Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1991, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 2. JANÚAR 1991.
Fréttir
Umsátursástand við Laugaveg í fimm tíma síðdegis í gær:
Hótaði að skjóta
og stinga mig
- sagði Eggert Arason sem vaknaði við barsmíðar mannsins og kvartaði við hann
Magnús Einarsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Jón Bjartmars, yfirmaður sérsveitar lögreglunnar, og Guðmundur
Guðjónsson yfirlögregluþjónn, lengst til hægri, ráða ráðum sinum á Laugaveginum i gær. DV-mynd S
Umsátursástand var við Laugaveg
46 og nærliggjandi hús í nærfellt
fimm klukkustundir síðdegis í gær.
35 ára maður hafði látið öllum illum
látum í 28 fermetra kvistíbúð sinni
og meðal annars hótaö að skjóta og
stinga nágranna sinn.
Eggert Arason, ungur maður sem
býr á hæðinni fyrir neðan manninn,
vaknaði við mikinn gauragang rétt
fyrir hádegið:
„Hann barði veggi, öskraði og lét
öllum illum látum. Ég fór upp til að
athuga hverju þetta sætti og hvaö
væri að gerast. Þá sá ég manninn
halda á einhverju sem líktist byssu
eða riffli og beina að mér. Hann hót-
aði að skjóta og stinga mig,“ sagði
Eggert í samtali við DV í gær.
Sérsveit lögreglunnar í Reykjavík
var kölluð út eftir að ólátamaðurinn
hafði neitað við lögreglu, sem kom
fyrst á staðinn, að koma út. Húsið
var umkringt og nærliggjandi götum
var lokað. Hróp og köll heyrðust þeg-
ar maðurinn fór út í glugga til að
skeyta skapi sínu á lögreglunni.
Maðurinn var einn í íbúðinni í gær
en hann hefur búið þar með konu
og tveimur htlum börnum. Aðstand-
endur mannsins voru fengnir til að
tala hann til en án árangurs. Hann
óskaði síðan eftir að fá að tala viö
Jón Oddsson lögmann. Jón talaði við
manninn í síma en kom nokkru síðar
á staðinn. Hann fór þó ekki inn í
íbúðina vegna þeirrar hættu sem
heföi getað skapast. Maðurinn til-
kynnti Jóni að hann væri vopnaður
haglabyssu og kindabyssu. Þegar
Jón Oddsson hafði verið hátt í tvo
tíma inni í húsinu að reyna að semja
við manninn var talið útséð um að
ná honum út með góðu.
Réðust þá víkingasveitarmenn til
inngöngu í íbúðina. Þeir voru búnir
að undirbúa að svæla hann út með
táragasi en frá því var hcrfið. Þess í
stað var hurð íbúðarinnar brotin upp
og skjöldur lagður að hurðinni, ef ske
kynni að hleypt yrði af skoti. Það
gerðist þó ekki en til snarpra átaka
kom á milli mannsins og víkinga-
sveitarmanna. Lögreglumönnum
tókst þó fljótlega að yfirbuga mann-
inn og var hann síðan fluttur á brott.
Ekkert vopn fannst við fyrstu sýn
og voru vanir leitarmenn lögreglu
fengnir til að hafa uppi á vopnunum
sem maðurinn sagðist vera með.
Að sögn Ómars Smára Ármanns-
sonar aðstoðaryfirlögregluþjóns hef-
ur ofangreiridur maður ekki komiö
áöur við sögu lögreglu svo heitið geti.
Samkvæmt heimildum DV átti hann
í persónulegum vandræðum. Þegar
hann ræddi viö lögreglumenn á með-
an umsátursástandið varaði sagðist
hann vilja vekja á sér athygli og
spurði hvort hann yrði ekki frægur.
Hann var undir áhrifum vímuefna.
Þegar lögreglan handtók manninn
um klukkan hálfsex var hann mjög
æstur og var látinn í fangageymslur.
Maðurinn var tekinn til yfirheyrslu
í morgun vegna málsins.
-ÓTT
29 milljóna lottópottur skiptist á sex vinningshafa:
Roðinn spratt fram
í andlitinu á mér
- segir Gísli Óskarsson, sjómaður í Vestmannaeyjum, sem fékk 5 rétta
„Þegar við vorum búin að svæfa
barnabömin á laugardagskvöldið
segi ég sisona við konuna að nú sé
örugglega einhver orðinn milli. Hún
fer þá 1 skápinn að gá að seðlunum
okkar. Ég kíkti hins vegar á tölurnar
sem ég hafði skrifaðar hjá mér í litla
bók og ekki leið á löngu áður en roð-
inn spratt fram í andlitinu á mér,“
sagði Gísli Óskarsson, sjómaður í
Vestmannaeyjum, en hann fékk
fimm rétta í lottóinu á laugardaginn
og er því tæpum fimm milljón krón-
um ríkari í dag.
Gísli hefur verið sjómaður í 36 ár
og segir lottóvinning ekki koma sér
eða konunni úr jafnvægi.
„Það er alltaf jafngaman að vinna
sína vinnu og einhverjar milljónir
breyta engu þar um. Hins vegar
breyta þessir peningar öllu hjá okkur
á þann veg að skuldimar minnka
auk þess sem við getum veitt'sjálfum
okkur þá ánægju að hjálpa bömum
okkar og bamabömum. Við sjáum
reyndar til hvað verður um pening-
ana en þeir fara alla vega ekki í pels
fyrir konuna. Hún kærir sig alls ekki
um slíkt og ég er þakklátur fyrir
það.“
Gísh og kona hans, Kristín Har-
aldsdóttir, fylltu tvo 10 raða lottó-
seðla út í vor og hafa haldið þeim
síðan. Þeir hafa nú borgað sig og
gott betur.
Sex miðar fundust með fimm tölum
réttum í lottóinu á laugardag og
skiptu hinir sex heppnu með sér fjór-
foldum potti, þeim langstærsta sem
verið hefur til skiptanna í lottóinu
nokkra sinni. í pottinum fyrir fimm
tölur réttar vora 29.643.192 krónur.
Fær hver hinna sex því 4.940.532
krónur í sinn hlut.
Gísli keypti sinn lottómiða í Vitan-
um, Vestmannaeyjum. Tveir miðar
með fimm réttum tölum vora keyptir
á einum og sama staðnum í Reykja-
vík, í söluturninum Tryggvagötu 14
í Reykjavík. „Dýr“ lottókassi það.
Einn vinningsmiði var keyptur í
Happahúsinu í Kringlunni, einn í
Þríhymingi í Þór á Hellu og loks einn
í Mosfellsbæ.
25 vora með fjóra rétta og bónus-
tölu og fær hver þeirra 106.859 krón-
ur. 752 vora með fjóra rétta og fær
hver 6.128 krónur. Loks voru 26.052
með þrjá rétta sem gefur 412 krónur
íaðrahönd. -hlh
Eldur kviknaði í íbúð á 1, hæð
í Álftahólum 4 sxðdegis í gær.
Talið er að kviknað hafi í út frá
sjónvarpstæki sem sprakk. Þetta
er í annað skiptið á skömmum
tíma sem íbúð skemmist af þess-
um völdum.
Þegar slökkviliðsmenn komu í
Álftahóla í gær stóð mikill reykur
út um stofuglugga íbúðarinnar.
Talsverður eldur var á stiga-
gangi. Dyrnar á íbúðinni voru
opnar þegar að var komið. Reynt
haíði verið að slökkva eldiim áð-
ur en branaverðir komu á staö-
inn. Tveir reykkafarar fóru síðan
inn með háþrýstistút frá dælubíl.
Tókst þeim fljótlega að slökkva
eldinn sem var aðallega við sjón-
varp og tæki sem tengd voru við
það.
Skemmdir urðmmestar í stof-
unni en einnig urðu skemmdir
annars staðar af völdum reyks,
sóts og vatns. íbúðin var reyk-
blásin, svo og allur stigagangur
hússins.
Slökkvilið fór einnig í stigagang
í fjölbýlishúsi í Jórufelli um
kvöldmatarleytíð í gærkvöldi.
Þar hafði verið kveikt í jóla-
skreytingu sem var neðst í gang-
inum. Skemmdir urðu ekki veru-
legar og var stigagangurinn reyk-
losaður. -ÓTT
EldurhjáSÁÁ:
Heppni að búið
varaðdraga
„Branaskemmdirnar eru að-
eins í einu herbergi en það þarf
að mála og setja nýjar gardínur
í allt húsið. Það er því ljóst að
þarna þarf að gera ansi mikið.
Það kom þaö mikið sót út um allt.
Miðað við sótið var eldurinn
greinilega búinn að malla þarna
lengi. Hins vegar opnum við á
venjulegum skrifstofutíma eftir
áramót," sagöi Þórarinn Tyrf-
ingsson hjá SÁÁ í samtali við DV.
Talsverður bruni varð í hús-
næði samtakanna í Síðumúla 3-5
á laugardag. Aö sögn Þórarins er
talið líklegt að eldurinn hafi
kviknað út frá rafinagnssnúrum
að jólaskreytingu sem lágu í
gluggakistunni á því herbergi
sem verst varð úti í brunanum.
Ekki hefur verið metið hve tjó-
nið er mikið. Innanstokksmunir
era tryggðir hjá Sjóvá-Almenn-
um og ekki er ljóst hvort húsa-
tryggíngar muni bæta annað tjón.
Engar skemmdir urðu á tækjum
eöa gögnum SÁÁ vegna eldsins.
Þórarinn sagði að mikil heppni
hefði veriö að dregiö var í happ-
drætti SÁÁ á aðfangadag. „Það
hefði verið illt ef eldurinn hefði
kviknað áður en við drógum. Þá
hefðu ýmis gögn skemmst," sagði
Þórarinn. -ÓTT
Friðsæl áramót
Landsmeim héldu friðsamlega
upp á að síöasti áratugur 20. ald-
arinnar er genginn f garð. Víðast
hvar á landinu var mjög stillt og
fallegt áramótaveöur. Mörgum
tonnum af sprengiefni fyrir tugi
milljóna króna var skotiö upp í
heiðan himininn.
Að sögn lögreglu á höfuðborg-
arsvæðinu var nokkuð erilsamt
fram eftir nýársmorgni en ekki
kom til neinna meiriháttar
skakkafalla. Svipaða sögu segja
logreglumenn annars: staöar á
landinu. Að sögn yfirmanns lög-
reglu á Akranesi fór óvetxju mik-
01 mannfjöldi út á götur bæjarins
til aö fagna áramótunum. Á Sel-
fossi og i Ólafsvik segjast menn
vart muna vart eftir öðrum eins
rólegheitum og á Sauðárkróki
„var þetta eins og um venjulega
helgi,“ sagði talsmaður lögreglu.