Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991.
Utlönd
Sofandaháttur
íraka
kom á óvart
- vlrtust óviðbúnir skyndiárás bandamanna
sem þeir gætu notað. Þetta hefur
reynst á rökum reist eins og árásin
á Israel í nótt sýnir.
Fjarskiptin iömuð
Þetta skýrir þó ekki að írakar fengu
enga rönd við reist þegar flugher
Bandamanna hóf einhverja mestu
loftárás sögunnar á írak. Lykillinn
að árásinni var að stöðva öll sam-
skipti yfirstjórnar írakshers og her-
deildanna víðs vegar um landið. Þeg-
ar á fyrstu mínútum árásarinnar
varð Bagdad rafmagnslaus, síma-
kerfið varð óvirkt og varnarmála-
ráðuneytið stóð í ljósum logum.
írakar segjast hafa skotið niður 55
flugvélar bandamanna en það hefur
hvergi fengist staðfest. Þvert á móti
viðurkenna bandamenn að hafa
misst þrjár vélar og fjórar vélar
Frakka löskuðust en komust samt til
heimastöðva.
í Egyptalandi var haft á orðiö að
upphaf árásarinnar minnti mjög á
sex daga stríðið. Þá tókst ísraelsher
að ná algerum yflrburðum í lofti þeg-
ar á fyrsta degi og eyðileggja flug-
flota arabaríkjanna þegar á jörðu
niðri. Það var þakkað góðu herskipu-
lagi og mikilli hertækni.
Ótrúlega auðveldur sigur í
fyrstu lotu
Baráttuandi er góöur í liði bandamanna. Hér hefur einn skrifað á flug- Alltaf var gert ráð fyrir að banda-
skeyti: „Kæri Hussein! Þetta er frá mér og mömmu fyrir að halda pabba mennmyndufarameösigurafhólmi
svo lengi að heiman. Ástarkveðjur, Austin!“ simamynd Reuter í baráttunni um yfirráð í lofti yfir
Eftir að fyrstu lotunni í stríðinu við
íraka lauk í gær með árangursríkum
loftárásum á skotmörk í landinu hafa
menn undrast hvers vegna mót-
spyrna íraka var svo lítil. Svo virðist
sem þeir hafl ekki náð að svara fyrir
sig á nokkurn hátt fyrr en með eld-
flaugaskotunum á ísrael í nótt.
Þetta vakti undrun í Miö-Austur-
löndum sem og víðar um heim því
allir reiknuðu með að írakar væru í
viðbragðsstöðu og myndu bregðast
við innan fárra mínútna eftir að
fyrsta atlagan hæfist.
Of gott til að vera satt
„Þetta er of gott til að vera satt,“
sagði Edward Foster, breskur frétta-
skýrandi. „Viö höfum náð að trufla
öll fjarskipti innan íraks og komið í
veg fyrir að þeir næðu að bregðast
við með skipulegum hætti.“
Sendiherra íraka í Belgíu sagði aö
írakar væru aö spara kraftana til
síðari árása; þeir ættu enn eftir vopn
Orrustuflugmenn bandamanna fóru 1000 árásarferðir inn yfir írak á fyrsta
degi gagnsóknarinnar. Þeir mættu nánast engri mótspyrnu. Símamynd Reuter
írak. Það kom hins vegar öllum aðil-
um á óvart að allir þættir árásarinar
virðast hafa tekist fullkomlega, þó
að því undanskildu að einhverjir eld-
flaugaskotpallar virðast hafa orðið
eftir.
Fjarskiptabúnaður íraka var í rúst
frá upphafi og sprengjur banda-
manna virðast hafa hitt í mark með
ótrúlegri nákvæmni. írakar höfðu
treyst á að geta varist með loftvarna-
eldflaugum og loftvarnabyssum. Þá
virðist það hafa verið ætlun þeirra
að skjóta eldflaugum að olíuhreinsi-
stöðvum í Saudi-Arabíu. Hreinsi-
stöðvar þar urðu þó ekki fyrir tjóni
ef frá er talið að fallbyssuskot hæföu
einn olíugeymi.
Gæti orðið langt stríð
Þótt árásin í fyrstu lotu hafl tekist
fullkomlega þá fer því fjarri að stríð-
inu sé lokið. Allir vita að hernaður
á landi verður miklu mannskæðari
og erfiðari viðfangs. Þó er víst að
ekki verður hikað við að halda hern-
aðinum áfram uns yfir lýkur.
Enginn veit hve lengi stríðið varir.
Þó bera menn þá von í brjóst að því
ljúki fyrr en síðar með uppgjöf land-
hersins. Þarna er líka mikil óvissa
því enginn veit hver siðferðisstyrkur
hersins er. Hlaupist hann ekki undan
merkjum má búast við löngu stríði
sem geti staðið fram eftir þessu ári.
Reuter
Bush f ordæmir
árásir íraka
Bandarikjaforseti, George Bush,
hefur að undanförnu beóist mikið
ty Hr. Símamynd Reuter
George Bush Bandarikjaforseti
hefur fordæmt eldflaugaárásir ír-
aka á ísrael og Saudi-Arabíu. í gær
k vaðst forsetinn vera ánægður með
þann árangur sem náðst hefði í loft-
árásunum á íraka en varaði jafn-
framt við því að stríðið gæti dregist
á langinn og orðið erfitt.
Forsetinn sagði aö þeir sem
heima sætu gætu lítiö gert annað
en að halda áfram að biðja fyrir
hermönnunum, Hann hefur reynd-
ar gert talsvert að þvi að undan-
fórnu að liggja á bæn. Eftir að hafa
á miövikudaginn gefið fyrirskipun
um árásirnar gekk hann til einka-
íbúðar sinnar í Hvíta húsinu og
baðst fyrir með sínum gamla'vini,
vakningarpredikaranum Billy
Graham. Síðar um daginn sótti for-
setinn sérstaka guðsþjónustu
ásamt öðrum ráöamönnum í Hvita
húsinu, Síðustu daga hefur forset-
inn verið í sambandi við tvo kirkj-
unnar menn en annar þeirra er
rpjög mótfallinn stríöi við Persa-
flóa.
Samkvæmt nýjustu skoðana-
könnunum hefur Bush meirihluta
bandarísku þjóðarinnar á bak við
sig. Afþeim voru lSprósentandvíg.
Andstæðingar stríðsins hafa þó
viöa efnt til mótmæla í Bandaríkj-
unum og hefur sums staöar komið
til átaka milli þeirra og lögreglu.
Heuter
Reyndi að ná í Saddam
á síðustu stundu
-enofseint
Siöustu klukkustundina fyrir loftárásirnar á íraka reyndi Mikhail Gor-
batsjov, forseti Sovétríkjanna, að koma boðum til Saddams Hussein íraks-
forseta en árangurslaust. Frá þessu greindi Gorbatsjov i sjónvarpsávarpi
i gær.
Símamynd Reuter
Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét-
ríkjanna, sagði í sjónvarpsávarpi til
þjóðarinnar í gær aö Saddam Huss-
ein bæri alla ábyrgð á stríðinu við
Persaflóa. Síðustu klukkustundina
áður en fyrstu sprengjunum var
varpað yfir Bagdad vildu sovésk yfir-
völd með boöum til íraksforseta gefa
honum síðasta tækifæri til að hörfa
frá Kúvæt. En áður en það hafði tek-
ist hafði stríðið þegar byijað.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hringdi í hinn nýja
utanríkisráðherra Sovétríkjanna,
Alexander Bessmertnykh, klukku-
stund áður en fyrsta loftárásin var
gerð gegn írökum.
„Auðvitað metum við það mikils
að Bandaríkjamenn skyldu láta okk-
ur vita um væntanlegar árásir fyrir-
fram,“ sagði aðstoðarutanríkisráð-
herrann, Alexander Belonogov, í
gær. Hann bætti því við að Sovét-
menn hefðu þurft eina klukkustund
til viðbótar.
Gorbatsjov skipaði Bessmertnykh
að hringja aftur í Baker en bandarísk
yfirvöld sögðu aö ekki væri hægt að
bíða. Sendiherra Sovétríkjanna í
Bagdad hafði þá enga möguleika á
að framkvæma fyrirskipanir sínar.
Gorbatsjov, sem í gær efndi til
skyndifundar með helstu-ráðherrum
sínum og sérfræðingum í málefnum
Miðausturlanda, sendi samt í gær
boð til Saddams Hussein og hvatti
hann til að kalla heim her sinn frá
Kúvæt.
Skilaboðin fékk Saddaih til sín í
neðanjarðarbyrgið þaðan sem hann
stýrirvörníraka. tt