Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.1991, Page 32
Hafit þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjorn - Augiýséngar - Ás ikrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,oháð dagblað
FÖSTUDAGUR 4. JANÚAR 1991.
Rafmagnsbilanimar:
Tjónið skiptir
tugum milljóna
- segir Kristján Jónsson
„Kerfið hefur ekki orðið fyrir
svona áhlaupi í áratugi. Þetta er það
versta sem getur komið fyrir; hitastig
í kringum núll og mikið rok. Þá
myndast gifurleg ísing og þá lætur
allt undan. Það er ljóst að tjónið
skiptir tugum milljóna," segir Krist-
ján Jónsson, rafmagnsveitustjóri
ríkisins, við DV í morgun.
Mikið tjón varð á rafveitukerfinu á
Noröurlandi og Vesturlandi vegna
ísingar og roks í gær og fyrradag og
víða var rafmagnslaust. Hundruð
staura í háspennulínum brotnuðu,
aðallega vegna mikillar ísingar sem
myndaðist á línum. Voru sumar lín-
urnar orðnar hátt í metra á þykkt
þegar þær brutu staura niður vegna
þess hve þær voru þungar.
Kristján segir að reynt verði aö
koma á rafmagni á sem flestum stöð-
um í dag en segist ekki geta sagt
hvenær viðgerðum ljúki. Víðs vegar
á Norðurlandi vestra getur það tekið
langan tínia og jafnvel nokkra daga.
Hann segir að línurnar við Blöndu-
ós, um Skagaströnd, Langadal,
Skagafjörð, Hofsós, á Skaganum og í
Fljótunum séu meira og minna slitn-
ar. Svipaða sögu er aö segja í Suður-
Þingeyjarsýslu. Ástandið þar er mjög
slæmt. -kaa
Raflínurliggja
niðuraðvegum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Þjóðvegirnir innan og utan við
Akureyri voru lokaðir í morgun
vegna þess að rafmagnslínur, sem
voru orðnar sligaðar undan snjó-
fargi, lágu alveg niður að vegunum.
Nærri Hrafnagih og við Freyjulund
á Ólafsfjarðarvegi lágu rafmagnslín-
ur niður að vegunum vegna snjó-
fargs og hafði lögreglan brugðið á það
ráð að loka þeim þar til viðgerð hefði
farið fram, en í morgun var ekki vit-
að hvenær það yrði.
Á þriðja þúsund
bíðaeftirflugi
„Það bíða um 2400 manns eftir flugi
hjá okkur í dag og útlitið er satt að
segja ekki of gott. Það er fært til Vest-
mannaeyja, Egilsstaða og Horna-
fjarðar en ófært enn um allt norðan-
og vestanvert landið,“ sagði Kristinn
Stefánsson hjá Flugleiðum í morgun.
Veðurspáin bendir ekki til að fært
verði vestur í dag. Til staða á Norður-
landi taldi Kristinn ekki útilokað að
komist yrði í dag ef veður gengur
niður eins og spáð er.
Svipuð staða er hjá Arnarflugi. -GK
LOKI
Finnurhlýturaö
finna fyrir þessu!
Framsóknarmenn í Reykjavík:
inii J w
VIIJ313
Steingrím í
efsta sætið
- „tel þetta fráleitt,“ segir Steingrímur Hermannsson
Áhrifamenn í Framsóknar- að af þessu verði. Guðmundur G.
flokknum í Reykjavík hafa rættþað Þórarinsson alþingismaöur hefur
við Steingrím Hermannsson, for- ákveðið aö bjóða fram sérlista í
sætisráðherra og formann flokks- Reykjavík, eins og annars staðar
ins, að hann færi sig um set úr efsta er skýrt frá í DV í dag. Guðmundur
sætinu á Reykjanesi og taki efsta óskar eftir því að fá listabókstafina
sætiðálistaflokksinsíReykjavík. BB. Talið er víst að fulltrúaráð fé-
„Ég get ekki neitað því að þetta laganna í Reykjavik hafni því
hefur verið nefnt, Ég get hins vegar vegna þess hve mikill hiti er kom-
ekki úttalað mig um þetta. Það vita inn í þetta mál. Guðmundur ætlar
allir hvernig þessi mál standa hjá þá fram með lista undir einhverj-
okkur,“ sagði Alfreð Þorsteinsson, um öörum bókstaf. Þar með myndu
borgarfulltrúi Framsóknarflokks- þau atkvæði, sem hann fengi, ekki
ins í Reykjavfk. nýtast flokknum eins og þau
„Það er rétt að þetta var nefht myndu gera ef hann fengi leyfi til
við mig fyrir nokkrum vikum en að nota listabókstafina BB. Fróðir
ég tel þetta fráleitt," sagði Stein- menn um pólitík telja að þar með
grímur Hermannsson í morgun. myndi Framsóknarflokkurinn
Alfreð var spurður hvort málið missa þennan eina þingmann sem
væri enn í gangi eða hvort þetta hann hefur í Reykjavík.
væri liðin tíö. Framsóknarmenn í Reykjavík
„Það er mjög erfltt fyrir mig að hafa áöur gert það aö kalla for-
ræða þetta. Framboðsmálin hjá mannsinntilframboðsíReykjavík
okkur i Reykjavík eru öll í deigl- þegar illa stóð á. Það var þegar
unni og á þéssari stundu get ég eig- Ólafur Jóhannesson flutti sig úr
inlega ekki sagt meira en þetta,“ Norðurlandskjördæmi eystra og
sagði Alfreð, tók efsta sætið í Reykjavlk árið
Samkvæmt heimildum DV er 1979, -S.dór
mikill og vaxandi áhugi á þvx hjá _ sjá einnig bls. 2
framsóknarmönnum í Reykjavik
Sérfræðingar á Borgarspítala:
Hætta í dag að standa
vaktir aðstoðarlækna
„Við hefðum þurft að taka niður Ijósið ef salan hefði verið meiri,“ segir
Vilhjálmur Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri íslenskrar getspár, þar sem
hann stendur viö súlu sem mælir söluna fyrir síðasta pott sem var fjórfald-
ur. Frá upphafi lottósins hafa verið gerðar súlur fyrir sölutölur en eins og
sjá má á myndinni nær síðasta súla langt inn á loftið og næstum því að
Ijósinu. Landsmenn keyptu lottómiða fyrir 198 milljónir í desember og að
sögn Vilhjálms hefur salan aldrei fyrr farið yfir 100 milljónir á mánuði. í
siðustu viku var heildarvinningsupphæðin tæpar 48 milljónir. DV-mynd GVA
Sérfræðingar á skurðdeild Borgar-
spítalans hafa lýst því yfir að frá og
með deginum í dag muni þeir ekki
standa forvaktir, eða þær vaktir sem
þeir hafa staðið fyrir aðstoðarlækna.
Tveir sérfræðingar á slysadeild hafa
einnig lýst þessu yfir og búist er við
að fleiri bæ’tist í hópinn.
Örn Smári Arnaldsson, formaður
læknaráðs Borgarspítalans, segir að
það hafi legið ljóst fyrir undanfama
daga að þetta myndi gerast. „Hver
deild hefur tiltölulega fáa sérfræð-
inga og það verður dregið úr þjón-
ustu hjá hverri og einni til að geta
Veðriðámorgun:
Hvassviðri
eða stormur
Á morgun verður norðaustan-
átt á landinu, hvassviðri eða
stormur á Vesturlandi og á vest-
anverðu Norðurlandi en hægari
í öðrum landshlutum. Á Suður-
og Suðausturlandi verður úr-
komulaust en annars staðar
verður él. Hitinn verður rétt und-
ir frostmarki við ströndina en
meira frost inn til landsins.
sinnt bráðaþjónustu þegar slíkt kem
ur upp á. Menn hafa lagt mikið á sþ
undanfarið meðan þeir hafa séð ac
samningaviðræður eru í gangi en ni
hefur deilunni veriö vísað til sátta-
semjara. Ég vona bara að málið gang
hratt þar svo eðlileg starfsemi kom-
ist í gang aftur.“
í gær shtnaði upp úr viðræðuir
samninganefnda ríkis og borgar of
lækna. I dag verður fundur hjá for-
mönnum læknaráða spítalanna o§
einnig verður fundur hjá félagi sér-
fræðinga. -ns
£ C 72177 \
SMIÐJUKAFFI
SBHDOM FRÍTT HCtM
OPNUM KL. 18 VIRKA DAGA
OG KL. 12 UM HELGAR
OTTO