Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Blaðsíða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt-
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími'27022
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1991.
urskemmdir
á Heimaey
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum
voru í gær að reyna að ná heildar-
yfirsýn yflr tjón sem varð í ofsaveðr-
inu síðastliðinn sunnudag í Eyjum.
Alls var tilkynnt um tjón, stór og
smá, á 50 stöðum í bænum, að sögn
Guðjóns Hjörleifssonar bæjarstjóra.
Þá er einnig ljóst að miklar gróður-
skemmdir hafa orðið á Heimaey og
er Eldfellið bókstaflega svart. Al-
mannavamanefnd Vestmannaeyja
var kölluð saman á sunnudaginn til
að stýra aðgerðum og er það í fyrsta
skipti frá því í Heimaeyjargosinu
1973 sem slíkt hefur verið gert.
„Ég vil þakka hinum snöggu við-
brögðum björgunarsveita og al-
mennings, sem vann þarna frábært
starf, að ekki fór verr en raun ber
vitni,“ segir Guðjón Hjörleifsson
bæjarstjóri.
stig í dag
Rafmagns-
truf lanir víða
Rafmagnstruflanir eru enn víða á
-alandinu vegna hvassviðris. í morgun
kom upp eldur í rafmagnsstaur hjá
Hitaveitu Suðurnesja og olli það raf-
magnsleysi og truflunum í Keflavík
og víðar. Vegna roks varð samsláttur
á línum í austanverðum Eyjafirði, í
Borgarfirði og á Mýrum í morgun.
Af þessu hlutust truflanir og á þess-
um stöðum varð rafmagnslaust af og
til.
Að sögn Birgis Guðmannssonar,
álagsstjóra hjá Landsvirkjun, var
ekki kunnugt um neinar alvarlegar
bilanir í orkuveitunni í morgun. Enn
er þó leitað að bilun sem varð á
Mjólkárveitulínunni í óveörinu um
helgina en hún tengir Vestfirðinga
við orkukerfi Landsvirkjunar. Þar til
: *bilunin finnst sér Orkubú Vestfjarða
um rafmagnsframleiðsluna.
-kaa
LOKI
Hörmungar Hafnar-
fjarðar-sjötta bindi!
Veðurstofan spáir hvassri sunnan-
átt í dag, 8 til 10 vindstigum. Klukkan
átta í morgun voru skil yfir Vestur-
landi og munu þau ganga yflr landið
í dag. Það getur orðið mjög hvasst
víða fyrir norðan og ekki er útlit fyr-
ir neitt ferðaveður á fjallvegum. Á
morgun er hins vegar útlit fyrir hæg-
ari vind vestanlands og slyddu.
-J.Mar
Jóhann Einvarðsson, formaður utanríkismálanefndar:
Litháar horfa
vonaraugum til
Islendinga
þeir líta ekki svo á að bíða þurfi með viðurkenningu
„Það er ekki sjónarmið manna í málatengsl þegar samningur milh
Litháen að ljúka þurfi milliríkja- Litháens ogRússlands, sem Jeltsín
samningum milli Rússlands og Lit- vinnur að, lægi fyrir. Ekki náðist í
háens áður en íslendingar víður- Jón Baldvin í morgun til að fá nán-
kenna sjálfstæði Litháens. Þeir ari skýringar á þessu.
leggja áherslu á að Ijúka sem allra Jóhann Einvarðsson sagði að
fyrst samningum við íslendinga,“ þingmannanefndin, sem var í Lát-
sagði Jóhann Einvarðsson, for- háen um helgina, hefði orðið þess
maður utanríkismálanefndar Al- greinilega vör að Litháar horfðu
þingis, i samtali við DV í morgun. vonaraugum til okkar íslendinga.
Jón Baldvin Hannibalsson utan- „Við hittum mikinn íjölda manna
ríkisráðherra segir í blaðaviðtali í í feröinni. Allir sem við híttum
dag að hann hafi gert Litháum vissu nákvæmlega um afskipti ís-
grein fyrir því að íslendingar reki lendinga af málum þar eystra. Og
þetta mál á þjóðréttarlegum grund- allar móttökur og viðmót sýndi að
velli. Hann segist hafa gert þeim þeirvoruaötakaámótivinumsem
grein fyrir því að íslendingar miklar vonir eru bundnar við. Síð-
myndu skoða það vandlega að taka asta kvöldið, sem við vorum þarna,
upp formlegar viðræður um stjórn- var haldinn mjög stór fréttamanna-
fundur þar sem meðal annarra
fréttamenn frá heimspressunni
voru mættir," sagði Jóhann.
Hann sagði að þingmannanefnd-
in heföi ekki gengið frá einu né
neinu. Aftur á móti heföi skilaboð-
um um að koma á samskiptum
milli þjóðþinganna verið komið á
framfæri.
„Við buðum þeim að senda þing-
mannanefnd til íslands til að ganga
frá málunum þegar þeim hentaði.
Eins afhentum við bréf frá Hand-
knattleikssambandi íslands um
viðurkenningu á Handknattleiks-
sambandi Litháens. Ferðin Öll var
mikil lífsreynsla fyrir okkur ís-
lendingana, hreint ógleymanleg,“
sagði Jóhann Einvarðsson. -S.dór
„Þegar ég kom frá vinnu í Álverinu í Straumsvík í morgun óð ég heim að húsinu minu og náði vatnið mér upp á
mið læri. Ég hef aldrei lent í öðru eins. Húsin hér eru umflotin vatni og það flæðir inn í þau,“ sagði Sigurgeir
Marteinsson, íbúi við Einiberg 23 í Hafnarfirði, í morgun. Mikil flóð voru við Einiberg og Furuberg í Setbergslandinu
í morgun eftir að stíflan upp við Urriðakotsvatn brast og lækir sem renna úr vatninu í gegnum Setbergslandið
flæddu yfir bakka sína. DV-mynd S
Veðrið á morgun:
Rigning,
snjókoma
og slydda
A morgun verða líklega hæg-
fara skil yfir vestanverðu
landinu. Austan þeirra verður
hvöss sunnanátt og mjög hlýtt en
mun hægari vindur, breytileg átt
og kaldara vestan þeirra. Um
landið sunnanvert verður rign-
ing, líklega snjókoma eða slydda
vestanlands en bjart veður norð-
austantil á landinu. Hitinn verð-
ur 0-9 stig, kaldast á Vestfjörðum
en heitast á norðanverðu Aust-
urlandi.
Líkið við Faxamarkað:
Talið vera
af Færeyingi
r
i
i
i
i
i
i
Líkið, sem fannst illa brennt við
Faxamarkað á fóstudagskvöld, er tal-
ið vera af rúmlega þrítugum Færey-
ingi. Hann var ekki búsettur hér á
landi en er talinn hafa haft viðkomu
í Reykjavík er hann var á leið til
Færeyja frá Grænlandi.
Færeyska flutningaskipið Rókur lá
við Miðbakkann hjá Tollstöðvar-
byggingunni þegar maðurinn fannst
illa brenndur við Faxamarkað á
fostudagskvöld. Rókur lét úr höfn í
Reykjavík síðdegis á laugardag og er
talið hugsanlegt að maðurinn hafi
verið í heimsókn um borð í skipinu
á föstudag. Ekki tókst að fá upplýs-
ingar um það hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins í morgun hvort tahð
væri að maðurinn hefði látist af slys-
förum þegar hann hefði lagt eld að
bensíni eða af öðrum orsökum.
-ÓT1
Björgunarsveitarmenn:
Fundujeppa- A
fólkáKili f
Björgunarsveitarmenn frá Selfossi
fundu í gær tvenn hjón sem höfðu
látið fyrirberast í tveimur jeppum
við Bláfell á Kili í óveðrinu um helg-
ina. Fólkiö lagði af stað á laugardag.
Þegar ekkert spurðist til fjórmenn-
inganna í gærmorgun var leit hafin.
Fólkið fannst heilt á húfi en annar
jeppinn hafði bilað. -ÓTT
i
i
190 bíða
eftirflugi
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn:
Óveðrið hefur sett strik í reikning-
inn hjá þeim sem hafa ætlað að ferð-
ast innanlands undanfarna daga og
í morgun biðu t.d. 190 manns eftir
þvi að komast til Reykjavíkur með
Flugleiðum. Ekki hefur verið flogið
síðan á laugardag. í nótt og í morgun
var hávaðarok á Akureyri.
i
i
Eldurítimb- á
urhúsi
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Síðdegis í gær kom upp eldur í
gömlu timburhúsi, byggðu 1934. Eld
urinn kom upp í herbergi á efri hæð
hússins og varð talsvert tjón af völd
um elds, reyks og vatns. Enginn var
heima þegar eldurinn kom upp og
eldsupptök eru ókunn.
i
i
> C 72177 \
SMIÐJUKAFFI
SmOAI FRÍTT HF/M
OPNUM KL. 18VIRKADAGA
OG KL. 12 UM HELGAR
i
i