Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Síða 3
FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1991.
3
Fréttir
Óveðrið sem geisaði á Húsavík í fyrrinótt:
Vorum að drekka kvöldkaffi
þegar rúðan splundraðist
- segir Guðrún Svavarsdóttir en synir hennar skárust á glerbrotunum
„Þetta var svolítið sjokk þegar
ósköpin dundu yfir. Öll fjölskyldan
sat við borðkrók í eldhúsinu um mið-
nættið og var að drekka kvöldkaffi,
svona rétt fyrir svefninn, þegár rúð-
an splundraðist. Ég hef grun um að
eitthvað haíi fokið á hana en veit það
þó ekki fyrir víst. Manni fannst skrít-
ið að það skyldi skyndilega verða
opið út. Synir okkar fengu glerbrot
„Byssumálið“:
Rajmsóknarlögregla ríkisins
mun hráðlega senda ríkissak-
sóknara mál sem tengist mannin-
um sem sérsveit lögreglunnar í
Reykjavík handtók í húsi við
Laugaveg á nýársdag. Honum var
sleppt lausum á miðvikudag.
Að sögn talsmanns RLR gaf
maðurinn þá skýriningu við yfir-
heyrslu að hann hefði verið mjög
ölvaður umræddan morgun þeg-
ar kvartað var undan hávaða og
lögreglan kom á staðinn. Hann
gat ekki gefið skýringu á hvers
vegna hann hefði sagst hafa
byssu undir höndum. Ekkert
vopn fannst eftir að lögreglan
hafðí handtekið manninn og leit-
að á heimili hans.
-ÓTT
Akureyri:
Slökkviliðið
fékk 76 útköll
Gylfi Kristjánssan, DV, Akuieyri:
Slökkvihð Akureyrar var kall-
að út 76 sinnum á síðasta ári sem
var þremur útköllum fleira en
árið á undan.
í þessum 76 útköllum var um
bruna að ræða i 32 tilfellum en í
44 tilfellum var um að ræða grun
um eld sem átti ekki við rök aö
styðjast, hilun í brunaboða eða
að slökkvfliðið var platað.
Þrir eldsvoðar voru áberandi
stærstír, í Smáralílíð 1 í janúar,
Lundargötu 10 í febrúar og Aöal-
stræti 86a í nóvember, en í lang-
flestum tilfellum var mn litið tjón
að ræða eða ekkert.
Slökkviliðið fór í 1145 sjúkraút-
köll á árinu eða rúmlega 100 fleiri
en árið áður, Af þessumútkölium
var 231 bráðatilfelU á móti 175
árið áður.
Regína Thorarensíin, DV, Selfossi
• Að sögn Magnúsar Sigurðsson-
ar, yfiriæknis á Heilsugæslustöð-
inni, var óvenjulega rólegt um
jólin og nýárið hér á Sehossi.
Aftur á móti var talsvert mikið
að gera á gamlárskvöld en þá leit-
uðu margir á sjúkrahúsið vegna
smávægiiegra meiðsla.
Sjúkrahúsið á Selfossi á góða
og fjölhæfa iækna.
í höfuðið og hendurnar," sagði Guð-
rún Svavarsdóttir, sem býr í ein-
býlishúsi við Heiðvang á Húsavík, í
samtaU við DV í gær.
í óveðrinu, sem geisaði á Norður-
landi á miðvikudagskvöld og í fyrri-
nótt, upplifði fjölskylda Guðrúnar þá
lífsreynslu að rúða brotnaði og
skyndiiega var opið út í óveðrið frá
eldhúsinu. Guðrún ók í skyndi meö
syni sína á heilsugæslustöðina þar
sem gert var að sárum þeirra en pilt-
amir fengu glerbrot í sig sem þeytt-
ust inn í eldhúsið þegar rúðan
splundraðist. Þeir meiddust ekki al-
varlega en sauma varö nokkur spor
í hönd annars þeirra.
„Meiðslin voru ekki neitt miðað við
það sem hefði getað orðið. Björgun-
arsveitarmenn og lögregla komu síð-
an og hjálpuðu ókkur við að setja
hlera fyrir gluggann. Mér leið ekkert
vei eftir þetta og ég svaf lítið um
nóttina. En við erum búin að jafna
okkur núna,“ sagði Guðrún.
Rafmagnslaust var í Húsavíkurbæ
í gær. Guðrún var að taka til í húsinu
eftir nóttina þegar DV ræddi við
hana: „Það tvístruðust náttúrulega
glerbrot um allt, inn í skápa og ann-
að. Það er hleri ennþá fyrir gluggan-
um og ég reikna með að það taki ein-
hvern tíma að fá nýja rúðu,“ sagði
Guðrún. Hún sagði að eldhúsboröið
hefði skemmst lítillega en tjón hefði
ekki orðið að öðru leyti.
-ÓTT
Hafrannsóknaskipin Bjarni Sæmundsson og Árni Friðriksson eru farin til
loðnuleitar ásamt sex stærstu loðnuveiðiskipunum. Byrjað verður að leita
við Stokksnes og haldið síðan með Austfjörðum og norður fyrir land allt
til Vestfjarða. Það eru fiskifræðingarnir Hjálmar Vilhjálmsson og Sveinn
Sveinbjörnsson sem eru leiðangursstjórar. Á myndinni er verið að leysa
landfestar Bjarna Sæmundssonar. DV-mynd BG
Boðið upp á lax- og silungsveiðiferðir til Rússlands:
Tveggja vikna
ferðáum 190
þúsund krónur
- Ameríkumenn skipuleggja laxveiðiferðir til Síberíu
I smáauglýsingum DV á miðviku-
dag voru auglýstar lax- og silungs-
veiðiferðir frá íslandi til Rússlands
næsta sumar. Við nánari könnun
kom í ljós að það er Lúkas D. Karls-
son sem auglýsir ferðirnar fyrir
þýska ferðaskrifstofu. Lúkas dvelur
erlendis um þessar mundir en sonur
hans, Udo Lúkas, sagði í samtali við
DV að hér væri um að ræða tveggja
vikna ferðir. Um væri að ræða sex
daga í laxveiði og sex daga í silungs-
veiði. Ferðimar kosta frá Þýskalandi
150 þúsund krónur og er þá allt inn-
ifalið. Fargjöld, hótel, fæði og veiði-
leyfi. Frá Islandi til Frankfurt eru
ódýmstu fargjöld tæpar 40 þúsund
krónur. Þannig myndi svona tveggja
vikna veiðiferð kosta 190 þúsund
krónur. Þeim sem greiða alit upp í
130 þúsund krónur á dag fyrir stöng-
ina í íslenskri laxveiðiá þykir þetta
sennilega ekki hátt verð.
Þá era Ameríkanar famir að
skipuleggja laxveiðiferðir til Síberíu
og Rússlands. í bandarísku sport-
blaði er greint frá því að næsta sum-
ar verði á boðstólum 11 daga veiði-
ferðir frá Bandaríkjunum til Rúss-
lands. Þær munu kosta með öllu sex
þúsund dollara eða 330 þúsund krón-
ur. í þessu sama blaði er gerður verð-
samanburður við Island og sagt að
sex daga laxveiðiferð tii íslands kosti
sjö-þúsund dollara eða um 385 þús-
und krónur.
í blaðinu er líka lýsing á laxveið-
inni í Rússlandi og sagt að laxinn sé
að jafnaði 20 til 28 pund að þyngd.
Mjög mikið væri af svona stórum
laxi í þeim ám sem seld eru veiði-
leyfi í. Þá er silungur i rússnesku
ánum mun stærri en almennt gerist
hér á landi.
Kunnur laxveiðimaður og aðstoð-
armaður bandarískra laxveiði-
manna, sem komið hafa til íslands í
mörg ár, sagði í samtali við DV að
hópur bandarískra laxveiðimanna,
sem hann heföi aðstoðað árlega á
annan áratug, hefði kvatt sig í fyrra
með þeim orðum að þeir kæmu ekki
í bráð til laxveiða á íslandi. Þeir
sögðu verðið á laxveiðiánum hér
komið upp úr öliu valdi og það gerð-
ist á sama tíma sem samdráttur væri
í veiðinni í þessum sömu ám.
Ef þessar veiðiferðir til Rússlands
heppnast er hætt við að eigendur
veiðileyfa í laxveiðiár á íslandi geti
lent í erfiðleikum með að selja þau
verði þau jafn dýr áfram eins og nú.
-S.dór
Svisslendingar f lykktust
til íslands um áramótin
„Svissneska ferðaskrifstofan Im-
holz auglýsti í dagblaði seint í nóv-
ember 1989 áramótaferð til íslands
og þátttakan varð mjög góð því á
milli 70 og 80 ákváðu að eyða ára-
mótunum hér, þá. Svo auglýstu
þeir einu sinni í dagblaði í septemb-
er sams konar ferð til íslands og
það fylltist í ferðina á svipstundu
og 40 manns voru á biðlista en kom-
ust ekki til íslands að þessu sinni,“
segir Jónas Hvanndal, hótelstjóri á
Hótel Sögu.
Alls komu 154 Svisslendingar
hingað til lands í áramótaferðina
og bjó hópurinn á Sögu. Það var
mikið um að vera hjá hópnum.
Fyrsta kvöldið í Reykjavík þann 28.
desember var boðið upp á kvöld-
vöku, á laugardaginn var farið í
skoðunarferð um Reykjavík og ná-
grenni, á sunnudag var haldið til
Vestmannaeyja. Gullfoss-Geysis
hringurinn var ekinn á gamlársdag
og um kvöldið borðaði hópurinn
saman í Súlnasal. Þegar nýja árið
var að ganga í garð var boðið upp
á kampavín í Grillinu þar sem gest-
irnir gátu virt fyrir sér flugelda-
dýrð borgarinnar og á nýársdag
var ekið til Víkur í Mýrdal og til
baka. Hópurinn hélt svo heimleiðis
í gær.
„Fyrir fjórum árum hóf ferða-
skrifstofan að skipuleggja ferðir
um áramótin til Síberíu og fólk
virtist hafa mikinn áhuga á að fara
þangað. Þá datt mönnum í hug að
fyrst fólk vildi fara til Síberíu um
áramótin væri eins hægt að bjóða
upp á íslandsferðir um áramótin
og viðtökurnar við þeim hafa verið
mjög góðar sem sjá má,“ segir Jón-
as. -J.Mar