Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990. Helgarskák Garrí Kasparov og Anatoly Karpov munu enn setjast að tafl- borðinu í október og heyja fimmta einvígið sín á milli um heimsmeist- aratitilinn. Þótt sumir séu orðnir langþreyttir á vopnaskiptum þeirra eru þó fleiri sem bíða ein- vígisins með eftirvæntingu. Er ekki komið að því að þeir geri út um það í eitt skipti fyrir öll hvor þeirra er sterkari? Meistaramir búa sig nú undir slaginn, hvor með sínum hætti. Karpov hefur tekið þátt í allmörg- um mótum til að liöka sig, reyndar með ærið misjöfnum árangri miðað við hver í hlut á. Nú teflir hann í Biel í Sviss og þar hefur hann hins vegar farið vel af stað og var efstur síðast er spurnir bárust. Kasparov hefur sett upp æfinga- búðir á Spánarströnd, nálægt bæn- um Murcia þar sem atskákmótið mikla var haldið í júni. Hann hefur tekið á leigu enskt sveitasetur og hyggst dvelja þar til haustsins ásamt fríðu föruneyti. Eins og kunnugt er af fréttum tók heims- meistarinn þann kostinn að flýja heimaborg sína, Bakú, vegna óvissuástandsins sem þar er. Og í Moskvu vill hann ekki vera - segist ekki geta einbeitt sér í borg þar sem ekkert er að fá. Kasparov hefur lítið haft sig i frammi á skákmótum síðustu mán- uði en í lok júlí sendi hann eftir stórmeistaranum Lev Psakhis og tefldi við hann sex skáka æfinga- einvígi í Murcia. Psakhis er sovésk- ur stórmeistari, frá Krasnojarsk í Síberíu, en hefur nú flust búferlum ásamt fjölskyldu sinni til landsins helga. Það er athyghsvert að Kasparov skuii velja sér hann sem mótherja. Það, ásamt því að heims- meistarinn skuh vinna að rann- sóknum sínum á Spáni, sýnir í, hnotskum uppreisnarhug hans gagnvart sovéska kerfinu. í annan stað þykir Kasparov e.t.v. kominn tími til rétta hlut sinn gegn Psakhis. Á skákþingi Sovétríkj- anna 1981 defidu þeir með sér sigr- inum og vora báðir útnefndir skák- meistarar Sovétríkjanna, án þess þeir tefldu um titiUnn. í innbyrðis skák þeirra á mótinu vann Psakhis mikUvægan sigur. Heimsmeistarar eiga það til að vera lengi að fyrir- Kasparov undirbýr sig af krafti fyrir heimsmeistaraeinvígið og hefur sett upp æfingabúðir á Spánarströnd, nálægt bænum Murcia þar sem atskákmótið mikla var haldið i júní. Drottningarpeðsbyijun 1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. g3 b5 4. Bg2 Bb7 5. Bg5 Be7 6. (M) Ra6 7. Rbd2 c5 8. c3 cxd4?! Þaö er spurning hvort þessi upp- skipti eiga rétt á sér eftir að riddar- inn er kominn út á jaðarinn. Þekkt er 8. - 0-0 9. e3 Hb8 10. a3 Re4 og svartur jafnaði taflið í skák Petro- sjans og Portisch frá 1976 en hætt er við að Kasparov hefði teflt hvítu stöðuna af meiri þrótti. 9. cxd4 h6 10. Bxf6 Bxfb 11. a4! b4 12. Rb3 0-0 13. Dd3! d5 Ömurlegur leikur því að nú lokar hann fyrir biskup sinn á b7. Svarta staðan væri í lagi ef hann gæti leik- ið d7-d6 og komið síðan riddaran- um á d7. Nú væri 13. - d6?? hins vegar grófur afleikur vegna 14. Rg5! Bxg515. Bxb7 og hvítur vinnur Uð. Sömuleiðis eftir 13. - Hb8 14. e4! væri riddari svarts iUa settur og hvíta staðan lofaöi góöu. 14. Hfcl Db6 15. Db5 Hac816. e3 Rb8 17. Bfl Hfd8 18. h4 g6 Hugsanlega var 18. - Ba6 betri tilraun þótt svartur sé ekki öfunds- verður af stöðunni. 19. Rc5 Bc6 20. Dd3 Ba8 Nú þrengist enn að svarta taflinu en 20. - a5 21. Rb3 og síðan 22. Hc5 var heldur ekki fagurt. 21. a5 Dd6 22. Db5! i*II á í m iill k A H A A A S m ABCDEFGH 22. - Kg7 Psakhis kýs heldur að fórna peði en lenda í 22. - Rc6 23. a6! Hb8 24. Rb7 með yfirburðatafli á hvítt. 23. Dxb4 Rc6 24. Dd2 e5 25. b4 He8 26. Ha3 exd4 27. Rxd4 Re5 28. Hac3 Hcd8 29. Bg2 Kg8 30. Hdl Rc4 31. Dc2 De7 32. h5! Drottningarvængurinn í rúst og þá er röðin komin að kóngsvængn- um! Heimsmeistarinn býr sig undir átök haustsins: Psakhis veitti lítið viðnám - Kasparov sigraði auðveldlega í æfingaeinvígi þeirra í Murcia gefa slíkt en nú var stund hefndar- innar loks runnin upp! Og Psakhis var eins og bráðið smér í höndum heimsmeistarans. I sex skákum tókst honum aðeins tvisvar smnum að ná jafntefli en flórum sinnum varð hann aö gefast upp. Sigur Kasparovs var afar sannfærandi og bendir til þess að hann sé enn að bæta við sig á skák- borðinu, þrátt fyrir að hann hafi að undanfómu eytt drjúgum tíma í ýmis óskyld málefni. Fyrstu skákinni tapaði Psakhis eftir ómerkilega yflrsjón snemma í miðtaflinu sem kostaöi peð. Næsta skák varð jafntefli eftir slaka tafl- mennsku af beggja hálfu og í þriðju skákinni varð aftur jafnt. Er þar var komið sögu virtist Psakhis eiga í fullu tré við heimsmeistarann en það var flótt að breytast. Kasparov náði óskastöðu eftir byrjunina í flórðu skákinni og leiddi hana mjög sannfærandi til sigurs og þá var eins og Psakhis brotnaði. Kasparov klykkti út með sigri í fimmtu og sjöttu skák og lokatölur urðu 5-1, heimsmeistaranum í vil. Lítum á tvær skákir úr einvíginu. Yfirsjón Psakhis í fyrstu skákinni og síðan flórðu skákina sem var best teflda skák heimsmeistarans í einviginu. Fyrsta cinvigisskákin Hvítt: Lev Psakhis Svart: Garrí Kasparov Kóngsindversk vörn 1. c4 g6 2. e4 Bg7 3. d4 d6 4. Rc3 Rf6 5. f3 0-0 6. Be3 Rbd7 7. Bd3 c5 8. Rge2 cxd4 9. Rxd4 e6 10. 0-0 d5 11. exd5 exd5 12. B£2 Re5 13. c5 Rfd7 14. Be2 Rxc5 15. Rdb5 b6 16. Rxd5 Bf5 17. Rd4 Bd3! 18. Bxd3 Dxd5 19. Bc2 Had8 20. De2 Hfe8 21. Hfel? 1 k I ii k k k A &&É. ÉL A A s s & ABCDE FGH 21. - Rxf3+ 22. Dxf3 Hxel+ 23. Hxel Bxd4 Þar meö er peð fallið og eftirleik- urinn reynist heimsmeistaranum auðveldur. Ekki er ljóst hvað Psak- his sást yfir því að 24. He8+ Kg7, leiðir ekki til ávinnings á hvítt og Skák Jón L. Árnason svartur á meira að segja enn snjall- ari leið: 24. - Hxe8! 25. Dxd5 Hel mát! 24. Dxd5 Hxd5 25. He2 Gefur annað peð og vonast til að „mislitir" biskupar auki jafnteflis- líkumar. Svo er ekki. 25. - Bxb2 26. Bxc5 Hxc5 27. g3 b5 28. Kg2 Be5 29. Bb3 a5 30. Hf2 Hc7 31. He2 Bc3 32. He8+ Kg7 33. Hb8 a4 34. Bd5 Hc5 35. Be4 b4 36. Bc2 Og Psakhis gafst upp um leið, áöur en Kasparov fékk færi á 36. - Be5 og vinna mann. Fjórða einvígisskákin Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Lev Psakhis 32. - gxh5 33. Rf5 De5 34. Rxh6+ Kg7 35. Rf5+ Kh8 36. Hd4! Býður upp á skiptamunarfórn til að viðhalda frumkvæðinu. Takið eftir hvað biskup svarts á a8 má sín lítils. Vitaskuld var 36. Rd4 einnig mögulegt (til að halda sjón- línu biskupsins kirfilega lokaðri) en textaleikurinn er beittari. 36. - Rd6 37. Rxd6 Dxd6 38. Hf4 Bxc3 39. Dxc3+ Kg8 40. Bf3 He5 41. Dd4 De7 Biðleikurinn. Svartur getur sig hvergi hrært og kemst í fyrstu hrinu ekki hjá því að tapa peðinu á h5. Hvítur hefði þá tvö peð fyrir skiptamun, rífandi sókn að auki og vart þyrfti að spyija að leikslokum. Hins vegar kom á óvart hve Psak- his tapaöi taflinu snöggt. 42. Hh4 Df6? 43. Hxh5 Og Psakhis gafst upp.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.