Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991. 13 Geðshræring og kjaramál: Kryddí tilveruna Aö gefnu tilefni sé ég mig undirrit- aöan tilknúinn að gera athugasemd í DV vegna kjallaragreinar Hann- esar H. Garðarssonar er birtist þann 25. janúar 1991. Áöur en lengra verður haldið verður að koma fram að mér er það óljúft að gera tiltekið innanhússmál SVR að miklu fjölmiðlamáli. Að minnsta kosti á því afar viðkvæma stigi, svo notað sé orðalag stjórnmálamanna, eins og málið er í dag. Raunar trúi ég ekki, sannast sagna, að mál af þessu tagi verði leyst í fjölmiðlum. Hvað sem aðrir kunna að halda, hef ég m.a. af þeim ástæðum hafnað viðtölum við fjöl- miðla um þetta mál oftar en ekki, með undantekningu þó, samanber frétt DV 19. janúar 1991. Frétt sú virðist vera tilefni móðursýkis- skrifa Hannesar, aöaltrúnaðar- manns SVR. Rétt er að komi fram á þessu stigi að Hannes aðaltrúnaðarmaður er ekki vagnstjóri eins og margir virð- ast halda, heldur yfirmaður á þvottastöð SVR. Snúum okkur aft- ur að geðshræringarlegum skrifum aðaltrúnarmanns í DV 25. janúar 1991. Þar má lesa eftirfarandi og virðist vera aðaltilefni hugarverks- ins: „Ég veit ekki hvað viðmælanda DV gengur til þegar hann lýsir því yfir að vagnstjórar SVR séu nær því óhæfir til aksturs vegna þreytu og svefnleysis." Byggt á rangfærslum Svo mörg voru þau orð, það verð ég að segja. Þegar ég las þetta fyrst krossaði ég mig og hugsaði hvort veriö gæti að ég hefði talað upp úr svefni eða jafnvel, sem verra væri, hugsað upphátt. Hvað sagði þá við- mælandi, sem er undirritaður, í frétt DV þann 19. janúar 1991? „Að sögn Jónasar Engilbertsson- ar vagnstjóra er mjög brýnt að vaktafyrirkomulagi hjá SVR verði breytt. Hann segir ástæðuna ekki einungis vera þá að vernda vagn- stjóra. Einnig vegi þungt að mikið vinnuálag og þreyta hjá vagnstjór- um skapi umtalsverða hættu fyrir aðra vegfarendur. Máli sínu til stuðnings bendir hann á að í um- ferðarlögum sé kveðið skýrt á um að ökumenn skuh vera allsgáðir og óþreyttir þegar haldið er út í umferðina.“ Þannig er nú það. Hvergi er í frétt DV að finna þá tilvitnun sem er tilefni skrifa aðaltrúnaðarmanns og hann leggur mér í munn. Er það drengilegt! að byggja heila blaða- grein á tilbúinni tilvitnun eða er það heiðarlegt! og hvað eru þá vönduð vinnubrögð?! Því svara les- endur DV. Þar sem hugverk Hannesar er byggt á rangfærslum, útúrsnúningi og leiðinlegum misskilningi, jafn- vel leiðinlegri en leiðinlegur leið- ari, er augljóst aö brostnar eru all- ar forsendur til vitsmunalegrar umfjöllunar eða svars af minni hálfu. Hins vegar má þess geta að ritsmíð þvottastöðvarmannsins hefur þótt gott krydd í tilveruna hjá vagnstjórum SVR og ókeypis, fyrir það vil ég þakka. Bjarni Jónsson vinur minn, sá trausti vagnstjóri, sagði mér að honum hefði dottið í hug ræsting- arkona í hlutverki blaðafulltrúa þegar hann las greinina. Hjalti Skaftason vagnstjóri taldi að skap- KjáUarinn Jónas Engilbertsson vagnstjóri lægingu og þá auðmýkingu sem henni fylgir. Ósvífni er þetta í mönnum, ójú, ójú - guö minn góð- ur! En staðreyndir samt sem áður. Góður húsbóndi niðurlægir ekki hjú sín, það ættu menn að hafa í huga. Svo segir máltækið að deigt járn megi svo brýna að bíti um síðir. Annars bíða margir vagnstjórar eftir að Kjartan Þórólfsson, 2. aðal- fulltrúi, geri ítarlega grein fyrir afrekum sínum í kjaramálum vagnstjóra á undanfórnum árum, jafnframt því að kynna kjaramála- punkta þá sem hann hefur verið að ræða á síðustu mánuðum og geri grein fyrir því hvernig hann ætlár að koma þeim í framkvæmd. Best væri að sú greinargerð færi fram í DV. Þá er Kjartan líka beð- „Bjarni Jónsson vinur minn, sá trausti vagnstjóri; sagði mér að honum hefði dottið í hug ræstingarkona í hlutverki blaðafulltrúa þegar hann las greinina.“ vonska Hannesar stafaði af því aö honum þætti sækjast seint sinn pólitíski frami. Ef það væri rétt, gæti greinin verið viðleitni drengs- ins til að sanna sig fyrir æðri mátt- arvöldum; vonandi að hún virki ekki öfugt. Þannig hefur greinin orðið til þess að létta fólki lund í skammdeginu og hafa skrif hans því ekki orðið til einskis. Jafnvel er það sviðið sem Hannes ætti að snúa sér að í framtíðinni og óska ég honum alls hins besta. Hugvit og hagvöxtur Að Hannesar þætti Garðarssonar loknum hafði ég hugsað mér að gera grein fyrir nokkrum stað- reyndum þessa dularfulla máls, en vegna óska og tilmæla aöilja, sem ég ber traust til og tengjast lausn þess, ætla ég aö bíða með það. Hins vegar get ég sagt að málið snýst að hluta til um aukavaktaráðningar, sem hvorki standast lög nr. 46/1980 eöa eru greiddar skv. gr. 2.4.3. í kjarasamningi ST.RV. Aldrei hefur mér dottið annað í hug en að mál þetta verði leyst á farsælan hátt af öryggisfulltrúum og hæfileikaríkum yfirmönnum SVR, er hafa mikla stjórnunar- og skipulagshæfileika ásamt því að búa yfir hágæða fagþekkingu á sviði almannasamgangna, sem ég hef lengi talið ástæðu til að mark- aðssetja og koma á framfæri er- lendis og auka þannig þjóðartekjur. Hugvitið er eina auðlindin er getur tryggt hagvöxt í framtíðinni. Um kjaramál vagnstjóra er það að segja að þrátt fyrir kjaramálaaf- rek yfirmannanna tveggja og starfsmannafulltrúanna og eru af- rek þeirra Hannesar H. Garðars- sonar og Kjartans Þórólfssonar, þrátt fyrir árangursríka baráttu stéttarfélagsins öfluga ST.RV., þrátt fyrir að lögbrot heiti smá- hnökrar, þrátt fyrir að vagnstjórar á hæstu launum hafi kr. 58.000 á mánuði, þrátt fyrir allar þessar ástæður, en að sjálfsögðu ekki vegna þeirra: telur stærstur hluti vagnstjóra sig búa við launaniður- inn að gera grein fyrir störfum sín- um í umferðarnefnd Reykjavíkur, þar sem hann situr fyrir hönd vagnstjóra. Flestum er ljóst, sem til þekkja, að Kjartan hefur gott vit á umferðarmálum, því er mörgum forvitni á að vita hverju hann hefur fengið áorkaö í umferðarnefnd. Lýk ég hér með skrifum þessum. Jónas Engilbertsson Prófkjörsskrifstofa ÞRASTAR ÓLAFSSONAR er í Alþýðuhúsinu, Hverfisgötu 8-10, 5. hæð. Símar 620655, 620657, 620659. Heitt kaffi er á könnunni og bílar á staðnum. Stuðningsmenn 1931 1991 60 ára ÁRSHÁTÍÐ verður haldin laugardaginn 9. febr. nk. í Félags- heimili Seltjarnarness og hefst kl. 19.00. Miðar seld- ir á skrifstofunni. Félagsmenn, fjölmennið. Fyrrver- andi félagar velkomnir. Skemmtinefnd LÖGGILTUR ENDURSKOÐANDI Við embætti ríkisskattstjóra hefur verið stofnuð ný deild, endurskoðunardeild, er hafa skal með höndum eftirlit og umsjón meö endurskoðun atvinnurekstrar- framtala í landinu, auk þess að vera stefnumótandi aðili í endurskoðunaraðferðum og gerð samræmds ársreiknings. Ríkisskattstjóri leitar að forstöðumanni endurskoð- unardeildar sem skal vera löggiltur endurskoðandi og uppfylla að öðru leyti skilyrði 86. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt. Nánari upplýsingar veitir Skúli Eggert Þórðarson, vararíkisskattstjóri, í síma 631100. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf ásamt öðrum upplýsing- um, er máli kunna að skipta, sendist ríkisskattstjóra fyrir 20. febrúar nk. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI IM INGSMENN HELGA DANÍELSS0NAR minna á prófkjör Alþýðuflokksins í kvöíd í Ármúla- skóla frá kl. 17.00 til 23.00. Tryggjum Helga góða Studningsmenn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.