Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1990, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1990, Qupperneq 24
32 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990. Afmæli Jón Amdal Stefánsson Jón Arndal Stefánsson, Túngötu 44, Reykjavík, er sjötugur í dag. Jón er fæddur í Reykjavík og ólst upp á Siglufirði og Akureyri. Starfsferill Jón var í námi í Iðnskólanum á Akureyri í einn vetur og í Bænda- skólanum á Hvanneyri 1938-1940. Hann var í námi á Hvítárbakka- skóla í Borgarfirði 1940-1942 og vann ýmis störf á þungavinnuvél- um til 1947. Jón var í Spartan Scho- ol of Aeronavitics í Tulsa í Okla- homa 1947-1948 og réðst til Flugfé- lags íslands haustið 1948. Hann var fyrst flugvélvirki, skoðunarmaður og flugvélstjóri og kennari til 1962 og haíði sem aðalstarf kennslu á vegum Flugfélags íslands fyrir flug- virkja, flugmenn, flugfreyjur og hlaðdeild um þær flugvélar sem fyr- irtækið notaði. Jón var í stjórn Flug- virkjafélagsins 1950-1958 oghætti störfum 31. janúar 1990. Fjölskylda Jón kvæntist 7. ágúst 1950 Auði Kristjánsdóttur, f. 7. ágúst 1930. For- eldrar Auöar voru: Kristján Lárus- son, framkvæmdastjóri í Rvík, og kona hans, Björg Steindórsdóttir. Fósturböm Jóns og Auðar em: Agn- es Aðalgeirsdóttir, f. 10. mars 1951, gift Hersteini Brynjúlfssyni, f. 22. júní 1945, í forvarðarnámi í Flórens, sonur þeirra er Kári, f. 23. maí 1990; Ellert Fr. Berndsen, f. 30. júní 1964, rafeindavirki í Rvik, kvæntur Ey- dísi Mikaelsdóttir, f. 1. desember 1965 og eiga þau tvö börn: Davíð, f. 23. janúar 1985 og Viðar, f. 16. febrú- ar 1988; Birgir Stefán Berndsen, f. 12. september 1965, þungavinnu- vélamaður í Rvík, og Björgvin Ragn- ar Berndsen, f. 12. september 1965, starfsmaður Volvo í Gautaborg. Systkini Jóns eru: Sigurlaug Arndal, f. 26. febrúar 1922, bóka- vörður gift Gunnari Markússyni, safnveröi í Þorlákshöfn, kvæntur og eiga þau tjögur böm: Ásgrímur, f. 4. október 1923, smiður, kvæntur Sigurlaugu Kristinsdóttir og eiga þau eitt barn og eina fósturdóttur; Guörún Þorbjörg, f. 15. janúar 1925, gift Eyþóri B. Bollason en hann er látinn, þau eiga tvær dætur; Elín, f. 23. júní 1926, d. 22. ágúst 1926; Magðalena, f. 24. janúar 1928, gift Sigurður Baldvinssyni, loftskeyta- manni og eiga þau fimm börn: Jens- ey Jörgína, f. 19. febrúar 1929, gift Agnari Jörgensen, verslunarmanni í Rvík, og eiga þau sex börn; Elín, f. 9. ágúst 19301jósmóðir, gift Magn- úsi Gunnlaugssyni, b. á Miðfelli V, Hrunamannahreppi í Árnessýslu, og eiga þau sjö börn; Lóa, f. 24. mars 1933, var gift Birgi Sigurðssyni hár- skera, en þau eru skilin, þau eiga tvö kjörbörn, auk þess sem hún á Til hamingju með daginn 85 ára Sigríður Guðjónsdóttir, Hlíð, Skaftárhreppi. ■ 80 éra Karl Ágústsson, Litla-Garði, Akureyri. Jón Ólafsson, Klifagötu 8, Kópaskeri. 75 ára Sigríður Stefánsdóttir, Heiðarvegi 18, Reyðarílrði. Jón Uaviðsson, Neðri-Skálateigi, Norðíjarðarhreppi. 70 ára Jóbannes Kristjánsson, Klambraseli, Aðaldælahreppi. Kristján Jónsson, Byggðavegi 84, Akureyri. 60 ára Sverrir Sigurðsson, Hllðargötu 41, Buðahreppi. Erla Björgvinsdóttir, Dunhaga 21, Reykjavík. María Þorsteinsdóttir, Auöbrekku 8, Húsavík. Hólmfriður A. Árnadóttir, Hvassaleiti 40, Reykjavík. Hrefna Kristjánsdóttir, Amartanga 46, Mosfellsbæ. Eyvindur Eiðsson, Heiðargeröi 13, Akranesi. 50 ára Sigríður Ingvarsdóttir, Garðavegi 10, Hafiiarfírði. 40 ára Sigurður Þórir Sigurösson. Ugluhólum 6, Reykjavik. Páli Þorgeirsson, Oddagötu 2, Reykjavík. Jóna Kristin Antonsdóttir, Þverá, Öxnadalshreppi. Guðlaug Ámmarsdóttir, Seljabraut 38, Reykjavík. Guðlaugur Einarsson, Víkurbraut 3, Vík í Mýrdal. Guðrún Svava Guðmundsdóttir, Hjallabraut 54, Hafnarfirði. Kristinn Kristjánsson, Víkurási 4, Reykjavík. Jens Jóhannesson, Ystaseli 31, Reykjavík. Sigurborg Elva Þórðardóttir, Hliðargötu 37, Búðahreppi. Axel Mechiat, Nesvegi 63, Reykjavík. Smáauglýsing í Helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 föstudag!!! 27022 eina dóttur og óskírður sonur, f. 1935, d. fjögurra daga. Ætt Foreldrar Jóns voru Stefán Grím- ur Ásgrímsson f. 26. september 1899, d. 1. desember 1968, verkamaður og kona hans, Jensey Jörgína Jóhann- esdóttir, f. 3. júlí 1893, d. 15. júlí 1958. Þau voru lengi búsett á Siglufirði og Akureýri en bjuggu í Reykjavík frá árinu 1953. Meðal föðursystkina Jóns eru: Páll, faöir Indriða, fyrrv. forstjóra Skeljungs, og Sigurður afi Sigurðar Geirdal Gíslason, bæjar- stjóra í Kópavogi, föður Sigurjóns Birgis (SJON) skálds. Stefán var sonur Ásgríms, b. í Dæli í Fljótum, Sigurðssonar, b. í Háakoti, Pálsson- ar, b. á Miklhóli, Sigfússonar, b. í Dæli, Rögnvaldssonar, bróður Jóns, langafa Solveigar, móður Einars Olgeirssonar. Móðir Stefáns var Sigurlaug Sig- urðardóttir, b. á Stóra-Grindli, Sig- mundssonar b. á Krossi á Akranesi, Snorrasonar, b. í Andakíl, Magnús- sonar. Móðir Sigurðar á Stóra- Grindli var Guðríður en systir hennar var Helga, amma Þorbjarn- ar skálds „þorskabíts". Guðríður var dóttir Þorleifs, b. á Hæh í Flókadal, Auðunssonar og konu hans, Margrétar Þorvaldsdóttur, systur Jóns í Deildartungu, ætt- föður Deildartunguættarinnar. Móðir Sigurlaugar var Ingiríður Grímsdóttir, prests á Barði í Fljót- um, Grímssonar græðara Magnús- sonar. Móðir Gríms á Barði var Sig- urlaug, systir Kristjáns, langafa Jó- hanns Sigurjónssonar skálds og Jóns, föður Jónasar frá Hriflu. Sig- urlaug var dóttir Jóseps, b. í Ytra- Tjarnarkoti, Tómassonar, bróður Jónasar, afa Jónasar Hallgrimsson- ar skálds. Móðir Sigurlaugar var Ingibjörg Hallgrímsdóttir, systir Gunnars, langafa Hannesar Haf- stein. Móðir Ingiríðar var Ingibjörg Jósefsdóttir, b. í Hvammi, Jósefs- sonar, bróður Sigurlaugar. Jensey er dóttir Jóhannesar, járn- smiðs í Hnífsdal Elíassonar, b. í Efri- hlíð í Helgafellssveit, Jónssonar. Móðir Elíasar var Elín, langamma Helgu, móður Svavars Gests og ömmu Vilborgar Harðardóttur blaðamanns, móður Marðar Áma- sonar. Elín var einnig langamma Þóröar Kárasonar fræðimanns og Rebekku, móður Þorsteins Geirs- sonar, ráðuneytisstjóraí dómsmála- ráðuneytinu. Ebn var dóttir, Þórðar b. á Hjarðarfelli, Jónssonar, ætt- föður Hjarðarfellsættarinnar afa Jóhanns, afa Guðmundar J. Guö- mundssonar, formanns Dagsbrún- ar. Þórður var einnig, afi Kristjáns, afa Gunnars Guðbjartssonar á Hjarðarfelb og Alexanders Stefáns- sonar alþingismanns. Einnig var Jón Arndal Stefánsson. Þórður afi Halldórs, langafa Ingólfs Margeirssonar ritstjóra. Dóttir Þórðar var Guðný, langamma The- odóru, ömmu Helga Ólafssonar stórmeistara. Móðir Jenseyjar var Guðrún Jónsdóttir, b. á Hallsstöðum á Langadalsströnd, Sæmundssonar, b. í Fremri-Arnardal, Ámasonar. Móðir Guðrúnar var Vigdis Jóns- dóttir, b. á Stakkanesi, Sumarliða- sonar. Móðir Vigdísar var Þorbjörg Þorvarðardóttir, b. í Eyrardal, Sig- urðssonar, b. í Eyrardal, Þorvarðar- sonar, ættföður Eyrardalsættarinn- ar. Afmælisbarniö tekur á móti gest- um í Félagsheimili flugvirkja í Borg- artúni 22 kl. 16.30-18.30. Elís Þórarinsson EUs Þórarinsson, fyrrv. bóndi og hreppstjóri á Starmýri í Geithellna- hreppi og síðar hreppstjóri Búlands- hrepps, Steinum 6, Djúpavogi, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Elís fæddist á Starmýri og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann vann landbúnaðarstörf á býli foreldra sinna en tók sjálfur við búsforráð- um að Starmýri árið 1941 og stund- aði þar búskap til 1973. Þá flutti Elís á Djúpavog þar sem hann starfaði á skrifstofu Kaupfélags Berufjarðar til 1985. Elís sat í hreppsnefnd Geithellna- hrepps frá 1946-73 og var hrepp- stjóri þar frá 1951-73. Hann sat í stjórn Kaupfélags Berufjarðar á Djúpavogi frá 1950 og var formaður þar um skeiö. Þá sat hann í skóla- nefnd um skeið og var formaður hennar til 1962. Hann var settur kennari við farskóla Geithellna- hrepps 1962, sat í stjórn Sjúkrasam- lags Geithellnahrepps frá stofnun og var formaður hennar frá 1961, sat í stjórn sóknarnefndar, í stjóm lestrarfélagsins, í stjóm búnaðarfé- lagsins og ungmennafélagsins i all- mörg ár og var fulltrúi á Kjör- mannafundi Stéttarsambands bænda, fundum Búnaðarsambands og á aðalfundi SÍS. Þá var hann umboðsmaður Samvinnutrygginga og Brunabótafélags íslands. Eftir að Elís flutti á Djúpavog var hann hreppstjóri Búlandshrepps 1974-85. Þá var hann svæðisstjóri Lions árið 1987. Elís hefur verið kirkjuorgan- isti í Geithellnahreppi og á Djúpa- vogi. Fjölskylda Elískvæntist 22.12.1941 Þorgerði Karlsdóttur, f. 15.8.1914, húsfreyju, en hún er dóttir Karls Jónssonar, b. á Múla í Geithellnahreppi, og fyrri konu hans, Dagnýjar Þor- steinsdóttur. Elís og Þorgerður eiga íjögur börn. Þau eru Þórný, f. 8.6.1942, húsmóð- ir á Akranesi, gift Friðriki Kristins- syni bensínafgreiðslumanni og eiga þau þijúböm; Karl, f. 25.6.1943, starfsmaður Kaupfélags Berufjarð- ar en sambýhskona hans er Þór- hildur Gunnarsdóttir húsmóðir frá Lindarbrekku í Beruneshreppi og eiga þau tvo syni auk þess sem hún á son frá því áður; Sveinn, f. 18.4. 1945, húsasmiður og umsjónarmað- ur viö Skjól í Reykjavík, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur Stefaníu Sig- urðardóttur, húsmóður og lækna- ritara frá Karlsstöðum i Berunes- hreppi og eiga þau tvö börn; Hauk- ur, f. 30.11.1948, b. á Starmýri, kvæntur Stefaníu Hannesdóttur húsfreyju frá Skriðustekk í Breiðdal og eiga þau fimm dætur. Systur Elísar: Oddný, húsmóðir í Reykjavík, ekkja eftir Hermann Guðbrandsson s'em lengi starfaði hjá Sjúkrasamlagi Reykjavíkur, og Jóna Vilborg, húsmóðir i Hafnar- firði, sem er látin, en hennar maður var Sigurður Eiríksson fiskverk- andi sem einnig er látinn. Foreldrar Elísar voru Þórarinn Jónsson, b. á Starmýri, og kona hans, Stefanía Brynjólfsdóttir. Ætt og frændgarður Þórarinn var sonur Jóns, b. á Flugustöðum i Álftafiröi, Björns- sonar, b. á Flugustöðum, Antoníus- sonar, b. á Hálsi, Sigurðssonar b. í Hamarsseli, Antoníusarsonar, b. á Hamri, Ámasonar, ættföður Antoníusarættarinnar. Móðir Jóns á Flugustöðum var Kristín Sigurð- ardóttir, b. á Múla í Álftafirði, bróð- ur Gísla, föður Gísla Brynjólfssonar skálds. Sigurður var sonur Brynj- ólfs, prófasts í Heydölum, Gíslason- ar og konu hans, Kristínar Snorra- dóttur, prófasts á Helgafelli, Jóns- sonar, sýslumanns á Sólheimum, Magnússonar, bróður Árna, próf- essors í Kaupmannahöfn. Móðir Kristínar Sigurðardóttur var Ing- veldur Jónsdóttir, prests á Hólmum í Reyðarfirði, Þorsteinssonar. Móðir Jóns var Hólmfríður Jónsdóttir, systir Þorgríms, langafa Gríms Thomsens. Stefanía var systir Jörundar, al- þingismanns í Kaldaðamesi í Flóa, Elis Þórarinsson. fööur Gauks, umboðsmanns Al- þingis. Stefanía var dóttir Brynjólfs, b. á Starmýri í Álftafirði í Suður- Múlasýslu, Jónssonar, b. á Geithell- um í Álftafiröi, Einarssonar. Móðir Jóns var Guðrún, systir Högna, langafa Davíðs Ólafssonar, fyrrv. seðlabankastjóra. Guðrún var dóttir Gunnlaugs, prests á Hallormsstað, Þórðarsonar, prests á Kirkjubæ, Högnasonar „prestaföður" Sigurðs- sonar. Móðir Brynjólfs var Hildur, systir Þorsteins, langafa Brynjólfs Ingólfssonar, fyrrv. ráðuneytis- stjóra. Hildur var dóttir Brynjólfs, b. og hreppstjóra i Hlíð í Álftafirði, Eiríkssonar. Móðir Hildar var Þór- unn, systir Páls, langafa Guðrúnar P. Helgadóttur, fyrrv. skólastjóra. Þórunn var dóttir Jóns, prests á Kálfafelli, Jónssonar og konu hans, Guðnýjar Jónsdóttur „eldprests“ Steingrímssonar. Móðir Jömndar var Guðleif Guðmundsdóttir, b. á Starmýri, Hjörleifssonar „sterka" Árnasonar, b. á Höfn, Gíslasonar, bróður Halldórs, langafa Gísla, langafa Málfríðar, móður Jóhann- esar Gunnarssonar, formanns Neyt- endasamtakanna. Móðir Guðmund- ar var Björg Jónsdóttir, systir Þór- eyjar, langömmu HaUdórs, fööur Ragnars, stjórnarformanns ÍSAL. Elís tekur á móti gestum í barna- skólanum í Geithellnahreppi í kvöld eftir klukkan 20.00.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.