Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990.
Vidskipti
Verðið fer lækkandi
- ekki búist við að verð hækki fyrr en dregur úr sumarhitanum
Verð á fiskmarkaðinum hefur að
undanfomu verið mun lægra en fyr-
ir mánuði. Búast má við að verð fari
ekki hækkandi fypr en hitar fara að
minnka.
Bv. Gullberg seldi afla sinn í
Grimsby 25. júli, alls 80 lestir, fyrir
8 miflj. kr. Meðalverð var 100,53 kr.
kg. Ýsan seldist á 134,35, þorskur á
99,57 kr. kg, koli 94,84, karfi 44,48 og
ufsi 64,37. Blandaður flatfiskur 88,92
kr. kg.
Bv. Börkur seldi í Grimsby 26. júlí
alls 195 lestir fyrir 22 millj. kr. Meðal-
verð 114,73 kr. kg. Þorskur seldist á
122,44 kr. kg, ýsan var á 119,03 kr.
kg, koli 87,86, grálúða 90,52 og ufsi
44,45 kr. kg. Blandaður flatfiskur
60,09.
Bv. Skipaskagi seldi í Hull 26. júlí
alls 905 lestir fyrir 9,9 millj. kr. Með-
alverö 110,05 kr. kg. Þorskur seldist
á 119,25 kr. kg, ýsan var á 159,22 og
koli á 86,27 kr. kg, annaö á lægra
veröi.
Bv. Ólafur Jónsson seldi í Hull ails
264 lestir fyrir 26,9 millj. króna.
Þorskur fór á 107,25, ýsan seldist á
142 kr. kg, karfi á 38,12 kr. kg, úfsi á
54,50, flatfiskur 96,54 og grálúða á
76.72 kr. kg, annar fiskur var á lægra
verði.
Á tímabilinu frá 23.-27. júlí var
seldur fiskur úr gámum alls 1000 lest-
ir fyrir 119,7 millj. kr. Meðalverð var
116,78 kr. kg.
Bv. Viðey seldi afla sinn í Bremer-
haven, alls 246 lestir, fyrir 26 millj.
kr. Meðalverð 105,70 kr. kg. Þorskur
seldist á 102,25, ýsa á 142,12, ufsi 38,01,
karfi 54,50, koli á 96,59, grálúða á
76.73 kr. kg og blandaður flatfiskur
61,25 kr. kg.
Norska ríkið leggur fram 80 millj.
norskra króna til fiskveiðanna. Til
þorskveiða ganga 80 millj. norskra
króna en auk þess fær útgeröin 4
millj. til að greiða vexti og til að
standa undir birgðahaldi til rækjuút-
gerðarinnar. Til sandsíhs- og spærl-
ingsveiða ganga 4 millj. norskra
króna og í haust koma til viðbótar 5
millj. sem verður deilt eftir sérstök-
um- reglum seinni hluta ársins. Til
annarra veiöa ganga 75 millj.
norskra króna. kr. 1,67 millj. fara til
rækjuveiðiflotans á Mæri og Roms-
dal, almennra veiða 10 millj., 20.000
kr. til rækjuveiða á Suður-Mæri og
Romsdal. Til Suöur-Rpmsdal Fisker-
lag fara 5,7 millj. til almennra veiða
og 35.000 til rækjuveiða og að lokum
fá rækjuveiöimenn í Skagerrak 1,67
millj. norskra króna.
Varla meiri fiskveiöiheimiidir
Fullyrt er í Brussel að sameinaö
Þýskaland fái ekki meiri fiskveiði-
heimildir en þýsku ríkin fá nú. Aust-
ur-Þjóðveijum verður hjálpað til að
halda sínum hlut. Alls veiddu Aust-
ur-Þjóðveijar 243.470 tonn, þar af
voru 22.700 tonn veidd á grunn-
miðum. Meirihluti aflans var veidd-
ur í Norðaustur-Atlantshafi eða
59,7%.
Austur-Þjóðveijar hafa stundaö
veiöar vítt og breitt um heimshöfm
og hefur flotanum veriö stjómað frá
Rostock í samvinnu við Sovétflotann.
Rússar hafa séð flotanum fyrir olíu
og fleiru. Floti Austur-Þjóðveija er
44 stórtogarar og verksmiðjuskip og
995 smærri skip. Er sá floti mest-
megnis 12-17 metra skip. Skipum
yfir 100 brt. hefur fækkað frá 1988
um 107.
Ævintýralegt fiskirí
í Barentshafi
Þekktir skipstjórar segja aö ekki
hafi verið önnur eins fiskgengd í
Barentshafi síðan 1946. Tvö færeysk
fiskiskip eru á heimleiö með mikinn
afla, annað þeirra er með 900 lestir
af saltfiski eftir 2 mánuði en hitt er
með 600 tonn af saltfiski eftir 6 vikna
veiðar.
Norðmenn eru útilokaðir frá þess-
um veiöum vegna „mikroskopisk"
kvóta. Norðmenn hafa einnig sagt frá
ævintýralegum fiskgöngum og segja
að fiskleysið sé mest í möppum fiski-
fræðinganna. Fiskurinn er sagður
vera á stóru hafsvæði og margir ár-
gangar á ferðinni. Reyndir norskir
skipstjórar segja aö aldrei hafi veriö
önnur eins fiskgengd á miðunum og
nú.
Fiskaren 25. júlí.
Útflutningur Norðmanna
aldrei meiri
Þrátt fyrir að útgerðarmenn kvarti
hefur aldrei veriö flutt eins mikið út
af fiski og fiskafurðum og nú. Fyrri
hluta þessa árs hafa Norðmenn flutt
út 122.000 lestir af fiski og skeldýrum.
Er þetta aukning í útflutningi um
21,7%. Verðmætið er 2,8 milljarðar
norskra króna sem er aukning um
336 millj. Eins og áður er þaö laxinn
sem þyngst vegur í útflutningnum.
Frá janúar tfl júníloka voru flutt út
45.800 tonn af laxi og laxaflökum en
þetta er 7.500 tonnum meira en flutt
var út á sama tíma á siöastliönu ári.
Laxaútflutningur hefur aukist um
3.500 tonn. Af útflutningi á laxi eru
87% flutt út fersk og 13% frosin.
Meðalverð á laxinum var 37,09
norskar kr. kg.
Mest af laxinum fer til Frakklands,
11.400 tonn, 7.300 tonn til Danmerkur
og 6.100 tonn til Bandaríkjanna. Bæði
Spánn og Vestur-Þýskaland hafa
keypt mun meira en áður og voru
Fiskmarkaðir
Ingólfur Stefánsson
flutt 4.150 tonn til Spánar sem er 85%
aukning frá í fyrra. Útflutningur á
rækju var 12.000 tonn fyrstu 6 mán.
á móti 11.200 tonnum í fyrra. Aðrar
tegundir, sem fluttar eru út, eru
makríll, 17.500 tonn, karfi, 17.500
tonn, af ýsu eru flutt út 2000 tonn,
heilli og flakaðri, ufsaflök og heill
ufsi, 11.000 tonn, 3000 tonn af blá-
lúðu, af lúöu voru flutt út 2100 tonn,
665 tonn af löngu og 474 tonn af
smokkfiski
Enn undirboð
í Madríd
Nokkuð hefur borið á því að und-
anfomu að fiskkaupmenn hafi hætt
við kaup, sem þeir hafa gert, vegna
undirboöa að sagt er. Flutningavagn-
ar hafa stoppað við landamæri Spán-
ar og boðið þar lax á mun lægra verði
en kaupmennimir höfðu samið um
á mörkuðunum.
Helstu fisktegundirnar og sölu-
hæstu eru kolmunni, sardínur og
túnfiskur, auk þess eru ýmsar teg-
undir, bæði skelfiskur og annað,
seldar er á markaðnum. Söluhorfur
á laxi em mjög slæmar um þessar
mundir. Kemur þar einkum til að
hitar hafa verið miklir að undan-
förnu.
New York
Sumarstemmning á Fultonmark-
aðnum. Það kemur fyrir að sending-
ar af fiski glatast í flutningum á leið
til markaðarins. Þannig töpuðust 300
kassar af laxi frá Noregi og það sem
verra var að sending frá Chile tapað-
ist einnig. Við þetta vænkaðist held-
ur sala hjá þeim sem höfðu lax að
bjóða á markaðnum en það var eink-
um íslenskur lax sem um var að
ræða. Oftast er mest framboð frá
Noregi og var meðalverð á laxi á síð-
asta ári um 370 kr. kg.
Norðmenn telja að norskur lax sé
oftast á um 30 sentum hærra verði
en kanadískur.
Búist er við að Kyrrahafslax fari
að berast á markaðinn hvað úr
hveiju og verður þá erfitt að selja
allan þann lax sem kann að berast.
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6 mán. uppsögn 4-5 Ib.Sb
12mán.uppsögn 4-5,5 lb
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innián verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsögn 2.5-3.0 Lb.Bb,- Sb
Innlán meðsérkjörum 2,5-3,25 Ib
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýskmörk 6,75-7,5 Lb
Danskar krónur 9,25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viðskiptavixlar(forv.) (1) kaupgengi
Almenn skuldabréf 14,0 Allir
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 16,5-17,5 Bb
Utlan verðtryggð
. Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Utlántilframleiðslu
Isl.krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb
Sterlingspund 16.8-17 Sp
Vestur-þýsk mörk 9.9-10,5 Bb
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. júní 90 14,0
Verðtr. júni 90 7.9
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala ágúst 2925 stig
Lánskjaravísitala júlí 2905 stig
Byggingavísitala ágúst 550 stig
Byggingavisitala ágúst 171,9 stig '
Framfærsluvisitala júli 146,4 stig
Húsaleiguvisitala hækkar 1,5% l.júll.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 5,020
Einingabréf 2 2,734
Einingabréf 3 3,303
Skammtimabréf 1,696
Lífeyrisbréf
Gengisbréf 2,177
Kjarabréf 4,969
Markbréf 2,644
Tekjubréf 1,997
Skyndibréf 1.483
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,417
Sjóðsbréf 2 1,780
Sjóðsbréf 3 1,686
Sjóðsbréf 4 1,435
Sjóðsbréf 5 1,013
Vaxtarbréf 1,7065
Valbréf 1,6045
Islandsbréf 1,041
Fjórðungsbréf 1,041
Þingbréf 1,039
öndvegisbréf 1.038
Sýslubréf 1.042
Reiðubréf 1.028
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 488 kr.
Flugleiðir 191 kr.
Hampiðjan 170 kr.
Hlutabréfasjóður 162 kr.
Eignfél. Iðnaöarb. 164 kr.
Eignfél. Alþýðub. 126 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf. 162 kr.
Eignfél. Verslunarb. 138 kr.
Oliufélagið hf. 515 kr.
Grandi hf. 184 kr.
Tollvörugeymslan hf. 107 kr.
Skeljungur hf. 546 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Gámasölur 30. - 31. júlí
Sundurliðun eftir tegundum: Selt magn kg Verðí erl. mynt Meðalverð kg Söluverð isl. kr. Kr. kg
Þorskur 299.972.50 365.905,80 1,24 38.998.809,49 132,66
Ýsa 123.710,00 177.729,80 1,44 18.941.825,69 153,11
Ufsi 10.267,50 5.232,80 0,51 557.671,67 54,31
Karfi 9.808,75 8.214,00 0,84 875.384,13 89,25
Koli 73.955,00 71.641,10 0,97 7.636.328,59 103,26
Grálúða 29.250,00 29.276,40 1,00 3.120.412,39 106,68
Blandað 37.982,25 45.252,80 1,19 4.823.249,16 126,99
Samtals 578.946,00 703.250,90 1,21 74.953.595,86 129,47