Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Síða 33
FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1991.
41
LífsstOI
Paprika
Júnl Júll Ag. SopL OkL Nóv. Do». Jan.
3 400-i 300- ^ Tómatar Verð í krónum
313 h
100-
Júnf Júlf AflúsSept OkL Núv. Des. Jan.
Vínber w
400- Verð í krónum
/\ 358 ,
v /
\ 7
200- ZV7T
Júnf Júlt Afl. Sept OkL N6v. Dea. Jan.
Meðalverð á papriku stígur ört og hefur tvöfaldast á undanförnum tveimur mánuðum.
DV kannar grænmetismarkaðinn:
Meðalverð á pap-
riku tvöfaldast á
tveimur mánuðum
- meðalverð tómata loks á niðurleið
Neytendasíða DV kannaði að þessu
sinni verð á grænmeti í eftirtöldum
verslunum: Bónusi, Faxafeni; Fjarð-
arkaupi, Hafnarfirði; Hagkaupi,
Skeifunni; Miklagarði við.Sund og
Kjötstöðinni, Glæsibæ. Bónusbúð-
irnar selja sitt grænmeti í stykkjatali
meðan hinar samanburðarverslan-
irnar selja eftir vigt. Til að fá saman-
burð þar á milli er grænmeti í Bón-
usi vigtað og umreiknað eftir meðal-
þyngd yfir í kílóverð.
Meðalverð á tómötum lækkaði eins
og í síðustu viku, nú um 8 af hundr-
aði og er nú 313 krónur. Tómatar
voru ódýrastir í Bónusi, 118, á eftir
kom Fjarðarkaup, 283, Hagkaup, 379,
Kjötstöðin, 388, og Mikligarður, 399.
Munur á hæsta og lægsta verði á
tómötum var að venju mikill, eða
238%.
Meöalverð á gúrkum hækkaði um
7% og er nú 297 krónur. Gúrkur feng-
ust ódýrastar í Bónusi á 178 kg, síðan
kom Fjarðarkaup, 258, Kjötstöðin,
320, Hagkaup, 339, og Mikligarður,
390. Munur á hæsta og lægsta verði
var 119%.
Meðálverð á sveppum hækkaði
nokkuð, eða um 13 af hundraöi, og
er nú 575 krónur. Sveppir voru ódýr-
astir í Bónusi á 401 krónu kílóið,
næstódýrastir í Hagkaupi, 549, Fjarð-
arkaupi, 564, Miklagarði, 660, og
Kjötstöðinni, 699. Munur á hæsta og
lægsta verði á sveppum var 74%.
Meðalverð á grænum vínberjum
hækkaði um 5% milli vikna og er nú
358 krónur. Græn vínber voru ódýr-
ust í Bóriusi en þar kostaði kílóið 232
krónur. Á eftir fylgdu Kjötstöðin,
250, Hagkaup, 395, Mikligarður, 439,
og Fjarðarkaup, 474. Munur á hæsta
og lægsta veröi á grænum vínberjum
var 104%.
Meðalverð á grænni papriku
hækkaði um 11 af hundraði og er nú
437 krónur. Meðalverð hefur hækkað
stanslaust frá könnun DV 9. nóvemb-
er á síðasta ári en þá var meðalverð-
iö 216 krónúr. Paprika var ódýrust í
Bónusi en þar kostaði hún 194, síðan
kom Mikligarður, 448, Hagkaup, 469,
Fjarðarkaup, 474, og Kjötstöðin, 598.
Munur á hæsta og lægsta verði á
grænni papriku var 208%.
Meðalverð á kartöflum lækkaði frá
síðustu könnun um 6% og er nú 71
króna. Kártöflur voru ódýrastar í
Bónusi á 48, síðan kom Fjarðarkaup,
55, Hagkaup, 82, Mikligarður, 82,50,
og Kjötstöðin, 89. Munur á hæsta og
lægsta verði var 85%.
Meðalverð á blómkáli lækkaði um
9% og er nú 219 krónur. Blómkál
fékkst á lægstu verði í Fjarðarkaupi,
180. Á eftir fylgdu Hagkaup, 199, Kjöt-
stöðin, 223, og Mikligarður, 273.
Blómkál fékkst ekki í Bónusi. Munur
á hæsta og lægsta verði á blómkáli
var 52%.
Meðalverð á hvítkáli hækkaði tölu-
vert frá síðustu könnun, eða um 24%,
og er nú 118 krónur. Hvítkál var
ódýrast í Fjarðarkaupi og Hagkaupi
á .99 krónur kg, M-ikligarður kom
næst með 132 og Kjötstööin 140. Mun-
ur á hæsta og lægsta verði var 41 af
hundraði. Hvítkál fékkst ekki í Bón-
us.
Meðalverð á gulrótum lækkaði um
13% og er nú 182 krónur. Gulrætur
voru ódýrastar í Fjarðarkaupi, kost-
uðu þar 139 krónur kílóið. Á eftir
fylgdi Bónus, 153, Mikligarður, 224,
Hagkaup, 229, og Kjötstöðin, 264.
Munur á hæsta og lægsta veröi á
gulrótum var 90%.
ÍS
Sértilboð og afsláttur:
Súrt heilagfiski
og selshreifar
Meðal tilboðsvara hjá versluninni
Bónus, Faxafeni, var ís-cola í eins og
hálfs lítra flöskum á 86 krónur, 125
g af Maggi kartöflumús á 54 krónur
pakkinn, Munksjos WC-rúllur, 8
saman í pakka, á 159 krónur, úr
óbleiktur og endurunnum pappír, og
Saltine saltkex, 453 g á 79 krónur.
Verslunin Fjarðarkaup í Hafnar-
firði var með tilboðsverð á Busy Bak-
er partíkexi, 226 g á 59 krónur, Bravo,
hreinum appelsínusafa, 11 á 99 krón-
ur, Bonduelle maísbaunum í 300 g
dós á 79 og Sunsweet sveskjum, 400
g á 93 krónur.
Hagkaup, Skeifunni, bauð upp á
tilboðsverð á Maxwell House-kaffinu
í 'A kg umbúðum á 294, Pfanner,
hreinum eplasafa, 11 á 85, Jordbær,
jarðarberjamarmelaði, í 750 g
krukku á 125 og kókómaltið vinsæla,
Nesquik, 400 g á 189 krónur.
Kjötstöðin Glæsibæ var tilbúin
með þorramatinn og vildi benda á
að hún væri með súrt heilagfiski,
sem getur vel komið í stað súrs
hvals, og auk þess súra selshreifa.
Nisa tekex, 200 g, var á sértilboði á
39 krónur pakkinn, Shine uppþvotta-
lögur, 1 1, var á 69 krónur og kílóið
af unghænum var selt á 199 krónur.
Mikligarður við Sund tileinkaði
þessa viku heilsurækt og var því með
töluvert af kornmat og ávöxtum á
tilboðsverði. Þar má telja grape,
rautt eöa hvítt, sem selt var á 99
krónur kílóið, All Bran kornmat, 375
g á 155, og Kiwi var á 198 krónur
kílóið. Baðvigt var hægt að fá á til-
boðsverðinu 995 krónur í Miklagarði.
ÍS
PAPRIKA
+11%
\
•o
CQ
I
598 194
^jjr)l~p
SVEPPIR
+13%
'O
CQ
I
699 401