Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990.
Myndbönd
Félagarnir Tango og Cash halda
fyrsta sætínu aðra vikuna í röð
enda engir venjulegir kappar þar á
ferð. Inn á listann kemur þó ný
mynd, Sea of Love, sem er til alls
vís enda A1 Pacino þar í aðalhlut-
verki.
Neðar á hstanum má síðan sjá
tvær nýjar myndir. Önnur segir frá
homaboltaleikurum með Tom Ber-
enger í aðalhlutverki. Driving Miss
Daisy er margverðlaunuð gæða-
mynd og hún fer nú inn á listann.
1. (1) Tango & Cash
2. (3) Black Rain
3. (2) Uncle Buck
4. (-) Sea of Love
5. (5) Next of Kin
6. (4) Turner & Hooch
7. (7) Leviathan
8. (9) Family Business
9. (-) Driving Miss Daisy
10. (-) Major League
Vöðvabúnt leidd í gildru
Banvæn þjóðarsál
TALK RADIO
Útgefandi: Arnarborg.
Leikstjóri: Oliver Stone. Handrit: Eric
Bogosian og Oliver Stone. Framleið-
andi: Edward Pressman og A. Kitman
Ho. Aðalhlutverk: Eric Bogosian, Alec
Baldwin, Ellen Greene, Leslie Hope.
Bandarisk 1988. Bönnuð yngri en 16 ára
104 mín.
Þetta hlýtur að vera uppáhalds-
mynd útvarpsmannsins! Hér er á
ferðinni athyghsverð úttekt Oh-
vers Stone á heimi útvarpsmanns-
ins. Reyndar er enginn venjulegur
útvarpsmaður hér á ferð því sögu-
hetjan er lokuð inni í búri þar sem
hún talar við útvarpshlustendur
og lætur bókstaflega allt flakka.
Þessi mynd fór halloka fyrir Good
Moming America með Robin Will-
iams í aðalhlutverki, enda kannski
ekki eins vel falhn til vinsælda. Það
er fremur dökk hhð af þessari ver-
öld sem hér er dregin upp.
Myndin segir frá útvarpsmann-
inum Barry sem er lokaður inni í
stúdíóveröld sinni og nær miklum
vinsældum sem kjaftfor útvarps-
maður er nánast móðgar allt og
aha. Eric Bogosina er í aðalhlut-
verki, auk þess að vera skrifaður
fyrir handritinu með Stone.
Það er forvitnilegt að fylgjast með
hve skert veruleikaskyn útvarps-
mannsins er og sést það th dæmis
TANGO & CASH
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Andrei Konchalovsky.
Aðalhlutverk: Sylvester Stallone, Kurt
Russell og Jack Palance.
Bandarísk, 1989 -sýningartími 99 mín.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sylvester Stallone hefur gengið
langt í því að undanförnu að losa
sig við Rambo- og Rocky-ímynd
sína. Hann vildi láta Rocky deyja í
Rocky 5, sem fljótlega verður fmm-
sýnd, en fékk ekki og í Tango &
Cash segir hann Rambo vera aum-
ingja. Það er greinilegt að í þessari
mynd vill hann breyta ímynd sinni.
í hlutverki Tangos klæðist hann
jakkafötum, er með bindi og gengur
um með gleraugu en um leið og
hann sleppir þessari ímynd er
hann kominn í sama far og áður,
að vísu hefur hann betri texta til
að fara með en oftast áður.
Þá er Stallone ekki einn um has-
arinn heldur er einnig mættur
Kurt Russell, sem leikur Cash, og
er ekki annað að sjá en hann hafi,
eins og Stallone, varið tíma sínum
að miklu leyti til hkamsræktar.
Þeir félagar leika tvær klárar lögg-
ur sem leiddar em í gildru af
glæpaforingja einum með þeim af-
leiðingum að þeir eru dæmdir í
fangelsi. Þeir sleppa þó þaðan við
illan leik og taka sér nú fyrir hend-
ur að sanna sakleysi sitt.
Undir öruggri stjóm Andrei
Konchalovsky er Tango & Cash hin
besta afþreying, spennumynd sem
getur státað af ágætu handriti sem
er sjaldgæft í mynd sem þessari.
Stallone og Russell sýna enga
meistaratakta í leik en tíl þess er
heldur ekki ætlast. Konchalovsky
hefur samt oftast gert betri myndir
og er slæmt ef slíkur gæðaleikstjóri
ætlar sér að festast í gerð spennu-
mynda þar sem markmiðið er það
eitt að fá sem flesta áhorfendur í
bíó. ____ -HK
Styijöld á heimilinu
greinilega þegar hann ætlar að fara
að ávarpa áhorfendur á íþróttaleik.
Þá kemur í Ijós að vinsældir hans
eru byggðar á hatri. Hann er því
best verndaður inni í stúdíóinu þar
sem hann getur haldið áfram að
löðrunga heiminn.
Hér er að mörgu leyti athyghs-
verð umfjöllun og forvitnileg upp:
hygging. Kvennamál útvarps-
mannsins faha tæpast í þann
ramma en ekki verður á allt kosið.
Þetta telst varla til merkilegustu
mynda Stone en hann þarf ekki að
skammast sín fyrir hana. -SMJ
WAR OF THE ROSES
Útgefandi: Steinar.
Leikstjóri: Danny DeVito. Handrit: Mi-
chael Leeson. Framleiöandi: James L.
Brooks. Aðalhlutverk: Michael Douglas,
Kathleen Turner og Danny DeVito.
Bandarísk, 1989.111 mín. Bönnuð yngri
en 12.
Þríeykið, sem hér ræöur ríkjum,
hefur gert það gott síðan það birtíst
fyrst saman í Romancing the Stone.
Turner og Douglas eru með vinsæl-
ustu leikurum samtímans og De-
Vito gerir það gott sem leikstjóri
og leikari.
Greinilegt er að það hefur verið
spenna í þeim aö hefja aftur sam-
starf og hvaö er betra en grár gam-
anleikur um hjónaerjur?
Myndin segir frá fyrirmyndar-
Aftur til Víetnams
hjónunum Rose sem eru nánast
ameríski draumurinn holdi klædd-
ur. Þau eru fyrirmyndarhjón í fyr-
irmyndarhjónabandi og þar að
auki í draumahúsinu. En greini-
lega er ekki allt með felldu því fljót-
lega koma brestir í hjónabandið og
þá brýst út skelfileg styijöld.
Gamanið er oft ansi grátt eins og
sést í kunnu atriði þar sem hús-
bóndinn er látínn halda að hann
hafi étíð heimihshundinn. Gráleik-
inn er einmitt það besta við mynd-
ina en hins vegar verður að segjast
eins og er að byrjunin er teygð
fuhmikið á langinn og þá hef ég
efasemdir um þá aðferð að nota
sögumann. Það getur verið gott til
að útskýra framvinduna í ekki allt
of góðu handrití en slær hins vegar
á eðlhega framvindu. Það er auðséð
aö ekki er öllum gefið að ljúka
myndum sem þessari og heldur
finnast mér klén sögulokin.
Þau skötuhjú standa sig vel, Dou-
glas þó sýnu betur. Mér finnst hann
batna með hverri mynd og ánægju-
legt að hann á til slíka gamantakta.
Myndin stendur kannski ekki fylh-
lega undir þeim væntingum sem til
hennar eru gerðar en er ágætis-
skemmtun eigi að síður.
-SMJ
BRADDOCK
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Aaron Norris.
Aðalhlutverk: Chuck Norris, Aki Aelong
og Ronald Harrah III.
Bandarisk, 1989 - sýningartími 98 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Braddock hefur undirtítíhnn
Missing in Action III; það þýðir að
þetta er í þriðja skiptíð sem Chuck
Norris fer til Víetnams til að bjarga
fongum sem taldir hafa verið af.
Þótt mig rámi í að hafa séö aðra
hvora af fyrri myndunum þá man
ég ekkert um hvað þær voru og
ekki er Braddock eftirminnilegri.
Norris leikur Braddock sem hafði
staðið í þeirri trú að eiginkona
hans, sem var víetnömsk, hafi lát-
ist í stríðslpk. Þegar hann fréttir
að hún sé lifandi og að hann eigi
son halda honum engin bönd. Hann
bindur á sig ennisborðann nauð-
synlega, verður sér úti um vopn
og laumast til Víetnams. Braddock
reynir björgun á eiginkonu og syni
um leið og hann fækkar töluvert í
víetnamska hernum.
Þeir sem einu sinni hafa séð
Chuck Norris í kvikmynd vita ná-
kvæmlega að hverju þeir ganga.
Hraðinn er mikill og átökin yfir-
þyrmandi. Sjálfsagt er Braddock í
betri kantínum þegar farið er yfir
myndir Norris en öllu sem heitir
persónusköpun er ábótavant. Þá
eru leikhæfileikar leikaranna með
minnstamóti. -HK
j
Engin venjuleg bamapía
★ Í4
Bleik brugðið
SKINDEEP
Útgefandi: Skifan. ,
Leikstjóri og handritshötundur: Blake
Edwards. Framleiðandi: Tony Adams.
Aðalhlutverk: John Ritter, Vincent Gard-
ena og Alyson Reed.
Bandarisk, 1989. 97 mín. Bönnuð yngri
en 12 ára.
Blake Edwards hefur náö ööru
hvoru að gera ágætar myndir en í
seinni tíð hefur hann verið að burð-
ast með einhvem boðskap í mynd-
um sínum sem spilhr fyrir. Hann
hefði kannski betur haldið sig við
þann tón sem hann fann í Júlíu -
Júlíu.
Hann rær ekki á frumleg mið hér
heldur fáum við að fylgjast með
ritstíflu verðlaunahöfundar í sálar-
háska. Veröld rithöfundarins er að
hrynja, meðal annars vegna þess
að honum tekst ekki að festa rætur
í einkalífmu. Eftir endalaus
harmkvæli hans (sem hann reynir
þó ahtaf að sjá skoplegu hhðina á)
sjáum við öll hans mál leysast í
lokin.
Auðvitað eru ánægjuleg sögulok
hér eins og blaut tuska framan í
áhorfendur enda engan veginn í
takt við annað.
Myndin er í raun aðeins þess
virði að sjá hana vegna eins atriðis
en það er líka alveg óborganlegt.
Það gerist í myrkvuðu herbergi og
sjálflýsandi smokkar eru í aðal-
hlutverkum. En dugir það fyrir
heila mynd? -SMJ
UNCLE BUCK
Útgefandi: Laugarásbíó.
Leikstjóri: John Hughes.
Aðalhlutverk: John Candy og Amy
Madigan.
Bandarisk, 1989- sýningartími 96 min.
Leyfö öllum aldurshópum.
John Hughes er leikstjóri og
framleiðandi sem hefur sérhæft sig
í gerð gamanmynda og er hann
nokkuð glöggur á formúlu sem fell-
ur almenningi í geð. Hann sendir
aö meðaltali frá sér þrjár myndir á
ári, leikstýrir sjálfur einni en fram-
leiðir hinar tvær og er hann orðinn
margmilljónari á þessu framtaki
sínu.
Hughes beinir yfirleitt spjótum
sínum að yngri kynslóðinni, skóla-
fólki sem fýsir að sjá einhveija til-
breytingu frá gráum hversdags-
leikanum. Og það gerir hann í
Uncle Buck þótt í aðalhlutverki sé
John Candy sem fær nú örugglega
engar ungar stúlkur til að faha í
öngvit.
Candy, sém er í yfirvigtarflokki,
leikur titilpersónuna sem fengin er
í neyð tíl að passa þrjú böm bróður
síns í smátíma. Buck, sem er svarti
sauðurinn í fjölskyldunni, er engin
venjuleg barnapía en hann er
hreinskihnn og skemmtilegur fé-
lagi fyrir yngri börnin tvö og því
er hann ekki lengi að ná þeim á
sitt band. Elstu dótturinni, sem tel-
ur sig vera einangraða í fjölskyld-
unni, finnst aftur á móti frændinn
hinn hallærislegasti og vih sem
minnst af honum vita. Fjallar
myndin um viðskiptí þeirra, auk
þess sem Buck á í vandræðum með
vergjama nágrannakonu og kær-
ustu sem búin er að bíða eftir bón-
orði í mörg ár.
John Candy er kannski ekki snið-
ugasti gamanleikarinn en hann
hefur útlitið með sér og vegna þess
hversu vel í holdum hann er verður
sumt af því sem hann gerir aðeins
fyndið vegna þess. Söguþráðurinn
í heild er ófrumlegur og margnýtt-
ur en Hughes kann aö skemmta
fólki þótt brotalamir séu fyrir
hendi og því er Uncle Buck hin
ákjósanlegasta skemmtun fyrir
allafiölskylduna. -HK