum, sem hafði þá tekið við starfi rafveitustjóra, til Borgar- ness árið 1939. Hann lærði þar raf- virkjastörf hjá foður sínum en fór svo í Iðnskólann í Reykjavík og vann hjá föðurbróður sínum, Jóni Ormssyni, á meðan á skólanámi stóð, til 1946. Ormur vann í Ljósa- fossi hjá Jóni Sveinssyni 1946-1948 en flutti þá til Akureyrar. Þar átti hann þátt í endurreisn Rafvirkjafé- lags Ákureyrar og var formaður þess til 1950. Hann stofnaði ásamt félaga sínum Rafmagnsfyrirtækið Raforku hf. 1949 og hlaut meistara- bréf í rafvirkjun árið 1950. Ormur vann í loftlínuvinnu hjá Rafveitu Reykjavíkur 1951-1953 og starfaði hjá flugmálastjórn við ýmiss konar viðhaldsvinnu 1953-1957. Hann flutti til HeUissands og rak þar eigið verkstæði 1961-1967 en flutti til Suð- urnesja 1967 og vann á tækjaverk- stæðiLoftleiðahf. 1968-1971. Ormur fór þaðan til varnarliðsins þar sem hann hefur unnið síðan. Hann hefur unnið við uppfinningar á ýmsum sviöum, sér í lagi við ýmis tæki tengd sjávarútvegi, svo sem vél til að skera beitu og svonefndan drátt- arkarl sem dregur hnu af spih og hringar hana ofan í bala. Það mun hafa verið fyrsta hugmynd að slíkri vél svo að vitað sé. Undanfarin ár hefur hann unnið að vélbúnaði til að beita fiskilínu og gervibeitu ásamt ýmsum öðrum hugmyndum. Ormur var einn af stofnendum Félags íslenskra hugvitsmanna áriö 1987. Hann hefur verið í stjóm þess frá upphafl og ritstjóri Hugvita, fréttabréfs hugvitsmanna, frá 1989. Ormur kvæntist 7. október 1944 fyrri konu sinni, Huldu Hrefnu Jó- hannesdóttur, f. 12. ágúst 1923. For- eldrar Huldu: Jóhannes Jóhannes- son, bakari í Hafnarfirði, og kona hans, Jóna Jóhannsdóttir. Ormur og Hulda skildu 1951. Börn þeirra eru: ErhngRafn, f. 15. júní 1941; Ingveldur Erla, f. 15. apríl 1945; Hrafnhildur Ester, f. 16. júní 1948, og Ormur Njáll, f. 28. febrúar 1950. Ormur kvæntist 1. janúar 1958 seinni konu sinni, Sveinbjörgu Jónsdóttur, f. 8. nóvember 1931. For- eldrar Sveinbjargar: Jón Rósmann Jónsson, sjómaður í Stykkishólmi, og kona hans, Magdalena Svanhvít Pálsdóttir. Börn Orms og Svein- bjargar eru: Guðrún Svanhvít, f. 13. desember 1960; Helga María, f. 5. apríl 1962. Aukþess ólust börn Sveinbjargar, Ásdís Móeiður Sig- urðardóttir, f. 2. janúar 1951, og Ró- bert Rósmann, f. 25. febrúar 1956, upp hjá þeim hjónum. Systkini Orms eru Hrefna, f. 30. mars 1919, saumakona í Rvík, gift Þórði Guð- jónssyni húsasmiði; Ingvar Georg, f. 11. ágúst 1922, vélvirki í Keflavík, kvæntur Ágústu Randrup, umboðs- manni DV í Keflavík; Vilborg, f. 14. febrúar 1924, starfar hjá Pósti og síma í Borgarnesi, ekkja eftir Guð- mund Sveinsson vörubílstjóra; Sverrir, f. 23. október 1925, rafvirki á Landakotsspítala, kvæntur Döddu Sigríði Árnadóttur; Þórir Valdimar, f. 28. desember 1927, húsasmiður í Borgarnesi, kvæntur Júlíönu Hálf- dánardóttur; Helgi Kristmundur, f. 15. ágúst 1929, rafvirki í Rvík, kvæntur Þuríði Huldu Sveinsdótt- ur; Karl Jóhann, f. 15. maí 1931, tækjavörður á Borgarspítalanum, kvæntur Ástu Björgu Olafsdóttur fóstru; Sveinn Ólafsson, f. 23. júní 1933, húsasmiður í Keflavík, kvænt- ur Önnu Pálu Sigurðardóttur, starfsmanni Pósts og síma; Gróa, f. 13. mars 1936, prófarkalesari hjá DV, gift Páh Steinari Bjarnasyni húsa- smiði; Guðrún, f. 23. ágúst 1938, kennari á Hvolsvelli, gift Gísla Kristjánssyni skólastjóra, og Árni Einar, f. 27. maí 1940, húsasmiður í Borgamesi, kvæntur Halldóru Marinósdóttur. Foreldrar Orms voru Ormur Ormsson rafvirkjameistari, raf- veitustjóri í Borgarnesi, og kona hans, Helga Kristmundardóttir. Meðal föðurbræðra Orms voru Jón og Eiríkur, stofnendur fyrirtækisins Bræðurnir Ormsson, og Ólafur, fað- ir Orms, formanns Kvæðamannafé- lagsins Iðunnar, fóður Ólafs, rithöf- undar í Rvík. Ormur var sonur Orms, b. á Kaldrananesi í Mýrdal, Sverrissonar, b. á Grímsstöðum, Bjarnasonar. Móðir Sverris var Vil- borg Sverrisdóttir, systir Þorsteins, afa Jóhannesar Kjarvals. Móðir Orms Sverrissonar var Vilborg Stígsdóttir, b. í Langholti, Jónsson- ar, bróður Jóns, prests í Miðmörk. Móðir Orms Ormssonar var Guðrún Ólafsdóttir, systir Sveins, föður Ein- ars Ólafs prófessors, föður Sveins, dagskrárstjóra hjá Sjónvarpinu. Guðrún var dóttir Ólafs, b. á Eystri- Lyngum, Sveinssonar, Ingimundar- sonar. Helga var dóttir Kristmundar, sjó- manns í Vestmannaeyjum, Árna- sonar, í Berjanesi undir Eyjaljöll- um, Einarssonar. Móðir Helgu var Þóra Einarsdóttir, b. í Ormskoti undir Eyjafjöllum, Höskuldssonar, Ormur Guðjón Ormsson. og konu hans, Gyðríðar Jónsdóttur, prests í Miðmörk undir Eyjafjöllum, Jónssonar. Móðir Gyðríðar var Þóra Gísladóttir, b. á Lambafelli undir Eyjafjöiluni, Eiríkssonar, og konu hans, Gyðríðar Jónsdóttur, b. í Vest- mannaeyjum, Nathanaelssonar, skólastjóra á Vilborgarstöðum í Vestmannaeyjum 1760-1761 ogef til vill lengur, meðan hann starfaði, Gissurarsonar, prests á Ofanleiti í Vestmannaeyjum, Péturssonar. Móðir Nathanaels var Helga Þórð- ardóttir, prests á Þingvöllum, Þpr- leifssonar, b. í Hjarðardal, Sveins- sonar, bróður Brynjólfs biskups. Móðir Gyðríðar Jónsdóttur var Ragnhildur Jónsdóttir, lögréttu- manns í Selkoti undir Eyjafjöllum, ísleifssonar, ættfóður Selkotsættar- innar. Ormur verður að heiman í dag. Ragnar H. Einksson Ragnar H. Eiríksson rafvirkja- meistari, Háaleitisbraut 153, Reykjavík, verður sextugur á morg- un. Ragnar er fæddur á Hesti í Borgar- firði og ólst þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi í Ingimarsskólan- um í Rvík 1946 og var í námi í raf- virkjun hjá Johan Rönning 1948- 1952. Ragnar vann á Rafmagnsverk- stæði SÍS1952-1954 og vann við raf- verktakastarfsemi með Guömundi Jasonarsyni 1955-1978 og hefur unn- ið hjá Raftækjaheildversluninni ískrafti í Rvík frá 1982. Ragnar kvæntist 1982 Hrafnhildi Baldvinsdóttur, f. 31. ágúst 1942, rit- ara. Foreldrar Hrafnhildar voru Baldvin Sigurðsson, verkamaður i Rvik, og kona hans, Kristín Sigurð- ardóttir. Sonur Ragnars og Hrafnhildar er: Ragnar Heiðar, f. 30. desember 1982. Böm Ragnars af fyrra hjónabandi eru: Stefán Þór, f. 22. september 1958; Anna Sigríður, f. 31. janúar 1961 og Guðrún Jónína, f. 18. októb- er 1962. Börn Hrafnhildar af fyrra hjónabandi em: Kristín Erna, f. 30. október 1960; Baldvin Örn, f. 10. júni 1965 og Helga Þórunn, f. 10. febrúar 1972. Systkini Ragnars eru Guðfmna, f. 16. nóvember 1914, gift Guðmundi Ólafssyni, bifreiðastjóra í Borgar- nesi; Jón, f. 14. mars 1916, fyrrv. skattstjóri á Akranesi, kvæntur Bergþóm Guðjónsdóttur; Stefanía, f. 5. mars 1918, látin, bókavörður á Selfossi; Guðbjörg, f. 4. apríl 1920, látin, gift Alan L. Chase, verkfræð- ingi í New York; Björn, f. 2. febrúar 1922, d. í desember 1966, stýrimaður í Bandaríkjunum, kvæntur Sigrid Eriksson; Ásta, f. 22. júní 1924, gift Friðrik Wathne, verslunarmanni í Rvík; Albert, f. 10. febrúar 1926, lést ungur, og Friðrik, f. 21. júli 1928, yíírbryti hjá íslenskum aðalverk- tökum sf, á Keflavíkuflugvelli, kvæntur Sigríði Þóru Þorvaldsdótt- ur, sem rekur Brauðstofuna Gleym-mér-ei í Rvík. Foreldrar Ragnars voru Eiríkur Albertsson, prestur á Hesti í Borgar- firði, og kona hans, Sigríður Björns- dóttir kennari. Eiríkur var sonur Alberts, b. í Flugumýrarhvammi, Jónssonar. Móðir Alberts var Ingi- björg Jónsdóttir, b. í Miðhúsum, Jónssonar. Móðir Jóns var Abigael Vilhjálmsdóttir, systir Benedikts, afa Jónasar í Hróaldsdal, langafa Jóhanns, föður Kristjáns óperu- söngvara. Móðir Ingibjargar var Ingibjörg Pétursdóttur, systur Bjargar, langömmu Bill Cody, meints föður Ronalds Reagan. Móð- ir Eiríks var Stefanía Pétursdóttir í Djúpadal Guðmundssonar og Berg- þóru Andrésdóttur, systir, sam- mæðra, Sigríðar, móður Jóns Sig- urðssonar, alþingismanns á Reyni- stað.' Móðir Bergþóru var Soffla Gísladóttir, b. á Hofl, Halldórssonar. Móðir Gísla var Þórey Björnsdóttir, systir Jóns, langafa Pálínu, móður Hermanns Jónassonar forsætisráð- herra. Sigríður var dóttir Björns, próf- asts á Miklabæ, Jónssonar, b. í Broddanesi í Kollafirði, Magnússon- ar, b. á Gestsstöðum, Illugasonar, b. í Gröf í Bitru, Illugasonar, b. á Kolbeinsá, Hallssonar, bróður Amdísar, langömmu Guðbjargar, ömmu Stefáns frá Hvítadal. Móðir Björns var Guðbjörg Björnsdóttir, b. á Stóra-Fjarðarhorni, Guðmunds- sonar. Móðir Guðbjargar var Sigríð- ur Jónsdóttir, b. á Þórustöðum í Bitru, Guðmundssonar og konu hans, Valgerðar Jónsdóttur, systur Einars, langafa Ragnheiðar, móður Snorra skálds og Torfa, fyrrv. toll- stjóra, Hjartarsona. Móðir Sigríðar var Guðfinna Jens- dóttir, b. á Innri-Veðrará í Önundar- firði, Jónssonar. Móðir Jens var Margrét Guðmundsdóttir, systir Borgnýjar, langömmu Kristjönu, móður Kristins Sigtryggssonar, for- stjóra Arnarflugs. Móðir Guðfinnu var Sigríður Jónatansdóttir, b. á Vöðlum, Jónssonar og konu hans, Helgu, systur Ólafs, föður Bergs Thorbergs landshöfðingja og Hjalta, langafa Jóhannesar Nordals. Ólafur var einnig langafi Einars Guðfinns- sonar í Bolungarvík. Til hamingju með afmælið 4. ágúst 90 ára Kristín D. Thorarensen, Austurbrún2, Reykjavík. Páil Tómasson, Víkurbraut 32, Vík. 85ára Sigríður Halldórsdóttir, Kjörseyri 1, Bæjarheppi. Sigríðui- B. Sigurðardóttir, Lundargötu 11, Akureyri. Bárður Olgeirsson, Njarðvík. Lilja Þórarinsdóttir, Unnarstíg8, Reykjavík. Hermína Sigurbjörnsdóttir, Hjallabrekku 11, Kópavogi. Sigurður Magnússon, Hnjúki, Sveinsstaðahreppi. Snorri Gíslason, Hammersminni 2. Búlandshreppi. 70ára Guðmundur Kr. Guðmundsson, Miðbraut4, Seltjamamesi. Einar Sigurjónsson, Vogabraut4,Höfn. 60ára____________ Ágúst H. Magnússon, Bergþórugötu 53, Reykjavík. Kristrún Ásgeirsdóttir, Kjarrhólma 22, Kópavogi. Nanna Hlín Pétursdóttir, Kvíabólsstíg 4, Neskaupstað. Ágústa Hannesdóttir, Reykjavíkurvegi 10, Hafnarfirði. 50 ára______________ Óskar Karl Þórhailsson, Baldursgarði 12, Keflavík. Baldvin Einarsson, Kleppsvegi 56, Reykjavík. Guðrún Guðmundsdóttir, Borgarsandi 7, Hellu. 40ára Margrét H. Brynjólfsdóttir, Borg, Reykhólaheppi. Kristinn Kársson, Starrahólum 15, Reykjavík. Harpa Bragadóttir, Selbrekku 2, Kópavogi. Sigríður Kristmundsdóttir, Þverási 29, Reykjavík. Þorkell Sigurðsson, Blikahólum 10, Reykjavík. Ásdís Matthiasdóttir, Bólstaðarhlíð 50, Reykjavík. Páll Halldórsson, Lönguhlíð 15, Reykíavík. Sigmundur Einarsson, Birtingakvísl 19, Reykjavík. Steinþór Tryggvason, Kýrholti, Viðvikurhreppi. Jóhanna Juana Cardenas, Túnbrekku2, Kópavogi. Elísa Tómasson Elísa Tómasson. Ehsa Tómasson, Barmahlíð 49, Reykjavík, verður sjötug á sunnu- daginn. Elísa er fædd í Lubeck í V-Þýskalandi og ólst þar upp. Hún fékk viðurkenningu sem sjúkraliði hjá Rauða krossinum í Luþeck og vann að aðhlynningu sjúkra her- manna í stríðinu. Elísa giftist í Lubeck fyrri manni sínum, Ottó Schmidtbifvélavirkja. SonurEhsu og Ottós er: Horst Schmidt, f. 12. október 1941, deildarstjóri hjá Pósti og síma, kvæntur Edilgard Schmidt, búa þau í Stockelsdorf, útborg Lubeck, og eiga einn son Oliver. Ehsa fluttist til íslands 1949 og vann á Kleppsspítala 1949-1951. Hún vann í afleysingum á Landakotsspítala og var vökukona á Farsóttahúsinu. Elísa var starfsmaður Lyijaverslun- ar ríkisins og vann á Hótel Loftleið- um til 1968. Hún vann í Þvottahúsi Ríkisspítalanna 1968-1969 og vann hjá franska verslunarfulltrúanum 1970-1974, þýska sendiherranum 1974-1981 ogferðaskrifstofu Guð- mundar Jónassonar 1981. Systkini Elísu eru: Else, f. 21. ágúst 1922, býr í Lubeck; Heinrich, f. 19. maí 1925, fyrrv. hjúkrunarmaður í Lubeck og Annie, f. 23. janúar 1938, sjúkraliði og húsmóðir í Lubeck. Ehsa giftist 12. maí 1951 Bjarna G. Tómassyni, f. 20. júní 1907, málaraí Rvík. For- eldrar Bjarna eru: Tómas Kristjáns- son, b. á Gemlufelh í Dýrafirði, og kona hans, Jósefina Jósefsdóttir. Kjördóttir Ehsu og Bjarna er: Guö- rún, f. 8. febrúar 1952, gift Karli Helga Gíslasyni húsasmíðameistara og eiga þau tvær dætur. Foreldrar Elísu voru: Ernst Lex- au, af frönskum ættum, veitinga- maður í Ltibeck, og kona hans, Fríða Lexau. Ehsa verður að heiman á afmælisdaginn. Studioblóm Þönglabakka 6, Mjódd, norðan við Kaupstað, sími 670760 Blómaskreytingar viö öll tækifæri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.