Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1990, Qupperneq 27
LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 1990. 39
DV T.ífegtfll
Heimssýning, ólympíuleikar og menningarhátíð:
Spánníbrenni-
depli 1992
Lukkudýr ólympíuleikanna 1992,
hundurinn Cobi.
Heimssýningin í Sevilla, ólympíu-
leikarnir í Barcelona og menningar-
hátíöin í Madrid eru allt atburðir
sem veröa á Spáni og beina munu
augum heimsins að þessu suður-
evrópska landi árið 1992.
Þegar Jóhann Karl Spánarkonung-
ur lýsti því yfir að heimssýningin
yrði haldin í Seviila sagði hann að
öll heimsbyggðin væri velkomin til
Spánar, þar stæðu öllum dyrnar opn-
ar. Vonaðist hann til að sem flestar
þjóðir og menningarhópar kæmu til
Ferðir
Spánar þetta viðburðarríka ár. Útht
er fyrir að konungi verði að ósk
sinni, að mestu leyti.
Ekkert íslenskt
Heimssýningin í Sevilla mun
standa frá 20. apríl til 12. október
1992 en þann dag eru fimm hundruð
ár síðan Krstófer Kólumbus vann
Ameríku. Von er á 80 þjóðum sem
taka þátt í heimssýningunni, 20 al-
þjóðasamtökum eins og Rauða kross-
inum og fleirum, 17 óháðum bæjarfé-
lögum og borgríkjum og allt að 15
alþjóðlegum stórfýrirtækjum, þar á
meðal IBM, Rank Xerox, Siemens og
fleiri.
Eins og þegar hefur komið fram
hafa íslensk stjómvöld ákveðið að
taka ekki þátt í heimssýningunni.
Þykir kostnaðurinn við þátttöku of
mikill miðað við mögulegan ávinn-
ing. Leitað var á náðir annarra Norð-
urlandaþjóða um samvinnu við þátt-
töku en þær þjóðir era þegar langt
komnar með sinn undirbúning og
neituðu því erindi íslendinga. Eru
deildar meiningar um þátttöku ís-
lands í heimssýningunni. Meðan
sumir kalla það hreinan aumingja-
skap að taka ekki þátt segja aðrir að
ekkert fáist úr heimssýningu nema
tugmilljóna kostnaður.
A heimssýningunni verður tímabil
landkönnuða eins konar þema en
það hófst með fundum Kólumbusar
1492.
Heimssýningarsvæöið verður á
Cartuja-eyju þar sem Guadalqiviráin
kvíslast. Þar mun Kólumbus hafa
skipulagt siglingu sína til Ameríku.
Reiknað er með að 18 milljónir gesta
muni koma á heimssýninguna. Þar
verða ekki aðeins sýnd ýmis afrek
mannskepnunnar heldur verða kast-
aníettan, sem er frá Andalúsíu, og
tambúrínan, sem kemur frá Suður-
Ameríku, sem til þessa hafa tengst
ímyn,d Andalúsíu órjúfanlegum
böndum, endurskoðaðar sem slíkar.
Barcelona
Ólympíuleikarnir hafa aldrei áður
verið haldnir á Spáni. Hefjast leik-
arnir 25, júlí og standa til 12. ágúst.
Þannig mun straumur gesta hvaðan
æva úr heiminum hggja th Seviha
og Barcelona 1992 en í ólíkum th-
gangi.
Hafm er bygging risastórs íþrótta-
leikvangs þar sem sæti verða fyrir
60 þúsund áhorfendur. Annar völlur,
Saint Jordi, með sætum fyrir 17 þús-
und manns, verður byggður eftir
teikningum japanska arkitektsins
Arata Isazaki. Þar verður „hjarta“
ólympíuleikanna. Verndargripur eða
lukkudýr ólympíuleikanna 1992 er
skondinn hundur sem heitir Cobi.
Menningarsprengja
Höfuðborg Spánar, Madrid, verður
eftir sem áður höfuðborg skemmtana
og uppákoma en sumarið 1992 verður
þessi höfuðborg á hásléttum Spánar
miðstöð hugsmiða og framfara. Þetta
er haft eftir borgarstjóranum, Agust-
ín Rodríguez Sahagún, sem bætir við
að í Madrid 1992 verði aragrúi hsta-
verkasýninga, ljósmyndasýninga,
óperusýninga og hljómleika auk ráð-
stefna og málfunda ýmissa hugsuða
og heimspekinga - sannkölluð menn-
ingarsprengja.
Auk alls þessa verður arkitektúr
og skipulag í borginni sérstaklega
kynnt. Þá verður reist hehmikið
minnismerki sem verður 92 metrar
á hæð og 82 metrar í þvermál, með
stjörnum og himintunglum „á
sveimi" í kring. Það kallast „Esfera
Armhar" og verður einkennistákn
Madridborgar.
Af öhu þessu má ráða að Spánn
verður í brennideph 1992, eins konar
höfuðborg heimsbyggðarinnar.
London:
Nú býðst þeim sem vilja læra
ensku í Bretlandi nýr valkostur,
enskunám í heimahúsum í London.
Það eru samtökin English Home
'I'uition Scheme sem eru með þessa
þjónustu og fær hver nemandi
einkakennslu hjá þjálfuðum keirn-
ara ásamt dvöl á heimíli lians.
Ekki eru geröar neinar kröfur
um undirstööu i ensku heldur mið-
ast kennslan við kunnáttu hvers
og eins þegar hann hefur námið,
það á þvi að vera sniðið aö þörfum
ahra. Verðlð á námskeiðunum er
mismunandi en það ræðstaö miklu
leyti af því hversu mörgum
kennslustundum á viku óskað er
eftlr. Lágmark er þó 10 stundir á
viku og kostar vikan þá ásamt gist-
ingu og upphaldi 350 pund, um 35
þúsund íslenskar krónur. Hægt er
aö fá nánari upplýsingar meö því
aö skrifa eða hringja til:
Nadia Cole
English Home Tuition Scheme
21 Dobell Road
London SE9 ÍHE
S. 081-850 9459.
Olympíuleikarnir verða haldnir í Barcelona í júlí og ágúst 1992.
Hærra hótelverð
í hugum margra er Spánn umfram
aht sólarparadis Norður-Evrópubúa
og verður það sjálfsagt áfram. En
árið 1992 mun Spánn hins vegar öðl-
ast nýjar víddir í hugum fjölmargra
og lokka enn fleiri gesti th sm en
áður hefur þekkst. Þannig hafa 18
mhljónir manna verið nefndar í
tengslum við heimssýninguna eina.
Er séð fram á að framboð á gistirými
verði ekki í takt við fólksstrauminn
og spá menn því mjög háu verði fyr-
ir hótelgistingu. Er við búist að
hærra hótelverð muni hafa einhver
áhrif á verð sólarferða th Spánar
þetta árið.
-hlh
Húseign í Stykkishólmi
Kauptilboð óskast í áhaldahús Vegagerðar ríkisins að Nesvegi 5,
Stykkishólmi, samtals 640 m3 að stærð. Brunabótamat er kr.
3.605.000.00. Húsið verður til sýnis í samráði við Björn Jónsson,
rekstrarstjóra Vegagerðar rikisins, Ólafsvík (sími: 93-61460).
Tilboðseyðublöð eru afhent á staðnum og á skrifstofu vorri að Borg-
artúni 7, Reykjavik. Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu vorri á sama
stað þann 24. október 1990 kl. 11.00 f.h. þar sem þau verða opnuð
í viðurvist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
50%
meiri kraftur
Verð kr. 23.400
Thomas — 10 ár
á íslandi
Allir varahlutir
og þjónusta
ASTRA
Austurströnd 8 - Sími
61-22-44 - Fax 61-10-90
íThomas
IÐNAÐAR-
RYKSUGAN
sama sían fyrir
ryk og vatn