Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1991, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991. 25 DV LífsstOl Leiga á íþróttasölum í Reykjavík: Verulegur verðmunur miðað við stærð Þeir eru margir sem stunda bolta- íþróttir áriö um kring. Á sumrin er hægt að stunda slíkar íþróttir utan- húss en nauðsynlegt er að hafa þak yfir höfuðið á vetuma. Margir svala hreyfingarþörfinni með því að stunda viðkomandi íþrótt innan íþróttafélaga. Aðrir vilja ekki vera neinum háðir og verða þá að leigja sér sjálfir íþróttasal. Framboð á íþróttasölum á Reykja- víkursvæðinu er töluvert, en stærri salir sem geta nýst í knattspyrmu handknattleik eða körfubolta fylla tuginn. Þrátt fyrir það er eftirspurn oftast meiri en framboð. Salimir eru yfirleitt fullbókaðir á veturna, fyrir þá tíma sem eru lausir. Neytendasíða DV gerði verðkönnun á þeim íþrótta- sölum sem leigðir em út til einkaað- ila. Niðurstöðuna má sjá á töflunni hér til hhðar. Stærri salir -betraverð Miðað er við að leigan á hverjum íþróttatíma sé 50 mínútur og gildir það um alla sahna í könnuninni nema sal Kennaraháskólans. Þar er miðað við 45 mínútur. Fjórir fyrst- nefndu sahrnir eru á vegum íþrótta- bandalags Reykjavíkur. Það eru Laugardalshöllin, Seljaskóh, Haga- Neytendur skóh og Hhðaskóh. íþróttabandalag Reykjavikur er með fleiri minni sali th útleigu en þeir eru það smáir að þeir henta ekki til iðkunar bolta- íþrótta. Á töflunni sést að verðið er æði misjafnt. Sumum hentar stór salur, öðrum hentar lítill svo erfitt er að gera sér grein fyrir hver er með hag- stæðasta verðið. Til að glöggva sig' á verðinu er hægt að reikna út ákveðinn stuðul. Tekið er fermetramál salarins og upphæð leigunnar deilt í það. Þeim mun hærri tala sem fæst út úr því dæmi, þeim mun hagstæðari er leig- Leiga á íþróttasölum Salur Leiga Stærð Laugardalshöllin 3.800 45x35 m Seljaskóli 3.000 20x40 m Hagaskóli 2.100 17x34m Hlíðaskóli 1.800 14x28 m KR, iítill 2.700 16x32m KR, stór 3.200 20,4x42 m Valur, lítili 2.300 16x30 m Valur.stór 3.400 24x43m Kennaraháskólinn 2.250 18x33m Gullsport 2.400 10x20 m Báðir iþróttasalirnir i KR-heimilinu eru leigðir út til einkaaðila. an. Leiga á Laugardalshölhnni kem- ur þannig hagstæðast út. Salurinn, 45x35 m, er 1575 fermetrar. 1575 deilt með 3.800 kr. er um það bil 0,4. Sá salur sem kemur næsthagstæðast út í leigu er stóri salurinn í Valsheimil- inu með stuðulinn 0,3. Salurinn í GuUsporti er með lægsta stuðulinn, 0,08 (200 fermetrar deht með 2.400). Þar verður að taka með í reikninginn að innifalið í leigunni á salnum er aðgangur að líkamsræktarsal og gufu. Næstóhagstæðasta leigan er á htla salnum í KR-heimilinu en stuð- uhinn þar er 0,19. Litli salurinn í ValsheimUinu fylgir fast á eftir með stuðuhnn 2,1. Verðlagningin viröist þannig uppbyggö að þeim mun stærri sem salurinn er, þeim-mun hagkvæmari er leigan. Yfir tíu þúsund krónur á mann Ef 10 manns leigja sér stóra salinn hjá KR í 8 mánuði á vetri þá kostar salurinn 102.400 krónur eða 10.240 krónur á mann. Leiga á stóra salnum í Valsheimihnu í 8 mánuöi myndi kosta 10.880 á mann og 12.160 fyrir Laugardalshöllina. Ef 10 manns myndu láta sér nægja að leigja tíma í íþróttahúsi Hagaskólans myndi það kosta 6.720 krónur á mann yfir vetur- inn. Augljóst er af þessum tölum að þetta er ekki gefin skemmtun. -ÍS Verð á varahlutum 1 bílvél: Meira en 900% verómunur Bíleigandi, sem á Nissan-bifreið, neyddist til þess fyrir stuttu að kaupa ventlaþéttingar í 3,3 1 Niss- an-bílvél. Hann þurfti að verða sér úti um 12 stykki samtals. Bíleig- andinn hafði samband við vara- hlutaverslun Ingvars Helgasonar tíl að kanna verðið á þessum vara- hlutum og fékk þá uppgefið verðið 941 króna stykkið. Samtals hefði það kostað 11,292 krónur að kaupa þessi tólf stykki. Honum fannst þetta að vonum dýrt og athugaði verð á öði>um stöð- um. Það kom honum á óvart að hjá H.P.H. dísUvélaviðgerðum í Skeif- unni gat hann keypt þessi sömu stykki á 1.220 krónur. Þarna er því um að ræða 926% verðmun. Blaðamaður Neytendasíðu hafði samband við varahlutaverslun Ingvars Helgasonar og spurði hveiju þetta sætti. Fyrir svörum var Ottó Gunnarsson, sölumaður hjá versluninni. „Stefnan hjá Niss- an-verksmiðjunum er sú að selja bifreiðar ódýrt en varahluti á hærra verði. Við hjá Ingvari Helga- syni verðum samkvæmt samning- um að kaupa okkar varahluti hjá Nissan-umboði í Amsterdam og þar eru varahlutir mjög dýrir. Ástæða þess að við megum ekki versla við aðra aðha er sú að Niss- an-verksmiðjumar geta ekki tekið ábyrgð á varahlutum nema tryggt sé að verslað sé við ákveðna um- boðsaðila á þeirra vegum. Þannig sé tryggt frá hendi Nissan-verk- smiðjanna að aðeins séu seldir há- gæða varahlutir. Við hjá Ingvari Helgasyni höfum í engu hvikað frá þessum reglum og til þess má rekja þetta háa verð. Hins vegar þegar um einfalda varahluti er að ræða vísum viö oft á aðra aðila sem selja sambærilega varahluti á lægra veröi,“ sagði Ottó. Bíleigandinn kannaðist ekki við að honum hefði verið bent á það hjá varahlutaverslun Ingvars Helgasonar að leita annað eftir lægra verði á umræddum ventla- þéttum. Hann hefði hins vegar bor- ið sig eftir björginni sjálfur með þeim árangri að hann sparaði sér 10.072 krónur. ÍS Það getur margborgað sig að bera saman verð á varahlutum í bifreiðar á sem flestum stöðum áður en tekin er ákvörðun um kaup. Tölvuskerm- arogvanfær- ar konur í Danmörku er nú verið að gera út um prófmál fyrir rétti. Málið fjall- ar um það að kona ein, sem vann hjá endurskoðunarfyrirtæki við tölvu- færslu, neitaði að sinna störfum sín- um við tölvuna þegar hún varð barnshafandi. Miklar umræður hafa orðið um það hvort geislun frá tölvuskermum sé skaðleg fóstrum í móðurkviði. Rann- sóknir hafa bent til þess að tíðni fóst- urláta sé hærri hjá konum sem vinna við tölvuskerma en þeirra sem gera það ekki. Þetta þykir þó ekki full- sannað. Kona þessi var rekin frá fyrirtæk- inu eftir að hún neitaði aö sinna vinnu sinni við tölvuskerminn. Hún fór fram á háar skaðabætur frá fyrir- tækinu og fékk rúmar 1,5 milljónir króna í skaðabætur. Dómsvöld í Hró- arskeldu, heimabæ fyrirtækisins, úrskurðuðu á þennan veg. Skaða- bæturnar varð fyrirtækiseigandinn að greiða á grundvelli þess að rangt hefði verið staðið að uppsögninni. Rétturinn kvað hins vegar upp úr um það aö konan hefði engan rétt til þess að neita að vinna við tölvu- skerm þó hún væri barnshafandi. Það er fyrirtækiseigandinn sem hefur látið málið ganga lengra. Hann vill ekki una því að hafa þurft að borga þessa háu fjárhæð í skaöabæt- ur. Málið er nú fyrir dómi í dönskum landsrétti. Þar verður tekið fyrir prófmálið - hvort barnshafandi kon- ur hafi rétt til þess að neita að vinna fyrir framan tölvuskerm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.