Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1990, Blaðsíða 10
10
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990.
BKKK ;\1>ET1'K
Utlönd
Skömmtun
hafin
íMoskvu
Skömmtun hófst á nauðsynjavör-
um í Moskvu í gær. Jafnframt lýsti
borgarstjórnin því yfir að borgarbú-
ar gætu fremur en margir aðrir Sov-
étmenn verið án matvælaaðstoðar
frá Vesturlöndum.
Á liðnum árum hafa lífskjör að
jafnaði verið best í Moskvu og þar
hefur ástandið veriö skárra síðustu
mánuðinu en í mörgum öðrum borg-
um. Nú er hins vegar svo komið að
skömmtun er óhjákvæmileg til að
koma í veg fyrir hamstur.
Skömmtunarseðlar hafa verið
gefnir út. Allar helstu nauðsynjar,
eins og fatnaður og matur, eru
skammtaðar. Þá verður borgarbúum
gert að skipta alltaf við sömu versl-
anirnar og versla á tilteknum timum
til að koma í veg fyrir biðraðir.
Þetta leiðir einnig af sér að fólk úr
nágrannabyggðunum getur ekki
komið í verslunarferðir til Moskvu í
sama mæli og áður. Verslunarferðir
til Moskvu voru mjög vinsælar en
nú er framboð ekki lengur slíkt að
aörir en borgarbúar geti notið.
Reuter
Hróp gert að
Gorbatsjov
Michail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, sat undir miklu ámæli á
fundi iönrekenda í Sovétríkjunum
fyrir slaka stjórn efnahagsmála.
Stjórnendur iðnfyrirtækja, sem eru
margir af gamla skólanum, kröfðust
þess að sett yrðu neyðarlög til að
halda uppi atvinnurekstri.
Gorbatsjov svaraði ásökunum og
spurði hvort menn vildu hverfa aftur
til þess sem var fyrir daga perestroj-
kunnar. Spurningu forsetans var
svarað með hrópum og köllum frá
fulltrúum á fundinum.
Fundurinn var lokaður erlendum
fréttamönnum en af lýsingum á hon-
um að dæma var mönnum mjög heitt
í hamsi. Á undanförnum misserum
hafa iðnrekendur, sem eru enn
margir opinberir embættismenn,
staðið gegn öllum breytingum, enda
sýnt að þeir eru að tapa fyrri völdum.
Reuter
GATT-viðræður enn uppfloft
Mikil óvissa ríkir á ný um fram-
hald GATT-viðræðnanna eftir að
hætta varð fundi í landbúnaðarnefnd
ráðstefnunnar í Brussel sent í gær
vegn ósamkomulags. Um tíma í gær
ríkti meiri bjartsýnin en áður um að
takast mætti að bjarga starfi síðustu
fjögurra ára innan GATT með mála-
miðlunum í landbúnaðarmálum.
Þegar komið var undir kvöld var
þó öllum ljóst að þessi bjartsýni átti
ekki við rök að styðjast. Enn á að
reyna til þrautar í dag en nú eru full-
trúar á ráðstefnunni enn vondaufari
en áöur um árangur.
„Það er ekkert sem við getum rætt
nema afstaðan breytist. Til þess þarf
kraftaverk," var haft eftir Julius
Katz, einum af samningamönnum
Bandaríkjanna eftir virðæðuslitin í
gærkveldi.
Öllum bar saman um að fundurinn
í gær hefði valdið vonbrigðum. Emb-
ættismenn hjá GATT reyndu að
koma með málamiðlanir í land-
búnaðarmálum þannig að ríki Evr-
ópubandalagsins gæfu aðeins eftir
og samþykktu einhvern innflutning
á landbúnaðarvörum og ofurlítið
meiri niðurskurð á styrkjum til land-
búnaðarmála. Þetta tókst ekki.
Upphaflega var ætlunin að ljúka
viðræðunum í dag en það gerist ekki
nema upp úr þeim slitni endanlega.
Líklegast þykir að samkomulag náist
um að fresta viðræðunum um óá-
kveðinn tíma meðan reynt er til
þrautar að ná samkomulagi í viðræð-
um fulltrúa einstakra ríkja.
Helsta niðurstaðan til þessa í við-
ræðunum í Brussel er að ríki Evr-
ópubandalagsins hafa einangrast í
verndarstefnu sinni í landbúnaðar-
málum. Landbúnaðarráðherrar
flestra annarra ríkja hafa mælt með
auknum viðskiptum og ríki bæði
Norður- og Suður-Ameríku leggja
þunga áherslu á aö fá aðgang að
mörkuðunum í Evrópu.
Mikið ber í milli því Bandaríkja-
menn vilja 75% niöurskurð á styrkj-
um til landbúnaöar en innan Evr-
ópubandalagsins hafa menn hingað
til aðeins getað fallist á 30% niður-
skurð. Þótt mörg önnur ágreinings-
mál séu uppi í GATT-viðræðunum
þá ber hvergi eins mikið á milli og
þarna.
Reuter
Mjög kært var meö Reagan og
Thatcher þegar þau röbbuðu saman
yfir tebolla I gær. Símamynd Reuter
Endurfundir
hjá Reagan
og Thatcher
Ronald Reagan og Margrét Thatc-
her endurnýjuðu kynni sín yfir tei
og kökum á hóteli í Lundúnum í
gær. Fundir þeirra þykja enn sæta
tíðindum þótt hvorugt sé lengur í
eldlínu stjórnmálanna. Meðan þau
fóru með æðstu völd töluðu menn
um „sérstakt samband" þeirra.
Reagan var fyrr í vikunni á fundi
hjá málfundafélagi háskólans í Cam-
bridge og sagði þar að hann bæri
sérstaka virðingu fyrir járnfrúnni.
Reagan átti einnig fund með John
Major, forsætisráöherra Breta, á
skrifstofu hans í Downingstræti 10.
Hann og Nancy hittu einnig að
máli Elísabetu drottningarmóður
áður en þau héldu til kvöldverðar
með Elísabetu Englandsdrottningu.
Á morgun halda Reagan og Nancy
heim til Bandaríkjanna. Reuter
Kr. 790,-
9
9
9
Æil i — lán í óláni eftir Halla og Inga, Inga Hans Jónsson
og HaralJ Sigurðarson. Bráðsltemmtileg myndasaga um köttinn Tjúlla.
Bamagælur eftir Jókönnu A. Steingrímsclóttur. Hólmfríður Bjartmarsdóttir
myndskreytti. Hrossin í SUorradal,eftir Ólav Miclielsen. Huglj úf lýsing
á örlögum folans Rauðs. Hunclalíf Luklra eftir Marcus Pfister.
Kátkrosleg saga um ævintýri kundsins Lukka. Varenka eftir Bemadettu.
Hugljúft ög spennandi ævintýri.
Rókinson Krúsó. Myndkreytt útgáfa kinnar sígildu sögu Daniels Defoe.
Kr. 1.490
Kr- 790,
HundaUt u
ou
*wm4
m
H7/
Hrossm
Skomdá
& •