Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1990, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990.
41
Sviðsljós
líkist hverjum?
Hver
Það er vel þekkt fyrirbæri að ef
menn eru mikið samvistum við dýr
sem þeir hafa sérstakt dálæti á þá
verður nokkurs konar samruni til
og maðurinn og dýrið fara að draga
dám hvort af öðru. Myndimar, sem
fylgja hér með og eru teknar á hinni
árlegu Westminster hundasýningu í
New York, taka af allan vafa um
þetta.
Hvort eigendurnir fara smátt og
smátt aö líkjast dýrum sínum eöa
velja sér dýr sem næst eigin útliti er
ekki vitað. Sé þessi kenning hins
vegar rétt ætti að vera auðvelt að sjá
á fólki hvers konar gæludýr það á.
Þannig-ættu hestamenn að vera lang-
leitir og fjörlegir með síkvik eyru,
hundaeigendur hlýðnir og fleðulegir,
kattaeigendur sjálfstæðir og hroka-
fullir og eigendur páfagauka á sí-
felldu flökti.
Hvernig skyldu bændur fara út úr
þessum samanburði? Eru þeir al-
mennt mjög kindarlegir eða minnir
þankagangur þeirra meira á auð-
sveipar og nytháar mjólkurkýr?
Hmmm... hér er greinilega óplægður
akur fyrir félagsdýrafræðinga eða
dýra félagsfræðinga, eða hvað?
Elvis falur
Bílnúmer með stöfunum ELV ÍS
verður selt á uppboði í London á
næstunni og er búist við að margir
bítist um hnossið og verðið nái áður
óþekktum hæðum. Sérfræðingar
Christie’s uppboðshaldara segja að
dýrasta bílnúmer, sem selt hafi verið
fram til þessa, sé 1A en það fór á 176
þúsund pund. Þeir telja að Elvis fari
á enn hærra verði.
í Bretlandi eins og hér heima er
hið opinbera með puttana í því
hvernig númer raðast á bíla. Að und-
anfórnu hefur ríkiskassinn hagnast
vel á því að selja sjaldséð og sérstæð
númer sem fram til þessa hafa ekki
verið í umferð.
Ríkir Bretar með sterka stéttarvit-
und eru meðvitaðir um nauðsyn þess
að skera sig úr hópnum og eru því
meira en tilbúnir til þess að greiða
rúmlega meðalbílverð fyrir persónu-
legt bílnúmer sem inniheldur t.d.
upphafsstafi eigandans.
Eftirlíking Elvis Presley fyrir framan bíl með hinu eftirsótta númeri.
Þrír úlvarpsmenn heiðraðir. Talið frá vinstri: Olafur Þórðarson, rás 2, As-
geir Tómasson, Aðalstöðinni, og Haraldur Gislason, Bylgjunni. DV-mynd BG
Utvarps-
menn
heiðraðir
Á sérstökum tónlistardegi sem
haldinn var hátíðlegur á laugardag
voru þrír útvarpsmenn heiðraðir
sérstaklega fyrir að spila mikið af
íslenskri tónlist í þeim þáttum sem
þeir hafa umsjá með.
Þessir ljósvakavíkingar, sem
standa svo dyggan vörð um íslenska
tónlistararfleifð, sjálfum sér og tón-
listinni til heiðurs en starfsbræðrum
sínum til eftirbreytni, eru starfandi
á þremur útvarpsstöðvum.
Ólyginn
sagði..
Bill Cosby
Sidney
Sheldon
á ekki upp á pallborðið hjá eins
mörgum og áður ef marka má
lesendakönnun bandaríska tíma-
ritsins Us sem það birti nýlega.
Þar var Cosby kjörinn versti leik-
ari í sjónvarpi með nokkrum yfir-
burðum. Annar leikari, sem ís-
lendingum er að góðu kunnur,
fylgdi fast á hæla Cosbys en það
var Tony Danza sem leikur ráðs-
konu í þáttunum Hver á að ráða?
Ef lesendur Us fengju að ráða þá
sæjust þeir félagar aldrei á
skerminum.
Sylvester
greyið StaUone fékk þó einna
versta útreið í þessari könnun.
Hann var kosinn versti kvik-
myndaleikarinn og þarf það
kannski ekki að koma neinum
aðdáenda hans á óvart. Hann
fékk ennfremur ásamt Kurt
Russell heiðursverðlaun sem
hluti af versta tvíeyki á hvíta
tjaldinu. Sylvester lék á Russell í
kvikmyndinni Tango & Cash. Það
var ein af tilraunum Stallone til
þess að losna við ímynd Rambo
og stallbróður hans, Rocky. Hon-
um virðist ekkert ganga við aö
sannfæra bíógesti um að hann sé
ekki ólæst, slefandi vöðvafjall
heldur djúphugull og fíngerður
heimspekingur. Veshngs Stallone
er ofurseldur þeim hetjum sem
hann hefur skapað og mun trú-
lega dragnast með þá um hálsinn
eins og myllusteina til eilífðar-
nóns.
er haldinn óstöðvandi skriftar-
áráttu eins og lesendur skáld-
sagna hans víða um heim hafa
orðið óþyrmilega varir við. Kapp-
inn hefur nú sent frá sér nýjan
doðrant sem mun heita Memories
of Midnight og vera framhald
annars langhunds sem kom út
fyrir nokkrum árum og hét The
Other Side of Midnight. Þessar
miðnæturbækur eru hvor ann-
arri líkar en þó þykir nýja bókin
heldur síðri. Gagnrýnendur, sem
nennt hafa að lyfta penna vegna
úkomu bókarinnar, segja hana
of langa, söguþráðinn of flókinn
og ótrúverðugan og álasa Shel-
don fyrir að drepa eina söguhetj-
una snemma í bókinni og lífga
hana svo við aftur siðar eins og
ekkert hafi ískorist.