Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1991, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 1991. 15 Skáldkonan og „báknið“ Guðrún Helgadóttir forseti sameinaðs þings. - . er skaldkona góð... Verra er, þegar hún tekur skáldaleyfið með sér í ræðustól Alþingis ... “ Guðrún Helgadóttir er skáld- kona góð og á einnig oft skemmti- lega spretti sem stjórnmálakona. Verra er, þegar hún tekur skálda- leyfið með sér í ræðustól Alþingis, og allra verst þegar fjölmiölar taka að sér að koma boðskap hennar gagnrýnislaust til almennings, hk- lega í trausti þess að svo gamal- reynd þingkona í virðulegu emb- ætti forseta sameinaðs þings fari ekki með neitt fleipur. Púður ífjölmiðlum En einmitt það átti sér stað við umræöur um frumvarp til laga um ferðaþjónustu 20. desember sl. Fjöl- miðlungum þótti greinilega púður í því, að þar beitti Guðrún sér gegn tveimur flokksbræðrum sínum, og komu málflutningi hennar óspart til skila, en sáu ekki ástæðu til að leita leiðréttinga á rangfærslum í máli hennar. Þar sem líklegt er, að einhverjir haíi talið, að þar hafi verið byggt á staðreyndum, verður ekki hjá því komist að leiðrétta verstu vitleysuna. Guðrún lýsti því yfir í ræðu sinni, að hún væri algjörlega andvíg fyrr- _ nefndu lagafrumvarpi um ferða- þjónustu. „Það er margt sem kem- ur til,“ sagði Guðrún. „Hér er verið í fyrsta lagi að bæta enn við bákn- ið, setja á stofn feröamálaráð, ferðamálastjóra, ferðamálasjóð, og ég get ekki skilið til hvers.“ 26 ára gamalt „bákn“ Undirritaðri er reyndar fyrir- munað aö skilja, hvernig það hefur getað farið framhjá þingkonunni, að allt þetta, sem hún telur að eigi að „bæta enn við báknið“ hefur verið til árum saman og m.a. til umræðu í tengslum við fjárlög og KjaUarinn Kristín Halldórsdóttir formaður Ferðamálaráðs lánsfjárlög á hverju einasta ári í háa herrans tíð vegna knappra fjárveitinga. Hið rétta er, að Ferðamálaráð ís- lands var stofnað með lögum árið 1964, og fyrsti fundur ráðsins var 7. júlí það sama ár. Lúðvíg heitinn Hjálmtýsson var fyrsti formaður ráðsins, en hlutverk þess var að vera Aiþingi ráðgefandi um allt, sem lyti að feröamálum í landinu. Ferðamálasjóður var einnig sett- ur á stofn árið 1964 og hefur um árabil ekki kostað ríkissjóö nokk- urn skapaðan hiut. Árið 1976 var stöðu Ferðamála- ráðs breytt verulega og falin stjórn ferðamála undir yfirstjórn sam- gönguráðuneytis. Jafnframt var ákveðið að skipa ferðamálstjóra, sem annaðist daglega stjóm ráðs- ins, og gegndi Lúðvig heitinn þeirri stöðu fyrstur manna. Forsjálnin kom fyrir ekki í þetta sinn voru alþingismenn svo forsjáhr aö ákveða Ferðamála- ráði tekjustofn, sem standa skyldi undir kostnaöi við hin mörgu og brýnu verkefni, sem við blöstu í ferðamálunum. Þessi tekjustofn var - og er enn - 10% af árlegri vörusölu Fríhafnarinnar í Kefla- vík. Um leið var verð allra vara í Fríhöfninni hækkað um 10% til þess að ekki væri tekið fé frá öðrum verkefnum á vegum ríkisins. Sjaldan hefur verið gengið jafn skynsamlega frá fjármögnun verk- efna á vegum ríkisins, því oft vill brenna við, að ekki finnast neinir fjármunir, þegar framkvæma á ýmis verkefni, sem Alþingi sam- þykkir. Nú var tekjustofninn ein- faldlega búinn til. Sú forsjálni kom þó fyrir ekki, því hinn sísoltni rík- iskassi hefur aldrei skilað réttri upphæð til ferðamálanna og stund- um jafnvel tekið til sín allt að 80% af lögboðnu framlagi. Þetta er að- alástæða þess, að Ferðamálaráð hefur aðeins sinnt sumum verkefn- um sinna sæmilega, öðrum illa og sumum alls ekki. Mörg og stór verkefni Sem dæmi um verkefni ráðsins má nefna landkynningu og mark- aðsmál, þátttöku í alþjóðlegu sam- starfi, ráðgjöf og aðstoð við aöila í ferðaþjónustu, þjónustu- og upp- lýsingastarfsemi fyrir ferðamenn, og síðast en ekki síst skal nefna frumkvæði að fegrun umhverfis og samstarf við einkaaðila og opin- bera aðila um snyrtilega umgengni lands í byggðum sem óbyggðum. í fyrrnefndu lagafrumvarpi er verkefnum ráðsins fækkaö, en þó lögð áhersla á þau, sem hér hafa verið talin upp. Auðvitað mætti hugsa sér einhverjar aðrar lausnir en að hafa slíkt „bákn" sem þetta til þess að annast framangreind verkefni. En þau verður að vinna, og kostnaðurinn við „báknið“ hef- ur aðeins numið broti af þeim tekj- um, sem þessi vænlega atvinnu- grein hefur fært þjóðarbúinu. Þær tekjur námu um 11 mihjörðum í gjaldeyri á nýliðnu ári auk mikilla innlendra tekna. Það er því ástæðulaust fyrir þá ágætu skáldkonu Guðrúnu Helga- dóttur að ræða ferðamál á þeim nótum, sem hún gerði í jólaönnum hins háa Alþingis. Kristín Halldórsdóttir .. fyrirmunaö aö skilja, hvernig það hefur getað farið framhjá þingkon- unni, að allt þetta, sem hún telur að eigi að „bæta enn við báknið“ hefur verið til árum saman... “ / Nýja Dagsbrún ’91 Hvers vegna nýja Dagsbrún? Jú, sú aldna og þreytta er að syngja sitt síðasta, enda hefur ekki verið kosið í 18 ár í þessu stóra félagi sem hefur verið leiðandi afl í öllum samningum undanfarin ár. En nú skal verða breyting þar á vegna þeirrar kaupmáttarrýrnun- ar sem orðið hefur undanfarið. Sátt vina og vandamanna Árið 1988 voru gerðir samningar og komu tvær kauphækkanir til framkvæmda. Síðan var verðstöðv- un á kaupi og verðlagi fram á vor 1989. Ef ekki hefði orðið þessi fryst- ing hefði kaupið verið eins og sýnt er á meðf. töflu þann 15. febrúar 1989, samkv. samningunum 1988, í staðinn fyrir febrúar 1989. 1. maí 1988 var skrifað undir þá samninga sem voru kauplækkun upp á rúm 3% hjá hafnarverkamönnum. Þetta eru afleiðingar af sambandsleysi forustunnar við hina vinnandi fé- laga. Þjóðarsáttin, sem er sátt vina og vandamanna og pólitíkusa, sýnir að kaup í sama flokki og áður er getið hefur breyst frá 26. febrúar 1988 til 1. júní 1990 um 19% að meðaltali hjá hafnarverkamönn- um, eða um rúmar 7000 kr. Hér er átt við mánaðarlaun. Svo eru menn undrandi á því hvers vegna við viljum skipta út forystusveitinni. Eru það ekki næg rök að láta lækka kaupið okkar þannig að þaö sé ekki lifandi á hinu góða og fagra íslandi þar sem við höfum slitið barnsskónum mann fram af manni, kynslóð fram af kynslóð? Eöa er verið að flæma okkur af landi brott og flytja inn vinnuafl sem þiggur lægri laun en við, eins og gerst hefur í Evrópu undanfarinn áratug eða svo? Kjallariim Páll Þorgríms Jónsson flokksstjóri og meðstjórnandi í mótframboðinu Hugmyndir nýrrar forystu Ég vona að það sé ekki ósk lands- manna. En sé svo þá er illa komið fyrir mínum kæru löndum og þá verður ekki gott að heita íslending- ur á íslandi vegna þess að við eig- um allt okkar undir útflutningsaf- urðum okkar í Evrópu. Hvað gera landsmenn þá? Mér er spurn. Jú, við myndum sjálfsagt leita eftir aðstoð líkt og Sovétríkiniðru að gera í dag. Við viljum hins vegar ekkert þannig-lagað heldur sýna að við séum sterk þjóð sem veit hvað hún vill. Ný forysta í Dagsbrún hefur ákveðnar hugmyndir um hvernig megi gera lífvænlegt á hjara ver- aldar, t.d. að setja á hátekjuskatt, hækka skattleysismörkin, hækka launin, auka framleiðni hér heima og svo framvegis. Allt tekur þetta tíma og kostar fé en það skilar sér í þjóðai'búinu með betra verkafólki sem sér að það uppsker eins og það sáir. Kosið verður um nýja stjórn í janúar 1991 og ég vil skora á alla þá sem berjast við að láta launin endast út mánuðinn að skoða þá kosti er viö bjóðum upp á og voru kynntir í síðasta tölublaði frétta- bréfs Dagsbrúnar. Ég skora á þá aö láta vilja sinn í ljós í atkvæða- greiðslunni með því að skipta um forystu. Kaupið hækkar ekki sjálfkrafa. Hingað til höfum við orðið að hafa fyrir því að sækja það eins og betl- arar. Munið í janúar 1991, ný stjóm og ný viðhorf. Páll Þorgríms Jónsson <1132)) fíii[ J v i í »* i (i 3 l „ ... ekki hefur verið kosið í 18 ár í þessu stóra félagi sem hefur verið leið- andi afl 1 öllum samningum undanfarin ár. En nú skal verða breyting þar á vegna þeirrar kaupmáttarrýrnunar sem orðið hefur undanfarið.“ Þjóðarsáttin er sátt vina og vandamanna og pólitikusa, segir hér m.a. LAUN HAFNARVERKAMAIMNA - miðað við 3. launaflokk - ■ Varð □ Hefði orðið 50.000 f 20.000! 10.000! Grunnlaun 15. feb. 1989 Eftir3ár Eftir7ár Eftirl ár Eftir 5ár Eftir 12 ár n-— afleiöingar af sambandsleysi forystunnar viöhina vinnandi fétaga.‘

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.