Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Blaðsíða 16
16
FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1991.
Iþróttir
Nottingham Forest
vann stórsigur á Nor-
wich á útivelli, 2-6, í
1. deild ensku knatt-
spymunnar í íyrrakvöid. Bæði
lið eru um miöja deild, Forest
með 27 stig en Norwich meö 26.
Boston heldur
sinu striki
Úrslit leikja i NBA-
deildinni í körfuknatt-
leik í fyrrinótt urðu
sem hér segir:
Atianta - LA Clippers..120-107
Charlotte - Milwaukee..91-106
Cieveland-Phoenix......... 83-105
Detroit - Denver.......118-107
Indiana - SA Spurs.....121-109
Boston -NYKnicks.......113-86
Minnesota - Dallas.....115-95
Utah Jazz - Miami......112-102
Seattie - 76ers........127-99
Roger Milla kjörinn
í annað sinn
Roger Milia frá Kamerún hefur
verið valinn knattspyrnumaður
ársins i Afríku. Þessi 38 ára gamii
Keraerúnbúi sló eftirminnilega í
gegn á heimsmeistaramótinu á
Italíu í sumar og skoraði hann
tjögur mörk í keppninni. Það var
franska blaðið France Football
og afriska blaðið Africe Football
sem stóðu að kjörinu og hlaut
Milla 103 atkvæði. Annar í kjör-
inu varö E1 Quazani frá Alsír með
64 atkvæði og jafnlr í þriðja sæti
voru Rabah Madjer frá Alsír og
Omam Biyik frá Kamerún, báðir
með 60 stig. Þetta er í annað skipt-
ið sem Milla hlýtur þessa útnefii-
ingu, sú fyrri var fyrir 14 árum.
Kvenfólkið af stað
í handboltanum
Keppni í 1. deild
kvenna í handknatt-
leik hefst að nýju i
kvöld með fjórum
leikjum. Ki. 18.30 eru tveir leikir,
FH og Grótta leika í Kaplakrika
og Selfoss tekur á móti Val. KI.
19.15 leika í Laugardalshöll Fram
og ÍBV og strax á eftir leika á
sama stað Víkingur og Stjaman.
Staðan í 1. deild kvenna er þann-
ig:
Stjaman....l8 15 0 3 409-296 30
Fram......... 14 11 1 2 282-229 23
FH........18 10 1 7 325-321 21
Víkingur...l7 9 2 6 334-292 20
Valur.....16 7 0 9 293-314 14
Grótta....15 5 2 8 259-266 12
ÍBV.......18 3 1 14 323-406 7
Selfoss...16 2 1 13 284-405 5
Tveir í banní
hjá Tottenham
Tveir leikmenn Tott-
enham verða í leik-
banni á morgun þegar
félagið sækir heim 4.
deildar liöið Blackpool í 3. umferð
ensku bikarkeppninnar í knatt-
spymu. Það eru bakvörðurinn
Pat Van Den Hauwe og miðju-
maðurinn Nayim. Fjarvera Van
Den Hauwe gæti komið Guðna
Bergssyni til góða en hann hefur
verið á varamannabekk Totten-
ham í síðustu leikjum.
Þrjú hð utan deilda komust í
3. umferðina og eitt þeirra er
Barrow sem mætir 3. deildar liði
Bolton. Leikmenn Barrows koma
viðs vegar að úr norðurhéruðum
Englands og geta ekkert komið
saman til að æfa á milfi leikja.
„Ef allt fer eftir bókinni verður
okkur slátraö!“ sagði fram-
kvæmdastjóri Barrows um leik-
inn.
Tmdarnir fara
til Njarðvíkur
- í bikarkeppniimi í körfuknattleik
Njarðvíkingar, bikarmeistarar í
körfuknattleik frá árinu 1987, fá
heldur betur erfitt verkefni þegar
þeir hefja bikarvömina síðar í þess-
um mánuði. í gær var dregið í 16-liða
úrsht í bikarkeppni KKI og Njarðvík-
ingar drógust gegn hinu öfluga hði
Tindastóls, að vísu á heimavelh sín-
um í Njarðvík.
KR mætir Haukum
Það má einnig búast við að tveir aðr-
ir leikir verði hörkuspennandi. KR
mætir Haukum í Laugardalshölhnni
en þessi félög berjast nú harðri bar-
áttu um sæti í úrshtakeppni úrvals-
deildarinnar. Ennfremur eigast við
ÍR og Snæfell í Seljaskóla, tvö neðstu
hð deildarinnar sem heyja einvígi
um áframhaldandi sæti í henni.
Stjörnuleikur í Keflavík
Keflavík fær hið leikreynda 1. deildar
hð Víkveija í heimsókn. Víkverj-
amir skarta meðal annars Torfa
Magnússyni landshðsþjálfara, Jóni
Sigurðssyni, fyrrum landshðsfyrir-
hða, og Atla Eðvaldssyni, landshðs-
fyrirhða í knattspymu!
ÍS mætir Val, Þór og UÍA leika á
Akureyri, Breiðablik leikur við 2.
deildar hð Þryms og Grindvíkingar
fá b-hð Njarðvíkinga í heimsókn.
• í kvennaflokki var dregið í 8-hða
úrsht og þar lentu ÍS og Keflavík
saman fimmta árið í röð. Haukar
leika við b-lið ÍS, Grindavík við KR
og Snæfeh fær ÍR í heimsókn.
-VS
• Ben Johnson, kanadíski spretthlauparinn, sem sviptur var gullverðlaun-
um sinum á ólympíuleikunum í Seoul árið 1988 vegna neyslu ólöglegra
lyfja, er nú farinn að æfa á fullu og keppir á sínu fyrsta móti í 100 metra
hlaupi 11. janúar. Símamynd Reuter
• Jón Arnar Ingvarsson, landsliðsmaðurinn ungi úr Haukum, er stigahæsti íslen
leikmaðurinn í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, eins og sjá má hér til hliðar. Hann
skammt á eftir Ivan Jonas og Rondey Robinson í stigaskorinu. Jón Arnar og félai
mæta KR-ingum á sunnudagskvöldið en þessi lið berjast um sæti í úrslitakeppninni.
Úrvalsdelldin í körfuknattleik hefst á ný eftir fimm vikna hlé:
Nýr útlendingur kominn
til liðs við ÍR-inga
- Frank Booker leikur með ÍR gegn Njarðvík á sunnudagskvöldið
ÍR-ingar tefla fram nýjum bandarísk-
um leikmanni þegar þeir mæta Njarð-
víkingum í úrvalsdeildinni í körfú-
knattleik í Seljaskóla á sunnudags-
kvöldið. Sá heitir Frank Booker og leik-
ur hann stöðu bakvarðar. Booker þessi
er rúmlega 1,80 m á hæð og kemur í
stað Douglas Shouse sem látinn var fara
frá félaginu.
„Hann er mjög léttleikandi og mikil
skytta og við bindum miklar vonir við
hann. Þá er Ragnar Torfason byrjaður
að æfa á fúhu en Bjöm Steffensen, sem
kom aftur til okkar frá KR, verður ekki
löglegur fyrr en í þriðja leik á árinu svo
að vonandi forum við að bíta frá okk-
ur,“ sagði Jón Jörundsson, þjálfari ÍR,
við DV.
Njarðvíkingar eru efstir í A-riðh en
ÍR-ingar hafa einungis imnið einn leik
og era neðstir og því eru Njarðvíkingar
sigurstranglegri.
Keppni í úrvalsdeildinni hefst á ný á
sunnudagskvöldið eftir fimm vikna hlé.
Fjórir leikir eru þá á dagskrá og hefjast
þeir allir klukkan 20.
• Dan Krebbs fer með Grindvikingum
til Akureyrar en óvíst er hvort hann
geti leikið.
Krebbs á nokkuð í land
en verður þó í hópnum
Þórsarar fá spútnikhð Grindvíkinga í
heimsókn á Akureyri. Grindvíkingar
hafa leikið mjög vel í vetur og hðið hef-
ur unnið síðustu sjö leiki sína í deild-
inni. Þórsarar eru erfiðir heim að sækja
og gefa áreiðanlega ekkert eftir. Eins
og komið hefur fram handarbrotanði
Bandaríkjamaðurinn í hði Grindvík-
inga, Dan Krebbs, 1 byijun desember.
„Krebbs er ekki búinn að ná sér að
fuhu en ég mun samt reyna að láta
hann spila. Að minnsta kosti er hann í
10 manna hópnum sem fer norður,“
sagði Gunnar Þorvarðarson, þjálfari
Grindvíkinga, í samtah við DV.
Þórsarar leika án Jóns Amar Guð-
mundssonar, sem er í leikbanni, en
hann verður heldur ekki með Þór gegn
Val á þriðjudag.
Valsmenn taka á móti toppliði Tinda-
stóls í íþróttahúsi Vals aö Hhðarenda.
Valsmenn voru í sókn áður en úrvals-
deildin fór í frí og nái þeir að stilla
strengi sína ætti hðið að geta veitt Sauð-
krækingum harða keppni en TindastóU
er í efsta sæti b-riðUs.
Hvað gerir Haukarisinn
gegn Islandsmeisturunum?
íslandsmeistarar KR mæta Haukum í
LaugardalshöU. Þessi hð hafa oft h,
harða rimmu og eru að berjast um sa
í úrshtakeppninni en aðeins tvö sl
skhja hðin. Haukar tefla fram nýju
bandarískum leikmanni, Damon Van
að nafni. Hann er mjög hávaxinn, 2,
m á hæð, og þykir mjög sterkur lei
maður. KR-ingar hafa misst Bjöm St(
fensen th ÍR og ef að líkum lætur ]
ætti þetta að geta orðiö hörkuleiki
Staðan í úrvalsdeUdinni er anna
þannig:
A-riðill:
Njarðvík.........13 10 3 1191-926
KR...............13 8 5 1061-1020
Haukar...........13 7 6 1073-1073
Snæfell..........14 2 12 962-1168
ÍR...............13 1 12 973-1216
B-riðill:
Tindastóll......13 11 2 1294-1162
Keflavík.........14 10 4 1331-1247
Grindavík.......13 9 4 1135-1074
Þór..............13 4 9 1216-1208
Valur............13 4 9 1068-1140
-GH/ÆM