Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Blaðsíða 12
12 Spumingin FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1991. Hvað gerðir þú um áramótin? Margrét Árnadóttir nemi: Ekkert sérstakt. Ég var að passa bamið. Eva Björk Lárusdóttir nemi: Ég var að passa. Hinrik Jónasson nemi: Skaut upp rakettum. Ólína Ásgeirsdóttir nemi: Var í heimahúsi og hafði það gott, horföi á flugelda en skaut þeim ekki sjálf. Pálmi Þór Jónsson nemi: Skaut upp rakettum - svona 30 stykkjum. Jónína Ástmundsdóttir skrifstofu- stúlka: Ég var í Glaumbergi í Kefla- vík. Þar var rosafjör en kannski held- ur margt fólk. Lesendur dv Þjóðarsáttin þokar: Hvað gera stjórnvöld? „Sparnaðurinn einn verður okkur til bjargar.“ Óskar Jónsson skrifar: Nú ætlar allt um koll að keyra í byrjun árs með því að opinber fyrir- tæki fara af stað með verðhækkanir. Það er rafmagnshækkun á leiðinni, einnig hækkun á strætisvagnafar- gjöldum, og bihð virðist ætla að breikka veruiega á nýja árinu með því að veita þeim sem geta haldið uppi verðbréfamarkaðinum veruleg- an afslátt af skatti. Ríkisstjórninni og ráðherrum hennar er nokkuð sama um héðan af hvernig þetta veltist. Hugsunin er fyrst og fremst þessi: Þetta lafir ein- hvem veginn á meðan við höldum embættunum, og það verður þó kos- ið, ekki seinna en í vor, og þá er þetta úr okkar höndum. - Ég er ekki að segja að svona hugsi alUr ráðherr- amir því sumir þeirra hafa sýnt vemleg tUþrif til aðhalds. En svona kemur þetta þó líklega mörgum fleir- um en mér fyrir hugskotssjónir. Mér finnst að þjóðarsáttin hafi í raun hvergi komið fram nema hjá okkur sem tökum laun samkvæmt lægri stigum kjarasamninga og svo þeim sem hafa látið sig verðlagið varða og fylgjast með verðhækkun- um. Ég á við skrifstofu Dagsbrúnar sem hefur þó sýnt að svona eftirUt er einhvers virði. En nú virðist eiga að keyra fram verðhækkanir. Auðvitað eru svo vaxtamáUn kapít- uU út af fyrir sig, og á þeim vett- vangi er ekki allt sem sýnist. Sumir skulda mikið, en það em ekki marg- ir láglaunamenn sem skulda, þeir hafa aldrei haft efni á því hvort eð er. Þeir leggja frekar - ef eitthvað er Ásgeir Ásgeirsson skrifar: Um áramót er mikið um að heiðr- aðir em einstakUngar sem mest um vert þykir að sýna sóma vegna unn- inna afreka. Ég á ekki bara við heið- ursveitingu forseta og veitingu fálka- orðunnar, heldur og ekki síður aðrar verðlaunveitingar, t.d. bókmennta- verðlaun, verðlaun sem Ríkisútvarp- ið veitir og fjöldann allan af öðrum slíkum til einstaklinga. - Stundum em verðlaun veitt fyrirtækjum, en það er ekki oft, og þá eru það mun ópersónulegri verðlaunaveitingar, heldur en þegar einstakUngurinn fær þau. Jón Sigurðsson skrifar: Á jóladag kl. 11 fyrir hádegi var margt um manninn í Dómkirkjunni. Þetta var á þeim tíma þegar bíla- stæði alþingismanna, gegnt Þórs- hamri, stóðu auö og tóm. Þama var þröng á þingi og flestallir komu á - til sparnaðar og eiga því margir talsvert undir því að ekki komi Uka til þess að greipar verði látnar sópa i fjármunamyndun í bankakerfinu með vaxtalækkun. Hvar sem Utið er má sjá tilraunir til þess að eyðilegggja og koma í veg fyrir heilbrigðan vöxt í fjármálalíf- inu. Annars vegar em það ótímabær- ar og óhóflegar verðhækkanir sem Mér finnst að verðlaun hér á landi gangi mest út á að verðlauna andans verk, bókmenntir og Ustir hvers kon- ar og menn sem era í innsta hring þeirra. Oft eru þetta líka sömu menn- imir. Hér má nefna listamannalaun- in alþekktu sem koma í hlut sömu mannanna ár eftir ár. - En hvers vegna allt á andlega sviðinu? Em svona fáir hér sem hafa trú á verk- menningu? Getur verið að við íslend- ingar séum haldnir oftrú á bókinni, þótt góð sé? Hvers vegna er ekki lögð áhersla á að bæta úr þessu? Það em margir hér sem stunda raunverulega verk- bílum til kirkju. Mikil vandræði hlutust af því að reyna að ná bíla- stæði einhvers staðar í nágrenninu. Ég veit ekki hvaða tilgangi það á að þjóna að opna ekki þessi stæði fyrir hinum almenna borgara á með- an leyfi þingmanna stendur. Þetta knúnar eru fram, hins vegar eru þaö kröfur um að enginn greiði fyrir það fé sem menn fá að valsa með til að breyta í eignamyndandi hluti. Sparn- aðurinn einn verður okkar bjarg- vættur. - Getur ekki ríkið gengið einu sinni á undari með góðu for- dæmi og byrjað á að spara eins og því ber að gera? menningu með þekkingu sinni. Menn hafa útskrifast frá Háskóla ís- lands og margir þeirra búa að nokkr- um árum liðnum yfir heilmikilli þekkingu, t.d. í verkfræði, í læknis- fræði og öðrum raungreinum. - Jafn- vel í öðrum þáttum verkmenningu og uppfinningum eigum við menn sem hafa haft frumkvæði að fram- leiöslu nýrra tækja, hugbúnaðar oj* annarrar söluvöru fyrir erlendan markað. Það era ekki árlegar verð- launaveitingar fyrir þennan þátt í atvinnulífmu. - Þaö ætti hiklaust að verðlauna verkmenningu meir og betur en gert hefur verið. er alveg óþolandi og margir er þarna voru höfðu orð á því að svona fyrir- komulag væri vítavert og til vansa þeim er þessu ráða. Það er svo aftur annað mál hvort mikinn hluta miðbæjarins þurfi að taka undir bílastæði alþingismanna eins og nú er að verða raunin á, t.d. með nýju og enn stærra bílastæði við hliðina á Oddfellow-húsinu. Alþing- ismenn ættu að vera undir þá al- mennu reglu seldir sem aðrir borgar- ar hvað bílastæði varðar. Látum vera þótt bílastæði séu tekin frá fyrir ráð- herra og forseta Sameinaðs þings. Flestir ráðherrarnir hafa þó bílstjóra og þurfa því varla að bíða lengi eftir að komast til eða frá Alþingi. Bílastæði þingmanna á skilyrðis- laust að opna öllum almenningi þeg- ar ekki er þinghald, og einnig ætti að endurskoða reglur um bílastæði þingmanna með það fyrir augum að þau taki ekki heilu svæðin og lóðim- ar fyrir eigin not þann stutta tfma sem Alþingi situr nú ár hvert. Lyfturverði reykfríar Þóra hringdi: Um daginn þurfti ég að nota lyftu í 8 hæða íbúðarhúsi hér í borginni. í þessu húsi eru m.a. íbúðir fyrir aldrað fólk. Ég var stödd í lyftunni með gamalh konu ásarnt ööru fólki. Ég varð mjög undrandi þegar ég komst að því að þar á meðal voru tveir menn sem reyktu en höfðu ekki haft fyrir því að slökkva i vindlingun- um áður en þeir fóru í lyftuna. Þess gerðist heldur engin þörf því að í lyftunni voru öskubakkar á veggjum. Þetta hafa reykinga- mennimir áreiðanlega vitað og því talið sig vera í fullum rétti er þeir púuðu vindlingana. Ég kém þessu hér með á framfæri og legg til að lyftur verði alfarið reykíríar og öskubakkar flarlægðir úr þeim hið bráðasta. Vaxtahækkun- um mótmælt Gunnar hringdi: Mér finnst fara mikið fyrir þeim sem vilja fá vextina hækkaða á nýjan leik, Mér flnnst einnig að þjóðin hafi skipst í tvo hópa, þá sem geta veitt sér það sem þá lyst- ir og svo hina sem ekki hafa svigrúm til annars en að berjast harðri baráttu til að geta staðið i skilum, m.a. með því að greiða alltof háa vexti af lánum. Ég tek heils hugar undir með forsætisráðherra sem einna helst heftir maldað í móinn og á þakkir skildar fyrir að standa þeim meg- in í baráttunni sem hallar á. - Hvað verður mn fólk sem ekki getur tekið á sig hærri byrðar vaxta eða skatta? Verður því út- hýst að fullu eða fær forsætisráð- herra þann liðsauka sem dugar til að koma þessu fólki til bjargar? Loðnubrestur Guðmundur Sæmundsson skrif- ar: Umræöan um yflrvofandi loðnubrest, finnst mér til þessa hafa einkennst af umræðum um tap útgerðarmanna og loðnu- bræðslna. Alveg virðist hafa gleymst að á bak við þessar veið- ar standa „menn“ - 500-600 sjó- menn, sem myndu þá sjá á fram á mikinn tekjumissi. Gangi það eftir að engar loðnuveiðar veröa leyfðar sjáum við margir fram á um 60% tekjuskerðingu miðað við sl. ár. í DV 27. des. sl. skrifar Egill Jónsson um að þetta sé ekki sá harmleikur sem margir tali um. Ætli færi ekki um Egil ef hann sæi fram á slíka tekjuskerðingu! Það er sjaldan minnst á meðal- jónana, heldur býsnast menn af þeim sem gera bestu túrana (t.d. frystitogara). En það hefur lítið heyrst frá forystumönnum sjó- mannanna sjálfra. - Skitt með það við erum nú sjómenn! Ofhár vinningur Hrólfur hringdi: Ég er alls ekki sáttur við að vinningar Lottósms skuh geta orðið eins háir og raun ber vitni - eða allt að 30 milljónum króna. Og það er langt í frá að ég sé einn um þessa skoðun. Mér franst að einhver takmörk ætti að setja við hámark þeirrar íjárhæðar sem einn maður getur fengið i vinn- ing. Það er ekki neinum hollt að fá í hendurnar 30 milljónir króna og betra væri því að geta skipt vinningum þegar potturinn fer í svo stórar upphæöir eins og núna síöast, t.d. með því að draga aft- ur. Þaö er ekki víst að alltaf skptist potturinn svo jafn sem þá gerðist. Hámark vinninga skyldi vera 5, og allra hæst 10 milljónir króna. Bréfritari telur bílastæði þingmanna við Alþingi ekki nýtast. Verðlauna ætti verkmenningu Bflastæði alþingismanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.