Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1991, Blaðsíða 23
23
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991.
DV
Akranes:
Haförn kaupir togara
Siguröur Sverrisson, DV, Akxanesi:
Samningar hafa tekist á milli Haf-
amarins og eigenda togarans Þrastar
HU 48 á Bíldudal um kaup á skipinu.
Aö sögn Guðmundar Pálmasonar,
framkvæmdastjóra Hafarnarins,
verður að líkindum gengið formlega
frá kaupunum bráðlega.
Þröstur HU 48 er 230 lesta togari
og hefur verið gerður út frá Blöndu-
ósi, aðallega á rækju. Hann hét áður
Jökull SH. Togarinn er með 1300
þorskígilda kvóta. Hann veröur af-
hentur fljótlega. Þar með er farsæll
endi bundinn á margra mánaða leit
Hafarnarmanna að togara.
Guðmundur sagði í samtali við DV
að koma togarans kæmi til með að
breyta miklu fyrir Hafórninn. Hinn
togari fyrirtækisins, Höfðavíkin, er
með 2150 þorskígilda kvóta þannig
að nærri lætur að um 60% kvóta-
aukningu sé að ræða með kaupunum
á Þresti.
Skortur á afla til vinnslu hefur háð
Haferninum mjög undanfarin miss-
eri. Fyrirtækið hefur yfir að ráða
ipjög fullkomnu fiskvinnslukerfi og
getur afkastað mun meiru en það
gerir í dag.
Akranes:
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesi:
Þrír harðir árekstrar hafa orðið
á gatnamótum Stillholts og
Kirkjubrautar/Kalmansbrautar
á skömmum tíma, þar af tveír
eftir aö umferðarljósin - þau einu
sem eru í bænum - fóru úr sam-
bandi í óveðrinu á dögunum.
Mikið eignatjón varð í þessum
þreraur árekstrum og meiðsl
urðu á fólki í tveimur tilvikum.
Svanur Geirdal yíirlögreglu-
þjónn sagði í samtali við DV að
leiða mætti líkur að því að tveir
síðari árekstrarnir hefðu ekki
oröið ef umferðarljósin hefði ver-
ið virk. Sagði hann ákaílega
brýnt að fá þau í gagnið á ný eða
í það minnsta gul blikkandi ijós
sem vektu athygli ökumanna.
Áður en Jjósin voru sett upp
voru árekstrar tlöir á þessu horni
en mjög dró úr þeim eftir það.
Dómhús í Reykjavik er nú orðið að veruleika eftir að ríkið keypti Útvegsbankahúsið við Lækjartorg. Kaupverð
hússins var tæpar 200 milljónir og fermetrinn kostar þvi 47.200 krónur. Með kaupum þessa hússhefur verið tryggt
húsnæði undirréttar í Reykjavík en í því koma til með að verða Borgardómur, Sakadómur Reykjavíkur, Sakadómur
í ávana- og fíkniefnamálum og að hluta til embætti borgarfógeta. Á myndinni sést Brynjólfur Bjarnason, formað-
ur bankaráðs íslandsbanka, taka í hönd Óla Þ. Guðbjartssonar dómsmálaráðherra eftir að kaupsamningurinn var
undirritaður. Á milli þeirra stendur Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra. DV-mynd S
Menning
Bara venjulegur, lítill strákur
Atriði úr leikritinu „Halló, Einar Áskell" sem sýnt er á Litla sviði Borgarleikhússins.
Bækurnar um Einar Askel eru vel þekktar og
vinsælar meðal yngstu kynslóða íslendinga og
þess vegna er eins og börnin hitti fyrir gamlan
kunningja þessa dagana þegar þeim gefst kostur
á að sjá htla leiksýningu sem byggð er á þremur
sögum um strákinn þann.
Frásagnaraðferð bókanna er yfirfærð á leik-
sviðið og einkennist af hógværri lýsingu á ósköp
venjulegum litlum snáða og hversdagsævintýr-
um hans sem virðast kannske ekki stórvægileg
í augum hinna fullorðnu en hitta beint í mark
hjá htlu leikhúsgestunum.
„Hvað er hann eiginlega gamah, þessi strák-
Leiklist
Auður Eydal
ur?“ spurði einn lítill patti stundarhátt á sýning-
unni, sem ég sá, þegar pabbi Einars Áskels kom
með koppinn og fannst víst Stefán Jónsson ekk-
ert of góður til þess að skreppa fram á klósett.
Og gagnrýnar raddir heyrðust líka: „Á hann
svo kannski að spýta á gólfið?“ sagði annar
ungur áhorfandi þegar Einar Áskeh hefur
gleymt að bursta tennurnar og pabbi kemur
með tannburstann og vatnsglas inn að rúmi.
En þeir feögar sáu við þessu og Einar Áskell
spýtti bara í glasið öllum til nokkurs léttis.
Já, litlu leikhúsgestirnir láta óspart til sín
heyra og það er fátt sem fer fram hjá þeim.
Umbúnaður sýningarinnar er einfaldur, bak-
grunnur er málaður á laus tjöld og sviðsmunir,
búningar og gervi eru litrík og í stíl við myndirn-
ar í bókunum sem krakkarnir þekkja vel.
Stefán Jónsson leikur Einar Askel og freistar
þess að ná barnalegum tilburðum og hreyfing-
um án þess að ýkja um of. Harpa Arnardóttir
leikur Viktor og þarf á sama hátt að ná til barn-
anna með því að „þykjast“ vera lítill strákur.
Ekki bar á öðru en börnin vorkenndu henni af
heilum hug þegar Viktor uppgötvar skrámu á
hnénu á sér og Einar Áskell kemur til hjálpar.
Kjartan Bjargmundsson leikur pabba Einars
og einlægt samband feðganna kemur vel fram
í túlkun þeirra Stefáns. Helga Þ. Stephensen er
sögumaðurinn sem leiðir áhorfendur inn í sög-
una og fylgir þeim allt til enda. Upphafstextinn,
þegar hún býður börnin velkomin, var að vísu
ekki nógu vel undirbúinn og þess vegna fór
þarna forgörðum ágætt tækifæri til að kynna
börnunum starfið í leikhúsinu í örstuttu máU
eins og þó var ætlunin.
Jóhann G. Jóhannsson lífgaði upp á sýninguna
með léttum undirleik og börnin tóku sýning-
unni ósköp vel og þakksamlega.
Leikfélag Reykjavikur og Skólamálaráð Reykjavikur
sýna á Litla sviði Borgarleikhússins:
Halló, Einar Áskell
Höfundur: Gunilla Bergström
Leikgerð: Hans Kumlien
Tónlist: Goerg Riedel
Þýðing: Sigrún Árnadóttir
Þýðing söngtexta: Þórarinn Hjartarson
Leikmynd og búningar: Guðrún Sigriður Haraldsdóttir
Lýsing: Egill örn Árnason
Leikstjóri: Soffía Jakobsdóttir
Fréttir
Akureyri:
Slökkvistöðin
kostar tæpar
60 milljónir
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
Samníngar varðandi kaup Ak-
ureyrarbæjar á fasteigninni Ár-
stíg 2 eru nú á lokastigi, en þang-
að mun slökkvilið bæjarins verða
flutt.
Kaupverö Árstígs 2 verður 57,6
milljónir króna, en inn í samn-
inginn kemur einnig ákvæöi um
sölu bæjarsjóðs á H-hluta í Kaup-
angi við Mýrarveg en söluverð
þeirrar eignar nemur 6,8 miUjón-
um.
Líkamsárás
við Glæsibæ
Maður var fluttur á slysadeild
í fyrrinótt eftir að hafa orðið fyrir
líkamsárás við Glæsibæ. Árásar-
mennirnir flúðu í bifreið og hafa
ekki fundist.
Ekki er vitað hversu alvarlega
maðurinn er slasaður.
-ns
Hesti
misþyrmt
Brotist var inn í hesthús í Faxa-
bóh aðfaranótt laugardags og
hesti þar misþyrmt. Talið er að
hestinum hafi verið riðiö út alla
nóttina og honum síðan skilað í
húsið.
-ns
Akureyri:
Hækkar i
„strætó“
Gylfi Kristjánason, DV, Akureyii:
Bæjarráð Akureyrar hefur
samþykkt hækkun á fargjöldum
strætisvagna bæjarins, og á
hækkunin að koma til fram-
kvæmda um næstu mánaðamót.
Einstök fargjöld fullorðinna
hækka úr 60 krónum í 65 krónur
og barnafargjöld úr 22 í 24 krón-
ur. Þá hækka 20 miða kort full-
orðinna úr 900 krónum í 1.000
krónur. Samskonar kort aldraðra
og öryrkja standa hinsvegar í
staö og kosta áfram 450 krónur
en 25 miða kort með skólaafslætti
hækka úr 840 krónum í 930 krón-
ur.
Einhell
vandaöar vörur
Súluborvélar
TværstærÖr, hagstætt verö
Skeljungsbúðin
Síðumúla 33
sími 603878 og 38125