Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1990, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.1990, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990. Spumingin Ertu búin(n) að kaupa jólagjafirnar? Guðrún Eyjólfsdóttir nemi: Nei, en aðeins farin að hugsa fyrir því. Anna Gulla Rúnarsdóttir fatahönn- uður: Nei, en búin aö velja nokkrar. Fríða Hafberg hótelstýra: Ég var búin að kaupa þær allar í september. Tvö síöustu árin hef ég veriö svona snemma í því og fmnst þaö mikill munur. Svanborg Frostadóttir nemi: Nei, ég er bara rétt byijuð og hef keypt fjór- ar af tuttugu. Jón Helgason sendibílstjóri: Hvaö heldurðu? Ég lauk því fyrir þremur dögum. Oddný Sigmundsdóttir húsmóðir: Ekki allar en er langt komin. Lesendur______________ Mikið grín, mikið gaman Vilhjálmur Vilhjálmsson skrifar: Það hefur sannarlega verið happa- fengur fyrir þjóðina að fá svonefnt „þingrofsmál" í þjóðarumræðuna á þessum síðustu og dimmustu stund- um ársins. - Og sérstaklega hefur þjóðin fagnað því að fá tvennar al- vöru stjórnmálaumræður sama kvöldið á sjónvarpsskjánum - fyrst á Stöð 2, þar sem Davíð Oddsson og Halldór Asgrímsson öttu kappi sam- an um þjóöarsáttina, og svo síöar um kvöldiö er Davíð kom aftur og með honum Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra. Hér var um hressilega törn að ræða og það sem vakti athygli fólks öðru fremur, að ég tel, var það- að Davíð Oddsson skyldi takast á við báða Davið, Halldor og Steingrimur tóku almenning? valdamestu forystumenn Framsókn- arflokksins. Það sem mér fannst standa upp úr eftir þættina tvo var sú staðreynd aö þjóðarsáttin, bráða- birgöalögin og allt hitt sem þeim tengist og rætt er á Alþingi eða í öðr- um sölum vítt og breitt um borgina er algjört hjóm í augum þessara ráðamanna. Almenningi ætlar hins vegar að verða ofviða að kyngja því að verið sé aö spila með hann. Kom ekki Halldór Ásgrímsson ráð- herra af íjöllum þegar Davíð ýjaöi að því að launþegar heföu lagt hart að sér með að samþykkja þjóðarsátt- ina? Hann áttaði sig þó síðar og lét sem hann þekkti vel til þeirra mála. - En Halldór er ekki einn um að líta fram hjá hlutverki launþeganna í hressilega törn i sjónvarpsviðræðum spilverkinu mikla um þjóðarsáttina. Allir þingmenn hafa á einn eða ann- an hátt tekið að sér að blekkja hinn þögla meirihluta til þess að gefa for- ystumönnum verkalýðs og vinnu- veitenda svigrúm til að taka höndum saman við ráðamenn þjóðarinnar og fá almenning til að axla alfarið byrð- arnar af þjóðarsáttinni. Svona þættir eins og sjónvarps- stöðvarnar sýndu sl. þriðjudags- kvöld eru engu að síöur viss upplyft- ing og fólk metur þaö að fá þó þetta út úr spilverkinu. Mikið grín og mik- ið gaman eitt kvöld getur breytt af- stöðu sumra og alltaf eru einhverjir sem fullyrða að öllu gi’íni fylgi þó einhver alvara. sl. þriðjudag. - Voru þeir að blekkja Allt fæst í Amsterdam Keflvíkingur skrifar: Margir hér í bæ leggja nú leið sína í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og eru á leið úr landi, aðallega til nálægra borga, svo sem Glasgow og Amster- dam, til að versla fyrir jólin. - Amst- erdam virðist hafa vinninginn þar sem allt er sagt fást þar á mun betra verði en hér. En sennilega eru Keflvíkingar ekk- ert einkennandi fyrir þessa ferða- gleði umfram aðra landsmenn. Þaö er ekkert launungarmál að gjafavör- ur og fatnaður er orðinn svo dýr hér á landi aö fyrir jól eða aðra árvissa viðburði, svo sem fermingar á vorin, er hagstæðara að kaupa farmiða á tilboðsverði til nálægra landa til þess eins að gera innkaup. Blessunarlega fyrir þetta fólk hafa tollyfirvöld ekki séð ástæðu til þess að legga hald á svona varning fari hann ekki fram úr öllu hófi. Þetta er hins vegar að sjálfsögðu ekki vísasti vegurinn til að efla iðnað eða verslun í okkar landi. Og því lengur sem þessi hefð varir þeim mun erfiðara verður að setja hömlur gegn þessum ferðum - ef það er þá yfirleitt nokkuð æskilegt. Annað er þó auðvitað til ráða og það er að semja sig að háttum þeirra þjóða sem bjóða lægra verðlag og frjálsari við- skiptahætti. Það kemur að því hvort eð er, t.d. þegar og ef við tengjumst Evrópubandalaginu eða öðru svip- uðu markaðssvæði með beinum hætti. Margsinnis hefur verið talað um að tengja gjaldmiðil okkar annarri sterkri mynt til þess að treysta okkar eigin gjaldmiðil og fá fólkið til að virða hann. Þetta ætlar hins vegar að dragast illu heilli. Þessi fram- kvæmd myndi óneitanlega styrkja allt viðskiptalíf hér og vera hemill á verðhækkanir. Ég skora á íslenska ráðamenn að grípa til aðgerða í þess- um málum áður en okkur verður þröngvað til að framkvæma þetta því það verður mun sárari aðgerð og um leið aíár niðurlægjandi. Lágtekjufólk þolir kjararýrnun - hátekjufólk heimtar kjarabætur Lúðvíg Eggertsson skrifar: stjórnmálamanna vegna BHMR, þess hæstu launaflokkunum. Hann krefst Margir furða sig á bægslagangi hóps ríkisstarfsmanna sem er í . kaupgjalds sem tekur mið af hinum almenna vinnumarkaði. Hví mega lægstu launaflokkarnir ekki gera hið sama? - Algengt er t.d. 'að skrifstofu- stúlkur hafl tvöfalt hærra kaup hjá einkafyrirtækjum en hjá opinberum stofnunum. Allt ætlar hins vegar af göflunum að ganga vegna háskólamanna - þjóðarsátt er ógnað og þingrofi hót- að. Sjálfir gripu háskólamenn til að- gerða sem flokkast undir skrílslæti, settu m.a. þorskhaus á níðstöng til háðungar löglegri ríkisstjórn. Engin önnur stétt launþega hefur látið sér sæma slíkt athæfl. - Gefur það til kynna hvers konar forusta er fyrir þessum kröfuharða hópi háskóla- manna. - Mættu meölimir BHM íhuga hreingerningu þar. Sannleikurinn er sá að við þurfum lögbundin lágmarkslaun og jafn- framt lögbundin hámarkslaun. „Sjálfir gripu háskólamenn til aögerða sem flokkast undir skrilslæti," segir Launamisréttið í landinu er óþol- m.a. í bréfi Eggerts. - Frá útifundi BHMR-manna. andi. Regínaá Bylgjunni Sigurður Gislason skrifar: A Bylgjunni hlýddi ég á þann ósvífnasta orðavaðal sem ég hefi lengi heyrt. Þar hringdu hlust- endur inn. Einn þeirra, Regína Thorarensen á Selfossi, tók tíl við að úthúða Þorsteini Pálssyni, for- manni Sjálfstæðisflokksins. - Ég hefi reyndar heyrt hana hringja áður, og þá til rásar 2, og ef ég man rétt var þá sami stjórnandi þar og nú er á Bylgjunni. Hvað sem líður hláturrokum þáttarstjóra Bylgjunnar yfir óhróðri Regínu Thorarensen (sem hann kallaði elskuna sina) um formann Sjálfstæöisflokksins þá varð hún bæði sér og útvarps- stööinni til mikillar skammar með orðbragðiriu um traustan og siðferðilega heilsteyptan stjórn- málamann. Nleðbörnintil Bagdad? Sigurður skrifar: Ekki líkaði mér allskostar svar Birnu Hjaltadóttur í viötali við DV sl. föstudag er hún segist ætla að fara til Bagdad ef íslenskir ráöamenn geri ekkert í máli manns hennar sem er, eins og allir vita, gísl í írak. - Kald- hæðnislegri voru þó þau ummæli hennar að það væri þó betra að fjölskyldan væri öll saman í Bagdad og „dræpist þar“. Auðvitað skilur fólk kvíða kon- unnar en það er sífellt verið að reyna að fá mann hennar lausan og hefur þar maður gengiö undir manns hönd. Þetta eru hins vegar örlög margra þeirra sem þarna eru og Birna er ekki eina konan sem biður eftir sinum nánustu. - Og til Persaflóasvæðanna fóru Birna og fjölskylda vitandi vits að þar um kring eru róstur og áhættan við að ná í góðar tekjur er oft mikil. Þeirrefsa ráðherrum Jóhanna Gunnarsdóttir skrifar: Ég er meira en undrandi á þvi að ekki skuli tekið á máli því sem hefur verið til umræðu hér und- anfarnar vikur, þ.e. eyðslu ráð- herranna vegna ferðalaga þeirra og maka þeirra til útlanda. - Fyrrverandi hæstaréttardómari var kæröur, dæmdur og gert ókleift að búa áfram í sinu landi. Hvers vegna hann einn? Maður les svo um aö ráðherr- um á Grænlandi er refsað harð- lega fyrir svipuð brot, óhóflegan kostað vegna ferðalaga og risnu þeirra. Einnig tóku þeir sér bessaleyfi að taka út tóbak og áfengi án heimildar og einn þeirra lét skattborgarana greiða fyrir sig svæðanuddsmeðferö. Ríkisútvarpið Sjónvarp G.S. skrifar: Um leið og ég þakka fyrir aö fá. tækifæri til að kynnast starfsemi þessarar ágætu stofnunar (opiö hús 2. des. sl.), sem var bæði fróð- legt og skemmtilegt, langar mig til að koma á framfæri ósk minni og fjölda annarra að færa til sýn- ingartíma á þættinum Fjöl- skyldulíf. Þessi vinsæli íjölskylduþáttur er sýndur rétt fyrir kl. 19, þrisvar í viku, ogeinmittáþeim tima sem fólk er önnum kafið við matar- undirbúning áöur en frétta- tíminn hefst. - Trúlega er þetta erfitt en það sakar ekki aö koma með ábendingu. Mér fyndist eng- in goðgá að taka besta sjón- varpsstímann fyrir þennan þátt, þ.e. kl. 21 eða þar um kring.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.