Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Page 22
22
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990.
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990.
35
Iþróttir
Iþróttir
Þorgrímur Þráinsson kemur aftur inn í landsliöið eftir langa fjarveru.
Þrír nýliðar í
landsliðshópnum
Þaö eru þrír nýliðar í íslenska
landsliðshópnum sem mætir lands-
liði Færeyja í vináttulandsleik í
knattspymu í Þórshöfn í Færeyjum
8. ágúst. Þeir eru Antony Karl Greog-
ory úr Val, Steingrímur Birgisson
úr KA og Tómas Ingi Tómasson frá
ÍBV. Bo Johansson landshðsþjálfari
hefur vahð þá 16 leikmenn sem
munu leika gegn Færeyjum og lítur
hópurinn þannig út að meðtöldum
landsleikjum:
Bjami Sigurðsson, Val...
...33
Markverðir
Birkir Kristinsson, Fram.
....4
Aðrir leikmenn
Sævar Jónsson, Val.............55
Þorgrímur Þráinsson, Val........13
Atli Eðvaldsson, KR.............61
Kristján Jónsson, Fram..........11
Ormarr Örlygsson, KA.............7
Steingrímur Birgisson, KA........0
Pétur Ormslev, Fram.............35
Rúnar Kristinsson, KR...........13
Andri Marteinsson, FH............2
Aðalsteinn Aðalsteinsson.Víkingi ...2
Amór Guðjohnsen, Anderlecht.....30
Antony Karl Gregory, Val.........0
Pétur Pétursson, KR............40
Tómas Ingi Tómasson, ÍBV.......0
Auk nýhðanna þriggja eru leik-
menn í hópnum sem leika með lands-
liðinu eftir nokkurt hlé. Þeir em
Þorgrímur Þráinsson, Val, Aðai-
steinn Aðalsteinsson, Víkingi, og
Andri Marteinsson úr FH.
Landsliðshópurinn heldur út th
Færeyja þriðjudaginn 7. ágúst og
daginn eftir kl. 19 fer leikurinn fram
í Þórshöfn. Liðiö kemur síðan heim
fimmtudaginn 9. ágúst.
-GH
Tveir leikmenn úr ÍBV voru
úrskurðaðir í leikbann á fundi
aganefndar í vikunni Jón Bragi
Amarsson, fyrirhöi ÍBV, fékk
eins leiks bann vegna brottvís-
unar og Tómas Ingi Tómasson
var sömuleiðis úrskurðaöur í
eins leiks bann vegna fjögurra
gulra spjalda. Þeir leika því ekki
með félagi sínu gegn FH-íngum
laugardaginn 11. ágúst. Þá voru
tveir leikmenn úr 2. deild úr-
skurðaöir í bann. Ómar Torfason,
þjálfari og leikmaður Leifturs, og
Páll Björnsson úr Grindavík.
Vésteinn og Sigurður
í öðru sæti í Danmörku
Vésteinn Hafsteinsson kringlu-
kastari hafnaði í öðm sæti í
kringlukasti á fijálsiþróttamóti í
Arósum i Danmörku í fyrrakvöld
þegar hann kastaöi 59,22 metra.
Þá hafnaði Sigurður Matthíasson
i ööru sæti í spjótkastskeppninni
á sama móti þegar hann þeytti
spjótinu 76,64 metra. í fyrsta sæti
varð Sovétmaður en hann kastaði
spjótinu 80 metra.
Svíar ráða þjálfara
Sænska knattspymusambandið
ákvaö á fundi sinum í fyrrdag að
ráða Tommy Svensson landshðs-
þjálfara Svíþjóðar í knattspyrnu,
eftir að Ohe Nordin hafði verið
sagt upp störfum vegna slaks ár-
angurs Svía í heimsmeistara-
keppninni í knattspyrau. Svens-
son sem er 45 ára, lék 45 lands-
leiki í knattspyrnu fyrir Svíþjóö
á árunum 1967 til 1973. Hann er
nú þjálfari norska 1. dehdar hðs-
ins Tromso og eftir aö keppnis-
tímabilinu í Noregi lýkur mun
hann snúa sér alfarið að sænska
land8liðinu. Næsta stórverkefni
þess er Evrópukeppni iandshða
en úrslitakeppnin fer fram í Sví-
þjóð árið 1992.
Johnson ætlar
að slá Lewis við
- stefnir á heimsmet í Tokýo
Kanadíski spretthlauparinn Ben
Johnson, sem dæmdur var í tveggja
ára keppnisbann eftir að hann féll á
lyfjaprófi á ólympíuleikunum í Seo-
ul, segir að hann muni ekki hefja
keppni fyrr en á næsta ári þó svo að
bannið renni út 24. september í
haust. Johnson þarf þó einnig sam-
þykki kanadísku ríkisstjómarinnar
og er búist við að hún gefi grænt ljós
þann sama dag og bannið rennur úr
ghdi.
„Það yrði hneyksh ef þeir fram-
lengdu bannið,“ sagði Johnson í við-
tali við franskt dagblað.
„Markmið mitt er að vinna til guh-
verðlauna á heimsmeistaramótinu í
Tokýo í Japan og á ólympíuleikunum
í Barcelona,"
Johnson setti nýtt heimsmet þegar
hann hljóp 100 metrana á 9,79 sek-
úndum á ólympíuleikunum í Seoul
en það var dæmt óght eftir að hann
féh á lyfjaprófinu. Carl Lewis á nú-
gildandi heimsmet sem er 9,92 sek-
úndur.
„Ég ætla mér aö slá heimsmet Lew-
is og þá hugsanlega á heimsmeistara-
mótinu í Japan. Eg er fljótasti hlaup-
ari í heiminum hvort sem lyf eru í
sphinu eða ekki,“ sagði Ben Johnson.
-GH
Valsstúlkumar
í úrslitaleik
Valsstúlkumar tryggðu sig í úrslit
í bikarkeppni kvenna er þær unnu
Þórsara, 1-0, í gærkvöldi. Guðrún
Sæmundsdóttir skoraði sigurmark
Valsara í síðari hálfleik.
Nokkrir leikir voru háðir í 4. deild-
inni í gærkvöldi og í fyrrakvöld.
• TBR tapaði á heimavelh fyrir
Höfnum, 1-3, í gærkvöldi. Gunnar
Björgvinsson skoraði fyrir TBR en
Hahgrímur Sigurðsson skoraði öll
þrjú mörk Hafna.
• í fyrrakvöld guhtryggði Grótta
sig í úrshtin meö 4-1 sigri á Fjölni.
Kristján Pálsson gerði tvö mörk fyrir
Gróttu og Kjartan Steinsson og Bem-
harð Petersen eitt hvor. Mark Fjölnis
gerði Finnur Leifsson.
• Finnur Thorlacius var í marka-
stuði og gerði 6 mörk þegar Víkverjar
möluðu Augnablik, 12-1. Níels Guð-
mundsson gerði 4 mörk og Sigurður
Björnsson og Magnús Magnússon
eitt hvor. Jón Ólason geröi eina mark
Augnabliks.
Hattarmenn unnu 4-1 sigur á KSH
á Eghsstöðum. Hilmar Gunnlaugs-
son, Haraldur Clausen og Kjartan
Guðmundsson skoruðu mörk Hattar
en Helgi Arnarsson eina mark KSH.
• Stjarnan og Neisti frá Djúpavogi
gerðu 2-2 jafntefh. Björgvin Þóröar-
son og Jóhann Jónatansson skoruðu
fyrir Stjömuna en Ómar Bogason
gerði mörk Neistans.
• Neisti frá Hofsósi vann Hvöt,
1-0, og geröi Magnús Jóhannesson
eina mark leiksins.
• Kormákur vann Þrym, 3-1, á
Hvammstanga. -RR/MJ
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn:
„Nú veröur bara aö berjast á
morgun til að reyna að ná Karen
en hún er erfið við að eiga,“ sagði
Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR
eftir að keppni lauk í roeistara-
flokki kvenna á landsmótinu í
gær.
Ragnhhdur lék á 79 höggum í
gær eða einu höggi yfir gamla
vallarmetinu sínu sem Karen
Sævarsdóttir, GS, bætti i fyrra-
dag. En þetta dugði lítið því Kar-
en gerði sér htið fyrír og lék á 76
höggtim og bætti því vallarmetiö
enn um eitt högg. Hún hefur nú
6 högga forustu þegar mótið er
hálfnað og röð þeirra efstu er
þessi:
1. Karen Sævarsdóttir, GS,...153
2. Ragnhildur Sigurðard., GR, 159
3. Þórdis Geirsdóttir, GK,...166
4. Kristín Pétursdóttir, GK, ....170
5. ÁrnýL.Ámadóttr.GA,........174
• 18. holan á Jaðarsvellinum er glæsileg. Myndin var tekin á landsmótinu og er golfskálinn í baksýn. Á
18. fiötinni fagnar verðandi íslandsmeistari sigri á morgun. Hver það verður veit nú enginn og vandi er
um slíkt að spá. DV-mynd GK
Sigurjón og
Ragnar sauma
að meistaranum
• Karen Sævarsdóttir, GS, setti
nýtt vallarmet í gær.
DV-mynd GK
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Ef veðrið verður gott áfram vinnst þetta mót á tals-
vert innan við 290 höggum og þá hggur það ljóst
fyrir hvað maður þarf að gera. Það er ekki á hverjum
degi sem maður nær að taka tvö högg af Úlfari en
sennhega verður það þriðji hringurinn sem ræður
því hverjir verða í fremstu röð,“ sagði Ragnar Ólafs-
son, GR, eftir að keppni í meistaraflokki lauk á lands-
mótinu á Akureyri í gær.
Ragnar lék á einu höggi undir pari í gær eins og
Sigurjón Arnarsson, félagi hans úr GR. Þeir vom á
70 höggum en Úlfar Jónsson, GK, sem hafði þriggja
högga forustu eftir fyrsta daginn, lék í gær á 72 högg-
um. Forskot hans er nú aðeins eitt högg á Sigurjón
og þijú á Ragnar.
„Ég spilaði mjög gott golf í dag, púttin duttu hjá
mér og það var helsti munurinn á okkur Úlfari. Eg
fer jákvæður í framhaldið enda slæ ég vel þessa
dagana og treysti mér til þess að vera áfram á þessu
róh,“ sagði Sigurjón í gær.
Það stefnir sem sagt í hörkukeppni og hörkuárang-
ur. Ekki þyrfti að koma á óvart þótt mótið myndi
vinnast á um 280 höggum og nær fullvíst má telja
að 284-288 nægi til sigurs og væri það þá besti árang-
ur sem náðst hefur á landsmóti. En eftir tvo keppnis-
daga er röð efstu manna í meistaraflokki karla þessi:
1. Úlfar Jónsson, GK........................142
2. Siguijón Arnarsson, GR...................143
3. RagnarÓlafsson,GR........................145
4. -5. Arnar Már Ólafsson, GK...............148
4.-5. HjaltiPálmason,GR.....................148
6. Guðm. Sveinbjömss., GK...................150
7. -10. BjörgvinSigurbergss.,GK.............152
7.-10. Sigurður Sigurðss., GS...............152
7.-10. TryggviTraustason,GK.................152
7.-10. ViggóH. Viggósson,GR.................152
Ulfar
er með
forqjöf
Gyifi Khstjánssan, DV, Akureyri:
• Sigurjón Arnarsson, GR, lék á 70 höggum í gær
og er í öðru sæti. Hér er hann með föður sínum
og kylfusveini, Arnari Guðmundssyni. DV-mynd GK
Úlfar Jónsson, sem
stendur í því þessa dag-
ana að verja íslands-
meistaratitil sinn í goifi
á Akureyrí, er kominn með forgjöf
sem íslenskur kylfingur hefur ekki
skartað áður.
Úlfar hefur í langan tima verið
forgjafarlægstur íslenskra kylfinga
og verið með í kringum 0 í forgjöf.
Uppá síðkastið hefur hann lækkað
forgjöf sína ört, fyrst á Norður-
landamótinu í Noregi og einnig
báða keppnisdagana á Akureyri
þaðsemafer landsmótinu. Forgjöf
hans er nú orðin + 2,3. Það vekur
hins vegar athygh að þótt Úlfar
hafi verið að lækka forgjöí’ sína á
Akureyri í gær og fyrradag þá hef-
ur hann ekki náð að stinga aðra
keppendur af, og er aðeins höggi á
undan Sígurjóni Arnarssyni, GR.
Siguijón hefur einmitt verið að
höggva verulega af forgjöf simú á
Akureyri og er nú með næst lægstu
forgjöf hér á landi, 0,6.-
• Úlfar Jónsson - + 2,3 í for-
Ql'öf-
Rakel og Sigurður eru best
- mjög spennandi keppni í 1. flokki karla og kvenna
Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyii
Keppnin í 1. flokki á landsmótinu
í golfi er ekki síður jöfn og
skemmtileg en í meistaraflokki og
úrslitin hvergi nærri ráðin.
Sigurður H. Ringsted, GA, sem
haíöi fomstu eftir fyrsta daginn,
jók hana í 4 högg í gær, en það má
greinilega lítið út af bera og margir
era meira en fúsir að narta í hæl-
ana á honum.
• í 1. flokki kvenna skaust Rakel
Þorsteinsdóttir, GS, í efsta sætið og
hefur þriggja högga forastu sem er
reyndar ekki mikið þegar 36 holum
er ólokið. Röö efstu manna i 1.
flokki er sem hér segir:
1. Sigurður H. Ringsted, GA, 150
2. Ólafur Gylfason, GA, 154
3. Áki Harðarson, GA, 156
4. -6. Einar B. Jónsson, GKJ, 157
4.-6. Amar Baldursson, GÍ, 157
4.-6. Rósant Birgisson, GL, 157
• Eins og sjá má er skor manna í
1. flokki mjög gott og gætu margir
meistaraflokksmenn verið ánægðir
með ofangreindar tölur.
Röðin hjá konum í 1. flokki:
1. Rakel Þorsteinsdóttir, GS, 175
2. Jónína Pálsdóttir, GA, 178
3. Guðbjörg Sigurðard., GK, 179
4. Erla Adolfsdóttir, GG, 181
5. Áslaug Stefánsdóttir, GA, 183
• Kylfingar á landsmótinu i golfi á Akureyri
hafa náð frábærum árangri og er langt síðan
„skor“ keppenda hefur verið jafngott. Ekki
hafa kylfingarnir þó notast við hjálpartæki
eins og kylfingurinn á myndinni hér að neð-
an. Þrátt fyrir það má búast við að meistara-
flokkur karla vinnist á um 290 höggum sem
er mjög gott á jafnerfiðum velli og Jaðars-
völlurinn á Akureyri er.
• Ragnar Olafsson, GR, lék mjög vel i gær og fór 18 holurnar á 70 höggum eða einu höggi undir parinu. Hér púttar hann á Jaðarsvellinum á einni flötinni. Á
innfelldu myndinni er Sigurður Albertsson, GS, einn af keppendum í meistaraflokki, að slaka vel á fyrir átökin við andstæðingana. DV-myndir GK
©