Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Side 31
FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1981.
39
e>v Viðtalið
Nafn: Bergsveinn
Sampsted
Aldur: 24 ára
Starf: Markaösstjóri ls-
lenskrar getspár
Bergsveinn Sampsted var ráð-
inn markaðsstjóri Islenskrar get-
spár um áramótin. Bergsveinn
tekur við því staríi af Skúla Unn-
ari Sveinssyni.
Bergsveinn er fæddur í Reykja-
vik en alinn upp i Kópavogi. Ætt-
ir sínar á hann að rekja vestur í
Dali og til Skotlands. „Forfaðir
minn var skoskur og þaðan kem-
ur eftirnafnið. Það er hins vegar
dálítið langt aftur í ættir og er
dálítið á huldu.“
Eftir hefðbundna skólagöngu
fór Bergsveinn í Verslunarskól-
ann. „Ég var þar fjögur ár og út-
skrífaðist 1986. Þá fór ég beint til
Bandaríkjanna í nám í markaðs-
fræðum. Skólinn, sem ég var í
heitir University of South-Caro-
Iina í Suður-Carolinufylki.*'
Markaðsfræöi er áhuga-
vert nám
Nám í markaðsfræði felst aðal-
lega í mannlegum samskiptum,
auglýsingum og öðru því sem
markaðnum tengist „Samhliða
þessu lærír maður ýmislegttengt
viðskiptum, eins og hagfræði og
stæröfræði. Þetta er mjög áhuga-
vert nám fyrir þá sem hafa gaman
af þessari hlið mannlífsins. Það
er mikið spáð í mannlega hegðun
og það þykir mér miög spenn-
andi." Bergsveinn lauk markaðs-
fræðináminu 1989. Eftir það hóf
hann störf hjá Vísa-Íslandi við
greiðslumiðlun.
Sem markaðsstjóri íslenskrar
getspár mun Bergsveinn sjá um
auglýsingar og kynningar á lottó-
inu. „Þetta er náttúrlega viöam-
ikið starf. Ég sé um auglýsingar
i blöðum, timaritum, hljóðvarpi
og sjónvarpi. Mér líst miög vel á
að taka við þessu starfi og það
leggst vel í mig. Við fyrstu sýn
virðist mér þetta vera skemmti-
legt fyrirtæki. Lottó er orðiö stór
þáttur i lífi margra og það er gam-
an að takast á við þetta. En það
sem mér finnst best við þetta er
að málstaðurinn er góður. Pen-
ingarnir renna beint í íþrótta-
hreyfmguna og þvi sem henni
tengist." Bergsveinn segist sjálf-
ur alltaf spila í lottóinu.
Ólst upp á knattspyrnuvöll-
um
Áhugamál Bergsveins eru úti-
vist af öllu tagi. „Ég ólst nú upp
á knattspyrnuvöUunum og spil-
aði meðal annars fótbolta i meist-
araflokki Vals áður en ég fór út
til Bandaríkjanna. Svo spilaði ég
með skólaliðinu úti. En fyrir utan
fótboltann eru það golfiö og skíö-
in og þessi almeima útivist sem
ég hefáhuga á.“
Helsta mottó Bergsveins í lífinu
er að standa sig í því sem hann
tekur sér fyrir hendur og gera
það vel.
Bergsveirm er bamlaus en sam-
býhskona hans er Hrönn Sveins-
dóttir, nemi í Háskóla íslands.
-ns
Fréttir
Prófkjör Alþýöuflokksins í Reykjavík verður 2. og 3. febrúar:
Þröstur og Össur
ætlaíslaginn
- Þorlákur Helgason býður sig fram í 1. til 3. sæti
„Ég sé enga ástæðu til þess að ein-
hverjir geti setið í vemduöum sætum
á lista Alþýðuflokksins. Því hef ég
ákveðið að gefa kost á mér í 1. til 3.
sæti í prófkjörinu í Reykjavík," sagði
Þorlákur Helgason, fyrrverandi
skólastjóri Fjölbrautaskóla Selfoss,
en nú blaðamaður á Alþýðublaðinu,
í samtali við DV. Þorlákur er sá fyrsti
sem lýsir því yfir að hann æth að
keppa við þau Jón Baldvin formann
og Jóhönnu Sigurðardóttur vara-
formann um efstu sætin á hstanum.
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykja-
vík fer fram dagana 2. og 3. febrúar
næstkomandi. Ekki er annaö vitað
en að um opið prófkjör verði að ræða.
Frestur til að tilkynna þátttöku renn-
ur út 21. janúar.
Meðal þeirra sem DV hefur vissu
fyrir að em að hugsa um að gefa
kost á sér í 3. sætið má nefna Össur
Skarphéðinsson og Þröst Ólafsson,
en þeir eru báðir fyrrum alþýðu-
bandalagsmenn, Sjöfn Sigurbjöms-
dóttur, fyrrum borgarfíúltrúa, og
Lám V. Júhusdóttur, en hún skipaði
4. sætið á hsta flokksins við síðustu
kosningar.
Að sögn Þorláks Helgasonar hefur
hann enn ekki fengið að vita hvernig
prófkjörsreglumar verða. Þó er talað
um að menn verði að fá 25 prósent
af því fylgi sem flokkurinn fékk í síð-
ustu alþingiskosningum til þess að
niðurstaða prófkjörsins verði bind-
andi. Flokkurinn fékk 9.527 atkvæði
í síðustu alþingiskosningum.
-S.dór
Nú eru ný kvótalög gengin i gildi og menn geta farið að huga að vetrarvertíð með nýja kvótann sinn. Hvað er
þá eðlilegra en að byrja á því að skoða hvort trollið er i lagi? DV-mynd GVA
Selfoss:
Hungur þekkist ekki
hjá bæjarbúum
Umsvif bæjarins aukast á hveiju
ári enda hefur fólk jafnar tekjur
og fátækt þekkist ekki hjá Selfoss-
búum né matarleysi og hungur
veit enginn hvað er í þessum fjöl-
menna bæ. Það er eitthvaö ahnað
en maður heyrir í fjölmiðlum um
borg Daviðs. Hér búa allir í glæsi-
legum húsum með ódýran hita og
rafmagn.
Regína Thorarensen, DV, Selfossi:
Að sögn Karls Björnssonar, bæj-
arstjóra á Selfossi, eru 120 fastráðn-
ir menn allt áriö þjá bænum, þar
af er hluti í hálfs dags starfi. Auk
þess hafa á annað hundrað manns
vinnu hjá bænum yfir sumarmán-
uðina.
Á Selfossi er jöfn og góð vinna
árið um kring og engar sveiflur í
atvinnumálum. Miklar fram-
kvæmdir hafa verið hjá bæjarfé-
laginu á undanfornum árum og
árið í ár verður engin undantekn-
ing frá því. Nú er til dæmis verið
að breyta KÁ-húsinu gamla í bóka-
safn og verður þar hýst stór bóka-
gjöf frá heiðurshjónunum Kristínu
Jónsdóttur og Eiríki Eiríkssyni. Á
döfinni er svo að byggja við grunn-
skólann ásamt mörgum öðrum
smáframkvæmdum sem eiga að
klárast í vetur.
Vedur
Norðaustan- og norðanátt, viða hvasst um noröan-
og vestanvert landið en lægir heldur er líður á dag-
inn. Öllu hægari vindur suðaustanlands, Norðan-
lands og á Vestfjörðum verður snjókoma eða élja-
gangur, skúrireða slydduél á Norðaustur- og Austur-
landi en úrkomulaust að mestu og jafnvel nokkuð
bjart veður suðvestantil á landinu. Lítið eitt kólnar i
veðri, einkum um norðanvert landið.
Akureyri slydda 1
Hjaröarnes alskýjað 2
Galtarviti snjókoma -2
Keflavíkurflugvöllur hálfskýjað 1
Kirkjubæjarklaustur skýjaö 2
Raufarhöfn rigning 2
Reykjavik hálfskýjað 1
Vestmannaeyjar skýjað 2
Bergen haglél 2
Helsinki snjókoma -1
Kaupmannahöfn rigning 5
Osló alskýjað -2
Stokkhólmur skýjað -1
Þórshöfn hálfskýjað 5
Amsterdam skýjaö 6
Berlín rigning 7
Feneyjar þokumóða 5
Frankfurt rigning 9
Glasgow skúr 6
Hamborg skýjaö 7
London léttskýjað 4
LosAngeles rigning 12
Lúxemborg rigning 5
Malaga léttskýjað 12
Mallorca þokuruðn. 5
Montreal alskýjað -6
New York léttskýjað 2
Nuuk alskýjað -9
Orlando mistur 19
París skýjað 7
Róm þokumóða 8
Valencia léttskýjað 9
Vin þoka -1
Winnipeg skafrenning -18
Gengið
Gengisskráning nr. 2. - 4.. janúar 1991 kl. 9.15
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Tollgengi
Dollar 54,820 54,980 55,880
Pund 106,721 107,032 106,004
Kan. dollar 47.589 47.728 48,104
Dönskkr. 9,5364 9,5642 9,5236
Norsk kr. 9,3725 9,3999 9,3758
Sænsk kr. 9,7797 9,8082 9,7992
Fi. mark 15,1961 15,2405 15,2282
Fra. franki 10,8030 10,8346 10,8132
Belg.franki 1,7793 1,7845 1,7791
Sviss. franki 43,3582 43,4848 43,0757
Holl. gyliini 32,5197 32,6146 32,5926
Þýskt mark 36,6775 36,7845 36,7753
it. líra 0,04878 0,04893 0,04874
Aust. sch. 5,2135 5,2287 5,2266
Port. escudo 0,4112 0,4124 0,4122
Spá. peseti 0,5787 0,6804 0,5750
Jap. yen 0,41125 0,41245 0,41149
irskt pund 97,983 98,269 97,748
SDR 78,3581 78,5868 78,8774
ECU 75,4789 75,6992 75,3821
Fiskmarkaðimir
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
3. janúar seldust alls 4,329 tonn.
Magní Verðíkrónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Keila 1,254 50.00 50,00 50,00
Ufsi.ósl. 0,017 34,00 34,00 34,00
Steinbítur, ósl. 0,136 89,00 89,00 89,00
Langa.ósl. 0,015 30,00 30,00 30,00
Keila, ósl. 0,311 25,00 25,00 25,00
Karfi 0,023 42,00 42,00 42,00
Langlúra 0,612 25,00 25,00 25,00
Ufsi - 0,062 37,00 37,00 37,00
Þorskur 1,277 149,00 149,00 149,00
Steinbítur 0,060 86,00 86,00 86,00
Skata 0,053 82,21 5,00 98,00
Langa 0,509 65,00 65,00 65,00