Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Qupperneq 8
8 FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991.
Údönd_____________________________________________dv
Eldflaugaárás íraka á Tel Aviv og Haifa 1 nótt:
ísraelsmenn óttast
fleiri árásir íraka
- stjóm landsins ákvað að svara ekki umsvifalaust fyrir árásina
Tólf menn slösuðust í Tel Aviv í eldflaugaárás íraka. Tjón varð ekki veru-
legf en ísraelar óttast að Saddam Hussein geri alvöru úr hótunum um
fleiri árásir. Símamynd Reuter
Arabar æf ir
írakar náðu loks að svara fyrir sig
í Persaílóastríðinu með því að skjóta
átta Scud-eldflaugum á Tel Aviv í
ísrael snemma í nótt. Enginn lét lífið
en tólf voru tluttir á sjúkrahús. Mik-
ill ótti greip um sig í ísrael þegar
fréttirnar af árásinni bárust.
írakar höfðu hótað slíkri árás og
flestir áttu von á að hún kæmi þegar
í gær en af því varð ekki. Því létti
ísraelum í gær þegar ekkert hafði
gerst og bandamenn virtust hafa náð
góðum árangri í að eyða árásarvopn-
um íraka á jörðu niðri.
Talið er að Scud-eldflaugunum,
sem eru upphaflega komnar frá Sov-
étríkjunum, hafi verið skotiö frá fær-
anlegum pöllum í Vestur-írak.
Bandaríkjamenn hófu þegar kröftug-
ar loftárásir á skotstaðinn og er ekki
búist við fleiri árásum þaðan í bráð.
Hins vegar er ekki útilokaö að írakar
eigi fleiri færanlega skotpalla og
Scud-eldflaugar.
Þessi tíðindi kunna að hafa alvar-
leg áhrif á framvindu stríðsins því
að eitt af markmiðum bandamanna
var aö halda ísrael utan við það af
ótta við aö arabar kynnu að svíkjast
undan merkjum í baráttunni við ír-
aka ef ísraelsmenn tækju þátt í bar-
dögum. Formlega ríkir enn stríðs-
ástand milh nokkurra arabaríkja og
ísraels.
Scud-eldflaugarnar eru smiðaðar i
Sovétríkjunum. Þær eru skæðasta
árásarvopn íraka. Símamynd Reuter
Enn hafa ísraelsmenn haldið að sér
höndum en ekki útilokað þann
möguleika að gera hefndarárásir á
írak. Leiðtogar arabaríkja sögðu fyr-
ir gagnsóknina í gær að ekki yrði af
aögerðum af þeirra hálfu gegn ísrael
ef þeir einskorðuðu sig við skotmörk
í írak.
Bush Bandaríkjaforseti brást hart
við fréttunum af árásinni á ísrael en
sagði samt að ekkert gæti svipt ísra-
elsmenn réttinum til að verjast ef á
þá væri ráðist. Margir telja að átökin
við Persaflóa hafi færst á nýtt og
hættulegt stig með árásinni á Israel.
Enn ræðst það þó af viðbrögðunum
hvaö úr verður.
Saddam Hussein íraksforseti sagði
að árásin væri aðeins upphafið að
öðru og meira. Fulltrúi hans sagði í
viðtali við belgiska útvarpið að írak-
ar hefði náð mikilvægum áfanga í
að vinna sigur á tjölþjóðahernum í
Saudi-Arabíu. Hann sagði að menn
yrðu að gera greinarmun á leiftur-
árásum Bandaríkjamanna á írak og
langtímaáætlunum íraka. Árangur
Bandaríkjamanna hefði engin áhrif
til lengri tíma þótt þeir gætu hælt sér
af miklum skrautsýningum.
Stjórn ísraels settist á fund nú í
morgun til að ræða ástandiö. Það
eykur mönnum vonir um að stríðið
breiðist ekki út að ísraelsmenn gerðu
ekki í skyndi árás á írak. Bandaríkja-
menn vöruðu við því enda gæti það
valdið vandamálum i herstjórninni
að verða fyrirvaralaust að taka ferö-
ir ísraelskra flugvéla inn í áætlanir
sína.
Reuter
Mikil andúð ríkir nú í arabalönd-
um í garð Bandaríkjamanna vegna
árásarinnar á íraka. Andúðarinnar
hefur sérstaklega orðið vart í Jórd-
aníu þar sem Vesturlandabúar eru
varaðir við að yfirgefa hótel sín og
vera á ferli utandyra. Rökin um að
innrásin í Kúvæt brjóti gegn þjóð-
arréttinum fá engan hljómgrunn
lengur. Nú er þaö sjálfsvirðing
araba sem gildir.
Það liöu reyndar flórtán klukku-
stundir áður en jórdönsk yfirvöld
brugðust við árásinni á írak. Því
var þá lýst yflr að vissulega hefði
verið um grimmilega árás gegn
þá afstöðu sína aö hernaðarupp-
byggingin við Persaflóa hafi komið
í veg fyrir að lausn næðist í deil-
unni.
Greinilegt þykir að yílrvöld vilja
ekki hella olíu á eldinn með þvi aö
gagnrýna Bandaríkin. Talið er að
slikt gæti komið af stað gífurlegri
mótmælaöldu gegn Bandaríkjun-
um.
Jórdanar ákváðu að opna landa-
mærin við írak í einn sólarhring
til þess að taka á móti flóttamönn-
um. Landamærunum var lokað í
síðustu viku fyrir öllum nema
Jórdönum og útlendingum með
arabaríki að ræða en þess var gætt
að nefna ekki sérstaklega Banda-
ríkín.
Jórdanska stjómin ítrekar samt
peninga eða bréf upp á vasann um
að stjórnir þeirra greiddu heimferð
þeirra.
TT og NTB
Gaddafi varar við þriðju
heimsstyrjöldinni
Muammar Gaddafi, ieiðtogi Líbýu,
hvatti í gær til þess að bundinn yrði
strax endi á stríðið við Persaflóa.
Sagði hann það eitra samskiptin milli
araba og Bandaríkjamanna og jafn-
vel geta leitt til þfiðju heimsstyrjald-
arinnar.
í bréfi til framkvæmdastjóra Sam-
einuðu þjóðanna, Javier Perez de
Cuellar, hafði Gaddafi sagt að árásir
bandamanna ættu aö takmarkast við
frelsun Kúvæts og að hætta yrði
strax árásunum á Bagdad.
Gaddafi kvaðst óttast að Sovétrík-
in, sem opinberlega hafa lýst yfir
stuðningi við árás bandamanna und-
ir forystu Bandaríkjanna, geti sko-
rist í leikinn hvenær sem er ef banda-
menn færu yfir „rauðu línuna" í
Persaflóa. Sagði hann bardagana
geta leitt til þriðju heimsstyrjaldar-
innar þar sem beitt yrði kjamorku-
og efnavopnum. Hvatti hann lönd
eins og tíl dæmis Tyrkland tíl að
hætta að blása í herlúðra.
Líbýsk stjórnvöld kölluöu arabíska
sendifulltrúa á sinn fund í gær og
hvöttu ríki þeirra til að fara fram á
skyndifund Öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna í því skyni að binda enda
á stríðið.
Reuter
Muammar Gaddafi Libýuleiðtogi
hvetur til að bundinn verði endi á
stríðið við Persaflóa. Simamynd Reuter
Saudi-Arabía:
Bandaríski herinn
varðist eldf laugaárás
Irakar gerðu fyrstu umtalsverðu
tilraunina til að ráðast gegn her
Bandaríkjamanna í Saudi-Arabíu í
nótt um sama bil og þeir skutu Scud-
eldflaugum á Tel Aviv í ísrael.
Herstjórn Bandarikjamanna sagði
að einni Scud-eldflaug hefði verið
skotíð að herstöðinni Dhahran. Gegn
flauginni var skotíð vamareldflaug
af gerðinni Patriot og hæfði hún
Scud-flaugina. Bandaríkjamenn
sögðust aðeins hafa orðið varir við
eina flaug.
Patriot varnarflaugarnar era nýjar
af nálinni og hefur ekki verið beitt
áður í hernaði. Þegar á reyndi tókst
skotið fullkomlega. Þær eru sérstak-
lega ætlaðar til að granda eldflaugum
og hraðfleygum þotum.
Bandaríkjamenn vita hvaðan
ílauginni var skotið og voru kröftug-
ar loftárásir þegar hafnar á staðinn.
Frakkar segja að ein Scud eldflaug
hafi náð á leiðarenda og lent á flug-
vellinum í Dhahran en ekki valdið
teljandi tjóni. Reuter