Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Page 6
6
FÖSTUDAGyp 1?. ýANÚAR 1991.
Viðskipti
Félag íslenskra stórkaupmanna:
Tveir bjóða sig
f ram til formanns
Tveir eru í framboði, Birgir Rafn
Jónsson og Magnús R. Jónsson, til
formanns Félags íslenskra stór-
kaupmanna en nýr formaður verð-
ur kosinn á aðalfundi félagsins,
þriðjudaginn 29. janúar næstkom-
andi. Fráfarandi formaður er Har-
aldur Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Andra.
Lög félagsins gera ráð fyrir að
félagsmenn geti aðeins gegnt for-
mennsku í fjögur ár. Kosið er til
tveggja ára. Haraldur var kjörinn
1987 og á því fjögur formannsár að
baki.
Um tíma leit út fyrir að ekki
kæmi fram nýtt formannsefni hjá
félaginu. Sú hugmynd kom þá fram
að breyta lögunum og fara fram á
það við Harald að hann gæfi kost
á sér áfram. Hugmyndin var kynnt
í bréfi til félagsmanna og jafnframt
leitað eftir áliti þeirra.
Niðurstaða þess var sú að félags-
menn vildu ekki brjóta yfir 40 ára
gamla hefð og reglu félagsins um
Haraldur Haraldsson.
að formannstíð hvers mætti ekki
vera lengri en fjögur ár.
Þeir Birgir og Magnús eru báðir
þekktir innan heildsalastéttarinn-
ar. Birgir Rafn er framkvæmda-
stjóri og eigandi Magnúsar Kjar-
ans. Það fyrirtæki flytur inn skrif-
stofubúnað og byggingarefni.
Magnús er eigandi og fram-
kvæmdastjóri Garra. Það fyrirtæki
flytur meðal annars inn frysta
matvöru.
-JGH
Verslunarráð kvartar við Davíð:
Hærri skattar hjá Davíð
en vinstri meirihlutanum
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs, hefur
fyrir hönd ráðsins sent Davið Odds-
syni borgarstjóra kvörtunarbréf yfir
skattlagningu sjálfstæðismanna á
fyrirtæki í borginni. Segir Vilhjálm-
ur í bréfinu að núverandi meirihluti
sjálfstæðismanna leggi á hærri
skatta en vinstri meirihlutinn árið
1979.
í bréfinu segir orðrétt:„Verslunar-
ráði íslands hefur að undanfórnu
borist kvartanir frá fyrirtækjum
vegna hárra fasteignagjalda á at-
vinnuhúsnæði. Fasteignagjöld eru
nú 1,25 prósent og hækkuðu í þ’að
hlutfall úr 0,842 prósent á tíma
vinstri meirihlutans í borgarstjórn á
árinu 1979.
Margir þeir sem stunda atvinnu-
Nýja verðbréfafyrirtækið, serri Sigurður Helgason, stjórnarformaður Flug-
leiða, og dóttir hans, Edda Helgason, hafa stofnað ásamt nokkrum þekktum
fyrirtækjum og einstaklingum hefur hlotið nafnið Handsal. Hér er greint frá
stofnun þess á blaðamannafundi i vikunni. Frá vinstri: Stefán Jóhannsson,
Vilhjálmur Egilsson, varaformaður stjórnar, Edda Helgason og Pálmi Sigm-
arsson. Þau Edda, Stefán og Pálmi skipa framkvæmdastjórn félagsins.
DV-mynd Brynjar Gauti
. íslenskur markaður:
Um 12 milljóna
hagnaður
Islenskur markaður hf., sem er
með aðaistarfsemi sína í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflug-
velli, var rekinn með tæplega 12
milljóna króna hpgnaöi á síðasta
ári. Þetta var mikill bati frá árinu
áður þegar fyrirtækið var rekið
meö um 23 milljóna króna tapi.
Salan á síðasta ári nam um 235
milljónum króna og jókst um 30
prósent á milli ára. Aukning varð
í sölu allra helstu vöruflokka, þó
sérstaklega í sölu ullarvara. Aukn-
ing varð í sölu ullarvara í fyrsta
sinn frá árinu 1983.
Aðalstarfsemi íslensks markaðar
er á Keflavíkurflugvelh. Fyrirtæk-
ið rekur einnig Álafossbúðina í
Reykjavík.
Eiginíjárhlutfall íslensks mark-
aðar er með því hæsta sem þekkist
í íslenskum fyrirtækjum, eða yfir
90 prósent. Þaö þýðir að fyrirtækið
er svo til skuldlaust. -JGH
rekstur í Reykjavík hafa búist við því
aö fasteignagjöld myndu lækka ekki
síst vegna þess að núverandi meiri-
hluti í borgarstjórn lofaöi því á sín-
um tima að allar skattahækkanir
vinstri meirihlutans þá yrðu teknar
til baka.
Hin háu fasteignagjöld eru ekki síst
bagaleg nú á þriðja ári niðursveiflu
í atvinnulífinu. Mikið af atvinnuhús-
Þór Þorláksson, 32 ára viöskipta-
fræðingur, hefur verið ráðinn for-
stöðumaður Útlánastýringar Lands-
bankans. Þetta er ný-deild innan
bankans. Þór stundaði framhalds-
nám við háskólann í Freiburg í
Þýskalandi. Hann hóf störf við hag-
deild bankans 1985
Verkefni Útlánastýringar felast
meðal annars í samningu nýrra út-
lánareglna fyrir bankann og að hafa
eftirlit með útlánum hans til fyrir-
tækja.
Nýr sölustjóri
hjá ACO hf.
Þá hefur Magnús Norðdahl stærð-
fræðingur verið ráðinn sölustjóri
tölvudeildar ACO hf. Ivlagnús hefur
lokiö BS námi í Bandaríkjunum í
tölvunar- og stærðfræði, ásamt mast-
ersgráðu í rafmagnsverkfræði, með
næði stendur ónotað og húsaleiga á
atvinnuhúsnæöi hefur almennt
lækkað. Því hefur afrakstur af at-
vinnuhúsnæði minnkað verulega.
Verslunarráð íslands óskar eftir
því aö við gerð fjárhagsáætlunar
verði reynt að lækka fasteignagjöldin
á atvinnuhúsnæði eftir því sem kost-
urer.“ -JGH
Þór Þorláksson, Magnús
utlánastjori Norðdahl, nýr
Landsbankans. sölustjóri ACO
hf.
sérgrein í íjarskiptakerfum, frá Uni-
versity of Cahfomia Irvine. Að loknu
námi starfaði hann um þriggja ára
skeið hjá bandaríska hugbúnaöar-
fyrirtækinu við kerfissetningu og
síðar aö sölu- og markaðsmálum.
-JGH
Fógeti selur
Hallargarðinn
Omar Strange, fyrrum mat-
reiðslumeistari Hallargarðsins,
veitingastað Veitingahallarinnar
hf. í Húsi verslunarinnar, og Örn
Ólafsson, fyrrum yfirþjónn staðar-
ins, hafa keypt Hallgarðinn af
skiptaráðandanum í Reykjavík.
Veitingahöllin hf„ sem var í eigu
sömu eigenda og Múlakafíi, varð
gjaldþrota í lok síðasta árs. Fyrir-
tækið rak tvo veitingastaði á
neðstu hæð í Húsi verslunarinnar,
hefðbundinn matsölustað, Veit-
ingahöllina, og fínni veitingastað,
Hallargarðinn.
Undir rekstur Hallargarðsins
heyrir einnig veitingasalur á 14.
hæð í Húsi verslunarinnar en hann
verður með sama sniði og áður.
íslandsbanki keypti salarkynni
Veitingahallarinnar á neðstu hæð
hússins undir mötuneyti fyrir
starfsfólk.
-JGH
Þór ráðinn útlána-
stjóri Landsbankans
Síðasta ár var SÍF gjöfult:
fyrir
12 milljarða
Sölusamband íslenskra fiskfram-
leiðenda, SÍF, flutti út saltfisk fyrir
um 12 milljarða króna á síðasta ári,
sem var að magni um 49 þúsund
tonn. Það er um 13 prósent minna
magn en árið 1989.
Saltfiskur hækkaði í verði á síðasta
ári og nam verðmætisaukning á
hvert tonn af saltfiski um 31 pró-
sent. Helstu viðskiptalönd SíF eru
Portúgal og Spánn. Mikil aukning
varð á saltfisksölu til Spánar á síð-
asta ári.
SÍF keypti franska fyrirtækið Nord
Morue á síðastliðnu ári en það er
sölu- og framleiðslufyrirtæki sem
sérhæfir sig í saltfiskréttum fyrir
franskan neytendamarkaö. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur ób. 3-3,5 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 3-4 Lb.Sp
6 mán. uppsögn 4-4,5 Sp
12mán. uppsögn 5 Lb.ib
18mán. uppsogn 10 lb
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Bb.Lb.Sp
Sértékkareikningar 3-3.5 Lb
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1.5 Allir
6 mán. uppsogn 2,5-3,0 Allir nema Ib
Innlán með sérkjörum 3-3,25 ib
Innlán gengistryggð
Bandaríkjadalir 6-6,25 Bb
Sterlingspund 12 12,6 Sp
Vestur-þýsk mörk 7,75 8 Bb.Sp
Danskarkrónur 8,5-9 Sp
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Lltlán óverðtryggð
Almennirvixlar(forv.) 13,75 ' Aliir
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almönnskuldabréf 13,5-14,25 Lb
Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(yfirdr ) 17.5 Allir
Utlan verðtryggð
Skuldabréf 7,75-8.75 Lb
Utlán til framleiðslu
Isl.krónur 13,25-14 Lb
SDR 10,5-11,0 Lb
Bandaríkjadalir 9,5-10 Lb
Sterlingspund 15,5-15,7 Allir nema Sp
Vestur-þýskmork 10,75-11,1 4,0 Lb.ib
Húsnæðislán
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,0
MEÐALVEXTIR
óverðtr. jan. 91 13,5
Verðtr. jan. 91 8,2
VÍSITÖLUR .
Lánskjaravisitalajan. 2969 stig
Lánskjaravisitalades. 2952 stig
Byggingavisitala jan. 565 stig
Byggingavisitala jan. 176,5 stig
Framfærsluvisitala jan. 149,5 stig
Húsaleiguvisitala 3% hækkun 1 . jan.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veróbréfasjóða
Einingabréf 1 5,292
Einingabréf 2 2,865
Einingabréf 3 3,479
Skammtimabréf 1,777
Kjarabréf 5,199
Markbréf 2,761
Tekjubréf 2,022
Skyndibréf 1,543
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,540
Sjóðsbréf 2 1,802
Sjóðsbréf 3 1,765
Sjóósbréf 4 1,519
Sjóðsbréf 5 1,065
Vaxtarbréf 1,7897
Valbréf 1,6776
Islandsbréf 1,099
Fjórðungsbréf 1,052
Þingbréf 1,098
Öndvegisbréf 1,088 -.
Sýslubréf 1,106
Reiðubréf - 1,079
HLUTABRÉF
Söliu-og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100
nafnv.:
KAUP SALA
Sjóvá-Almennar hf. 6,55 6.88
Eimskip 5,57 5,85
Flugleiðir 2.43 2,55
Hampiðjan 1.72 1,80
Hlutabréfasjóðurinn 1.76 1,84
Eignfél. Iðnaðarb. 1,89 1,98
Eignfél. Alþýðub. 1,38 1,45
Skagstrendingur hf. 4.00 4,20
Islandsbanki hf. 1,38 1,45
Eignfél. Verslb. 1,36 1.43
Olíufélagið hf. 6,00 6,30
Grandi hf. 2,20 2,30
Tollvörugeymslan hf. ’ 1,07 1.12
Skeljungur hf. 6,40 6,70
Ármannsfell hf. 2,35 2,45
Fjárfestingarfélagið 1,28 1,35
Útgerðarfélag Ak. <3,50 3,68
Olis 2,12 2,25
Hlutabréfasjóður VlB 0,95 1,00
Almenni hlutabréfasj. 1,01 1,05
Auðlindarbréf 0,96 1.01
Islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Bb = Búnaðarbankinn,
lb= Islandsbanki Lb = Landsbankinn,
Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.