Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1991, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991.
13
Fréttir
Sigurður Sigurjónsson fær tilnefn-
ingu fyrir leik sinn í kvikmyndinni
Ryð.
Guðjón Petersen og Hafliði Arn-
grímsson eru tilnefndir fyrir leik-
stjórnarvinnu, einkum i sýningu
Nemendaleikhússins á Óþelló.
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdótt-
ir er tilnefnd fyrir leikrit sitt, Ég er
meistarinn.
VETRARTILBOÐ
HAFIÐ SAMBAND í SÍMA
91 -61 -44-00
BÍLALEIGA ARNARFLUGS
Menningarverölaun D V:
Tilnef ningar til
leiklistarverðlauna
Eins og endranær voru störf leiklist-
amefndar einkar ánægjuleg þegar
riflaðar voru upp leiksýningar ársins
1990 og framlag þeirra fjölmörgu
listamanna sem þar komu við sögu.
Starfið spannar vítt svið og margar
ef ekki allar listgreinar koma við
sögu í leikhúsinu. Sú sérstaka sam-
vinna, sem þar fer fram, á sér engan
líka í öðram listgreinum og galdur
leikhússins er ekki hvað síst fólginn
í þessum samruna ólíkra listforma í
eina órofa heild.
Það setti svip á leikhúslífið á árinu
að Þjóðleikhúsið, sjálft flaggskip ís-
lenskrar leiklistar, var í shpp stærst-
an hluta ársins og var þar óneitan-
lega skarð fyrir skildi. En við því var
brugðist á ýmsan hátt og þegar litið
er yfir árið svona í heild vekur það
sérstaka athygli að hlutur innlendr-
ar leikritunar er harla góöur. Leik-
félag Akureyrar sýndi eingöngu ís-
lensk verk og flest verkefni Borgar-
leikhússins voru líka frumflutt ís-
lensk leikrit. Framlag Ríkisútvarps-
ins, bæði hljóðvarps og sjónvarps,
var myndarlegt og íjöldi íslenskra
verka, eldri sem yngri, fluttur þar.
Starfsemi atvinnuleikhópanna var
ekki j afn gr óskumikil eins og oft áður
og ekki ólíklegt að þar gæti þreytu
vegna aðstöðuleysis og óvissu um
framtíð.
Tilnefningar leiklistarnefndar fyr-
ir árið 1990 eru þessar:
Guðjón Petersen og Hafliði Arn-
grímsson eru tilnefndir fyrir leik-
stjórnarvinnu, einkum í sýningu
Nemendaleikhússins á Óþelló síðast-
liðið vor. Þetta var sérstaklega eftir-
tektarverð og lifandi útfærsla, sniðin
að þeim forsendum sem þarna voru
fyrir hendi.
Þeir Guðjón og Hafhði unnu saman
að fleiri verkefnum á árinu, t.d. Ég
er hættur, farinn, í Borgarleikhúsinu,
og bæði þar og í öðrum verkum þeirra
má finna mjög ákveðið samhengi sem
byggist á sterkum stíl óg snjöllum
lausnum. En þeir sýndu líka á sér
aöra hhð þegar þeir leikstýrðu ópe-
runni Systur Angehcu sem sýnd var
í leikhúsi Frú Emilíu í vor.
Þá er Hranfhildur Hagalín Guð-
mundsdóttir tilnefnd fyrir leikrit sitt,
Ég er meistarinn, sem sýnt hefur
veriö í vetur í Borgarleikhiísinu.
Þetta verk er merkilegt framlag til
íslenskrar leikritunar, mótað af
mannlegu innsæi og skrifað af
næmri tilfinningu fyrir eðli leik-
hússins. Sýning þess sætti tíðindum
í íslensku leikhúslífi og er varla of-
mælt þó að sagt sé að þetta leikrit
verði ánægjuleg viðmiðun þeim sem
á eftir koma. Ég er meistarinn er
óvenjulega glæsilegt verk og ber vott
um grósku í nútímaleikritun hér á
landi.
Leikhópurinn, sem vann Nætur-
galann, sýningu Þjóöleikhússins,
upp úr ævintýri H.C. Andersen, fær
tilnefningu fyrir fallega og innihalds-
ríka sýningu, vönduð efnistök og það
að færa ungum áhorfendum erindi
listar og fagurfræði á tímum síbylju
og fjöldaframleiddrar afþreyingar.
Erindi sýningarinnar við samfélag-
ið er brýnt, en þó er öllum predikun-
um og innrætingu sleppt. Hér byggir
leiklistin fyrst og fremst á sínum eig-
in forsendum og framlag hópsins er
til þess ætlað að byggja upp tilfinn-
ingu.fyrir leikhúsinu og kynna börn-
unum, áhorfendum framtíðar, hvað
er list í sínu tærasta formi.
Sigurður Siguijónsson leikari hlýt-
ur tilnefningu fyrir leik sinn í kvik-
myndinni Ryð. Túlkun hans í hlut-
verki Ragga náði fágætri dýpt og
bendir skýrt á mikilsvert framlag ís-
lenskra leikara til kvikmyndagerðar.
Sigurður kom víðar við á árinu og
sýndi ótrúlega breidd í túlkun mjög
ólíkra hlutverka. Má þar nefna til
hlutverk hans í Endurbyggingu, eftir
Havel, oghtið hlutverk líkkistusmiðs
í gamansýningu Þjóðleikhússins,
Örfá sæti laus.
Þá fær Ríkisútvarpið, hljóðvarp-
sjónvarp, tilnefningu fyrir mikils-
vert framlag til leiklistar í landinu,
einkum hvernig brugðist hefur verið
við breyttum aðstæöum með nýjung-
um og endurnýjun byggðri á hefð.
Endurvaktar voru beinar útsending-
ar leikrita í útvarpi, þar sem áheyr-
endum var gefinn kostur á að vera
viðstaddir upptöku og einnig voru
hlustendur hafðir með í ráðum þegar
valin voru leikrit úr safni útvarpsins
til endurflutnings. Þá var í hverjum
mánuði kynntur leikari mánaðarins,
kynnt voru leikrit frá Suður-Amer-
íku og svo mætti lengi telja.
í Sjónvarpinu var líka bryddað upp
á athyghsverðri nýjung þegar þrír
atvinnuleikhópar fengu fijálsar
hendur með vinnslu á efni upp úr
þjóðsögum.
Þegar upp var staðið og tilnefning-
ar höföu verið ákveðnar kom sú
ánægjulega staðreynd í ljós að allar
tengjast þær með einum eða öðrum
hætti flutningi nýrra íslenskra
verka, þó að það hafi ekki verið neitt
markmið nefndarmanna. Vonandi
eru þetta góð tíðindi fyrir frumsköp-
un í listgreininni og hvatning lista-
mönnum til frekari afreka.
Næstkomandi fimmtudag kemur
síðan í ljós hver hinna tilnefndu hlýt-
ur Menningarverðlaun DV fyrir leik-
list árið 1990.
-AE
FJARFESTINGARFELAG ÍSIANDS HF.
Aðalfundur
Aðalfundur Fjárfestingarfélags Islands hf. árið 1991
verður haldinn á Hótel Holiday Inn þriðjudaginn 26.
febrúar nk. kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild til aukningar á hlutafé með
útgáfu nýrra hluta um allt að 30 milljónir króna.
Tilgangur hlutafjáraukningarinnar er sá að tryggja
næga dreifingu hlutafjár samanber reglur Verð-
bréfaþings íslands þar um.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á fundinum,
skulu vera komnar skriflega í hendur stjórnarinnar
eigi síðar en sjö dögum fyrir fundardag. Fundargögn
verða afhent á skrifstofu Fjárfestingarfélagsins að
Hafnarstræti 7, 4. hæð, Reykjavík, þrjá síðustu daga
fyrir aðalfund og á íundardegi.
Stjórnin
LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRAÐA A
VALDA ÞÉR SKAÐA!
ilæ1
í
Aukablað
Hljómtæki
DV-hljómtæki, sérstakt aukablað um hljómtæki, er
fyrirhugað miðvikudaginn 27. febrúar nk.
í DV-hljómtækjum er ætlunin að segja frá hljómtælg-
um, sem eru á markaðinum, og skýra út fyrir lesend-
um hin mismunandi gæði hljómtælga.
Bent er á að auglýsingum í þetta upplýsingablað þarf
að skila í síðasta lagi fimmtudaginn 21. febrúar.
ATH.I Póstfaxnúmerið okkar er 27079
og auglýsingasíminn 27022.
Leikhópurinn, sem vann að sýningu
Næturgalans, fær tilnefningu fyrir
fallega og innihaldsrika sýningu.
Ríkisútvarpið hljóðvarp-sjónvarp
fær tilnefningu fyrir mikilsvert fram-
lag til leiklistar i landinu. Á mynd-
inni, fyrir miðju, er Jón Viðar Jóns-
son, leiklistarstjóri Rikisútvarpsins.
4