Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991.
Fréttir
Ofsaveður helgarinnar lék mannvirki, farartæki og gróður illa:
Milljarðatjón í kjölfarið
Gífurlegt eignatjón varð í ofsaveðr-
inu sem gekk yfir landið á sunnudag.
Engar nákvæmar tölur hafa verið
gefnar út yfir tjónið en víst þykir að
það nemur milljörðum króna.
Tjón varö á fjölda bygginga. Þök
fuku í heilu lagi eða í pörtum og heilu
húsin tókust á loft og splundruðust.
Fjöldi farartækja skemmdist eöa
eyðilagðist. Þá varð mjög mikið tjón
á gróðri, tré rifnuðu upp með rótum
og þökur flettust af túnum. Hér á
eftir fer yfirlit yfir tjónið frá Skóg-
um, vestur um og norður til Akureyr-
ar.
Eins og þegar hefur komið fram og
skýrt hefur verið ítarlega frá varð
óheyrilegt tjón á Suðumesjum, Vest-
mannaeyjum og á höfuðborgarsvæð-
inu. Hér veröur hins vegar stiklaö á
stóru í umfjöllun um önnur svæði.
Suðurland
Ef tína ætti til alla bæi á Suður-
landi þar sem tjón varð yrði sá listi
mun lengri en þar sem ekki varð tjón.
Ljóst er að útihús, sem skemmst hafa
í ofsaveðrinu, skipta tugum og víða
urðu miklar skemmdir á íbúðar-
húsum. Auk þess varð víða mikið
tjón á tækjum er heyvinnuvélar, sem
staðið hafa úti á túnum, tókust á loft
og fuku langar leiöir, sömleiðis-
skemmdust bílar bænda á mörgum
bæjum.
Undir Austur-Eyjafjöllum urðu
mestar skemmdir að Rauðafelli 3 og
4. Á Rauðafelli 4 fór hluti af þaki á
íbúðarhúsi. Á báðum bæjunum fuku
jámplötur af íjósi og flárhúsum. í
Eyvindarhólum gekk hlöðugafl inn
og þak fauk af vélageymslu.
Ekki var búið að fá heildstæða
mynd af tjóni sem varð undir Vest-
ur-Eyjafjöllum en vitað er aö jám
losnaði af íbúðar- og útihúsum á
mörgum bæjum. Til að mynda fauk
hluti þaks af hlöðu í Neðri-Dal og á
Skálabæjum varð mikið tjón. í Aust-
ur-Landeyjum fauk jám af nokkmm
útihúsum en tilfinnanlegast varð
tjónið á Leifsstöðum þar sem nýupp-
gert íbúðarhús tókst á loft og fauk út
í buskann.
í gær var ekki búið að meta tjón í
Vestur-Landeyjum. Óveðrið lék
Fljótshlíðinga mjög grátt. í Smára-
túni fauk jám af þaki íjóss sem rúm-
ar rúmlega 100 nautgripi. í Hellis-
hólum fuku tvö hesthús og á Efri-
Þverá fauk 100 kinda fjárhús, og svip-
aður skaði varð á Kirkjulæk, í Orm-
skoti fauk helmingurinn af þakinu á
íbúðarhúsinu og á Lambalæk fauk
hluti af hlöðu út í buskann.
Minna tjón varð á Hvolsvelli. Mest-
ar skemmdir urðu á trésmíðaverk-
stæði Guðfinns Guðmundssonar,
þakplötur losnuðu af 5 til ip íbúðar-
húsum en í nágrenni bæjarins máttu
bændur viða þola þungar búsifiar, til
aö mynda skemmdust útihús á bæj-
unum Dufþaksholti, Götu og gróður-
hús skemmdust á Stórólfsvöllum.
Á Hellu varð tjón á um 20 íbúðar-
húsum er jámplötur fuku af þeim
og mikið var um rúðubrot.
í uppsveitum Rangárvallasýslu
varð tjón á nánast hverjum bæ. Má
þar nefna að í Djúpárhreppi urðu
miklar skemmdir. Á Háurim fuku
vélaskemma og hlaða en fiós hmndi,
á Háfi 2 er íbúðarhúsið óíbúðarhæft
því suðurhlið hússins gekk 30 cm inn
og munaði litlu að húsið hryndi.
Svipaöa sögu er að segja úr Land-
mannahreppi. Á Snjallsteinshöfða
fauk fiárhús og sömuleiðis á Ár-
bakka og í Neðra-Seli fauk fiárhús
og kálfahús.
Tjón varð á mörgum íbúðarhúsum
á Selfossi. Á flugvellinum fauk upp
hurð á flugskýlinu með þeim afleið-
ingum að lítil flugvél, sem var í skýl-
inu, skemmdist töluvert. Á Stokks-
eyri og Eyrabakka urðu víða miklar
skemmdir á íbúðarhúsum og í Þor-
lákshöfn uröu miklar skemmdir á
þökum bygginga Meitilsins.
Tjón varð á nær öllum bæjum í
Ámessýslu. Sem dæmi má taka að í
Á Blönduós lösk-
uöust fjórar flugvélar
/fl BotungatvUr.v
f^\#3:AFJÖ5pUR
mvritt « Þirtgoyrf | T
TÁtkna-í-óugabö/ i
Ijóróur^ ^^Hójréav1^
*. Blldudaliijf i lyiýrartunaa*
SrÁ?.. Boraéfrfa.
rabakki
tfr. «VW{»SHÓLMUII
• 'fctíérna"G r itn d a rf ] ö fcö u r
#wi k r^t
Ytfíjting# Foss J L HÁfssla&ir
Fleslir bæir I
Miklaholtshreppi
«í* Kieppsjámreykir
Kross / S
&ORlSAftNE6 '
Margir bæir
I Árnessýslu
REYKJAVlKUR■
SVÆÐIÐ
iFlúöir
KÉFtAVfK*«S
Hvyrageröi
Sem dæmi um veöurofsann Noröanlands
kastaöist bátur upp á bryggju á Hofsósi
GnittOAVtK
VESTMANNA
Ferill lægðarinnar
ijijjte
Hér) varð
niest_____
^S^lfass
Neórast
Snjaiisteinshöföy
. é&' «o Nælurholt
Selsund
Vlndhæ&jn %
ná&í allt a&
110 hnúta
hra&a á kist
i rsáþæjarkfjéleiga
h
'iJ NHtflía/
lamarl
fur Háaritf
Leifsslapir
■
Íifil
3. februar 1991
Skyringar jigjjg
Bæir þar sem tjóniö varö mest
GróÖurhúsahvorfi sem stórskemmc ijiép
Langlínumastriö á Vatnsendahæð gaf
veöurhamnum
Efri-Þverá
afjallajokul
Vorsabæjarhjáleigu fauk fiárhús, og
járn fór af íbúðarhúsi og geymslu, á
Hamri fauk fiárhús og í Seljatungu
fauk ærhús, hlaða og íbúðarhúsið
skemmdist nokkuð. í Borgarkoti
hvarf heil hlaða út í buskann og í
Vorsabæ fór allt jám af fiósi. Á
Neistastöðum hrundi hlöðuveggur.
Lenti hann á traktor og heybindivél
auk þess sem þak fór af hlöðu.
Á Flúðum skemmdust gróðurhús
og að Syðra-Seli, Hrafnkelsstöðum
og Hrafnsstöðum fuku fiárhús.
Hveragerði fór illa út úr fárviðrinu,
þar skemmdust mörg gróðurhús.
Miklar skemmdir urðu á tívolíhús-
inu og í Eden, auk þess sem plötur
fuku af nokkrum íbúðarhúsum og
af vélsmiðju.
Vesturland
Á Akranesi fauk viðbygging fisk-
verkunarhúss hjá Heimaskaga yfir
aö plani Olísbensínstöðvarinnar,
braut rúður og ljósastaura. Einnig
fuku járnplötur af síldarverksmiðj-
unni, miklar skemmdir urðu á tré-
smiðju, bílskúrar hrundu að hluta
við Jaðarsbraut og klæðningar flett-
ust af húsum. Lögreglan fékk 90 til-
kynningar um fok og tjón.
í Borgamesi fauk þak af brauðgerð
Kaupfélagsins og plötur fuku af 8
húsum. 12 bílar skemmdust en einn
fauk út af við Hafnará. Þrir gróður-
skálar íbúðarhúsa fuku, 2 plastgróð-
urhús í Kárastaðalandi og glerhús á
Kleppjárnsreykjum. Þak fauk af
hlöðu að Ásgarði í Reykholtsdals-
hreppi og þak fauk alveg af hlöðu að
Brekku í Borgarhreppi. Þak fór af
hlöðu og fiárhúsi á Krossi í Lundar-
reykjadal, plötur losnuðu af íbúðar-
húsi og útihúsum að Hofsstöðum í
Álftaneshreppi, þak losnaði af úti-
húsi og íbúðarhúsi að Gröf í Borgar-
hreppi, 4 rúður brotnuöu í íbúðar-
húsi aö Höfn í Melasveit.
Á sunnanverðu Snæfellsnesi varð
tjón á mörgum bæjum í Miklaholts-
hreppi og Eyrarsveit en minna í Stað-
arsveit og Breiðuvík. í Stykkishólmi
varö tjón mest á skipasmíðastöð
Skipavíkur. Þar skemmdust 6-700
fermetrar af þakinu. Brakið af sól-
stofu í einbýlishúsi fauk á haf út og
golfskúr í bænum tókst á loft og
splundraðist. Vélageymsla, gamalt
íbúðarhús, þrír bílar og nýr sumar-
bústaður skemmdust aö Kárastööum
í Helgafellssveit.
í Gmndarfirði fauk jám af nokkr-
um húsum, rúður brotnuðu í híbýl-
um og í bílum, gámur valt á hliöina
og tveir kappróðrarbátar skemmdust
er þeir fuku yfir grjótgarð við Suður-
bryggju. Á bænum Kvemá fauk hjól-
hýsi á haf út, verönd á sumarhúsi
þyrlaðist í loft upp og heyhlaða
„sprakk“. Stórtjón varð að Skalla-
búðum. Þar fuku gróðurhús, harð-
fiskhjallur, Qárhús, verkfæra-
geymsla og 15 járnplötur fuku af
hlöðu. íbúðarhús er stórskemmt.
Plötur fuku af húsi á Höfða og gróð-
urhús fauk að Hömrum í Eyrarsveit
í Ólafsvík varð tjón mest þegar 90
prósent af þaki vinnslusalar hraö-
frystihússins skemmdist, stór vöru-
skemma lagðist saman, hluti þaks á
tveimur íbúðarhúsum fauk og litlu
munaði að fiúkandi gámur ylli
skemmdum. 4-5 bílar skemmdust
einnig. Maður lenti í miklum háska
á einum þeirra við Ólafsvíkurenni.
Trilla sökk á Rifi. Þar brotnuðu einn-
ig rúður og reykháfar fuku af húsum.
Vegklæðningar rifnuðu upp á ýms-
um stöðum á Snæfellsnesi.
í Dalasýslu var símasamband í
lamasessi í gær og ekki vitað um
orsakir. Þak lyftist af og veggur féll
út í slökkvistöð í Búðardal og mikið
tjón varð á bænum Giljalandi. Þak
fauk í heilu lagi af hlöðu ogþrír bílar
heimilisfólks skemmdust. I gær var
vitað um töluvert tjón á 5-6 bæjum
í Suðurdölum.
í A-Baröastrandarsýslu fuku fiár-
hús og hlaða aö Mýrartungu 1, fiós
fauk á Borg í Reykhólasveit, plötur
fóru af á Bæ í Króksfiröi og tengi-
vagn fór á hliðina hjá Kaupfélaginu.
Vestfirðir
Á Þingeyri sluppu menn sæmilega
frá veðrinu en á Ketilseyri fauk þak
af hlöðu og bíll fauk 70 metra. Þá fór
illa á nokkrum bæjum í Arnarfirði.
Á Flateyri og í Önundarfirði varð
verulegt tjón. Skemmdust 36 íbúöir
og var mikið plötufok. Þak beina-
mjölsverksmiðju Hjálms hf. fór af og
gafl lagðist inn þannig að milhgólf
sprakk og skekktist. Töluveröar
skemmdir urðu á bæjum í firðinum
firði og fauk einn sumarbústaður í
hepu lagi á haf út.
- Á Suðureyri varð ekki teljandi tjón
en þak fór af einu húsi. Inni í firði
méluðust tveir nýir sumarbústaðir
og gömul hlaöa hvarf. Á Patreksfirði
fauk mikið af plötum og einnig fisk-
hjahur. Á Tálknafirði fauk þak af
Bjarnabúð og af laxeldisstöö. Þá fauk
hesthús í heilu lagi.
Á Hólmavik varð ekki mikið tjón.
Þó skemmdist hafnargaröurinn og
grófst undan Strandgötunni á kafla.
Fauk af tveimur fiárhúsum og einni
hlöðu í nágrannasveitum.
Norðurland
Töluvert tjón varð á Norðurlandi
vestra. Á Blönduósi féll nýlegt flug-
skýli nærri saman og stórskemmd-
ust fiórar flugvélar þar inni. Þök
nokkurra húsa skemmdust hla og
mikið var um plötufok og rúðubrot.
Nokkurt tjón varð á Holti á Ásum
og á Húnavöllum.
Á Sauðárkróki fuku þakplötur og
skemmdu rúður og bíla. Á bænum
Sandfehi stórskemmdist nýlegt íbúð-
arhús og á Narfastöðum splundrað-
ist heh viðbygging við kanínubú. Á
Hofsósi þeytti veðrið 7 tonna báti upp
á land og braut hann.
Á Hvammstanga voru menn vel
undir veðrið búnir og sluppu þokka-
lega. Á um 30 bæjum í nágrenninu
varð mikið tjón. A Þorgrímsstöðum
á Vatnsnesi fauk th að mynda hús
ofan af 180 kindum. í Víðidal brotn-
uðu rúður í öllum suðurgluggum á
einum bæ og Qöldi rafmagnsstaura.
Á Laugabakka í Miðfirði eyðilagðist
gróðurhús og flugskýli. Á Skaga-
strönd fór grjót fór illa með margar
rúður sem voru eins og gatasigti á
eftir. Á bænum Felli fauk heh fiós-
hlaða og 250 baggar af heyi hurfu.
Á Siglufirði, Olafsvík, Dalvík og
Akureyri varð ekki tjón í sama mæh
og annars staðar. Menn náöu að
sinna fyrirbyggjandi aðgerðum og
vindáttin var ekki sú óhagstæðasta.
Á bæjum í sveitum nyröra fór víða
illa. Á bænum Koti í Svarfaðardal
fauk þak af íbúðarhúsi, tveir bílar
og hænsnakofi meö 12 hænsnum.
-J.Mar/ÓTT/hlh