Dagblaðið Vísir - DV - 03.08.1990, Page 40
52
FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1990.
Helgarpopp
Uppreisn aeru
Frá tónleikunum í Berlín. Innfellda myndin er af Roger Waters.
Sjónspilið sem Roger Waters og
The Bleeding Heart Band buðu upp
á á Potsdamer torgi í Berlín fyrir
viku gleymist þeim seint sem sáu.
Sýningin var sannkölluð veisla fyr-
ir augu og eyru enda ekkert til
Umsjón:
Snorri Már Skúlason
sparað og er talið að herlegheitin
hafi kostað um hálfan milljarð
króna. Ágóði varð því lítill sem
enginn en Roger Waters unir þó
ábyggilega glaður viö sitt. Ekki ein-
ungis voru tónleikamir frábærlega
heppnaðir heldur var þetta laugar-
dagskvöld innsiglað hver hafði ver-
ið sterki maðurinn í Pink Floyd.
Engum dylst að David Gilmoure
setti mikinn svip á hljómsveitina
með öílugum gítarleik og söng en
um leið verður að segjast að án
Waters hefði Pink Floyd aldrei orð-
ið fugl né flskur. v
Sem kunnugt er kom upp kergja
milli Roger Waters annars vegar
og hinna þriggja meðlima Pink Flo-
yd hins vegar þegar þeir síðar-
nefndu ákváðu árið 1987 að reisa
hljómsveitina upp frá dauðum.
Waters vildi að Pink Floyd fengi
að hvíla í friði og að félagarnir þrír
tækju sér annað nafn. Þeir létu
óskir Waters sem vind um eyru
þjóta og gáfu út plötuna A Moment-
ary Lapse of Reason sumarið 1987
undir merkjum Pink Floyd. Síðan
þá hafa verið lithr kærleikar með
þessum fyrrum samstarfsmönn-
um. Þaö má því segja að Roger
Waters hafi fengið uppreisn æru
þegar hann á stórkostlegan hátt
felldi járntjaldið í Berlín að heims-
byggðinni ásjáandi. Meðalið var
hugarfóstur Waters frá 1979 sem
flestir eru sammála um að sé meist-
araverkiö á ferli Pink Floyd.
Þegar hefur verið ákveðið að gefa
Berlínar-tónleikana út á tvöfaldri
hljómplötu í lok ágústmánaðar sem
hlýtur að vera fagnaðarefni.
Um líkt leyti og platan verður
útgefin verður Berlín aftur vett-
vangur stórtónleika en 31. ágúst-2.
september stíga U2, Eric Clapton
og Sting auk annarra á svið á mik-
illi tónleikahátíð í borginni.
-SMS
Nýrækt
Hljómsveitin Pixies, sem tryllt hef-
ur nýbylgjunagla undanfarin ár, er
að skríða úr hýði með ný lög í far-
teskinu. Fjögurra laga smáskífa hef-
ur þegar litið dagsins ljós. Á henni
hefur laginu Velouria verið stillt upp
sem aðallagi en á meðal laganna fjög-
urra er gamli Neil Young slagarinn
I’ve Been Waiting for you. í næsta
mánuði ku væntanleg stór plata úr
smiðju Boston sveitarinnar og hefur
hún þegar verið ausin vatni og skírð
Bossanova. Platan var hljóðrituð í
Los Angeles undir styrkri hand-
leiðslu Gil Norton’s en hann útsetti
einmitt síðustu plötu Pixies, öndveg-
isgripinn Doolitle.
Cure í gang
Önnur öflug hljómsveit úr ný-
bylgjugeiranum kynnir nýtt efni
þessar vikurnar. Robert Smith og
Cure fóru nefnilega í hljóðver í dreif-
býhnu í Berkskíri á Englandi
skömmu eftir að hljómsveitin hafði
troðið upp á Hróarskeldu-hátíðinni í
Danmörku í lok júnímánaðar. í
hljóðverinu tók hljómsveitin upp lag-
ið Never Enough og það mun verða
opinberað aðdáendum sveitarinnar
og öðrum í lok ágúst nk. Breiðskífa
mun ekki væntanleg fyrr en á næsta
ári.
Fyrir þá Cure aðdáendur sem
verða í London í byrjun næsta mán-
aðar má geta þess að hljómsveitin
mun leika á tónleikahátíð á Selhurst
Park, heimavelli Crystal Palace liðs-
ins, þann 10. ágúst.
Og meira af nýjum plötum. Deacon
Blue frá Skotlandi er með nýja EP
plötu í smíðum og er sú óvenjuleg
að því leyti að ekkert laganna er eft-
ir hljómsveitina. Gamla rörið Burt
Bacharach á heiður af lagasmíðun-
um ásamt Hal David.
Meira af skotum. BigCountry, sem
var sögð dauð fyrir nokkrum mánuð-
um, hefur endurnýjað lífdaga sína
með útgáfu smáskífunnar Heart of
the World. Big Country, sem ávallt
hefur þótt með hressilegri tónleika-
sveitum, verður með uppákomu í
London 9. ágúst.
Furðupar
Bob Dylan lauk við gerð nýrrar
plötu áður en hann rak upp á land-
steina hér fyrir mánuði. Gítarbræð-
urnir Stevie Ray og Jimmie Vaughan
eru gamla manninum til fulltingis
auk annarra. Don Was útsetur plöt-
una og veldur það nokkrum von-
brigðum að Daniel Lanois, sem átti
svo mikið í Oh Mercy, hefur ekki
fengið að reyna sig aftur.
Hvað um það, Don Was, sem hafði
unnið með Elton John fyrr á árinu
(m.a. í nýja laginu Healing Hands),
er sagður hafa dregið gleraugna-
gláminn til samstarfs við Dylan á
þessari nýju plötu sem væntanleg er
í ágúst. Ef satt reynist verður fróð-
legt að heyra.
Fótum fjör að launa
Hljómsveitin Wedding Present,
sem sló í gegn fyrir einu og hálfu ári
með úkraínskum tóntöktum, var
hætt komin á hljómleikaferð í
Bandaríkjunum fyrir stuttu. Kvöldið
sem tónleikaferðin hófst í New York
kviknaði í hóteli hljómsveitarinnar
með þeim afleiðingum að þaö fylltist
af reyk. Þetta gerðist síðla nætur er
menn vermdu ból og hefði getað far-
ið illa ef ekki hefði komið til svefn-
styggð trymbilsins Simon Smith.
Hann raknaði úr rotinu og gerði
mönnum viðvart.
Meðlimir geta prísað sig sæla því
að rannsóknir hafa sýnt að af þeim
sem farast í eldsvoðum látast mun
fleiri úr reykeitrun en af völdum
brunasára.
Af Wedding Present er það annars
að frétta að EP plata er væntanleg
frá hljómsveitinni í september. Plat-
an er unnin í samvinnu við upptöku-
stjórann Steve Albini sem gat sér
frægðar fyrir að útsetja Surfer Rosa
plötu Pixies árið 1988.
Ekki er allt upp talið því að Wedd-
ing Present hyggst senda stóra þjóð-
lagaskífu á markað í nóvember.
-SMS
Bob Dylan.
Elton John.
Sykurmolarnir nýkomnir heim frá Tékkóslóvakíu.
Molar
af
molum
Breska tónlistarritið Melody
Maker greindi frá því um miðjan
mánuðinn að Sykurmolarnir hefðu
þegar hafið undirbúning að þriöju
plötunni og væri gripurinn vænt-
anlegur í byrjun næsta árs.
Poppsíðunni lék forvitni á að vita
hvort fótur væri fyrir fréttinni og
hafði því samband viö Árna Bene-
diktsson hjá Smekkleysu.
Ámi kvað hljómsveitina hafa far-
ið í hljóðver eftir Bandaríkjaferð-
ina í vor þar sem nokkrir grunnar
hefðu verið settir á band. Hvort
eitthvað af þeim yrði notað síðar
vildi hann ekkert segja en kvað
óhjákvæmilegt annað en hljóm-
sveitin kæmi með plötu einhvern-
tíma á næsta ám Það yrði þó ekki
í byrjun ársins. Hvenær efni á plöt-
una yrði tekið upp vildi Ámi ekk-
ert um segja en taldi ekki ólíklegt
að ný smáskífa, jafnvel EP plata,
kæmi frá hljómsveitinni seint á
þessu ári.
Pílagrímar
í Tékkóslóvakíu
Sykurmolarnir gengu í smiðju
Carpenters systkina í byijun sum-
ars og námu þaðan gamla dægur-
flugu, Top of the World, og gerðu
að sinni. Hljóðritun lagsins komst
í hendur fjölmiðlafólks í Bretlandi
og það var ekki að sökum að spyrja.
Dægileg meðhöndlun molanna á
þessum aldna stúf féll mönnum það
vel í geð að lagið fór óútgefiö í 9.
sæti danslistans hjá Record Mirror.
Ánnars eru þar sem hljómsveitin
lék á tónleikum til styrktar sjúkum
og bækluðum. Lét hljómsveitin vel
að viðtökum og ekki skemmdi fyrir
að þeim var boðið að heimsækja
verksmiðjuna þar sem fyrsti syk-
urmolinn var framleiddur.
-SMS