Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1991. Útlönd Miklir Qöldafundir í Albaníu: Tugþúsundir krefjast lýðræðis og frelsis Grískur prestur réttir albönskum flóttamönnum föt sem Grikkir hafa gefiö. Meira en fimm þúsund Albanir hafa flúið yfir til Grikklands undanfarið. Símamynd Reuter Um 90 þúsund Albanir sóttu fjölda- fundi sem haldnir voru á vegum Lýðræðisflokksins í tveimur borgum landsins í gær. Tilgangur fundanna var að þrýsta á stjómvöld að fresta komandi kosningum, sem halda á 10. febrúar, fram í maí. Þá var þess kraf- ist að allir póiitískir fangar yrðu taf- arlaust látnir lausir. Arinan fundinn, í borginni Shkod- er, sóttu um 60 þúsund manns. í þeirri borg stendur kaþólska fostum. fótum og andstaða gegn stjómvöld- um er þar mikil. Hinn fundurinn var haldinn í hafnarborginni Durres þar sem fólk hrópaði slagorð eins og: „Niður með einræðið, frelsi og lýð- ræði.“ Fundimir fóru friðsamlega fram og sýnt var frá þeim í albönsku sjónvarpi. Lýðraeðisflokkurinn var stofnaður 12. desember og er fyrsti andkomm- úniski stjómmálaflokkurinn í Alba- níu í 46 ár. Genc Polo, talsmaður flokksins, sagði að fleiri íjöldafundir yrðu haldnir á næstunni. í borgun- um Shkoder og Durres, svo og í tveimur öðram borgum, urðu hörð átök í desember við mótmælaaðgerð- ir gegn stjómvöldum sem efnt var til eftir að einræði flögurra áratuga stal- ínisma hafði verið aflýst. 157 Albanir komu fyrir rétt eftir átökin og vora margir dæmdir í allt að 20 ára fang- elsi. Á fjöldafundunum var krafist lausnar þessara fanga. Lýðræðisflokkurinn ætlar að leita allra fiðsamlegra leiða til að fá kosn- ingunum frestað þar til í maí. Telja lýðræðissinnar illmögulegt að keppa við áratuga stjóm kommúnista í mánaðarlangri kosningabaráttu. Alia forseti hefur neitað formlegum beiönum um frestun og segir kosn- ingamar verða alfrjálsar og sann- gjamar. Grið handa flóttamönnum Orð Alias hafa ekki haldið aftur af flótammönnum sem farið hafa þús- undum saman til Grikklands undan- famar vikur. Konstantin Mitsotakis, forsætis- ráðherra Grikklands, mun fara fram á það við Alia, er hann heimsækir Tirana 13. janúar, að hann saksæki ekki þá flóttamenn sem hug hafa á að snúa aftur til Albaníu. Utanríkiráðherra Grikkja hefur ít- rekað ásakanir í garð albanskra stjómvalda þess efnis að þau hafi hvatt gríska minnihlutahópa í Alb- aníu til að flýja land svo þeir hefðu ekki áhrif á úrslit kosninganna. Alb- anir neita ásökuniim þessum og segj- ast harma flótta atkvæðabærra manna. Grikkir halda fast við sitt og segja flóttamennina hvatta áfram af gylliboðum stjómvalda um land og húsnæði í Grikklandi. Reuter Uppreisnarmenn 1 Sómaliu: Hafna vopnahléi Uppreisnarmenn í Sómalíu hafa neitað að verða við beiðni um vopna- hlé og friðarviðræður í mannskæð- um átökum sem geisað hafa stans- laust frá síðustu helgi. Ósk um vopnahlé hefur komið frá Einingar- samtökum Afríkuríkja, nágranna- ríkinu Kenýa, Ítalíu og Evrópu- bandalaginu. Uppreisnarmenn segj- ast hins vegar ekki ætla að láta plata sig eins og svo oft áður og vilja ekki linna látum fyrr en Barre forseta hefur endanlega verið steypt af stóli. Barre, sem komst til valda í valda- ráni 1969, mun hafast við í gömlu neðanjarðarbyrgi hersins nálægt flugvellinum í Mogadishu. Uppreisn- armenn segjast hafa alla höfuðborg- ina á valdi sínu en heimildum ber ekki saman um stöðu þeirra. Erlend- ir starfsmenn, sem flúðu Sómalíu í gær, sögöu uppreisnarmenn hafa flugvöllinn og höfnina á valdi sínu en inni í borginni væri mikil ringul- reið. Vegna átakanna hefur skapast neyðarástand í Mogadishu þar sem lík liggja eins og hráviði um allt. Vöru- og lyfjaskortur er farinn að segja til sín og fjarskipti við landið liggja niðri. Verið er að skipuleggja brottíor þeirra 470 útlendinga sem era í SÓmalíU. Reuter Færeyjar: Sjo milljarða fjárlagahalli I fyrra var halli fjárlaga í Færeyj- um meiri en nokkra sinni fyrr. Nú þegar, áður en fjárhagur færeyska ríkisins fyrir 1990 hefur verið gerð- ur endanlega upp, liggur fyrir að hallinn á fjárlagaárinu 1990 verður um 700 milljónir danskar krónur, eða tæpir sjö milljarðar íslenskra króna. Það svarar til um 25 pró- senta framúraksturs á fjárlögun- um. Skýringuna á þessum mikla halla er að finna í alvarlega misreiknuð- um tekju- og útgjaldaþáttum fær- eyska ríkisins. Tekjur af skatti og tollum vora þannig 286 milljónum minni en gert háfði verið ráð fyrir. Hvað útgjaldahliðina varðar hafði þáttur vaxtagreiðslna og ríkis- ábyrgða verið stórlega vantmetinn. Þessir tveir útgjaldaþættir urðu tvöfalt hærri en búist haföi verið við. Þá er um að ræða mikla umfram- eyðslu á ýmsum sviðum, sérstak- lega á félagslega sviðinu. Ivan Johannessen, fráfarandi fjármálaráðherra, segir að þegar í júni hafi verið ljóst að fjárlagahall- inn fyrir 1990 yrði mikill. Hins veg- ar hefði ekkert verið hægt að leið- rétta fjárlagadæmið fyrir áramót. Þegar Ivan tók við embætti í júní 1989 vora ýmis tekjuaukalög sam- þykkt í færeyska þinginu. Skyldu- spamaði var komið á, auk þess sem tollar og gjöld voru hækkuð. Hins vegar virtust áhrif þessara hækk- ana hafa verið vanmetin en bíla- innflutningur stórminnkaði. Það þýddi aftur að tolltekjur og skrán- ingargjöld urðu mun minni en reiknað var með, sérstaklega skráningargjöldin sem urðu minni en árið á undan. Fjárlagahallinn á nýliðnu ári verður síður en svo til að bæta afar slæma efnahagsstööu Færeyja. Ritzau Hústaki í Berlin yfirgefur eitt þeirra húsa sem lögregla ruddi í gær. Á bak við sést lögreglumaður gæta dyranna. Simamynd Reuter Berlin: Atök hústaka oglögreglu Hústakar og lögregla lentu í átök- um í Berlín í gær eftir að lögregla hafði ratt þrjú hús þar sem hústakar höfðu komið sér fyrir í austurhluta borgarinnar. Húsin era á sama svæði og hörð átök milli hústaka og lög- reglu urðu í nóvembermánuði. Hústakar fóra í kröfugöngu til að mótmæla aðgerðum lögreglunnar en átökin hófust þegar nokkrir hústak- ar reyndu að brjótast inn í nálæga götu sem lögreglan hafði lokað. Steinum og kínverjum var kastað að lögreglunni og vora sjö hústakar handteknir. Enginn særðist í átökun- um en um 1200 manns tóku þátt í kröfugöngunni. Umrædd hús era í verkamanna- hverfi í austurhluta Berlínar en hús- takar settust þar að eftir sameiningu þýsku ríkjanna 3. október síðastlið- inn. Eigandi húsanna bað lögreglu um að rýma þau. Reuter Britta Kinnemark-Lander, menn- ingarfulltrúi í sænska sendiráð- inu i Kina, sésf hér pakka niður eftir að kínversk stjórnvöld vís- uðu henni og manni hennar úr landi fyrir njósnir. Brottvísun menningarfulltrúans kom í kjöl- far þess að þremur kínverskum sendiráðsstarfsmönnum í Svi- þjóð var visað ur landi i fyrra- dag. Þeir voru sakaðir um að hafa njósnað um kínverska námsmenn í Svíþjóð. Britta neit- ar öllum ásökunum um njósnir eða athæfi sem ekki samræmíst stöðu hennar eins og það heitir á diplómatamáli. Simamynd Reuter —■* ■• ■ cranysnir skæruliði finnstlátinn Talið er að hinn eftirlýsti IRA- skæraliði, Patríck Sheehy, sem fannst látinn S gær, hafi framið sjálfsmorð. Sheehy, sem var bæði eftirlýstur af bresku og írsku lög- reglunni, slapp naumlega úr höndum lögreglunnar fyrir tveimur áram og hefur hans síð- an verið mikiö leitað. Sheehy, sem sagði alltaf aö hann myndi aldrei láta taka sig lifandi, er talinn hafa verið skipu- leggjandi margra ársása IRA- skæruliðasamtakanna í Breí- landi á undanfórnum árum. Sheehy faimst látinn fyrir utan pósthús í litlu þorpi á írlandi og haföi verið skotinn í höfuðið. Lög- reglan vildi lítiö segja um at- burðinn en sagði að enginn væri granaður um morð. Allar likur bentu til sjálfsmorðs. Sovétríkin: umréttmæti byKingarinnar Samkvæmt nýlegri skoðana- könnun, sem gerð var af stofriun- um Koramúnistaflokksins, er tæpur meirihluti Svétmanna á þeirri skoðun að byltingin 1917 hafi verið rökrétt skref í sögu landsins. Þá kemur fram að námsmenn í Moskvu eru mjög gagnrýnir á fortíð Sovétríkjanna. 2000 manns svöruðu f skoðana- könnuninni sem fram fór í 10 lýð- veldum. Niðurstöðumar voru kynntar í dagblaðinu Prövdu og þar kom í fjós aö 52,2 prósent fannst byltingin 1917 hafa verið skref í réttá átt. í borg í suður- hluta Rússlands vora 68 prósent á þessari skoðun. I Moskvu var helmingur að- spurðra hins vegar á því að bylt- ingin 1917 hefði veriö söguleg mistök, sérstaklega námsmenn. Hvað varðar verk Leníns vora rúm 76 prósent aðspurðra jákvæð í hans garð en aðeins 9,5 nei- kvæð. í Moskvu vora 36 prósent neikvæð gagnvart Lenín. Könnunin var gerð vegna auk- ins efa varðandi fortíð Sovétrikj- anna. Styttur af Lenin hafa víöa verið eyðilagðar og það án at- hugasemda frá yfirvöldum á hverjum stað. Yfirmaður Marx-lenínísku stoftiunarinnar í Moskvu sagði niðurstöður könnunarinnar sýna að fólk heföi ennþá hugsjónir varðandi fortíð landsins. Hann sagði að skemmdarverk á stytt- um Leníns og hatur á stjóm- völdum mnndi deyja út aftur, „á sama hátt og fýrsta ástin“. . Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.