Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 2. NÓVÉMBER 1990. íþróttir Stúfarfrá Englandi Gunnar Sveinbjömsson, DV, Englandi: • Gary Nelson, frara- herji Brighton, er nú korainn á sölulista. Nelson missti stöðu sína í liðinu í kjölfar kaupanna á John Byrne frá Le Havre. Bo- urnemouth bauð 125 þúsund sterlingspund í Nelson í síðasta mánuði en leikmaðurinn vildi ekki fara. Venables þorði ekki á blaðamannafundinn • Terry Venables, stjóri Totten- ham, var allt annað en ánægður með sína menn eftir leikínn gegn Brentford í deildarbikarnum. Eft- ir leikinn mætti Venables ekki á blaöamannfund og var sú skýring geíin að stjórinn væri ekki ánægður með leikmenn sína og kom það ekki á óvart. Stjömum- ar í Tottenham-liðinu áttu í miklu basli meö 3. deildar liðið og Vena- bles treysti sér ekki til að svara skothríð blaðamannanna í kjöl- farið. Bikarmeistarar 1976 ætla að hittast • Leikmenn Southampton, sem unnu bíkarkeppnina árið 1976, ætla aö hittast á næstunni og minnast gamalla tíma og einnig aö safna peningum til styrktar einhverju góðu málefni. Vel hefur gengið að hóa í gamla jaxla utan þess að enginn veit hvar Skotinn Jim Steel er niðurkominn. Steel fór frá Southampton árið eftir bikarsigurinn og hélt til Banda- ríkjanna og síðan hefur ekkert til hans spurst Venglos hefur áhuga á landa sínum • Ivo Stas, 25 ára gamall leik- maður Banik Ostrava og tékk- neska landsliðsins, er kominn til Aston Villa og mun æfa með lið- inu næstu daga. Stas, sem er verðlagður á 500 þúsund sterl- ingspund, heillaöi Josef Venglos þegar Villa lék gegn banik Ostrava í UEFA-keppninni fyrir skömmu. Gibson í viðræðum við West Bromwinch • Colin Gibson hjá Manchester United á nú í viðræðum viö WBA með hugsanlegan lánssamning í huga. Gibson er nýkominn úr láni frá Port Vale, hefúr ekki komist í liðið hjá Manchester United og virðist vera búinn aö gefa upp alla von þar aö lútandi. Gill leggur skóna á hilluna vegna meiðsla • Tony Gill, miðvaliarleikmaður Manchester United, hefur orðiö að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla. Annar leikmað- ur hjá United, David Wilson, hef- ur verið lánaður til Lincoln í einn mánuö. Goodard á í erfiðleikum • Paul Goodard hjá Miiiwall er ekkert voðalega ánægður meö líf- ið þessa dagana. Goodard kom frá Derby County fyrir tæpum tíu mánuðum og kostaði 800 þúsund pund, Leikmanninum hefur ekki tekist að festa sig í sessi og hann fæst nú á útsöluveröi, jafnvel 50 þúsund pund. Boumemouth hef- ur sýnt áhuga en Goodard vill helst komast aö hjá stærri klúbbi. Stuart Pearce ánægður Stuart Pearce, leikmaður Nott- ingham Forest og enska lands- Iiösins, hefur skrifaö undir nýjan fimm ára samning við félagið. Pearce, sem er 28 ára gamall, var mjög ánægður með þennan samning og sagði aö hann gæfi honum það fjárhagslega öryggi sem hann hefði sóst eftir. Evrópuleikur FH í Kaplakrika í kvöld: „Vitum nánast ekki neitt um Tyrkina“ - segir Gunnar Beinteinsson, hornamaður FH-inga „Við vitum nánast ekki neitt um Tyrkina en reiknum með því að þeir séu fljótir og snöggir og leiki vörnina framarlega, svipað og Alsírbúar. Fyrstu 15 mínúturnar fara í að átta sig á hvernig lið þeir eru með. Við þurfum að leggja áherslu á fasta vörn og hraðaupphlaup og sjá svo til. Ég reikna með því að okkur veiti ekki af 6-8 marka sigri því tyrknesk lið hafa oft náð góðum úrslitum í heima- leikjum í Evrópukeppni," sagði Gunnar Beinteinsson, hornamaður úr FH, í samtali við DV í gær. FH mætir ETI Biskúiler.frá Tyrk- landi í 2. umferð Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik í kvöld og verður leikið í Kaplakrika klukk- an 20. Þetta er fyrri leikur liðanna en sá síðari fer fram í Ankara næsta föstudag. FH-ingar leika án þriggja sterkra leikmanna, Óskars Ármannssonar, Stefáns Kristjánssonar og Jóns Erl- ings Ragnarssonar, sem allir eiga við meiðsli að stríða. Þetta er mikið áfall fyrir FH-inga, sem þurfa að treysta á óreynda menn í lykilstööum, gegn mótherjum sem þeir vita lítil deili á. ETI ósigrandi í Tyrkalandi ETI varð meistari Tyrklands á síð- asta keppnistímabili og flest bendir til þess að liðið verji titilinn í ár. Það hefur unnið fimm fyrstu leiki sína, alla með nokkrum mun, og sló lið frá ísrael út í 1. umferð Evrópukeppn- innar. • ETI er frá borginni Eskisehir en getur ekki leikið heimaleik sinn þar. Húsið er ekki samþykkt af IHF þar sem það heldur hvorki vatni né vind- um. Liðið þarf því að leika gegn FH í Ankara sem er í 350 kílómetra fjar- lægð. Samt er reiknað með því að 3000-4000 manns mæti á leikinn. • ETI er fjármagnaö af kexverk- smiðju og þaðan kemur nafnið Bi- skúiler, sem þýðir kex! Allir leik- menn liðsins eru atvinnumenn og eru á samningi hjá félaginu til ársins 1992. Fjórir leika með tyrkneska landsliðinu og einn þeirra, Pehlívan Zekí, sem er 25 ára gamall, er reynd- asti landsliðsmaður Tyrkja í dag. • Tyrkirnir komu til íslands strax á mánudag og hafa forráðamenn FH eytt miklum tíma með þeim, farið með þá í skoðunarferðir og verslun- arleiðangra. Alls eru 29 manns í tyrk- neska hópnum, þar á meðal bæði eig- andi og framkvæmdastjóri liðsins, eiginkonur þeirra og nánustu ætt- ingjar! • Forráðamenn ETI búa á Hótel Sögu en leikmennirnir á Gistiheimil- inu Bergi í Hafnarfirði. Forráða- mennirnir gerðu sér lítið fyrir í vik- unni og leigðu sér flugvél fyrir 100 þúsund krónur til að skoða ísland úr lofti. • Atli Eðvaldsson, landsliðsfyrir- liði í knattspyrnu, hefur verið FH- ingum mjög hjálplegur í samskiptum þeirra við Tyrkina. Hann hefur gefið þeim góð ráö og útvegað þeim fylgd- armann fyrir Tyrklandsförina í næstu viku. Sá tekur á móti FH- ingum í Istanbul og verður með þeim allan tímann. • Tyrkjunum fannst ekki mikið til Laugardalshallarinnar koma, sögðu að hún væri „þreytt hús.“ Þeir er.u hins vegar hrifnir af Kaplakrikahús- inu og sögðust ekkert skilja í því af- hverju landsleikir íslands væru ekki háðir þar. • Tveir leikmanna ETI hafa mik- inn áhuga á að koma til íslands og stunda nám við háskólann. Þeir hafa spurst mikið fyrir um skólann og viðað að sér upplýsingum um hann. • FH-ingar fara utan næsta mið- vikudag og vegna þess hefur leik liðs- ins við Selfoss í 1. deild verði flýtt til þriðjudagskvölds. -VS • Guðni Guðnason reynir körfuskot en ( og Grindavíkur í Laugardalshöllinni í gærk Fyrsta Loksins Þórssigur Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Eftir íjóra nauma ósigra í úrvals- deildinni náðu Þórsarar loks að vinna sigur. Enn var einn spennu- leikurinn á ferðinni á Akureyri, en eftir framlengingu tókst Þór að sigra, 91-85, og verður fróðlegt að sjá'hvort þessi sigur „brýtur ísinn“. Til þess að fleiri fylgi í kjölfarið þurfa Þórsarar þó að leika mun betui; en í gærkvöldi. Sigurinn tókst aðeins með geysilegri baráttu í lokin. Þór var yfir í hálfleik 47-43 og leiddi framan af síðari hálfleik þó ekki munaöi miklu. Snæfell komst síðan yfir en þegar tæpar tvær mínútur voru eftir var jafnt, 78-78. Þá skoraði Þór úr þremur vítaskotum en Bárður Eyþórsson jafnaöi með þriggja stiga skoti um leið og leiktíminn rann út. Ríkharður Hrafnkelsson skoraði fjögur fyrstu stig framlengingarinnar fyrir Snæfell. En eftir það skoraði liö- ið ekki stig, Þór hins vegar 10 i röð og vann þvi örugglega. Þórsliðiö viröist hafa þann eigin- leika að geta ávallt lagað sig aö leik andstæðinganna, oft með slæmum af- leiðingum. í gær átti enginn leik- manna liðsins mjög góðan leik, en Sturla Örlygsson var geysidrjúgur í vörninni og þeir Cedric Evans, Guð- mundur Bjömsson og Konráð Óskars- son áttu góða kafla. Þá er vert aö minnast á Högna Friðriksson, kom- ungan strák sem lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki, lék lokamínútur leiksins og framlenginguna og stóð sig vel. Bárður Eyþórsson var besti maöur Snæfells og vallarins í þessum leik og réðu Þórsarar lengst af ekkert við hann. Stig Þórs: Cedric Evans 27, Sturla Örlygsson 20, Konráð Óskarsson 19, Guðmundur Björnsson 16, Jóhann Sigurðsson 5, Bjöm Sveinsson og Högni Friðriksson 2 hvor. Stig Snæfells: Bárður Eyþórsson 35, Brynjar Harðarson 11, Ríkharður Hrafnkelsson 11, Hreinn Þorkelsson 9, Þorkell Þorkelsson 9, Gennady Pe- regeud 6 og Þorvarður Björgvinsson 4. Óskar úr leik fram í janúar Óskar Ármannsson, landsliðsmaður í handknattleik, leikur ekki með íslandsmeisturum FH fyrr en í fyrsta lagi í janúar. Óskar handarbrotn- aði fyrir skömmu, bein við þumalfingur hægri handar brotnaöi, og hann er með tvo nagla í hendinni af þeim sökum. „Ég fer ekki að æfa fyrr en í fyrsta lagi eftir áramótin, og þá á eftír að koma í Ijós hvort það tekur mig enn lengri tíma að verða leikfær," sagði Óskar í samtali við DV í gær. Óvíst er hvort Stefán Kristjánsson, markahæsti leikmaöur FH-inga, getur leikið með þeim í síðari leiknum gegn ETI í Tyrklandi eftir viku. Hann slasaðist á ökkla og rist fyrir skömmu og fékk' þann úrskurð í gær að hann yrði orðinn heill eftir hálfan mánuð. Hann verður ekki með í Evrópu- leiknum í Kaplakrika í kvöld og heldur ekki gegn Selfyssingum í 1. deild- inni næsta þriðjudag. -VS - biðu lægri hlut fy KR-ingar biðu sinn fyrsta ósigur í úr- valsdeildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. KR mætti þá Grindvikingum í Laugar- dalshöllinni, sem sigruðu í leiknum, 69-71, eftir að Grindvíkingar leiddu í leikhléi, 39-45. KR-ingar áttu undir högg að sækja allan leikinn og kom máttleysi þeirra á óvart. Grindavík hafði ávallt forystu en þegar skammt var tO leiksloka jöfnuðu KR-ingar metin, 63-63, en Grindvíkingar gáfu ekk- ert eftir á lokasprettinum og sigruðu óvænt. Dan Krebbs, Bandaríkjmaður í hði Grindavík, lék sinn fyrsta leik og stóð sig vel, á greinilega eftir að styrkja liðið í vetur. KR-ingar léku einn sinn slakasta leik í langan tíma, engin barátta var í lið- inu og hittnin léleg. Uppgjör KR og Tindastóls 1 úrvalsdeildinni í Höllinni á í „Erum ákveðni halda okkar st - segir Pétur Guðmundsson í Tindastóli sem á von á mj( „Við vonumst eftir góðum stuðn- ingi áhorfenda enda eigum við marga stuðningsmenn syðra. Ég á von á mjög spennandi leik og það væri svo sannarlega gaman ef fólk fjölmennti í Höllina og skapaði mikla stemn- ingu,“ sagði Pétur Guðmundsson, körfuknattleiksmaður í Tindastóli, í samtali við DV í gær en á sunnudags- kvöld mætast topplið úrvalsdeildar- innar í körfuknattleik í Laugardals- höll. KR-ingar taka þá á móti „Stól- unum“ kl. 20 en bæöi þessi lið töpuðu sínum fyrstu leikjum á fimmtudags- kvöldið. Margir spá því að þessi tvö lið muni berjast um íslandsmeistara- titilinn í lokaslagnum í vor og víst má búast við spennandi og fjörugum leik. „Þessi lið eru bæði taplaus og það verður um eins konar uppgjör að ræða á sunnudagskvöldið. KR-ingar verða mjög erfiðir andstæðingar. Þeir hafa verið að vinna leiki naum- lega og það kemur sér vel fyrir þá. Hvað okkur viðkemur þá erum við ánægðir með okkar stöðu í dag og við erum ákveðnir í að halda okkar striki. Við höfum æft mjög vel og stuðningurinn frá fólkinu hér á Sauöárkróki er með ólíkindum góð- ur,“ sagöi Pétur Guðmundsson enn- fremur. „Hvernig er veðrið hjá þér?“ - Hvernig hefur þér líkaö dvölin á Sauöárkróki? „Mjög vel. Þetta er mjög svipað því sem ég átti von á fyrirfram. Það er gott að vera kominn aftur heim til Islands og ég sé alls ekki eftir því að hafa tekið þá ákvörðun að taka til- boði Tindastóls. Það er fallegt hér á Sauðárkróki og mér líöur mjög vel hér. Aðsókn að leikjum okkar hefur verið nyög góö og það er meira að segja fólk á æfingum hjá okkur. Hvemig er veðrið annars hjá þér?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.