Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Qupperneq 11
FÖSTUDAGUR 18. JA'NÚAR 1991.
ll
Utlönd
Linnulausar loftárásir á skotmörk 1 Irak 1 alla nótt og morgun:
Sprengjuregn í Irak
eftir árásina á ísrael
- írakar guma af leynivopnum sem ekki hafi verið beitt
Bandamenn hertu loftárásir sínar
á írak eftir aö fréttist af eldílauga-
árás íraka á Tel Aviv í ísrael í nótt.
írakar gerðu einnig tilraun til að
skjóta Scud-eldflaugum að herstöð
Bandaríkjamanna í Dhahran í
Sandi-Arabíu um svipað leyti og
flaugunum var skotið að ísrael. Þess-
ar flaugar voru skotnar niður með
flugskeytum.
Stöðugar loftárásir hafa verið á ír-
ak í alla nótt. Herstjórn hét því í
nótt að ekkert lát yrði á sprengju-
regninu í írak. Bandaríkjamenn
halda því fram að þeir hæfi átta af
hverjum tíu skotmörkum en Frakka
hafa heldur dregiö úr þeim árangri
og segja að sex af hverjum tiu skot-
mörkum eyðileggist.
Margt bendir til að Frakkar hafi á
réttu að standa því að eldflaugaárás-
in á ísrael í nótt bendir til að árang-
urinn í gær hafi ekki verið jafngóður
og fyrstu fréttir bentu til.
í morgun sögðu Frakkar að vélar
þeirra hefðu farið til árásar á birgða-
geymslur írakshers fyrir sunnan
Kúvætborg. Þeir sögðu að vélarnar
hefðu allar snúið heilar heim og náð
góðum árangri. Frakkar sögðu að 12
herþotur af gerðinni Jaguar hefðu
tekið þátt í árásinni.
Menn óttast nú mest að írakar
kunni að luma á fleiri árásarvopnum
til að svara fyrir sig eftir áfalhð í
gær. Bandarískir hernaðarsérfræð-
ingar segja að Scud-flaugunum hafi
í nótt verið skotið frá færanlegum
skotpöllum. Útilokað er að finna
slíka palla úr lofti. Því er óttast aö
írakar kunni að eiga fleiri slíka til-
tæka. Scud-eldflaugarnar eru fram-
leiddar í Sovétríkjunum og eru helsta
árásarvopn íraka.
Herþotan F-15 Eagle hefur þótt sanna yfirburði sína í lofthernaðinum yfir írak. Þetta er ekki fullkomnasta herþota
Bandaríkjamanna en þó sú sem þeir setja traust sitt á. Símamynd Reuter
Útvarpið í írak hefur flutt þær
fréttir að óvinir íraka eigi enn eftir
að finna fyrir leynivopnum þeirra.
Fréttaflutningurinn miðar nú allur
að því að auka baráttuanda þjóðar-
innar. Engin merki sáust um skelf-
ingu í írak eftir árásirnar í gær. Þó
var engar áreiðanlegar fréttir að hafa
frá öðrum stööum en Bagdad. Þar
voru skemmdir litlar, enda aðeins
skotið á vel valin skotmörk.
ítalir hafa nú blandað sér í átökin.
Þeir segjast hafa misst eina flugvél
af Tornado-gerð. Búist er við að her-
ir fleiri þjóða láti til sín taka áður
en langt um líður.
Til þessa hafa Bandaríkjamenn
ásamt Bretum borið hitann og þung-
ann afárásunum. Sagt er aö herþota
Bandaríkjamanna af gerðinni F-15
Eagle hafi sannað yfirburði sína í
bardögunum. Án þessarar vélar
hefði ekki verið hægt að ná þeim
árangri sem náðist í gær.
Reuter
EB-ráðherrar:
Friðarráðstefna að loknu stríði
Utanríkisráðherrar Evrópubanda-
lagsins, EB, komu saman til skyndi-
fundar í París í gær vegna stríðsins
við Persaflóa. Lýstu þeir yfir þeirri
von sinni að stríðinu við Persaflóa
lyki skjótt.
Evrópubandalagsríkin vilja ekki
missa vini og áhrif í Miðausturlönd-
um vegna stríðsins. Ráðherrarnir
lýstu því yfir í gær að þegar því væri
lokið myndu bandalagsríkin taka
þátt í að leysa vandamál Palestínu-
manna og önnur vandamál sem
valda óróleika í Miðausturlöndum.
Margir ráðherranna gerðu ljóst að
þeir hefðu engan hag af því að írak
yrði lagt í rúst, það myndi aldrei leiða
til jafnvægis á svæðinu. Bentu þeir
á að James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hefði einnig oft vak-
ið athygh á því.
Ráðherrarnir lýstu því yfir að þeir
vildu að írak yrði kjarnorku- og efna-
vopnalaust land.
í yfirlýsingu, sem þeir gáfu út,
lögðu þeir áherslu á að þeir óskuðu
eftir að fá að beita sér fyrir alþjóð-
legri friðarráðstefnu þar sem tekin
yrðu fyrir vandamál Palestínu-
manna. Einhugur ríkti þó um að
ekki mætti tengja slíka ráðstefnu
brotthvarfi íraka frá Kúvæt. Saddam
Hussein yrði fyrst aö halda á brott
áður en hægt yrði að efna til friðar-
ráðstefnu.
Ritzau
Erf iðar vikur
framundan
- sagði John Major eftir fyrstu árásimar
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær óvarlegt að
lofa stuttu Stríði. Símamynd Reuter
John Major, forsætísráðherra
Breta, hefur varað landa sína við
að gera sér vonir um skjótan sigur
í Persaflóastríðinu þrátt fyrir góð-
an árangur í upphafi átakanna.
Major sagði einnig í breska þinginu
að ekki kærhi til greina að hika við
að halda áfram baráttunni allt þar
til „viö höfum komið vitinu fyrir
Saddam Hussein," sagði Major.
Major sagði að Bretar yrðu að
búa sig undir erfiðar vikur áður
en hægt væri að gera sér vonir um
fullnaðarsigur og ítrekaði að óvar-
legt væri að lofa stuttu stríði.
Tom King, varnarmálaráðherra
Breta, var líka varkár í orðum eftír
árásirnar í gær. Hann sagði að allt
bentí til að árangurinn af þeim
væri góður og mikið tjón hefði ver-
ið unnið á fjarskiptakerfi og flug-
flota íraka. Eins og Major sagðist
hann fullviss um sigur en það gæti
tekið tíma að hrekja íraka frá Kú-
væt.
Breska stjórnin var sökuð um að
vilja ganga lengra en ályktanir
Sameinuðu þjóðanna gerðu ráð
fyrir og sögð ætla sér að hrekja
stjórn Saddams Hussein frá völd-
um. Þessu neitar stjórnin og segir
að frelsun Kúvæts sé eina mark-
miöið. Reuter
írakarhóta
löngu striði
irakar hafa sagt áð stríö það
sem hófst við Persaflóa fyrir hálf-
um öðrum sólarhring verði lang-
vinnt. Haft er eftir útvarpsstöö í
Bagdad að stríðið sé rétt byrjað
og það veröi alls ekki eins stutt
og George Bush Bandaríkjafor-
seti hafi haldið fram. Sagt var að
írakar hefðu tekiö ákvörðun um
að berjast í löngu stríði og aö það
myndi leiða til frelsunar Saudi-
Arabíu, Palestínu og „arabíska
auðsins“. „Stríð milli hins góða
og illa er hafið.“ Reuter
Ágreiningurum
fjöldatapaðra
orrustuþotna
Talsmaður íraska hersins sagði
snemma í morgun að loftvarna-
byssur þeirra hefðu skotið fimm
orrustuþotur bandamanna niður
í nótt. Alls hefði því 65 orrustu-
vélum bandamanna verið grand-
að frá upphafi árása banda-
manna.
Þessar upplýsingar Stangast
mjög á við upplýsingar úr her-
búðum bandamanna sem segjast
hafa misst fimm orrustuþotur,
eina bandaríska, tvær breskar og
eina kúvæska.
Yfirmenn íraska hersins hittust
í gær undir forsæti Saddaras
Husseins. Þar var framganga loft-
vamasveita íraka sérstaklega lof-
UÖ. Reuter
Hundruðhafa
særstíloftárás-
unumáKúvæt
Hundruð íraskra hermanna
hafa særst í loftárásum banda-
manna á Kúvæt. Margir þeirra
eru sagðir hafa hlaupist undan
merkjum og lagt á flótta. Pjöldi
særðra hermanna var fluttur á
sjúkrahús. Tvö stærstu sjúkra-
húsin i Kúvæt, sem samtals hafa
um eitt þúsund sjúkrarúm, eru
yfirfull og þar mun starfslið alls
ekki anna straumi særðra.
írakar segja að einungis 23 hafi
látist í loftárásum bandamanna á
írak, aðallega konur, börn og
gamalmenni. Þá eiga 66 að hafa
særst í árásunum. íraska útvarp-
ið sagði að konur, böm og gamal-
menni hefðu farist þegar sprengj-
ur bandamanna lentu á íbúða-
hverfum í Bagdad.
Reuter
SonurSadd-
ams til víg-
stöðvanna
Elsti sonuf Saddams Hussein,
forseta iraks, er nú genginn til
liðs við þá 500 þúsund hermenn
sem írakar hafa í Kúvæt og ná-
grenni. Þetta er Udai Hussein
sera sendi Fóður sínum heillaó-
skir þegar frestur Sameinuðu
þjóðanna til íraka um aö hafa sig
brott frá Kúvæt rann út.
„Heillaóskir til þin, tákns hug-
rekkis og manndóms," sagði í
skeytinu.
Udai lét fleiri hvatningarorð frá
sér fara í skeytinu til föður síns.
Þar segir hann aö írakar muni
fórna sér fyrir leiðtoga sinn og
fósturjörö. „Ég geng nú til liðs
við þá ljóndjörfu menn í Suöur-
írák sem ætla að fórna sér til
varnar fósturjörðinni."
Udai er formaður ólympíu-
nefndar íraka og knattspyrnu-
sambandsins. Hann hefur legið
undir ásökunum um að hafa
myrt einn af lífvöröum Fóður sins
en var náðaður. Upplýsingarnar
um hermennsku Udais eru
greinilega ætlaðar til að stappa
stálinu 1 hermenn fraka.
Reuter