Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991. 9 Utlönd Bandamenn halda uppi stööugum loftárásum, m.a. frá skipum á Rauðahafi. Talið er að írakar hafi komið upp varaliði í Súdan til að ráðast gegn skipum á Rauðahafi. Simamynd Reuter Leynivopn Saddams utan átakasvæða við Persaflóa: Eiga írakar enn varalið í Súdan? - sögur um eldílaugar og flugvélar í geymslu þar Nýjar fréttir hafa borist um að Ir- akar eigi bæöi flugvélar og eldflaugar í Súdan frá því áður en átök hófust við Persaflóa. Hertól þessi á að nota gegn Egyptum, Saudi-Aröbum eða öðrum andstæðingum íraka meðal araba á síðari stigum stríðsins. Það er ABC sjónvarpstöðin í Bandaríkjunum sem hefur þetta eftir heimildum innan hersins í Súdan og einnig eru embættismenn í Evrópu bornir fyrir henni. Þegar Persaflóa- deilan hófst voru sögusagnir á kreiki um herflutninga íraka til Súdans. Ekkert fékkst þó staðfest um máhð. Sagt er að 20 orrustuþotur íraka séu í Súdan og einnig óviss fjöldi af eldflaugum. Flugvélarnar og flaug- arnar eiga að vera geymdar í bæjum nærri Rauðahafinu en þaðan er skammt yflr til Saudi-Arabíu. Yfirmenn í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafa ekkert viljað segja um þessar fréttir. Ef rétt reyn- ist gæti þó verið um alvarlega ógnun að ræða því bandamenn hafa fjölda skipa á Rauðahafinu og senda þaðan flugvélar og eldflaugar til árása á Irak. Ekki er þó talið að árás frá Súdan komi bandamönnum í opna skjöldu því að lengi hefur verið vitað um vin- samlegt samband Súdans og íraks. Einn möguleikinn, sem súdanski herforinginn nefndi, var að skjóta eldflaugunum að Aswan stíflunni í Egyptalandi og valda þannig flóðum á láglendi auk þess sem helstu orku- ver Egypta nýta vatn úr stýflunni. Reuter Fela f lugvélar í íbúðahverf um Bandaríkjamenn saka íraka um að fela herflugvélar í íbúðahverfum til að forða sem mestu af herafla sínum frá eyðileggingu í loftárásum. Þeir tóku þó fram að ekki stæði til að hefja loftárásir á þá staöi þar sem herflugvélar eru hafðar í felum. „Ástæðan fyrir að þeir flytja vél- arnar út í íbúðahverfin er að þeir vita að við gerum ekki loftárásir þar,“ sagði Robert Johnston, yfir- maður í herliði bandamanna við Persaflóa. Bandamenn segjast hafa náð góð- um árangri í að eyða skriödrekum í írak síðasta sólarhringinn. Þeir segja að í síðustu lotu hafi 25 drekar veriö eyðilagðir. Þá verður þjóðvarðhð ír- aka í Kúvæt áfram skotmark banda- manna en það hefur sætt stöðugum árásum úr lofti og frá skipum á Persaflóa síðustu daga. Reuter Stærsta flotastöð Bandaríkjamanna: Sex sprengjur f innast á elds- neytistönkum Sex sprengjur, sem festar voru á stóra eldsneytistaknka, fundust um 11 kílómetra frá stærstu flotastöð Bandaríkjahers, í bænum Norfolk í Bandaríkjunum. Sprengjurnar fund- ust á almennu hafnarsvæði og voru strax gerðar óvirkar. Neyðarástandi var lýst yfir á svæðinu meðan verið var að gera sprengjurnar óvirkar en tankarnir voru sneisafuhir af metan- óh. Talsmenn bandarísku alríkislög- reglunnar, FBI, sögðu að enginn heföi lýst sig ábyrgan fyrir sprengj: unum og engir væru grunaðir enn sem komið er. Lögreglumennirnir sögðu of snemmt að fullyrða nokkuð um gerð sprengjanna eða um tengsl þeirra við möguleg hryðjuverk í kjöl- far stríðsins við Persaflóa. Öryggiseftirht hefur verið hert til Bandaríkjamenn hafa ærna ástæðu til að óttast aðgerðir hermdarverka- manna gegn herafla þeirra. Símamynd Reuter muna í Bandaríkjunum í kjölfar Persaflóastríösins, ekki síst vegna hótana Saddams Hussein um árásir á eigur Bandaríkjamanna um víða veröld. Reuter Vínningstölur laugardaginn 2. febr. 1991 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5af 5 3 1.037.500 2. TSm 4 135.147 3. 4af5 171 5.453 4. 3af 5 5.342 407 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 6.759.745 kr. UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002 Erum flutt í múrsteinshúsiö aö Knarrarvogi 4, jS3 AíFABQRg i Eigum yfir 100 tegundir af flísum af öllum geröum og allt efni til flísalagna, frá Þýskalandi, Ítalíu, Portúgal og Spáni. ÁiFABORGP BYGGINGAMARKAÐUR KNARRARVOGI 4, SÍMI 686755 Sérverslun með flísar og flísalagningaefni m PORCELANOSA,' CERAMICA W CERAMICHE IMA PAVIGRES DEITERMANN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.