Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Page 23
FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1991 31 Erlend myndsjá Tveir félagar i hinum nýja Lýðræðisflokki i Albaníu sjást hér haida á brjóstmynd af fyrrum leiðtoga Albana, Enver Hoxha. Hoxha var stalínisti og þykir persónugervingur kúgunar þeirrar og innilokunar sem Albanar hafa mátt þola í fjóra áratugi. Lýðræðisflokkurinn hélt mikinn fund í Tirana um áramótin og þótti alls ekki við hæfi að láta hausinn á Hoxha gina fyrir fundarmönnum. Því var fyrrum leiðtogi landsins settur í geymslu frammi á gangi. Simamyndir Reuter Þessi kona hafði ástæðu til að brosa sínu breiðasta á nýju ári. Þetta er Sharon Pratt Dixon sem sór eið sem borgarstjóri Washingtonborgar í Banda- rikjunum 2. janúar. Hún er fyrsta blökkukonan til að gegna embætti borgar- stjóra í stórborg í Bandarikjunum. Vörður alþýðulögreglunnar í Peking stendur vörð utan við sendiráð Svía i borginni eftir að Kínverjar höfðu rekið menningarfulltrúa sendiráðsins úr landi. Sú aðgerð kom i kjölfar brottvisunar þriggja Kinverja frá Sviþjóð en þar voru þeir grunaðir um njósnir gegn löndum sínum. ■ . Kúbanski fáninn blakti hressilega þegar þessi yngismær prófaði nýja hjólið sitt á götum Havana á fyrstu dögum nýja ársins. Kúbumenn flytja inn reiðinnar býsn af kínverskum reiðhjólum og mun tilgangurinn vera sá að spara bensín og olíu. Dalai Lama, leiðtogi Tíbeta, sést hér biðjast fyrir eftir að hafa leitt 50 þús- und manna friðargöngu í bænum Sarnath á Norður-lndlandi í fyrra- dag. Gangan var farin fyrir friði i heiminum og sáttum í indlandi þar sem miskunnarlaust ofbeldi hefur sett svip sinn á daglegt líf manna undanfarið. ■ 1 Þessi gamli maður lifði af skæðan bruna i gistihúsi i Ipswich i Englandi um áramótin. Fimm manns fórust í brunanum en hann slapp á brókinni einni saman. Aðrar föggur hans urðu eldinum að bráð, nema göngustafur- Stuðningsmenn Yassers Arafat bera fallna félaga sína til grafar i fyrradag. Þeir féllu í loftárás ísraela i bækistöðv- um þeirra í libönsku hafnarborginni Sidon á sunnudag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.