Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991. Fréttir Ofsaveður helgarinnar lék mannvirki, farartæki og gróður illa: Milljarðatjón í kjölfarið Gífurlegt eignatjón varð í ofsaveðr- inu sem gekk yfir landið á sunnudag. Engar nákvæmar tölur hafa verið gefnar út yfir tjónið en víst þykir að það nemur milljörðum króna. Tjón varö á fjölda bygginga. Þök fuku í heilu lagi eða í pörtum og heilu húsin tókust á loft og splundruðust. Fjöldi farartækja skemmdist eöa eyðilagðist. Þá varð mjög mikið tjón á gróðri, tré rifnuðu upp með rótum og þökur flettust af túnum. Hér á eftir fer yfirlit yfir tjónið frá Skóg- um, vestur um og norður til Akureyr- ar. Eins og þegar hefur komið fram og skýrt hefur verið ítarlega frá varð óheyrilegt tjón á Suðumesjum, Vest- mannaeyjum og á höfuðborgarsvæð- inu. Hér veröur hins vegar stiklaö á stóru í umfjöllun um önnur svæði. Suðurland Ef tína ætti til alla bæi á Suður- landi þar sem tjón varð yrði sá listi mun lengri en þar sem ekki varð tjón. Ljóst er að útihús, sem skemmst hafa í ofsaveðrinu, skipta tugum og víða urðu miklar skemmdir á íbúðar- húsum. Auk þess varð víða mikið tjón á tækjum er heyvinnuvélar, sem staðið hafa úti á túnum, tókust á loft og fuku langar leiöir, sömleiðis- skemmdust bílar bænda á mörgum bæjum. Undir Austur-Eyjafjöllum urðu mestar skemmdir að Rauðafelli 3 og 4. Á Rauðafelli 4 fór hluti af þaki á íbúðarhúsi. Á báðum bæjunum fuku jámplötur af íjósi og flárhúsum. í Eyvindarhólum gekk hlöðugafl inn og þak fauk af vélageymslu. Ekki var búið að fá heildstæða mynd af tjóni sem varð undir Vest- ur-Eyjafjöllum en vitað er aö jám losnaði af íbúðar- og útihúsum á mörgum bæjum. Til að mynda fauk hluti þaks af hlöðu í Neðri-Dal og á Skálabæjum varð mikið tjón. í Aust- ur-Landeyjum fauk jám af nokkmm útihúsum en tilfinnanlegast varð tjónið á Leifsstöðum þar sem nýupp- gert íbúðarhús tókst á loft og fauk út í buskann. í gær var ekki búið að meta tjón í Vestur-Landeyjum. Óveðrið lék Fljótshlíðinga mjög grátt. í Smára- túni fauk jám af þaki íjóss sem rúm- ar rúmlega 100 nautgripi. í Hellis- hólum fuku tvö hesthús og á Efri- Þverá fauk 100 kinda fjárhús, og svip- aður skaði varð á Kirkjulæk, í Orm- skoti fauk helmingurinn af þakinu á íbúðarhúsinu og á Lambalæk fauk hluti af hlöðu út í buskann. Minna tjón varð á Hvolsvelli. Mest- ar skemmdir urðu á trésmíðaverk- stæði Guðfinns Guðmundssonar, þakplötur losnuðu af 5 til ip íbúðar- húsum en í nágrenni bæjarins máttu bændur viða þola þungar búsifiar, til aö mynda skemmdust útihús á bæj- unum Dufþaksholti, Götu og gróður- hús skemmdust á Stórólfsvöllum. Á Hellu varð tjón á um 20 íbúðar- húsum er jámplötur fuku af þeim og mikið var um rúðubrot. í uppsveitum Rangárvallasýslu varð tjón á nánast hverjum bæ. Má þar nefna að í Djúpárhreppi urðu miklar skemmdir. Á Háurim fuku vélaskemma og hlaða en fiós hmndi, á Háfi 2 er íbúðarhúsið óíbúðarhæft því suðurhlið hússins gekk 30 cm inn og munaði litlu að húsið hryndi. Svipaöa sögu er að segja úr Land- mannahreppi. Á Snjallsteinshöfða fauk fiárhús og sömuleiðis á Ár- bakka og í Neðra-Seli fauk fiárhús og kálfahús. Tjón varð á mörgum íbúðarhúsum á Selfossi. Á flugvellinum fauk upp hurð á flugskýlinu með þeim afleið- ingum að lítil flugvél, sem var í skýl- inu, skemmdist töluvert. Á Stokks- eyri og Eyrabakka urðu víða miklar skemmdir á íbúðarhúsum og í Þor- lákshöfn uröu miklar skemmdir á þökum bygginga Meitilsins. Tjón varð á nær öllum bæjum í Ámessýslu. Sem dæmi má taka að í Á Blönduós lösk- uöust fjórar flugvélar /fl BotungatvUr.v f^\#3:AFJÖ5pUR mvritt « Þirtgoyrf | T TÁtkna-í-óugabö/ i Ijóróur^ ^^Hójréav1^ *. Blldudaliijf i lyiýrartunaa* SrÁ?.. Boraéfrfa. rabakki tfr. «VW{»SHÓLMUII • 'fctíérna"G r itn d a rf ] ö fcö u r #wi k r^t Ytfíjting# Foss J L HÁfssla&ir Fleslir bæir I Miklaholtshreppi «í* Kieppsjámreykir Kross / S &ORlSAftNE6 ' Margir bæir I Árnessýslu REYKJAVlKUR■ SVÆÐIÐ iFlúöir KÉFtAVfK*«S Hvyrageröi Sem dæmi um veöurofsann Noröanlands kastaöist bátur upp á bryggju á Hofsósi GnittOAVtK VESTMANNA Ferill lægðarinnar ijijjte Hér) varð niest_____ ^S^lfass Neórast Snjaiisteinshöföy . é&' «o Nælurholt Selsund Vlndhæ&jn % ná&í allt a& 110 hnúta hra&a á kist i rsáþæjarkfjéleiga h 'iJ NHtflía/ lamarl fur Háaritf Leifsslapir ■ Íifil 3. februar 1991 Skyringar jigjjg Bæir þar sem tjóniö varö mest GróÖurhúsahvorfi sem stórskemmc ijiép Langlínumastriö á Vatnsendahæð gaf veöurhamnum Efri-Þverá afjallajokul Vorsabæjarhjáleigu fauk fiárhús, og járn fór af íbúðarhúsi og geymslu, á Hamri fauk fiárhús og í Seljatungu fauk ærhús, hlaða og íbúðarhúsið skemmdist nokkuð. í Borgarkoti hvarf heil hlaða út í buskann og í Vorsabæ fór allt jám af fiósi. Á Neistastöðum hrundi hlöðuveggur. Lenti hann á traktor og heybindivél auk þess sem þak fór af hlöðu. Á Flúðum skemmdust gróðurhús og að Syðra-Seli, Hrafnkelsstöðum og Hrafnsstöðum fuku fiárhús. Hveragerði fór illa út úr fárviðrinu, þar skemmdust mörg gróðurhús. Miklar skemmdir urðu á tívolíhús- inu og í Eden, auk þess sem plötur fuku af nokkrum íbúðarhúsum og af vélsmiðju. Vesturland Á Akranesi fauk viðbygging fisk- verkunarhúss hjá Heimaskaga yfir aö plani Olísbensínstöðvarinnar, braut rúður og ljósastaura. Einnig fuku járnplötur af síldarverksmiðj- unni, miklar skemmdir urðu á tré- smiðju, bílskúrar hrundu að hluta við Jaðarsbraut og klæðningar flett- ust af húsum. Lögreglan fékk 90 til- kynningar um fok og tjón. í Borgamesi fauk þak af brauðgerð Kaupfélagsins og plötur fuku af 8 húsum. 12 bílar skemmdust en einn fauk út af við Hafnará. Þrir gróður- skálar íbúðarhúsa fuku, 2 plastgróð- urhús í Kárastaðalandi og glerhús á Kleppjárnsreykjum. Þak fauk af hlöðu að Ásgarði í Reykholtsdals- hreppi og þak fauk alveg af hlöðu að Brekku í Borgarhreppi. Þak fór af hlöðu og fiárhúsi á Krossi í Lundar- reykjadal, plötur losnuðu af íbúðar- húsi og útihúsum að Hofsstöðum í Álftaneshreppi, þak losnaði af úti- húsi og íbúðarhúsi að Gröf í Borgar- hreppi, 4 rúður brotnuöu í íbúðar- húsi aö Höfn í Melasveit. Á sunnanverðu Snæfellsnesi varð tjón á mörgum bæjum í Miklaholts- hreppi og Eyrarsveit en minna í Stað- arsveit og Breiðuvík. í Stykkishólmi varö tjón mest á skipasmíðastöð Skipavíkur. Þar skemmdust 6-700 fermetrar af þakinu. Brakið af sól- stofu í einbýlishúsi fauk á haf út og golfskúr í bænum tókst á loft og splundraðist. Vélageymsla, gamalt íbúðarhús, þrír bílar og nýr sumar- bústaður skemmdust aö Kárastööum í Helgafellssveit. í Gmndarfirði fauk jám af nokkr- um húsum, rúður brotnuðu í híbýl- um og í bílum, gámur valt á hliöina og tveir kappróðrarbátar skemmdust er þeir fuku yfir grjótgarð við Suður- bryggju. Á bænum Kvemá fauk hjól- hýsi á haf út, verönd á sumarhúsi þyrlaðist í loft upp og heyhlaða „sprakk“. Stórtjón varð að Skalla- búðum. Þar fuku gróðurhús, harð- fiskhjallur, Qárhús, verkfæra- geymsla og 15 járnplötur fuku af hlöðu. íbúðarhús er stórskemmt. Plötur fuku af húsi á Höfða og gróð- urhús fauk að Hömrum í Eyrarsveit í Ólafsvík varð tjón mest þegar 90 prósent af þaki vinnslusalar hraö- frystihússins skemmdist, stór vöru- skemma lagðist saman, hluti þaks á tveimur íbúðarhúsum fauk og litlu munaði að fiúkandi gámur ylli skemmdum. 4-5 bílar skemmdust einnig. Maður lenti í miklum háska á einum þeirra við Ólafsvíkurenni. Trilla sökk á Rifi. Þar brotnuðu einn- ig rúður og reykháfar fuku af húsum. Vegklæðningar rifnuðu upp á ýms- um stöðum á Snæfellsnesi. í Dalasýslu var símasamband í lamasessi í gær og ekki vitað um orsakir. Þak lyftist af og veggur féll út í slökkvistöð í Búðardal og mikið tjón varð á bænum Giljalandi. Þak fauk í heilu lagi af hlöðu ogþrír bílar heimilisfólks skemmdust. I gær var vitað um töluvert tjón á 5-6 bæjum í Suðurdölum. í A-Baröastrandarsýslu fuku fiár- hús og hlaða aö Mýrartungu 1, fiós fauk á Borg í Reykhólasveit, plötur fóru af á Bæ í Króksfiröi og tengi- vagn fór á hliðina hjá Kaupfélaginu. Vestfirðir Á Þingeyri sluppu menn sæmilega frá veðrinu en á Ketilseyri fauk þak af hlöðu og bíll fauk 70 metra. Þá fór illa á nokkrum bæjum í Arnarfirði. Á Flateyri og í Önundarfirði varð verulegt tjón. Skemmdust 36 íbúöir og var mikið plötufok. Þak beina- mjölsverksmiðju Hjálms hf. fór af og gafl lagðist inn þannig að milhgólf sprakk og skekktist. Töluveröar skemmdir urðu á bæjum í firðinum firði og fauk einn sumarbústaður í hepu lagi á haf út. - Á Suðureyri varð ekki teljandi tjón en þak fór af einu húsi. Inni í firði méluðust tveir nýir sumarbústaðir og gömul hlaöa hvarf. Á Patreksfirði fauk mikið af plötum og einnig fisk- hjahur. Á Tálknafirði fauk þak af Bjarnabúð og af laxeldisstöö. Þá fauk hesthús í heilu lagi. Á Hólmavik varð ekki mikið tjón. Þó skemmdist hafnargaröurinn og grófst undan Strandgötunni á kafla. Fauk af tveimur fiárhúsum og einni hlöðu í nágrannasveitum. Norðurland Töluvert tjón varð á Norðurlandi vestra. Á Blönduósi féll nýlegt flug- skýli nærri saman og stórskemmd- ust fiórar flugvélar þar inni. Þök nokkurra húsa skemmdust hla og mikið var um plötufok og rúðubrot. Nokkurt tjón varð á Holti á Ásum og á Húnavöllum. Á Sauðárkróki fuku þakplötur og skemmdu rúður og bíla. Á bænum Sandfehi stórskemmdist nýlegt íbúð- arhús og á Narfastöðum splundrað- ist heh viðbygging við kanínubú. Á Hofsósi þeytti veðrið 7 tonna báti upp á land og braut hann. Á Hvammstanga voru menn vel undir veðrið búnir og sluppu þokka- lega. Á um 30 bæjum í nágrenninu varð mikið tjón. A Þorgrímsstöðum á Vatnsnesi fauk th að mynda hús ofan af 180 kindum. í Víðidal brotn- uðu rúður í öllum suðurgluggum á einum bæ og Qöldi rafmagnsstaura. Á Laugabakka í Miðfirði eyðilagðist gróðurhús og flugskýli. Á Skaga- strönd fór grjót fór illa með margar rúður sem voru eins og gatasigti á eftir. Á bænum Felli fauk heh fiós- hlaða og 250 baggar af heyi hurfu. Á Siglufirði, Olafsvík, Dalvík og Akureyri varð ekki tjón í sama mæh og annars staðar. Menn náöu að sinna fyrirbyggjandi aðgerðum og vindáttin var ekki sú óhagstæðasta. Á bæjum í sveitum nyröra fór víða illa. Á bænum Koti í Svarfaðardal fauk þak af íbúðarhúsi, tveir bílar og hænsnakofi meö 12 hænsnum. -J.Mar/ÓTT/hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.