Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1990, Qupperneq 17
FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 1990.
25
Suðmundur Bragason er til varnar i leik KR
völdi. DV-mynd GS
tapKR
rir Grindavík, 69-71
Dan Krebbs er líkamlega sterkur og hirti
mörg fráköst. Guðmundur Bragason barð-
ist vel en var óheppinn með skot sín. Eng-
in leikmanna KR átti góðan leik, liðsheild-
in var slök og þurfa leikmenn að taka sig
vel saman í andlitinu fyrir næsta leik gegn
Tindastóli ef ekki á illa að fara.
• Stig KR: Bow 20, Páll Kolbeinsson 14,
Guðni Guðnason 9, Matthías Einarsson
8, Axel Nikulásson 7, Guðjón Valgeirsson
4, Lárus Árnason 3, Björn Steffensen 2.
• Stig Grindavíkur: Dan Krebbs 20,
Guðmundur Bragason 16, Jóhannes Krist-
björnsson 10, Steinþór Helgason 8, Rúnar
Árnason 6, Sveinbjörn Sigurðsson 5, Ellert
Magnússon 2, Marel Guðlaugsson 2,
Gunnlaugur Jónsson 2.
-JKS
bunnudagskvöld:
3g spennandi leik
Hér er nefnilega farið að snjóa. Það
er allt orðið hvítt.“
- Er það ekki nokkuð sem þú hefð-
ir mátt búast viö?
„Jú, auðvitað og mér líkar þetta
bara ágætlega. Ég vona bara að konu
minni líki þetta en hún kemur til
mín eftir tvær vikur frá Bandaríkj-
unum. Hún hefur þó margoft sagt að
sig langi að fmna mun á árstíðum
og nú er ljóst að hún fær að kynnast
íslenskum vetri,“ sagði Pétur Guð-
mundsson sem verður í eldlínunni í
Laugardalshöllinni á sunnudags-
kvöldið þegar KR-ingar leika gegn
Tindastóli. -SK
Iþróttir
Úrvalsdeildin í körfuknattleik:
Stórkoslleg
viðureign
-þegar Njarðvík sigraði Tindastól, 103-93, í gærkvöldi
Sport-
stúfar
i j • Manchester United,
I íK I sem batt enda á sigur-
I //t I göngu Liverpool í
1 1 ensku knattspyrnunni
í haust með 3-1 sigri í leik liðaima
í deildabikamum í fyrrakvöld,
haíði ekki heppnina með sér þeg-
ar dregið var til 4. umferðar
keppninnar í gær. United sækir
Arsenal heim á Highbury og
hetðu leikmenn liösins vafalítið
óskað sér allra annarra móthérja.
Sem kunnugt er sauð upp úr í
deildaleik liðanna á Old Trafford
í Manchester fyrir skömmu en
þá slógust allir á vellinum nema
markvörður Arsenaí, þannig aö
væntanlega verður grunnt á því
góða þegar liðin mætast á ný.
Eftírtalin lið mætast í 4. umferð:
Sheffield Utd-Tottenham
Sheff. Wed./Swindon-Derby
Southampton-Cr. Pal./Orient
Aston Villa-Middlesbrough
Oxford-Chelsea/Portsmouth
QPR-Leeds
Arsenal-Manchester United
Coventry-Nottingham Forest
Leikirnar fara fram í lok nóv-
ember.
Jafnréttismót
TBR í badminton
• Jafnréttismót TBR
1990 í badminton fer
fram í húsum félagsins
við Gnoðarvog um
helgina. Keppni hefst klukkan
15.30 á laugardag og heldur áfram
klukkan 10 á sunnudag. Keppt
verður í einliðaleik, tvíliðaleik og
tvenndarleik í meistarallokki,
A-flokki og B-flokki, og keppa
konur og karlar saman í hverjum
flokki. Konum er heimilt að
keppa einum flokki neðar en þær
tilheyra en karlar keppa í þeim
flokkum sem þeir eru í.
Silfur í sveita-
keppni í boccia
• íslensk sveit hafnaði í öðru
sæti í sveitakeppni í 3. flokki í
boccia á Norðurlandamóti í
greininni sem fram fór í Uppsala
í Svíþjóð 27.-28. október. Sveitina
skipuðu Sigurrós Karlsdóttir úr
ÍFA, Árni Sævar Gylfason og
Kristín Jónsdóttir úr Ösp, Auk
þeirra kepptu á mótinu Elvar
Thorarensen, ÍFA, íris Gunnars-
dóttir, Snerpu, og Hjalti Eiðsson,
ÍFR. i einstaklingskeppninni
komust íslendingarnir ekki í úr-
slit.
Ólafur sigraði í
skammbyssukeppninni
• Ólafur Viðar Birgisson, Eyja-
maður sem keppir fyrir Skotfélag
Reykjavíkur, varö óvænt íslands-
meistari í staölaðri skammbyssu
um síðustu helgi en keppt var í
Ðigranesi í Kópavogi. Ólafurfékk
526 stig, Carl J. Eiríksson, SR,
varð annar með 525 stig og Hann-
es Haraldsson, Skotfélagi Kópa-
vogs, þriðji með 523 stig. A-sveit
Skotfélags Reykjavíkur sigraði í
liðakeppninni en hana skipuðu
Birgir Bragason, Carl J. Eiríks-
son og Ámi Þór Helgason. Ekki
hefur áður verið háö liöakeppni
í þessari grein hér á landi og ár-
angur SR, 1553 stig, er því ís-
landsmet
Vallarstarfsmenn enn
að störfum hjá Southend
• Svissneska félagið Grasshopp-
ers hreifst svo af vellinum hjá
Southend að það vildi endilega
kaupa vallarstjórann og aöstoð-
armann hans svo grassvörðurinn
þeirra yrði ekki síðri. Þegar síð-
ast fréttist voru vallarstarfs-
mennirnir ennþá við störf hjá
Southend.
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Við keyrðum upp hraðann og
markmiðið var að skilja Pétur Guð-
mundsson eftir og ég held að það
hafi tekist vel. Það var mjög eríitt
að ráða við þá, þeir eru það stórir
en þetta var mjög dýrmætur sigur,“
sagði Friðrik Rúnarsson, þjálfari
Njarðvíkinga, eftir að lið hans hafði
sigrað Tindastólsmenn, 103-93, í stór-
kostlegum leik í Njarðvík í gær-
kvöldi. í hálíieik var staðan 56-51
fyrir Njarðvíkinga.
Leikurinn var allan tímann ijörug-
ur og skemmtilegur. Njarðvíkingar
náðu að komast í 22-10 eftir sjö mín-
útna leik en gestirnir voru aldrei
langt á eftir og fimm stig skildu þau
í hálfleik. Njarðvíkingar byrjuöu síö-
ari hálfleik eins og þann fyrri með
miklu látum, komust í 79-67 eftir átta
múnútna leik en þá fóru gestirnir í
gang og náðu að skora sextán stig á
móti þemur stigum Njarðvíkinga á
fimm -mínútna kafla og staðan allt
einu orðin 82-83 fyrir Tindastól.
Njarðvíkingar léku
af skynsemi í lokin
Það voru Njarðvíkingar sem léku af
skynsemi undir lokin og Teitur Ör- -
lygsson mjög drjúgur á þessum leik-
kafla sem á þurfti. Stólarnir létu
skapið fara með sig, fengu dæmda á
sig tækni- og ásetningsvillu. Þá voru
Tindastólsmenn búnir að gefast upp
og eftirleikur Njarðvíkinga var auð-
veldur. Þar með töpuðu Tindastóls-
menn sínum fyrsta leik í úrvalsdeild-
inni í vetur.
„Við gerðum allt of mörg mistök
og þegar við náðum að komast yfir
héldum við ekki haus. Við létum
ennfremur skapið fara með okkur,“
sagði Pétur Guðmundsson, úr liði
Tindastóls, eftir leikinn í samtali við
DV.
Njarðvíkingar léku sinn besta leik
og Ronday Robertson átti stórleik
meö liðinu, hélt Pétri Guðmundssuni
niðri og náðu að hirða flmmtán frá-
köst. Teitur Örlygsson' var einnig
góður en annars lék allt liðið mjög
vel í þessum leik.
Valur Ingimundarson átti stórleik
í liði Tindastóls, skoraði meðal ann-
Auðvelt hjá
Keflavík
Jón Guðmundsson, DV, Suðumesjunx
Keflvíkingar fóru létt með Hauka
í úrvalsdeildinni í körfuknattfeik í
gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu
87-73 eftir að staðan í hálfleik hafði
verið 41-33. Leikurinn var frekar
slakur og yfirburðir Keflvíkinga
voru talsverðir.
• Stig Keflvíkinga: Jón Kr. Gísla-
son 18, Tom Lytle 14, Sigurður Ingi-
mundarson 13, Albert Óskarsson 11,
Egill Viðarsson 11, Hjörtur Harðar-
son 9, Júlíus Friðriksson 6, Falur
Harðarson 5.
• Stig Hauka: ívar Ásgrímsson 20,
Jón Arnar Ingvarsson 16, Mike No-
blet 12, Pétur Ingvarsson 10, Reynir
Kristjánsson 5, Henning Hennings-
son 4, Pálmar Sigurðsson 4, Skarp-
héðinn Eiríksson 2.
ars níu þriggja stiga körfur. Ivan
Jonas var góður í síðari hálfleik og
Pétur Guðmundsson átti ágætan leik
en hefur oft áður leikið betur.
• Dómarar voru Jón Otti Ólafsson
og Leifur S. Garðarsson og dæmdu
þeir félagar þokkalega.
• Stig Njarðvíkinga: Ronday Ro-
bertson 33, Teitur Örlygsson 26, Frið-
rik Ragnarsson 13, Isak Tómasson
13, Hreiðar Hreiðarsson 8, Kristinn
Einarsson 7, Ástþór Ingason 3.
• Stig Tindastóls: Valur Ingi-
mundarson 41, Pétur Guðmundsson
18, Ivan Jonas 15, Sverrir Sverrisson
7, Haraldur Leifsson 6, Karl Jónsson
4, Einar Einarsson 2.
Níu sæta vélarnar eru
of litlar f yrir Pétur
Það getur verið óþægilegt að vera of lítill eða of stór. Það hafa margir
reynt og körfuknattleiksmaðurinn Pétur Guðmundsson, sem leikur með
Tindastóli frá Sauðárkróki í úrvalsdeildinni, hefur ekki farið varhluta
af því í gegnum árin.
Pétur er hæsti núlifandi íslendingurinn, fullvaxinn maður, og er 2,20
metrar áhæð. Þaö má ljóst vera að erfítt getur þaö verið fyrir slíkan risa
að athafna sig á hinum og þessum stöðum. Þær eru til að mynda ekki
mjög margar bifreiðamar sem Pétur getur ekið en þær eru þó tíl. Þaö
getur hins vegar ekki einungis vafist fyrir Pétri að ferðast um vegi lands-
ins. Vandræðin gera einnig vart við sig þegar ferðast þarf um háloftin.
Leikmenn Tindastóls hafa ferðast í útileiki sína í níu sæta vélum og þar
af leiðandi án Péturs Guðmundssonar. „Ég kemst hreinlega ekki fyrir í
þessum vélum og verö því alltaf aö ferðast í útileikina með Fokkervélum
Flugleiða og mega þær ekki minni vera,“ sagði Pétur. -SK
FIRMAKEPPNI í INNAN-
HÚSSKNATTSPYRNU
Hin árlega firmakeppni ÍK í innanhússknattspyrnu
verður haldin í Digranesi í Kópavogi 11. og 17. nóv.
Stór mörk og markverðir. Þátttaka tilkynnist til Víðis
(75209/27022) og Sigvalda (43427/687171) fyrir
miðvikudag. jK
Ungmennafélagið
Hvöt, Blönduósi,
óskar eftir að ráða knattspyrnuþjálfara fyrir næsta
keppnistímabil. Upplýsingar veita Baldur í síma
95-24564 og Sigurður í síma 95-24383 eftir kl.
19.00 á kvöldin.
KSÍ og KÞFl haida fræðslunámskeið um lífeðlisfræði
og unglingaþjálfun í íþróttamiðstöðinni Laugardal
10.-11. nóv. nk. Fyrirlesarar verða Danirnir Jens
Bangsbo lífeðlisfræðingur og Per Boldt Jörgensen
fræðslufulltrúi.
Dagskrá er sem hér segir:
10. nóv. kl. 9.00-17.00 og 11. nóv. kl. 9.00-12.00:
Lífeðlisfræði.
11. nóv. kl. 13.00-17.00: Unglingaþjálfun.
Nánari upplýsingar í sima 84444 (KSÍ) og 12546
(KÞFI). Allir velkomnir.