Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1990, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÖBER 1990.
íþróttir_____________________
Fær Guðni tækifæri
Enskiboltmn:
gegn Liverpool?
- er orðinn góður af meiðslunum
„Ég er orðinn góður af meiðslun-
um sem ég hlaut fyrir nokkru. Svo
virtist sem um tognun væri um að
ræða í vinstra læri en að mati sér-
fræðings taldi hann að eymslin
kæmu frá bakinu og leiddi niður í
fótinn. Það er um að gera að fara vel
með sig og halda sér liðugum í bak-
inu,“ sagði Guðni Bergsson hjá enska
liðinu Tottenham í spjalli við DV í
gær.
Tbttenham-Li verpool
á sunnudaginn
Stórleikurinn í ensku knattspym-
unni um næstu helgi verður án efa
leikur Tottenham og Láverpool, sem
háður verður á heimavelh Totten-
ham, White Hart Lane, í Lundúnum.
íslenskum sjónvarpsáhorfendum
gefst kostur á að sjá þennan leik
beint í sjónvarpinu á sunnudaginn
kemur.
- Eiga íslenskir knattspyrnuáhuga-
menn von á því að sjá Guðna Bergs-
son í beinni sjóvarpslýsingu í leik
með liði sínu, Tottenham, gegn Liv-
erpool?
„Það er erfitt að segja til um hven-
ær ég nái að vinna mér fast sæti að
nýju eftir meiðslin, vonast eftir að
það verði sem allra fyrst. Það yröi
óneitanlega gaman að fá tækifærið
gegn Liverpool á sunnudaginn kem-
ur. Við unnum Liverpool á heima-
velli og þá kom ég inn í liðið eftir
langa íjarveru. Ég átti eftir það fast
sæti í hðinu allt til loka keppnistíma-
bilsins. Við skulum vona að það
sama verði uppi á teningnum að
þessu sinni,“ sagði Guðni Bergsson
hress í bragði, í samtalinu við DV í
gær.
Þess má geta að Tottenham lék í
gærkvöldi við Bradford í deildarbik-
arnum og lék Guðni Bergsson ekki
með Tottenham. Úrshta leiksins er
getiðannarsstaðaríopnunni. -JKS
• Guðni Bergsson hefur ekki verið
i liði Tottenham undanfarið.
Norskir blaðamenn með
ímyndunaraf lið í lagi
- tvelr leikmenn sagðir hjá Sunderland en þangað fóru þeir aldrei
í Noregi er sprottið upp furðulegt
mál svo ekki sé meira sagt. Ekki er
hægt að segja aö það sé blaðamanna-
stéttinni norsku til framdráttar.
Á dögunum var það fullyrt í norska
blaðinu I Söndag-Söndags að tveir
norskir knattspymumenn hefðu
dvalið í Englandi um tíma og æft þar
með 1. deildar hði Sunderland og
leikið æfmgaleiki með liðinu. Leik-
mönnunum, Halle og Schiller, sem
leika báðir með norska liðinu Lihe-
ström, brá óneitanlega mikið þegar
þeir lásu það í nýjustu útgáfu blaðs-
ins að þeir hefðu verið um tíma í
Englandi og æft með Sunderland.
Blaöið sagði einnig frá því að Denis
Smith, framkvæmdastjóri Sunder-
land, hefði sagt eftir vem Norðmann-
anna hjá félaginu að þeir væm góðir
knattspymumenn en ekki næghega
góðir til að hann hefði áhuga á að
kaupa þá til félagsins.
„Við Schiher höfum báðir verið í
vinnu hér í Lilleström alla síðustu
viku og ef við hefðum átt að vera í
Englandi hefðu næturnar verið eini
tíminn til þess," segir Halle og veit
ekki hvort hann á aö hlæja eða gráta.
Hann bætir við: „Það munaði litlu
að ég hringdi til blaðsins. Það hefði
verið gaman að vita hvort ég hefði
skorað eitt eða tvö mörk fyrir Sund-
erland."
Hið rétta í þessu máh er að þaö er
rétt að Sunderland var í sambandi
við Liheström sl. haust og einkum
og sér í lagi vegna Schillers. Hins
vegar hafa mál aldrei komist á rek-
spöl og áhugi Sunderland virðist úr
myndinni. Frétt blaðsins nú er hins
vegar hreinn skáldskapur og má með
óhkindum vera að dagblað skuli geta
skáldað slíkt.
-SK
í gærkvöldi fóru nokkrir leikir
fram í 3. umferð ensku deildar-
bikarkeppninnar i knattspyrnu
og urðu úrsht sem hér segir:
Crystal Palace-Leyton Orient.O-O
Ipswich-Sothampton.......0-2
Man. City-Arsenal........1-2
Middlesbrough-Norwich....2-0
Shefl'. Utd-Everton......2-1
Tottenham-Bradford.......2-1
• Þá fór einn leikur fram í 2.
deild ensku knattspymunanar.
Nots County og Charlton skildu
jöfn, 2-2.
Leikmenn Tottenham
voru slakir
Leikur Tottenham og Bradford
var frekar slakur, einkum í síðari
hálfleik. ÖIl mörkin voru skoruð
í fyrri hálfleik. Bradford, sem
leikur i 3. deíld, fékk óskabyrjun
- og komst í 0-1 eftir 13 mínútna
leik en 10 mínútum síðar jafnaði
Gascoigne metin þegar hann óð
upp allan vöhinn og skoraöi fall-
egt mark. Tveimur minútum síð-
ar skoraði Paul Stewart sigur-
markið.
Annarrar deildar liðið Middles-
brough sigraði Norwich, sem
leikur í 1. deiid, nokkúð örugg-
lega, 2-0, með mörkum frá Paul
Kerr og John Kerr.
Dave Watson h)á Everton var
vikið af leikvelli þegar lið hans
tapaði fyrir Sheff. Utd, 2-1, Brian
Deane og Carl Bradshaw skomðu
mörk Shefíield en mark Everton
var sjálfsmark.
Arsenal er komið i fjórðu um-
ferð eftir sigur á Man. City. Perry
Groves og Tony Adams skoraðu
fyrir Arsenal í síðari hálfleik.
Þjóðverjar lögðu
Lúxemborgara
Einn leikur fór fram í gærkvöldi
í Evrópukeppni landshða skipuð-
um leikmönnum undir 21 árs.
Þýskaland sigraði Lúxemborg,
3-0. -GH/GSv
Sterkustu menn heims
keppa í Reiðhöllinni
- á laugardaginn - Hvað gera Hjalti og Magnús gegn erlendu kraftajötnunum?
Keppni sterkustu manna heims
verður haldin í Reiðhöhinni laugar-
daginn 3. nóvember næstkomandi.
Þar munu keppa margir af sterkustu
mönnum heims og eru Hjalti Árna-
son og Magnús Ver Magnússon á
meðal þeirra.
í ár er kraftakeppnin með nýju
sniði þar sem keppnin er bæði liða-og
einstakhngskeppni. Eftir áð þættim-
ir „Pure Strength" náðu gífurlegum
vinsældum hér á landi sem og er-
lendis, fánnst skipuleggjendum
„Krafs ’90“ að það væri spor í rétta
átt að hkja eftir þeirri keppni og gefa
fólki möguleika á aö koma og upplifa
þá sérstöku stemningu sem ríkir þeg-
ar sterkustu menn heims leiða sam-
an hesta sína. Keppnisgreinarnar í
kraftakeppninni era: 25 kg steinak-
ast, lýsistunnuhleðsla, hjólböruakst-
ur, rafgeymalyfta, krafthleðsla,
sekkjadráttur og hlaup og tréd-
rambalyfta.
O.D. Wilson 205 cm á hæð
195 kg að þyngd
Það verða sex keppendur sem munu
etja kappi. Bih Kazmaier og O.D.
Whson frá Bandaríkjunum, Jamie
Reeves og Adrian Smith frá Bret-
landi auk íslendinganna Hjalta og
Magnúsar.
Bill Kazmaier er 192 cm á hæð og
150 kg að þyngd. Hann var sterkasti
maður heims árin 1980,1981 og 1982
og margfaldur heimsmeistari í kraft-
lyftingum. Kazmaier sigraði í síðustu
kraftakeppni sem haldin var 1988 og
er einn um það að hafa sigrað á öllum
stærstu kraftamótum heimsins í dag.
O.D. Whson er 205 cm á hæð og 195
kg að þyngd. Wilson eða martröðin
eins og hann er kallaður fékk nafn-
bótina þegar ljóst var að margir af
keppendum hans fengu martraðir
rétt fyrir mótin. Hann er sterkasti
kraftlyftingamaður heimsins í dag
en er ekki eins reyndur í krafta-
keppni.
Jamie Reeves er 190 cm á hæð og
150 kg að þyngd. Hann vann tithinn
sterkasti maður heims áriö 1989 og
hann hefur veriö nær ósigrandi af
löndum sínum í áraraðir í krafta-
keppni.
Ádrian Smith er 184 cm á hæð og
er 120 kg. Hann kemur inn í krafta-
íþróttimar eftir að hafa verið einn
af bestu vaxtarræktarmönnum Eng-
lendinga og er tahð að hann eigi
glæsta framtíð fyrir sér í aflrauna-
heiminum.
Magnús Ver Magnússon er 190 cm
á hæð og 125 kg að þyngd. Hann er
orðinn einn af albestu kraftamönn-
um heims í dag. Hann sannaði þaö
þegar hann vann gullverðlaun á Evr-
ópumótinu í kraftlyftingum árið 1988
og þá sigraði hann í „Pure Strengt“
árið 1989.
Hjalti Árnason eða Úrsusinn eins
og hann er kahaður er 188 cm á hæð
og 135 kg. Hann hefur verið leiðandi
• Bill Kazmaier frá Bandaríkjunum
hefur þrisvar sinnum unnið titilinn
sterkasti maður heimsins.
Hjalti varð 4. Evrópubúinn til að lyfta
1000 kg í samanlögðu.
Það er ljóst á þessari upptalningu
aö það verður hart barist um sigur
í þessari kraftakeppni sem verður
eins og áður sagði í Reiðhöllinni í
Víðidal á laugardaginn og hefst
keppni kl. 17. Miðaverð fyrir full-
orðna er kr. 800 en 400 krónur fyrir
böm.
• O.D. Wilson er sterksti kraftlyft-
ingamaður heims í dag. Hann er tröll
af burðum, 205 cm á hæð og vegur
195 kg.
• Douglas Shouse sýndi á köflum stórg
felldu myndinni treður Shouse knettinum
Stúf ar fr<
Guimar Svembjömssan, DV, Englaiidi:
• Sheflield Wednesday fór iha út úr
leik sínum gegn Millwall álaugardaginn
var i ensku knattspyrnunni. Það var
ekki aðeins að miðvikudagsliðið tapaði
stigunum þremur á heimavehi MUlwall
heldur meiddust mikilvægir leikmenn
liösins. Þar má nefna Svíann Roland
Nilsson og Nigel Pearson. Nilsson er
mjög alvarlega meiddur og leikur tæpast
meira með á þessu ári en Perason verður
fyrri til að ná sér.
Smith leitar að
nýjum leikmönnum
• Jim Smith, framkvæmda-
stjóri Newcastle, er á höttun-
um eftir leikmönnum til að
koma höinu í 1. deild á ný.
Sænski landshösmaðurinn Jan Eriks-
son, sem leikið hefur þrívegis i sænska
landsliðsbúningnum, æflr með liðinu til
reynslu um þessar mundir. Hann er 23
ára og mun kosta 400 þúsund pund ef
af kaupum verður. Smith á enn i viðræö-
um við Chris Hughton, sem fékk frjálsa
sölu frá Tottenham en einhver hnútur
virðist kominn í það mál.
Markaskorari Bristol
Citytil Wimbledon?
• Wimbledon er Jækktara fyrir að selja
leikmenn en kaupa. Nú er þó svo komið
I