Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991.
Úúönd
Yfirlýsing frá foringja í herliði bandamanna við Persaflóa:
Aðeins tíundi hluti
heraff la íraka ónýtur
- Schwartskopf svartsýnn á að írakar bugist undir loftárásunum
Yílrmaður í her bandamanna í
Saudi-Arabíu segir að aðeins tíundi
hluti af herafla íraka hafi verið eyði-
lagður í loftárásunum á landiö síð-
ustu þijár vikur. Þá er það mat for-
ingjans aö þjóðvarölið Saddams í og
við Kúvæt standi enn óhaggað og sé
að fullu bardagahæft þrátt fyrir að
hafa setið undir mestu loftárásum
sögunnar.
A síðasta sólarhring gerðu banda-
menn 26 sinnum loftárásir á þjóð-
varðliðið með B-52 sprengjuflugvél-
um. Árásimar komu í lotum og eru
einhveijar þær hörðustu í stríðinu
til þessa. Einn af yfirmönnum úr her
Bandaríkjanna sagði aö þrátt fyrir
þetta sæjust engin merki þess að
þjóðvarðliöið væri á mörkum þess
að gefast upp.
Skothríð af gömlum
striðsjálkum
í gær hófst skothríð af skipum á
Persaflóa á stöðvar þjóðvarðliðanna.
Floti íraka er nú nánast allur úr sög-
unni þannig að stór herskip hafa
hætt sér upp að strönd Kúvæts. í gær
var skotið 1200 kílóa fallbyssuskot-
um af orrustuskipunum Missouri og
New Jersey. Fallbyssur skipanna
draga fast að 40 kílómetra. Orrustu-
skip þessi hafa ekki verið notuð til
árása frá því í Kóreustríðinu.
Útvarpið í Bagdad sagði í hvatning-
arávarpi seint í gærkveldi að „varð-
Uðar réttlætisins" biðu þess aö fá boð
um að sækja. „Þá verða hausar skild-
ir frá búkum,“ sagði í útvarpinu. í
allan gærdag hljómuðu hvatningar
frá Bagdad til landsmanna. Óvíst er
hvort það ber að túlka sem ótta yfir-
valda í írak við að landsmenn séu
að gefast upp.
Baráttuviljinn óskertur
Norman Schwartskopf, hershöfð-
ingi og yfirmaður herafla banda-
manna við Persaflóa, efast um að
hægt verði að bijóta baráttuvilja
Saddams Hussein á bak aftur með
viðstöðulausum loftárásum. Sagt er
frá þessu áUti hershöfðingjans í New
York Times í dag en hann ekki bor-
inn fyrir því sjáflur.
Orð hans þykja enn frekar stað-
festa en áður var að bandamenn ætli
sér áður en langt um Uður að blása
til sóknar gegn írökum á landi og
gera út um stríðið þar.
Schwartskopf hefur oft lýst því yfir
á blaðamannafundum að árásir
bandamanna bijóti baráttuvilja ír-
aka smátt og smátt niöur. Ekkert
bendir þó til að svo sé enn og ef miö-
að er við reynsluna af loftárásum 1
síðari heimsstyijöldinni þá duga loft-
arásir ekki til. Baráttuvilji Þjóðveija
Orrustuskipin Missouri og New Jersey skutu í gær 1200 kílóa fallbyssuskot-
um að herliði íraka i Kúvæt. Þessi skip voru smíðuð i siðari heimsstyrjöld-
inni en hafa litið verið notuð í sjóorrustu. Þau eru um 40 þúsund lestir að
stærð. Hér sést skot ríða af úr byssu New Jersey. Simamynd Reuter
var til að mynda aldrei meiri en þeg-
ar loftárásir voru mestar á landiö.
Það álit sem fram kemur í New York
Times þykir því mun raunsærra.
Saddam á eftir aö
nota efnavopn
Á blaöamannafundi í Ríjad í
Saudi-Arabíu sagöi Schwartskopf aö
Saddam ætti efdr aö grípa til allra
hugsanlegra ráöa til aö veijast sókn
bandamanna. Hann sagöi að Saddam
hugsaði ekkert um mannslíf og ætl-
aði sér aö snúa stríðinu upp í bar-
daga þar sem maður berðist við
mann.
Hershöfðinginn sagði að hann ætl-
aði ekki að ana út í landorrustur við
her íraka og ítrekaði að bandamenn
ætluðu að fóma sem fæstum manns-
lífum. Hann sagðist einnig eiga von
á að írakar beittu efnavopnum um
leið og út í alvarlega bardaga á landi
kæmi. Reuter
Norman Schwartskopf hershöfðingl er svarstýnni nú á órangur af loftárósum
en áður. Sfmamynd Reuter
Persaflóastríðið:
Atburðarásin
4. febrúar
8.40 - Yfirmenn Bandaríkjahers
segja frá vopnaðri árás á banda-
ríska herrútu í hafnarborginni
Jeddah í Saudi-Arabíu. Tveir
Bandaríkjamenn og einn saudi-
arabískur öryggisvörður særð-
ust. Taliö er að hermdarverka-
menn hafi verið aö verki.
9.00 - Bandaríska orrustuskipið
Missouri skýtur 1,25 tonna
sprengjum á skotmörk í Kúvæt.
Er þaö fyrsta slík árás á Kúvæt.
9.10 - írakar tilkynna aö þeir hafi
skotið níu orrustuþotur banda-
manna niður. Á ein að hafa falliö
tíl jarðar í Sýrlandi og önnur í
Persaflóa. Bandamenn tilkynna
að þeir hafi ekki misst neinar
orrustuvélar.
10.55 - Franskar Jagúar og
Mirage omstuþotur ráðast á
hemaðarmannvirki í írak og
snúa aftur heilar á húfi.
11.50 - Jórdanar saka ísraela um
að fæla Palstínumenn frá heima-
landi sinu með því að hindra alla
umferð inn á herteknu svæðin.
11.59 - Tshiki Kaifu, forsætisráð-
herra Japans, ver áætlun sína um
að veita hersveitum bandamanna
við Persaflóa níu milljarða
Bandarikjadala. Hann gat ekki
lofað að peningarnir yrðu ekki
notaðir til annars en hernaðar.
12.42 - Tilkynnt um þrjár árásar-
ferðir bandamanna til Bagdad
þar sem borgin skókst í sprengju-
gný. Meðal árásarvélanna vom
B-52 sprengjuvélar.
13.00 - Alo Akbar Rafsanjani ír-
ansforseti býðst til að hitta Sadd-
am Hussein í von um að binda
enda á Persaflóastriðið.
14.01 - Breskar Jagúar orrustu-
þotur ráðast á miðstöðvar íraks-
hers og skotpalla Silkiormaeld-
flauga í Kúvæt.
14.15 - Nawas Sharif, forseti Pak-
istan, hvetur til vopnahlés og ver
afstööu sína gegn Irökum.
14.59 - Hvíta húsið tekur boði ír-
ansforseta um að miðla málum í
stríöinu heldur fálega.
16.24 - Bandarískar ormstuvélar
kasta 12 sprengjum á íbúðar-
hverfi í írak um 5 kílómetra frá
einu helgasta hofi íslama. Að
minnsta kosti 20 létust og um tólf
særðust í árásinni.
16.57 - írakar ásaka forseta Sam-
einuðu þjóðanna um aö halda að
sér höndum meðan bandamenn
gera sprengjuárásir á íraska
borgara.
17.15 - Vitzhak Shamir, forsætis-
ráðherra ísraels, segir 1 ísraelska
þinginu að ísraelar muni aldrei
taka þátt í alþjóðlegri ráðstefhu
um friö í Miöausturlöndum.
18.03 - Vopnaöir menn skjóta aö
heimili saudi-arabísks diplómats
í Karachi.
18.27 - írakar segja bandamenn
hafa gert 150 loftárásir á sig frá
því á sunnudag en að þeir hafi
skotið 13 vélar bandamanna til
jaröar.
20.51 - Bandaríkjamenn ásaka
íraka um að fela herflugvélar og
önnur hernaðarlega mikilvæg
tæki i íbúðarhverfum. Þeir segj-
ast hins vegar ekki ætla að gera
árás á ibúðarhverfi.
22.06 - Útvarpið í Bagdad sendí
út fjölda leyndardómsfullra til-
kynninga frá „aðalstöðvunum“.
„Þettaer úrslitadagurinn... dag-
urinn ykkar allra... framkvæm-
ið áætlun síðustu samkomunn-
ar“, sagði meðal annars í tilkynn-
ingunum. Bandamenn voru ekki
vissir um hvort hér var á ferðinni
hernaðarlegt dulraál eða hvort
tilkynningamar væru þáttur í
sálfræöiiegum hernaði íraka.
2.03 - Saudi-Arabar tilkynna að
hver sá sem ber jvröi að þvi að
grafa undan öryggi landsins yröi
líflátinn. Tilkynningin kemur í
kjölfar árásar á bandarfska her-
rútu í Jeddah.
5.15 - Stjórnarandstaöan og al-
menningur í Japan er mjög mót-
fallinn fjárhagslegum stuöningi
Japana við heri bandamanna viö
Persaflóa. Reuter