Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991.
Fréttir
Ymislegt
Hárgreiös'lustofan
Leirubakka 36 S 72053
Gerið verðsamanburð. Dæmi um verð:
• Klipping og þurrkun kr. 1100.
• Permanent frá kr. 2500. •Skol frá
kr. 850. •Litun frá kr. 1380. Opið
laugard. kl. 10-14. Kreditkortaþj.
Víða hafði fólk gert ráðstafanir til að mæta þeim ofurkrafti sem fólst í ofsaveðrinu á sunnudag. Festi fólk límband
innan á gluggarúður svo að þær tvístruðust ekki inn í íbúðirnar. Minnti þetta marga eldri borgara á stríðsárin.
Þar sem Ijósmyndari var á ferð í Breiðholti braut veðurhamurinn nokkrar rúður og var neglt fyrir hið snarasta.
DV-mynd GVA
- máliöverðurtekiðfyriráríkisstjómarfimdiídag >
Brettakantar á MMC Pajero, Toyota,
4Runner, Duble cab, Extra cab og lok
á japanska pickupbíla. Ásetning fæst
staðnum. Boddíplast hf., Grensásvegi
24, sími 82030.
BQar til sölu
Til sölu Nissan Sunny coupé, árg. ’88,
SGX, sjálfskiptur, vökvastýri, útvarp,
kassetta, topplúga, ekinn 55 þús. km.
Bein sala. Uppl. í síma 91-50468, virka
daga eftir klukkan 17.
Arni Johnsen, varamaður Þor-
steins Pálssonar á Alþingi, hóf í gær
umræður utan dagskrár í sameinuðu
þingi. Hann ræddi um það ástand
sem nú ríkir vegna falls langhylgju-
masturs Ríkisútvarpsins á Vatns-
enda. Benti Arni á að um eitt þúsund
fiskiskip væru nú sambandslaus
vegna þess að langbylgjan er dottin
út. Sjómenn gætu ekki einu sinni
heyrt veðurfréttir, jafnáríðandi og
það nú er fyrir þá. Hann benti síðan
á hvað það myndi kosta og hve lang-
an tíma það tæki að byggja upp nýja
langbylgjustöð. Það er talið kosta 600
til 1.000 milljónir króna og tekur ekki
skemmri tíma en 2 ár. Því sagði Árni
að nauösynlegt væri að koma upp
einhvers konar bráðabirgðastöð hið
allra fyrsta.
Þeir sem tóku til máls á eftir Árna
voru allir þessu sammála. Svavar
Gestsson menntamálaráðherra sagði
það rétt hjá Árna að langbylgjustöð
væri úrslitaþáttur í öryggismálum
landsmanna. Hann benti á að 1987
hefði Ríkisútvarpið verið svipt föst-
um tekjustofnum af aðflutnings-
gjöldum. Þau áttu að renna til endur-
bóta á öllu dreifingarkerfi Ríkisút-
varpsins. Á árunum 1987 til og með
1989 var Ríkisútvarpið svipt samtals
625 milljónum króna vegna þessa.
Þetta sagði Svavar að hefði verið
ógæfuspor. Hann sagðist myndi
leggja þetta mál fyrir ríkisstjórnar-
fund í dag, þriðjudag.
Bent var á í umræðunni að hðin
væru 20 ár síðan því var haldið fram
að langbylgjumastrið á Vatnsenda
væri að falli komið. Það hefði því
ekki átt að koma neinum á óvart
þótt það stæðist ekki það veður sem
gékk yfir á sunnudaginn.
Samgönguráðherra boðaði að hann
myndi gera sitt til þess að Póstur og
sími breytti framkvæmdaáætlun
sinni í ár til þess að aðstoða við upp-
byggingu nýs langbylgjukerfis.
-S.dór
Varahlutir
Óveður utan dagskrár á Alþingi:
Uppbyggingu langbylgju
verði hraðað sem mest
23
eS\t'og betri bllasa/g.,_
/bílasala garðars)
BORGARTÚN11 - 105 REYKJAVÍK
SlMAR 19615 & 18085
MMC Pajero turbo dísil ’85, grár,
ek. 104 þús. V. 950.000.
Volvo Lapplander ’80, ekinn 38 þús.
Verð 350.000.
Toyota Dyna dísil ’84, 1,1 tonn.
V. 850.000.
Toyota Dyna dísil ’82, 3,5 tonn.
V. 850.000.
þús., steingrár. Verð 580.000.
Vantar bíla á staðinn
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Grófarsel 20, þingl. eig. Þorsteinn
Hannesson, fer ffarn á eigninni sjálfri
fimmtud. 7. febrúar ’91 kl. 15.00. Upp-
boðsbeiðandi er Gjaldheimtan í
Reykjavík.
Hraunbær 102B, íb. 03-02, þingl. eig.
Haraldur Baldursson, fer fram á eign-
inni sjálfri fimmtud. 7. febrúar ’91 kl.
16.00. Uppboðsbeiðendur eru Fjár-
heimtan hf. og Gjaldheimtan í Reykja-
vík.
Höíðabakki 1, hluti, þingl. eig. Borg-
arholt hf., fer ffam' á eigninni sjálfri
fimmtud. 7. febrúar ’91 kl. 15.30 Upp-
boðsbeiðendur eru tollstjórinn í
Reykjavík, Gjaldheimtan í Reykjavík,
Fjárheimtan hf. og Ásgeir Thoroddsen
hrl.
Vesturberg 119, þingl. eig. John Fran-
cis Zalewski, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtud. 7. febrúar ’91 kl. 16.30. Upp-
boðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í
Reykjavík, Veðdeild Landsbanka ís-
lands og Landsbanki íslands.
B0RGARFÓGETAEMBÆTT1Ð1REYKJAVÍK
FIMMTI
GÍR í ÞÉTTBÝU!
UMFERÐAR
RÁD
ó& it y>
AUKABLAÐ
VETRARFERÐIR
MiðviKudaginn 13. febrúar nk. mun aukablað um
vetrarferðir innanlands og utan fylgja DV.
Meðal efnis verður umflöllun um skíði, skíðabún-
að, skauta og vélsleðaferðir. Einnig verður flallað
um skíðaferðir innanlands og utan o.fl. o.fl.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa
í þessu aukablaði, hafi samband við auglýsinga-
deild DV hið fýrsta í síma 27022.
Vinsamlegast athugið að skilafrestur auglýsinga
er til fimmtudagsins 7. febrúar.
- auglýsingar. Sími 27022.
LCl