Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990.
9
Kuwait
Höfuðborg: Kuwaitborg.
íbúafjöldi: 1,9 milljónir en aðeins 40
prósent eru innfædd.
Trúarbrögð: í Kuwait búa margir af
írönsku bergi brotnir, margir þeirra
eru shíta-múhameðstrúar. Múham-
eðstrúarmenn eru um 95 prósent
þjóðarinnar og eru flestir Arabamir
sunnítar.
Svæði: Kuwait nær yfir 18.000 fer-
kilómetra svæði. Að norðan hggja
landamærin að írak og að sunnan
og vestan að Saudi-Arabíu. Að aust-
an liggur landið að Persaflóa.
írak
Höfuðborg: Bagdad.
íbúaflöldi: 17,2 milljónir. Arabíska
er opinbert tungumál íraka og talar
hana mikill meirihluti íbúanna. í
norðausturhluta landsins búa Kúrd-
ar sem eru í minnihluta, um 15,5
prósent þjóðarinnar.
Trúarbrögð: Flestir íbúanna eru
múhameðstrúar, Shítar eru eilítið
fleiri en sunnítar sem þó hafa í ár-
anna rás stjórnað írak.
Svæði: írak er alls 434.924 ferkíló-
metrar að stærð. Landamærin að
austan hggja að íran, að Saudi-
Arabíu og Kuwait að sunnan, að
Jórdaníu og Sýrlandi að vestan og
að Tyrklandi að norðan.
Herafli: Hátt í mihjón manna landher
sem hefur á að skipa 4500 skriðdrek-
um. í flughernum eru fjörutíu þús-
und manns og fimm hundruð stríðs-
flugvélar. í sjóhemum er fimm þús-
und manna herlið, fimm herskip, 38
varð- og strandgæsluskip og átta
tundurduflaskip. Auk hins hefð-
bundna herafla er í írak 4800 manna
landamæragæslusveit.
Efnahagur: írak á aht sitt undir ohu-
útflutningi og reiðir sig á hann til að
afla erlends gjaldeyris. Landsfram-
leiðsla árið 1985 nam 46,8 mihjörðum
dohara og hafði þá dregist saman um
tvö prósent á ári síðustu fimm árin
á undan. Helstu atvinnugreinar eru
ohu- og gasvinnsla, námavinna, sjáv-
arútvegur og landbúnaður. Erlendar
skuldir um mitt ár 1989 voru ýmist
metnar á 65 mihjarða dollara eða 80
mihjarða dohara.
Stjórnarfar og saga: írak hlaut sjálf-
stæði frá Bretum árið 1932. Saddam
Hussein, forseti og einvaldur í írak,
tók við forsetaembættinu árið 1979.
Hann er félagi í Baath-flokknum sem
steypti borgaralegri stjórn af stóli
árið 1968. Það ár komst til æðstu
valda Ahmed Hassan Al-Bakr og var
Saddam Hussein í fyrstu gerður að
varaforseta.
Árið 1980 réðst írak inn í íran og
lagði fram kröfu um yfirráð yfir
Shatt-al-Arab sighngaleiðinni. Inn-
rásin varð kveikjan að Persaflóa-
stríðinu, lengsta og blóðugasta stríði
í sögu Miðausturlanda. Því lauk árið
1988 en þá hafði ein mUljón manna
týnt lífi. í ágúst 1988 tók gildi vopna-
hlé en friðarviðræður hafa aftur á
móti ekki borið árangur. Utanríkis-
stefna íraks hefur einkennst af
ágreiningi við nágrannaríkin, sér-
staklega Saudi-Arabíu. Tengslin við
Kuwait, sem írak réðst inn í að
morgni fimmtudags, hafa verið stirð
vegna deUna um ohusvæði á um-
deUdum landamærum ríkjanna.
Reuter og TT
Herafli: 20.300 menn eru í herhði
Kuwait. Breskir skriðdrekar eru
undirstaða sextán þúsund manna
landhers sem skiptist í tvær stór-
sveitir: Önnur er tvískipt, annars
vegar landgönguliðssveit, búin
vélknúnum ökutækjum og hins veg-
ar stórskotaliðssveit. Hin stórsveitin
hefur yfir að ráða eldflaugum. í flug-
hernum eru 2200 hermenn og 36
stríösflugvélar og átján þyrlur. I sjó-
hernum, sem heyrir undir innanrík-
isráðuneytið, eru 2100 hermenn og
hafa þeir yfir að ráða átta árásarskip-
um, þar af sex vopnuðum flugskeyt-
um.
Efnahagur: íbúar Kuwait hafa ein-
hverjar hæstu tekjur á hvert manns-
barn allra ríkja í heiminum að mati
stjórnarerindreka eða 13.100 dohara
á mann árið 1985 þegar tilht er tekið
til landsframleiðslu. Hrunið mikla á
verðbréfamörkuðum í Kuwait árið
1982 kastar enn skugga á efnhagslíf
þjóðarinnar en það hafði í för með
sér skuldasöfnun upp á 95 mihjarða
dollara. Þótt ríkið hafi saxað mjög á
þá skuldasöfnun á enn eftir að gera
upp stærri skuldir.
Stjórnarfar og saga: Kuwait varð
sjálfstætt ríki árið 1961 en þar hefur
konungsætt ráðið ríkjum í 240 ár.
Emír Jaber al-Ahmed al-Sabah,
þrettándi þjóðarleiðtogi þeirrar kon-
ungsættar, tók við völdum 1977.
Fljótlega eftir að Kuwait varð sjálf-
stætt gerðu írakar tilkall til landsins
á þeim forsendum að það hefði verið
hluti íraks. Árið 1963 viðurkenndi
írak sjálfstæði Kuwait en ríkin hafa
aldrei gert formlegan landamæra-
samning og hafa löngum deilt þar
um.
Utanríkisstefna Kuwait er hlutlaus
en hefur þó veriö talin höll undir
hófsamari Arabaríki, með Saudi-
Arabíu í broddi fylkingar, æ síðan
Camp David-samkomulagið var und-
irritað. í júní á þessu ári heimilaði
emírinn kosningar th 75 sæta þjóðar-
ráðs en verkefni þess næstu fjögur
ár er að leggja fram tillögur um fram-
tíðarskipan landsins, grundvallaðar
álýðræði. Reuter
Útlönd
Það er engirs ástæða til að húka heima
hjá okkur er ótrúlegt úrval myndbanda.
Næg t jaldstæði og ókeypis inn á svæðið
ÚTG. í ÁGÚST
ÚTC. í AGÚST
KtSMRff
Pamitluxxi
ÚTG. í AGIÍST
HEIMSOKN
I‘JiJJjjJj M