Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Blaðsíða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991.
17
íþróttir
íþróttir
Sport-
stúfar
Nú um helgina fór fram 4. stiga-
mót Billiardsambands íslands og
Tryggingamiðstöðvarinnar. Eftir
marga spennandi leiki mættust
Eðvarð Mattníasson og Arnar
Richardsson í úrslitum. Eðvarð
haföi betur í úrslitaleiknum og
sigraði, 4-0. í þriðja til íjórða sæti
urðu Viðar Viðarsson og Jónas
P. Erlingsson en keppendur voru
64. Staðan eftir fjögur stigamót
er þannig:
1. Eðvarð Matthíasson...234,25
2. Brynjar Valdimarsson.229,55
3. Jónas P. Erlingsson..184,60
4. Arnar Richardsson....175,50
5. Fjölnir Þorgeirsson..106,92
Hasará pöllunum
á Ítalíu
'] Sigur Juventus gegn
Napolí var merkilegur
/7 • fyrir þær sakir að
.."mJ þetta var 1000. sigur
liðsins í 1. deildar keppninni á
Italíu. Eftir leikinn í Tórínó brut-
ust út slagsmál á milli áhangenda
Napolí og Juventus og þurfti að
flytja sex manns á sjúkrahús
vegna meiðsla. Lögreglan skarst
í leikinn og handtók ríflega 250
manns. Þaö voru einnig ólæti á
áhorfendapöllunum á heimavelli
Sampdoria. Það fór eithvað í
skapið á stuðningsmönnum
Sampdoria að lið þeirra beið
lægri hlut fyrir erkifjendunum í
Genúa og réðust þeir að áhang-
endum Genúa með hnúfum og
hnefum.
Edberg efstur á
heimsafrekalistanum
Svíinn Stefan Edberg
er efstur á heimsaf-
rekalistanum í tennis
gefinn var út
¥
sem getinn var ut í
gær. Röð flmm efstu manna er
þannig:
1. Stefan Edberg.......Svíþjóð
2. Boris Becker.....Þýskalandi
3. Ivan Lendl...Tékkóslóvakíu
4. Andre Agassi............ÚSA
5. Pete Sampras............USA
Asta og Kjartan unnu
á Lýsismótinu
Lýsismótið í borðtennis vr haldið
í þriðja sinn en það eru borð-
tennisdeild KR og Lýsi h/f sem
standa að mótinu. Úrslitin á mót-
inu urðu þannig:
Meistaraflokkur kvenna
1. Ásta Urbancic......Erninum
2. Aðalbjörg Björgvinsd. ...Víkingi
3. -4. Hrefna Halldórsdóttir, Vík-
ingi og Ingibjörg Ámadóttir, Vík-
ingi.
Meistaraflokkur karla
1. Kjartan Briem.............KR
2. Hjálmtýr Hafsteinsson.....KR
3. -4. Tómas Guðjónsson, KR,
Morten Christensen, Víkingi.
• í 1. flokki karla sigraði Hrafn
Árnason, KR. í l. flokki kvenna
sigraði Eva Jósteinsdóttir, Vík-
ingi, og í 2: flokki karla sigraði
átta ára snáðinn Guömundur
Stephensen úr Víkingi.
Tveir leikir í
körfunni í kvöld
Eins og kunnugt er
varð að fresta leik ÍR
gegn Njarðvík sem
fara átti fram á sunnu-
¥
dagskvöldið vegna þess að annar
dómarinn mætti ekki til leiks. Nú
hefur verið ákveðiö að leikurinn
fari fram í kvöld klukkan 21 í
Seljaskóla og þá er bara að vona
að dómarinn láti sjá sig. Þá eigast
við í Valsheimilinu Valur og Þór
og hefst viðureignin klukkan 20.
Leik Grindavíkur og Keflavíkur,
sem fram átti að fara í kvöld,
hefur verið frestað til flmmtu-
dagskvölds en þá mætast einnig
Haukar og Snæfell og KR og ÍR.
• Norbert Rozsa frá Ungverjalandi fagnar gullverðlaununum og heims-
meti sínu í 100 metra bringusundi i Perth í gær. Símamynd/Reuter
Ungverjinn
setti heimsmet
- á HM í sundi í Ástralíu
Norbert Rozsa frá Ungverjalandi
setti nýtt heimsmet í 100 metra
bringusundi í gær á heimsmeistara-
mótinu sem fram fer þessa dagana í
Perth í Ástralíu.
Rozsa sagði við fréttamenn eftir
sundið að hann hefði alls ekki átt von
á því að synda á þessum tíma en í
undanrásunum jafnaði Rozsa heims-
metið sem Adrian Moorhouse frá
Leeds á Englandi átti. Fyrra metið
var 1:01,49 mínútur en í sundinu í
gær gerði Rozsa enn betur og synti
á 1:01,45 mínútum.
„Mitt takmark fyrir keppnina í
sundinu var að tryggja- mér sæti í
úrslitum. Ég hef alltaf borið mikla
virðingu fyrir Moorhouse, hann er
frábær sundmaður og hefur verið
yfirburðamaöur í greininni um langt
skeið ,“ sagði Rozsa við fréttamenn.
Adrian Moorhouse var í öðru sæti
í sundi í gær á 1:01,58 mín. og Gianni
Minervini frá Ítalíu varð í þriðja
sæti á 1:01,74 mín. Fyrir heimsmeist-
arakeppnina var Rozsa ekki í hópi
tíu sterkustu bringusundsmanna í
100 metrunum þannig að hann hefur
heldur betur slegið í gegn.
Árangur í mörgum greinum hefur
verið góður til þessa á heimsmeist-
aramótinu og hann kemur að öllum
líkindum til með batna enn frekar
þegar úrslitasundin fara fram síðar
í vikunni.
Kínverjar hafa komið geysilega á
óvart en mikill uppgangur hefur átt
sér stað í landinu á síðustu árum.
Kínverjar hafa stuðst við þjálfara frá
Austur-Þýskalandi með þessum góða
árangri. í gær vann kínverska stúlk-
an Li Nin glæsilegan sigur í 400
metra fjórsundi.
íslenskir sundmenn eru ekki meðal
þátttakenda í Ástralíu, enda náði
enginn tilskildum lágmörkum sem
krafist var fyrir keppnina. Ef tíl þess
hefði komið má telja hæpið að sund-
maöur héðan hefði farið því íjár-
hagur sundsambandsins er mjög
bágur í augnablikinu.
-JKS
Einar Gunnar Slgurðsson.
Einarvalinn
á Selfossi
Sveinn Sigurðeson, DV, Seffossi:
Einar Gunnar Sigurðsson hand-
knattleiksmaður var fyrir skömmu
útnefndur íþróttamaður Selfoss
1990. Einar hlaut 68 stig í kjörinu.
í öðru sæti varð Þórdís Gísladóttir
frjálsíþróttakona, hlaut 56 stig, og
í þriðja sæti Kristgerður Garðars-
dóttir sundkona með 44 stig.
körfuboltans
Ivan Joias, Tindastóli
Rondey Robinson, Njarðvík
I 365 1
Jón Arnar Ingvarsson, Haukum
Magnús Matthíassorí, Val
C edric Evans, Þór
Mikil óeining innan Handknattleikssambandsins og sumir vilja afsögn Jóns Hjaltalíns:
Gjaldþrot blasir við
- Skuldir HSÍ um 30 miUjómr. „Vonandi hægt að bjarga þessu,“ segir gjaldkeri HSÍ
Fjárhagsstaða Handknattleikssambands íslands er mjög slæm þessa dagana og
hefur, að sögn heimildarmanna DV, aldrei verið verri. Mikil átök eru framund-
an á næsta Sambandsstjórnarfundi HSÍ og eru margir stjórnarmenn sambands-
ins á þeirri skoðun að Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ, eigi að segja af
sér nú þegar. HSÍ skuldar nálægt 30 milljónum króna í dag. Sambandið mun gangast
fyrir happdrætti í febrúar og einn stjórnarmanna HSÍ sagði í samtali við DV að ef það
gengi ekki vonum framar væri gjaldþrot HSÍ óumflýjanlegt. Helga Magnúsdóttir, gjald-
keri sambandsins, segist trúa því að hægt væri að bjarga Handknattleikssambandinu
frá gjaldþroti. Verið væri að vinna í því að laga stöðuna.
„Ég hef heyrt svo oft að HSÍ sé að
verða gjaldþrota. Ég hef trú á að hægt
sé að bjarga þessum málum. Ég hef
ekki áreiðanlegar tölur um skuldir
sambandsins. Sambandið skuldaði 30
milljónir króna sl. vor og ég veit ekki
hvort þessi skuld hefur hlaðið utan á
sig síðan.“
- Nú er ljóst að HSÍ hefur ekki þén
Ferð landsliðsins í handbolta til Spánar var 1 hættu:
HSÍ fékk farmiðana einni
klukkustund eftir lokun
Mjög litlu munaði að íslenska lands-
liðið í handknattléik, sem flaug til
Spánar í gær, kæmist ekki á alþjóðlega
mótið sem þar fer fram vegna samn-
ingsbrots gagnvart Flugleiðum.
I gangi er samningur á milli HSÍ og
Flugleiöa. Þegar forráðamenn Hand-
knattleikssambandsins ætluðu að ná
í farmiðana síðdegis á fóstudaginn
fengu þeir þau svör að HSI hefði ekki
staðið við sinn hluta samningsins.
Lengi vel leit út fyrir að Flugleiðir
létu farmiðana ekki af hendi og þegar
söluskrifstofa Flugleiða lokaði klukk-
an flmm á föstudag hafði HSÍ enga
farmiða fengið. Voru menn orðnir
vægast sagt uggandi um hag landsliðs-
ins. Það var svo um klukkan sex á
föstudag, klukkustund eftir að sölu-
skrifstofa Flugleiða lokaði, að HSÍ
fékk farmiðana. Þarna slapp HSÍ fyrir
horn en greinilegt er að sambandið á
víða í erfiðleikum og ef landsliðið
hefði þurft að sitja heima hefði það
getað haft skelfilegar afleiðingar í för
með sér.
-SK
United komst í 4. umferðina
Bikarmeistarar Manchester United
tryggðu sér i gærkvöldi sæti í 4. um-
ferð ensku bikarkeppninnar í knatt-
spyrnu með því að sigra QPR, 2-1, á
Old Trafford. Manchester United mæt-
ir 3. deildar liðinu Bolton á heimavelli
i 4. umferö.
Mark Hughes kom United yíir á 18.
mfnútu, en á 40. minútu nýtti Danny
Maddix sér slæmt úthlaup hjá Les Sea-
ley, markverði United, og skallaði bolt-
ann yíir hann í markið, 1-1. Það var
siðan Brian McClair sem skoraði sig-
urmarkið, 17 mínútum fyrir leikslok.
• Áhugamannaliðið Woking, sem
dróst gegn Everton í 4. umferð, hefur
sótt um að fá aö flytja leikínn yfir á
heimavöll Everton, Goodison Park.
Völlur Wokmg, sem sló WBA út í 3.
umferð bikarkeppninnar, er alltof lítill
til að hýsa stórleik á borð við þennan.
-VS
að mikla peninga frá sl. vori. Þá
voru skammtímaskuldir sam-
bandsins tæpar 24 milljónir. Er
ekki líklegt að staðan hafi versnað
til muna frá sl. vori?
„Við höfum unnið í því að breyta
þessum skammtímaskuldum í
langtímalán og það hefur tekist
með lántöku til langs tíma í Lands-
bankanum.“
- En ástandið í fjármálum HSÍ
hefur aldrei verið eins svart og í
dag?
„Ég hef verið gjaldkeri HSÍ síð-
asta hálfa árið og veit það hreinlega
ekki hvort ástandið hafi verið
svartara áður.“
Búið að eyða tekjum
langtfram ítímann
- Nú er í -gildi samningur á milli
HSÍ annars vegar og Landsbank-
ans hins vegar. Þar er gert ráð fyr-
ir árlegum greiðslum til HSÍ og
nema þær milljónum. Er það rétt
að búið sé að eyða þessum pening-
um mörg ár fram í tímann?
„Það er rétt að þessi samningur
er í gildi. Ég get hins vegar ekki
svarað því hvort búið sé að eyða
þessum peningum. Það er hins veg-
ar búið að eyrnamerkja þá. Aðal-
málið er hins vegar sú staðreynd
að .við verðum að vinna okkur út
úr þessum vandræðum. Ég á von á
því að hafa tíma fljótlega til að gera
þetta dæmi upp og sjá hvernig stað-
an er. Þetta er mikil vinna og tíma-
frek og gjaldkerastarfið hjá HSÍ er
ekki árennilegasta starf sem ég hef
tekið að mér um dagana,“ sagði
Helga Magnúsdóttir.
- Stjórnarmaður HSÍ sagði í sam-
tali við DV að ef hægt ætti að vera
að rétta HSÍ við þá yrði Jón Hjaltal-
ín Magnússon að hætta sem for-
maður. Við hér á DV höfum einnig
heimildir fyrir því að þetta sé al-
mennur vilji innan sambands-
stjórnar HSI. Hvert er þitt álit á
þessu?
„Hefur það ekki alltaf verið þann-
ig. Og hefur ekki alltaf verið talað
um það að Jón þurfi að hætta núna
og hætta núna. Hann hefur hins
vegar eytt mjög miklum tíma í
vinnu fyrir HSÍ,“ sagði Helga
Magnúsdóttir.
„Jón Hjaltalín þarf
að hugsa sinn gang“
- Samkvæmt heimildum DV hefur
Jón Hjaltalín, formaður HSÍ, verið
valtur í sessi um nokkurt skeið.
Fyrir því eru ýmsar ástæður. Um
þverbak keyrði þó á dögunum er
hann fór fyrirvaralítið til Nígeríu
í rúmlega vikuferð á meðan 14
landsleikir voru á dagskrá hér á
landi. Urðu margir stjórnarmenn
HSÍ. æfir yfir þessari ferð for-
mannsins. Stjórnarmaður í HSÍ
sagði í samtali við DV í gærkvöldi:
„Það hafa margir lýst yfir þeirri
skoðun að Jón þurfi að hætta og
það er mín skoðun að hann þurfi
að skoða sinn gang. Það er ljóst að
það verða mikil átök á næsta Sam-
bandsstjórnarfundi hjá HSÍ. Ég
veit ekki hvenær hann verður.
Fundurinn átti að vera síðasta
laugardag en eins og kunnugt er
stökk formaðurinn til Afríku sem
var alveg út í hött. Það fóru fram
14 landsleikir hér á landi á milli
jóla og nýárs og þá stökk formaður-
inn til Afríku. Þetta er engin fram-
koma og það eru mjög margir reið-
ir út af þessu.“
„Það er biti sem
erfitt er að ráða við“
Og stjórnarmaðurinn sagði enn-
fremur: „Varðandi peningamálin
þá er ljóst að skuldirnar eru gífur-
legar, líklega um 30 milljónir. Það
er biti sem erfltt er aö ráða við.
HSÍ sem slíkt yrði auðvitað aldrei
gjaldþrota eins og venjulegt fyrir-
tæki. Svona samband yrði aldrei
látið fara yfir um hvernig sem því
yrði svo annars bjargað. En auðvit-
að er það ekkert annað en gjaldþrot
ef slíkt gerist. Auðvitað heldur
maður í vonina um happdrættið en
ég hef ekki mikla trú á svona happ-
drættum í dag,“ sagði stjórnarmað-
urinn.
„Það er þá búið að loka
einusinnienn þar“
þegar DV tilkynnti honum um við-
skipti HSÍ og Flugleiða sl. föstudag
(sjá frétt annars staðar á síðunni)
og sagði honum að litlu hefði mátt
muna að landsliðið kæmist ekki til
Spánar sagði hann: „Það er þá búið
að loka einu sinni enn þar.“
-SK
Framstúlkurnar hita
upp í Danmörku
- fyrir Evrópuleikinn gegn Byásen í Noregi á sunnudaginn
íslandsmeistarar Fram í hand-
knattleik kvenna leika fyrri leik sinn
í 2. umferð Evrópukeppninnar í
handknattleik gegn norsku meistur-
unum í Byásen næstkomandi sunnu-
dag og fer leikurinn-fram í Þránd-
heimi. Eins og kunnugt er þá sló
Fram út sænsku meistarana í Polisen
í 1. umferð keppninnar.
Framstúlkurnar halda utan á
morgun og þá til Danmerkur og þar
keppir liðið tvó leiki gegn dönskum
1. deildar liðum, á miðvikudag og
fimmtudag og síðan heldur liðið til
Noregs á föstudaginn.
„Þetta leggst,ágætlega í okkur.
Þetta norska lið er mjög sterkt, liðið
hefur á að skipa sex norskum lands-
liðskonum og auk þess leikur með
því sænska landsliðskonan Mia Her-
mannsson, sem er lykilmaðurinn í
leik liösins, en hún hefur verið kosin
besti leikmaðurinn á B-heimsmeist-
arakeppninni," sagði Guðríður Guð-
jónsdóttir, stórskyttan síunga í sam-
tali við DV.
Byasen í efsta sæti
Lið Byásen er í efsta sæti í nqrsku
1. deildinni og hefur liðið haft mikla
yfirburði og unnið flesta leiki sína
stórt.
„Heimir Karlsson þjálfari hefur
undir höndum myndband af leik liðs-
ins og við munum setjast niður í góðu
tómi í Danmörku og grandskoða leik
þess. Annars er mikil tilhlökkun í
okkur stelpunum að fara þessa ferð
og gera eithvað annað en að leika
hér heima.
Við höfum lagt ótrúlega hart að
okkur til að geta tekið þátt í keppn-
inni. Við höfum nánast verið að
hvern einasta dag frá því í haust í
fjáröflunum, selt salernispappír,
rækjur, rúgbrauð, Fram-bókina,
myndbandahulstur, svo eitthvað sé
nefnt og vinnan sem við höfum lagt
á okkur til að geta fjármagnað þessa
ferð skilar vonandi góðum árangri
gegn þeim norsku,“ sagði Guðríður.
-GH
• Petra Kronberger frá Austurríki braut í gær blað í sögu heimsbikarkeppninnar á skíðum þegar hún vann sigur i tvíkeppni
í Bad Kleinkirchheim í heimalandi sínu. Hún er fyrsta konan sem nær því að vinna sigra í öllum fimm greinum heimsbikarsins
á sama keppnistímabilinu. Petra var fyrr í vetur búin að vinna sigra í bruni, svigi, stórsvigi og risastórsvigi og hún er með
yfirburðaforystu í heildarstigakeppninni. Þar er hún með 180 stig, 102 stigum meira en sú sem er í öðru sæti.
Símamynd/Reuter
Pólverji til Víðis?
- Víðismenn með nokkra pólska leikmenn i sigtinu
Æglr Már Karason, DV, Suðumesjum:
Víðismenn, sigurvegararnir í 2.
deildar keppninni í knattspyrnu síð-
asta sumar, hafa mikinn hug á að
styrkja sig fyrir 1. deildar keppnina
með því að fá til sín erlendan leik-
mann. Þeir eru nú að leita fyrir sér
í Póllandi og ekki er ólíklegt að þeir
fái til sín leikmann þaðan.
„Það er verið að skoða þetta fyrir
okkur í Póllandi og nokkrir leikmenn
eru í sigtinu. Við þurfum sóknar-
mann og hann verður að vera mjög
sterkur til að dæmið gangi upp,“
sagði Sigurður Gústafsson, formaður
knattspyrnudeildar Víðis, i samtali
við DV í gærkvöldi.
• Þorsteinn Ólafsson, fyrrum
landsliðsmarkvörður, hefur verið
ráðinn markvarðaþjálfari hjá Víði.
Þorsteinn hefur mikla reynslu sem
þjálfari og stjórnaði 2. deildar liði
Keflvíkinga síðasta sumar. Þess má
geta að Gísli Heiðarsson, markvörð-
ur Víðis, er á leið í uppskurð en hann
ætti að vera orðinn heill í tæka tíð
fyrir keppnistímabilið.
Sport-
stúfar
Gunnar Guimaisson, DV, Sviþjóö:
Sænska handknattleiksliðið
Drott tefldi á sunnudag fram nýj-
um leikmanni gegn Ystad í
sænsku úrvalsdeildinni. Það er
rúmenski landsliðsmaðurinn
Christian Zaharia en hann lék
áður með Dynamo Bukarest í
Rúmeníu. Zaharia þessi hefur
leikið 80 landsleiki fyrir Rúmeniu
og þykir vera arftaki hins fræga
leikmanns Stinga. Zaharia var
markahæsti leikraaður rúm-
enska landsliðsins á Super Cup
fyrir skömmu, skoraði 23 raörk
og þegar hann lék með Dynamo
Bukarest skoraði hann að meðal-
tali 13 mörk i leik. Hann þykir
vera geysi.lega skotfastur og til
marks um það þá hefur hann
kastað handbolta 72 metra eða
aðeins 1 metra styttra en landi
hans Stinga, sem á óopinbert
heimsmet í greininni. Skot-
fastasti Sviínn er Ola Lindgren
sem hefur þeytt knetti 60 metra.
Víðirvann
Njarðvíkurmótið
Ægir Már Káiason, DV, Suöumesjum:
£
Viðismenn báru sigur
úr býtum i hinu árlega
Njarðvikurmóti i inn-
anhússknattspymu
sem lauk í íþróttahúsinu í Njarð-
vík á sunnudaginn. Víðir sigraði
Reyni, 3-2, í úrslitaleik. Keflvík-
ingar hrepptu þriðja sætið eftir
3-2 sigur á Grindvíkingum.
Oilers og Saints
failin úr keppni
Houston Oiiers óg New Orleans
Saints féUu á sunnudagskvöldið
útúr úrslitakeppnipni í ameríska
fótboltanum, NFL-deildinni. Cin-
cinnati Bengals’vann stórsigur á
OUers, 41-14, og Chicago Bears
sigraði Saints, 16-6. Bengals mæt-
ir Los Angeles Raiders í undanúr-
sUtum AFC-riðilsins en Chicago
Bears við New York Giants í und-
anúrslitum NFC-riöUsins.
Matthaus sá
besti i heiminum
Lothar Matthaus, fyrirliði vest-
ur-þýsku heimsmeistaranna í
knattspyrnu, var í gær útnefndur
knattspyrnumaður ársins í heim-
inum 1990. Fyrir skömmu var
hann einnig valinn leikmaður
ár sins í Evrópu. ítalinn Salvatore
SciUllaci var kjörinn besti leik-
maður heimsmeistarakeppninn-
ar, Hugo Sanchez, Mexíkaninn
Ujá Real Madrid, og Hristo
Stoichkov, Búlgarinn sem nú er
kominn til Barcelona, fengu báðir
gullskóínn, sem markahæstu
leikmenn í Evrópu, og Gary Line-
ker, fyrirliði enska landsliðsins,
fékk prúðmennskuverðlaunin.
Alfreðog
Guðmundur
verðameð
Alfreð Gíslason leikur með
heimsliðinu í handknattleik gegn
Svíum í Stokkhólmi í kvöld og
gegn Norðuriandaúrvaii í Ósló
annað kvöld. Guðmundur Guð-
mundsson veröur í Norðurlanda-
úrvalinu. Báöir tóku í gær
ákvörðun um að ’taka þátt í leikj-
unum, og Aifreð hélt til Stokk-
hólms í gær.
„Ég ákvað að slá til, maður fær
ekki svona tækifæri nema einu
sinni. Það verður sérstaklega
gaman að mæta Aiireð í Ósló,“
sagöi Guðmundur í spjalli við DV
í gærkvöldi. Hann fer til Noregs
ídag.
-VS