Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1991. 5 Frétdr Hægt að bjarga tveggja til þriggja metra trjám „Það er hægt að rétta tveggja til þriggja metra tré við og sjá hvort þau ná sér ekki aftur. En það þarf að stífa þau vel til. Gömul tré er hins vegar illmögulegt að reisa við á nýjan leik,“ segir Snorri Sigurðsson hjá Skóg- ræktarfélagi íslands. Mikill fjöldi trjáa um allt land rifn- aði upp með rótum í áhlaupinu á sunnudag. Suðvestanlands má meðal annars kenna því um að jörð var mjög rök og lítið frost í henni. Trén voru því óvarðari en ella. Ef jörð hefði á hinn bóginn verið frosin heíðu mun fleiri tré staðið af sér áhlaupið. „Það er hægt að bjarga öspum með því að gróðursetja þær á nýjan leik en fólk verður að gera það hið fyrsta og á meðan enn er frostlaust, því annars þoma rætumar. Það er hins vegar verra með barrtrén, það þarf meira til að þau nái sér á strik á nýjan leik. Fólk er yfirleitt óviðbúið áhlaupum sem þessum en það getur varið tré sem standa á berangri með því að stífa þau niöur á móti rokinu.“ J.Mar Mörg tré fóru illa sunnudag. i áhiaupinu á DV-mynd GVA ísland í A - flokk / Tré sem rifna upp með rótum: Bláfjöll: Viðgerðir taka minnst viku „Vírinn á stóru lyftunni í Kóngs- gili fauk út af staurunum frá staur tvö og upp úr og liggur hann á jörð- inni og það sama gerðist í Kóngs- borgargili nema þar fauk vírinn frá staur 1 og alla leið upp úr. Stólalyftan hefur einnig eitthvað skemmst," sagði Guðmundur Svavarsson, verk- stjóri í Bláíjöllum, í samtali við DV um miðjan dag í gær. „Auk þess brotnaði einn rafmagns- staur í línunni hér upp eftir og annar sem lýsir upp göngubrautina. Skál- arnir sluppu hins vegar vel, það brotnaði ein rúða í skála Breiðabliks og svalahurð fauk upp og út í'busk- ann. Það fauk upp skemmuhurð á vélaskemmunni og inn á gólf en okk- ur tókst á milli hryðja að koma henni á sinn stað aftur. Það tókst einn skúr á loft og flettist af honum klæðning. Við erum rétt að byrja að kanna skemmdir hér efra svo viö vitum ekki nákvæmlega hvað gerst hefur. Það er hins vegar ljóst að viðgerðir á lyftunum munu taka minnst viku.“ -J.Mar ALÞÝÐUFLOKKURINN • / /i • AKRANES ÍSAFJÖRÐUR SIGLUFJORÐUR Þriðjudagur 5. febrúar: Ströndin kl. 20.30 Miðvikudagur 6. febrúar: Frummælendur: Jón Baldvin Hannibalsson . 20.30 . Frummælendur: Jón Sigurðsson Eiður Guðnason Fundarstjóri: Hervar Gunnarsson Jón Sigurðsson Sunnudagur 10. febrúar: Hótel Höfn kl. 15.00 Frummælendur: Jón Baldvin Hannibalsson Jón Sæmundur Sigurjónsson Fundarstjóri: Kristjón Möller Á Landspítalanum brotnuðu nokkrar rúður I veðurofsanum og fauk ýmis- legt lauslegt i kjölfarið inn gangana. Þykir mildi að ekki urðu slys á fólki. Sárabindi litla drengsins, er litur út um gluggann, má eflaust rekja til annars ep óveðursins en honum hefur varla staðið á sama meðan lætin gengu yfir á sunnudag. DV-mynd GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.