Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990. 15 Fjármálaráðherra kraf inn svara 1 fréttum að undanfomu hefur komið í ljós að þjóðimar eru í dag að kasta frá sér ríkjandi marxísk- um hagkerfum því þau duga ekki til þess að halda uppi viðunandi lífsgæðum. íslensk stjórnvöld virðast ekki fylgjast með þessari þróun heldur hafa umsvif ríkisvaldsins stórvaxið ár hvert og allt athafnalíf er sífellt meir háð leyfum og bönnum stjórn- valda. Öll þekkjum við úr sögunni að hvers konar gagnrýni í þessum ríkjum, bæði innan frá og að utan, var afgreidd sem rakalaus þvætt- ingur og ófrægingarstríð gegn al- þýðu landsins. Skýrslur OECD Þetta rifjaðist upp hjá mér þegar Mynd 1 Hcildarskattar í hlutfalli af lands- framlcihslu í aóildarrfkjum OECD sú frétt birtist frá nokkrum merk- um lánastofnunum að hlutfoll af landsframleiðslu væru hér hærri en kæmi fram í skýrslu frá OECD. Fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson snerist öndverður gegn þessu og fékk til hðs við sig marga af helstu ráðgjöfum sínum í fjár- málaráðuneytinu og áttu þeir ekki nógu sterk orð til að lýsa vanþókn- un sinni á þessari rangtúlkun þeirra og útúrsnúningum. Voru nú áðurnefndum lánastofn- unum ekki vandaðar kveðjurnar, og sérstaklega nefndur í því sam- bandi fréttaflutningur frá Verð- bréfaviðskiptum Samvinnubank- ans. Það er rétt að vekja athygli á því að sömu menn hafa ekki alltaf talið fréttir frá OECD áreiðanlegar. Heildarskattar aö frádregnum almanna- tryggingum (social security) í aöildarrikjum OECD. Fyrir ári birtu sömu aðilar slæm- ar fréttir um efnahagsástandið hér á landi og þá áttu sömu menn með Ólaf Ragnar fjármálaséni í farar- broddi ekki nógu stór orð til að lýsa vanþóknun sinni og lögðu áherslu á með gildum rökum (að eigin mati) aö þeir þekktu ekkert aðstæður hér á landi. Jæja, gott og vel, batnandi mönnum er best að lifa. Nú ber þjóðinni að móttaka þennan stórasannleika um OECD. Skatthlutföll eru ekki rétt Ég hef undir höndum umrætt Fréttabréf Samvinnubankans, en frjálst er að nota efni úr þvi. Hér verða því birtar þrjár myndir er skýra niðurstöður mjög vel. Höfuðskýringin er að lífeyris- KjaJIarinn Sigurður Heigason viðskipta- og lögfræðingur. í framboði i prófkjöri sjálfstæðismanna á Reykjanesi sjóðsgreiðslur, sem nema 3^1% af landsframleiðslu, eru í heildar- sköttum aðildarríkja OECD, en eru hér utan opinbera geirans. Þá er nauðsynlegt að skýra hugtökin samneysla og tekjutilfærsla. Samneysla er útgjöld opinberra aðila til kaupa á vöru og þjónustu, sem ekki fellur undir opinberar framkvæmdir. Hér má nefna lög- gæslu, stjórnsýslu, heilsugæslu, menntamál og fleira. Tekjutilfærsla er hins vegar fjár- munir sem renna til heimilanna og er ráðstafað af þeim, svo sem bætur almennra trygginga. Myndirnar skýra sig að öðru leyti sjálfar. Fyrirspurnirtil fjármálaráðherra 1. Ólafur Ragnar þarf að svara skýrt og afdráttarlaust hvort lífeyr- issjóðsgreiðslur séu taldar með hjá öðrum OECD ríkjum? 2. Komi í ljós að heildarskattar hér séu hærri að meðaltali en hjá öör- um OECD ríkjum breytir það þá ekki forsendum fyrir hækkun skatta? Sigurður Helgason Þrjár myndir er skýra niðurstöður mjög vel. Samneysla í hlutfalli af landsframleiöslu í aöiidarrfkjum OECD. „Fjármálaráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson snerist öndverður gegn þessu og fékk til liðs við sig marga af helstu ráðgjöfum sínum 1 Qármála- ráðuneytinu... „Orð skulu standa“ BHMR-félögin áttu í erfiðri kjarabaráttu á vordögum 1989. Þeirri baráttu lauk með því að rík- isstjómin gerði „tímamótasamn- ing“ við háskólamenntaða ríkis- starfsmenn um að greiða þeim sömu laun eftir 5 ára aölögunar- tíma og vinnuveitendur gera í dag á almennum markaði. Þessi samningur færði félags- mönnum BHMR alls engar kjara- bætur fyrsta árið, heldur þvert 4 móti hélt kaupmáttur BHMR- manna áfram að falla. Fyrsta árið áttif félagsmenn BHMR einungis að nærast af ræðum ráðherra um mikilvægi þess að byggja upp gagn- kvæmt trúnaðartaust og slíðra vopnin í a.m.k. 5 ár. Kölluðu það „vantraust“ Meginefni samningsins, launa- leiðréttingin, átti að hefjast 1. júlí sl. og koma í fimm jöfnum áriegum áfóngum. Launaleiðréttingin átti að byggjast á vísindalegri athugun á kjaramismun milli háskóla- manna á almennum markaði og þeirra sem starfa hjá ríki. Ef kjara- könnunin yrði ekki tilbúin 1. júlí sl. átti að koma til sérstaks „refsiá- kvæðis", 4,5% launahækkunar frá 1. júlí sem félli síðan inn í launa- leiðréttinguna þegar könnunin lægi fyrir. Ráðherrarnir voru á sínum tíma hneykslaðir yfir kröfu samninga- nefndar BHMR að fá þetta refsiá- kvæði og kölluðu „vantraust". Þegar kom að því að standa við þetta ákvæði ætlaði ríkisstjórnin að kúga BHMR til að afsala sér þessu ákvæði. Þá gilti ekki „orð skulu standa“ heldur var forysta BHMR kölluð á teppið í Stjórnarráðinu 12. júní sl. tO að taka við túkynningu ríkis- stjórnarinnar um að hún ætlaði ekki að efna samninginn við BHMR. BHMR leitaði til Félagsdóms sem staðfesti rétt félagsmanna BHMR til 4,5% refsiákvæðisins. Að fengn- um dómsúrskurði var talið að rík- isstjórnin myndi efna samninginn - þrátt fyrir allt. Öll loforð einskis virði En eins og alþjóð er kunnugt leit ríkisstjórnin ekki þannig á málið. Fyrirheit og loforð ráðherranna, munnleg og skrifleg, til félags- manna BHMR voru einskis virði. ÖU fyrirheitin loddaraskapur og innantóm orð. Allt meginefni kjarasamningsins hefur verið svik- iö. Ríkisstjórnin sagði 3. ágúst sl. að „brýna nauðsyn bæri til“ að af- nema ákvæði samningsins um launaleiðréttingu og afnema ákvæði samningsins um launa- hækkun vegna refsiákvæðisins. Nú skilja alhr félagsmenn BHMR KjaUarinn Birgir Björn Sigurjónsson hagfræðingur og framkvæmdastjóri BHMR hvað sem er til að tryggja stöðug- leika efnahagslífsins. Jón Sigurðs- son iðnaðarráðherra telur stöðug- leikann eins konar forsendu þess að ísland komist á landakort ál- furstanna. Ríkisstjórnin hefur með einfaldri lagasetningu tekið kjara- samning af baráttuglöðum stéttar- félögum undir ferföldu húrrahrópi alþýðuleiðtoganna. Þá spyrst til MOlers þessa að Jón Sigurðsson hafi alls ekki haft um- boð Landsvirkjunar hérna um dag- inn til að staðfesta áfanga í viðræð- um um orkusölu. Miller sagði við blaðamenn að hann liti svo á að með undirritun sinni hefðu fulltrú- ar íslands í raun verið að semja og „orð skulu standa". Auðvitað hefur læðst að Miller grunur um að ráð- herrann stæði ekki viö neitt við Atlantsál fremur en BHMR. En Jón telur sig sjálfsagt eiga mörg tromp á hendi. „Allir félagar BMHR-félaganna vita hvað það þýðir þegar ráðherra í ríkis- stjórn Steingríms Hermannssonar seg- ir að „orð skulu standa“. Og raunar skilja flestir landsmenn hvað í því felst.“ að þegar þessi ríkisstjórn segir að „orð skulu standa" þá býst hún að baki mönnum til að reka þeim rýt- ingsstungu, ef svo má að orði kom- ast. Þeim er ekki treystandi. Samninganefndarmenn BHMR spyrja sig í dag: Verður nokkru sinni unnt að gera kjarasamning við þessa ríkisstjórn? Munu aðrar ríkisstjórnir feta í fótspor hennar? Hefur þessi félagshyggjustjórn fyr- irgert samningsrétti launafólks í landinu? Alumax á áhorfendabekk Á áhorfendabekknum situr Mill- er, aðstoðarforstjóri Alumax í Bandaríkjunum. Ríkisstjórnin hef- ur sýnt honum að hún er túbúin í Fyrst lokkar hann Atlantsál til samnings og breytir svo meginefni hans með bráðabirgðalögum. Þessu myndi Jón auðvitað neita. Hann er sagður svo klókur samn- ingamaður. A.m.k. kom hann fram í kvöldfréttum sjónvarps miðviku- daginn 24. október sl. og sagði mjög sannfærandi að „orð skulu standa“. Hann tvítók það meira áð segja. Allir félagar BHMR-félag- anna vita hvað það þýðir þegar ráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar segir að „orð skulu standa". Og raunar skúja ílestir landsmenn hvaö í því felst. Hefur íslenska þjóðin efni á svona stj órnmálamönnum? Birgir Björn Siguijónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.