Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1991, Page 36
44 FÖSTUDAGUR 18, JANÚAR 1991. Merming________________ Fræðirit um Snorra Hjartarson Undanfarna áratugi hefur Snorri Hjartarson verið eitt virtasta skáld íslendinga. Hann var einn hinna fremstu í hópi skáldmæringa, þar sem auk hans bar mest á þeim Jóni Helgasyni, Guðmundi Böðvarssyni, Hannesi Péturssyni og Þorsteini frá Hamri, að ógleymdum sjálfum Jóhannesi úr Kötlum, og enn mætti ýmsa upp telja. í stórum dráttum mótuðust ljóð þessara skálda af dýrkun á náttúrunni, einkum ís- lenskri náttúru, og á íslenskum menningararfi. Þessi þjóðerniskennd nær djúpt í ljóðunum, ræður yrkisefn- um, myndmáh og orðaforða. Einkum var dáðst að Snorra fyrir vandvirkni, mörg ljóða hans urðu mjög vinsæl. Snorri fæddist 1906 og dó í árslok 1986. Hann var í myndUstarnámi framan af, bjó í Noregi á fyrra hluta 4. áratugsins, og fyrsta bók hans var skáldsaga á norsku, 1934. Tveimur árum síðar fluttist hann til ís- lands, og fyrsta ljóðabók lians birtist 1944. Sú síðasta kom 35 árum síðar, þær urðu ekki nema fjórar, sam- tals um 250 bls. í venjulegri gisinni ljóðaprentun. Þessi ártöl gefa töluverða vísbendingu um ljóð Snorra. Þau bera svip af lýðveldisstofnun og kalda stríðinu, ótta við helsprengjuna, andstöðu við herstöð á íslandi, og vörn íslenskrar menningar. Ekki svo að skUja að Snorri yrki um atburði líðandi stundar, fjarri því. Ljóð hans eru yflrleitt eintal manns við náttúru landsins, svo rækilega sé nú alhæft. En ofangreindur bakgrunnur kemur oft fram. Umfjöllun í þessari bók fjallar Páll um æskuljóð Snorra og skáldsögu í stuttum inngangskafla, einkum til að draga fram vísbendingar um ljóðabækumar. En um þær fjailar hann í þremur meginköflum. Sá fyrsti lýsir ljóð- formi, annar myndmáli og stíl, en hinn þriöji helstu hugmyndum. Þessir kaflar skiptast svo í undirkafla, svo sem „Stíll“ og „Táknheimur“ í myndmálskaflán- um, þár er síðan skipulega gert grein fyrir myndefni, litum og fleiri einkennum. í hverjum undirkafla er svo venjulega fjallað um ljóðabækurnar í tímaröð. Þannig kemur þróun ljóðageröar Snorra glöggt fram og Páll gerir efninu rækileg skil. Sérlega ítarleg er umfjöllun- in um kveðskaparform en þar er rakið hvernig ljóð Snorra greindust frá formhefð síns tíma - yflrleitt með því að taka upp gömul atriði sem lítt voru notuð svo sem hálfrím. Annað dæmi um nákvæma umfjöllun Páls er að hann rekur hve mikið er um vísanir (til fyrri bókmenntaverka) í hverri bók Snorra og greinir þær í „útleitnar vísanir og innri vísanir". Utleitnar vísanir eru til að varpa Ijósi á umhverfi höfundar, en innri vísanir virðast fyrst og fremst vera tilgangur í sjálfum sér, saga er rifjuð upp sjálfrar sín vegna. Auk þess er m.a. rakinn munurinn á hughyggju Snorra og Platóns, hraktar kenningar sr. Gunnars Kristjánsson- ar um kristilega þætti í ljóðum Snorra svo fáein dæmi séu talin. Ennfremur sýnir ritið hvað líkt er í mynd- máli Snorra og atómskáldanna (bls. 64) - að láta mynd- ina tala, útskýringalaust, en einnig hitt, hvað ólíkt er, myndhverfingar Snorra „eru skýrari, skiljanlegri og birta jákvæðari lífssýn. Hann er í leit að jafnvægi náttúrunnar meðan atómskáldin eru að lýsa glund- roða og firringu borgarmenningar". Þessi síðasta fullyrðing Páls held ég að sé einum of alhæfandi því hvorki á hún viö atómskáldin Einar Braga, Stefán Hörð né Jón Óskar, hvað sem öðrum líður. Takmarkanir Sundurgreining Páls á einkennum ljóðanna er mik- ilsverð, en aðferðin leiðir ekki til heildartúlkunar á einstökum ljóðum. Páll nefnir þó t.d. að „í Úlfdölum" Snorri Hjartarson. Bókmenntir Örn Ólafsson sé hægt að túlka á ýmsa vegu. Ég tók hins vegar ekki eftir annarri túlkun hér en að kvæðið fjalli um skáld- skap (bls. 158). En hitt virðist mjög líklegt að kvæði sem lýsir svo mikið eyðileggingu og vonum um endur- reisn - og birtist á árinu 1944 - fjalli um heimsstyrjöld- ina sem þá var á lokaskeiði. Þetta er eitt dæmi um að fróðlegt hefði verið að bera saman mismunandi túlk- anir og rökræða hvort önnur sé líklegri en hin eða hvort báðar geti farið saman. Stundum fannst mér skorta á túlkanir, svo sem þeg- ar sagt er um ljóðið „Hús í Róm“ (bls. 135): „í þessu tilviki er vísunin nánast lykill að ljóðinu. Þeir sem ekkert vita um John Keats njóta ekki nema hluta þess“. Hér heföi þá þurft að segja hvað þurfti að vita um Keats til að njóta ljóðsins til fulls. Þegar tekin eru fyrir svo mörg atriði í kvæðasafni er þess að gæta að fleiri en eitt birtast í einu vísu- broti eða erindi. Það gæti í senn verið gott dæmi um myndvísi, um yrkisefni, viðhorf, algengt tákn, o.s.frv. Því verður oft álitamál hvar hvert dæmi ætti best heima. Páll leysir yfirleitt svo úr þeim vanda að til- færa þaö þá í hverjum kafla með ítarlegum útskýring- um hverju sinni. Af því hljótast svo miklar endurtekn- ingar að það verður ansi þreytandi lestur. Þarna hefði bara átt að tilfæra dæmið þar sem það þykir sýna mest en láta nægja að vísa til þess á öðrum stöðum, þyki þess þurfa. Enda eru oftast mörg dæmi um hvert þessara einkenna. En auk þessa er allt of mikið um endurtekningar í beinum texta höfundar, t.d. er þrisv- ar sagt í 8 lína samfelldum texta að í ljóðum Snorra sé náttúrunni oft lýst sjálfrar hennar vegna (á bls. 59, auk þess á bls. 103). Að þessu leyti er bókin ekki fulls- amin. í meginatriðum er efnisskipan þó ljós. Yfirleitt er umfjöllunin svo ítarleg og nákvæm að ekki virðist neinu við að bæta um skáldskap Snorra. Því er góður fengur í þessu riti enda er þetta skáld svo mikilvægt í íslenskum bókmenntum 20. aldar að umfjöllunin hefur mikið gildi til samanburðar við önnur skáld og þá ekki síst þau sem ég taldi fyrst hér. Páll Valsson: Þögnin er eins og þaninn strengur. Þróun og samfella i skáldskap Snorra Hjartarsonar. íslensk fræði 48, BMÞ 1990, 214 bls. Andlát Ingibergur Sveinsson lést á St. Jós- efsspítala 17. janúar sl. Svava Haraldsdóttir, Asparfelli 10, Reykjavík, lést á heimili sínu 16. jan- úar. Ingibjörg L. Guðmundsdóttir, Kötlu- felh 3, lést á heimili sínu miðvikudag- inn 16. janúar. Kristín Ingvarsdóttir, Drápuhlíð 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum þann 16. janúar. Jarðarfarir Elín Margrét Jónsdóttir, Borgar- braut 37, Borgarnesi, lést á heimili sínu sunnudaginn 13. janúar. Útför hennar fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 19. janúar kl. 14. Alexander Gíslason, Ölkeldu, verður jarðsettur að Staðarstað laugardag- inn 19. janúar kl. 14. Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Hásteins- vegi 15b, Vestmannaeyjum, verður jarðsungin frá Landakirkju laugar- daginn 19. janúar kl. 14. TOkyimingar Félag íslenskra náttúrufræðinga í tilefni af reglum um greiðslur fyrir stundakennslu við Háskóla íslands, út- gefnum af menntamálaráðuneytinu 10. janúar 1991 vill stjórn Félags íslenskra náttúrufræðinga taka fram að þær reglur breyta engu um stöðu stundakennara- deilunnar. Skorað er á félagsmenn og aðra háskólamenn að láta ekki blekkjast af þessum sjónhverfmgum. Jafnframt samþykkir stjórn Félags íslenskra nátt- úrufræðinga að mælast til þess við stjóm kjaradeilusjóðs félagsins að halda áfram fyrst um sinn greiðslum til stundakenn- ara í Félagi íslenskra náttúrufræðinga með sama hætti og á haustmisseri. Hjónaband Þann 22. október sl. vom gefin saman í hjónaband í Háteigskirkju af séra Tómasi Sveinssyni, Guðrún Jónsdóttir og Rik- hard Eyfeld Ómarsson. Heimili þeirra er að Álakvísl 37, Reykjavík. Ljóðatónleikar i Gerðubergi Þriðju tónleikamir í ljóðatónleikaröð Geröubergs, sem vera áttu mánudaginn Fjörá Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveit íslands hélt nýárstónleika í Háskólabíói í gærkvöldi þar sem flutt var svonefnd Vínartónlist. Stjórnandi var Vínarbúinn Peter Guth. Þá komu fram 10 einleikarar úr röðum hljómsveitarinnar, auk nokkurra af yngstu kynslóðinni. Peter Guth kynnti tónlistina og gat þess i upphafi að á efnisskránni væri ekki aðeins tónhst frá Austurríki heldur einnig öðrum Evrópulönd- um og'væri það í samræmi við opnum landamæra og samruna Evrópu sem á sér stað nú á tímum. Leikin voru verk eftir 12 höfunda og að von- um var sjálfur valsakóngurinn Jóhann Strauss þar fyrirferðarmestur Guth stjómaði hljómsveitinni af miklum eldmóði og íjöri sem hreif bæði hljóðfæraleikara og áheyrendur. Auk þess er hann greinilega mjög snjall Tónlist Finnur Torfi Stefánsson fiðluleikari enda þótt það sem hann spilaði þarna væri auðvitað í léttari kantinum. Tónlist áf þessu tagi er stundum kölluð Um-pa-ba tónhst en Það breytir því ekki að hún er glaðvær og oft litrík og fátt er betur th þess fallið að koma fólki i gott skap. Einleikarar hljómsveitarinnar fengu nóg að spreyta sig. Guðný Guð- mundsdóttir konsertmeistari sýndi að hún getur spilað Vínartónlist ekki síður en hvað annað í dúettum sem hún lék á móti Guth. Bryndís Halla, fyrsti sellóleikari hljómsveitarinnar, lék sérlega fallega í lagi eftir von Suppé og rómönsku eftir Strauss. Sama er að segja um flutning Hafsteins Guðmundssonar á polka fyrir fagott og hljómsveit og fékk hann stóran bangsa að launum. Trompetleikararnir Lárus Sveinsson, Ásgeir Stein- grímsson og Jón Sigurðsson tróðu upp með rauðbrydda pípuhatta og blésu Buglers Holiday með miklum glæsibrag. Mesta kátínu vakti kontrabassa- kvartett þeirra Jóns Sigurðssonar, Richards Korns, Deans Ferrel og Krzystztofs Panus í laginu Strauss í hundakofanum. Hins vegar var senni- lega hlustað af mestri athygh á nútímatónverk Lucianos Berios sem var dúettar fyrir fiðlur. Ekki var það þó beinlínis verkanna vegna heldur vegna þess að flytjendur voru ungir og upprennandi flðluleikarar, Álf- heiður Hafsteinsdóttir, Freyja Auðunsdóttir og Elínborg Ingunn Ólafs- dóttir ásamt kennara þeirra, Martin Frewer. Mest voru eyrun þó sperrt þegar Elfa Rún Kristinsdóttir og Hanna Björg Konráðsdóttir léku því þær virtust svo litlar umkringdar þessu stóra hljómsveitarfólki. En allt fór vel og þær spiluðu eins og þetta væri daglegt brauð hjá þeimi Meðal þess sem hljómsveitarstjórinn fékk hljómsveitarmenn til að gera var að reka upp heróp og var það svo hressilegt að hrollur fór um áheyrendur. Þeir mega þakka fyrir það írakar að ekki eru hljómsveitarmenn úr Sinfóníu- hljómsveit íslands að berjast með frönsku útlendingahersveitinni suður í áhu þessa dagana. í lok tónleikanna sannaði Peter Guth það sem marga tónleikagesti hefur löngum grunað að hljómsveitarstjórar eru óþarfir. Meðan hljómsveitin lék síðasta lagið gekk hann í rólegheitum út í salinn, fann þar á einum af fremri bekkjunum litla stúlku og leiddi hana upp á sviðið þar sem hann fékk henni í hendur fiðluboga sem sprota stjórn- anda. Stjórnaði hún síðan hljómsveitinni út lagið og varð ekki heyrt að hljómsveitin spilaði verr eða öðruvísi en þegar Guth sjálfur stjórnaði. Ef th vhl er hér komið efni í íslenskan hljómsveitarstjóra framtíðarinnar. 14. janúar en fresta varð vega veikinda, verða haldnir nk. mánudag 21. janúar kl. 20.30. Guöbjörn Guðbjörnsson tenór syngur og Jónas Ingimundarson annast meðleikinn. Á efnisskránni aö þessu sinni eru viðfangsefnin eftir Schubert, Beethoven, ReSpighi og Tosti auk ís- lensku höfundanna Jóns Þórarinssonar, Páls ísólfssonar og Sigvalda Kaldalóns. Gefin er út mjög vönduð efnisskrá meö frumtexta ljóðanna ásamt- þýðingum Reynis Axelssonar. Þær breytingar verða jafnframt á ljóðatónleikaröðinni aö í stað Signýjar Sæmundsdóttur mun Sigríður Ellu Magnúsdóttir koma fram á tónleik- um sunnudaginn 27. janúar kl. 16. Áskrif- endum er bent á að febrúarmiðinn gildir á tónleika Sigríðar Ellu. Félag austfirskra kvenna í Reykjavík heldur þorrablót í Templarahöllinni 23. janúar kl. 19. Þátttaka tilkynnist í s. 34789 Sigrún, 33470 Sigríður og 33225 Sonja. Styrkur úr Sögusjóði stúdenta í Kaupmannahöfn í febrúarmánuði verður veittur árlegur styrkur úr Sögusjóði stúdenta í Kaup- mannahöfn. Upphæð styrksins er að þessu sinni 7.000 danskar krónur. Sjóður- inn veitir styrki tib a) Verkefna er tengj- ast sögu íslenskra námsmanna í Kaup- mannahöfn. b) Verkefna er að einhveiju leiti tengjast sögu íslendinga í Kaup- mannahöfn. c) í sérstökum tilfellum til annarra verkefna er tengjast dvöl íslend- inga í Danmörku. Umsóknir um styrkinn skulu hafa borist stjóm sjóðsins fyrir 20. febrúar 1991. Landssamtök ITC á íslandi Upplýsingar og blaðafulltrúar ITC á ís- landi eru: Ólöf Jónsdóttir, s. 91-72715, Guðrún Bergmann, s. 91-672806, Jóna S. Óladóttir, s. 91-672434 og Elínborg J. Ól- afsdóttir, s. 91-656790. Hafið samband sem áhuga hafa á að kynnast ITC. Ráðstefnur Siðferði hins opinbera lífs Ráðstefna um opinbert siðferði verður haldin í Skálholti 18.-19. janúar. Fjallað verður um siða- og samskiptareglur þeirra sem starfa í opinbera þágu. Frum- mælendur verða: Hrafn Bragason hæsta- réttadómari, Guörún Agnarsdóttir, fyrrv. alþingiskona, Baldur Möller, fyrrv. ráðuneytisstjóri, og Atli Rúnar Halldórs- son fréttamaður. Ráðstefnustjóri er sr. Halldór Reynisson, fyrrv. forsetaritari. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadótt- ir, mun heiðra ráðstefnuna með nærveru sinni. Ráðstefna um stöðu sjávarútvegs á Norðurlöndunum Dagana 18. og 19. janúar verður haldin norræn ráöstefna um stööu sjávarútvegs á Norðurlöndunum á Flughótelinu í Keflavík. Ráðstefnan er upphafið að þriggja ára norrænu verkefni um tengsl fiskveiðistjórnunar, markaðsþróunar og verðmætaaukningar sjávarafla og þá sérstaklega með tilliti til þeirra land- svæða þar sem sjávarútvegur er mikil- vægasta atvinnugreinin. Ráðstefnan er haldin af Sjávarútvegsstofnun Háskóla íslands og Byggðastofnun í samvinnu við Norrænu rannsóknastofnunina í byggða- málum (NordRefo) og verður haldin á Flughótelinu, Hafnargötu 47, Keflavík, og hefst 18. janúar kl. 9. Þátttakendur á ráðstefnunni eru sérfræðingar á sviði sjávarútvegsmála. Erindin verða flutt á Norðurlandamálum og ensku. Öllum er frjálst að koma og hlýða á erindin. Tapað fimdið Köttur fannst í Kópavogi Þessi köttur fannst í Kópavógi í síðustu viku. Er víst búirm að vera lengi á sömu slóðum. Upplýsingar í síma 73461.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.