Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1991, Blaðsíða 2
Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991.
_____________________________________________________________________________PV
Davíð Oddsson gefur kost á sér sem formaður SjálfstæðisfLokksins:
Harður f ormannsslagur
framundan á landsfundi
„Ég haföi áöur rætt þessa niður-
stööu á allmörgum ágætum fundum
meö Þorsteini Pálssyni, núverandi
formanni Sjálfstæðisflokksins. Ég á
ekki von á því aö þessi ákvöröun
þurfi í sjálfu sér að koma mikið á
óvart. Þaö hefur á liðnum árum,
misserum og mánuöum, verið rætt
töluvert um þaö að hlutir kynnu að
skipast svo aö eftir því yrði leitað að
ég gæfi kost á mér sem formaður
flokksins. Á landsfundi eru allir
menn í kjöri. Það veröur enginn einn
einstaklingur sjáifkrafa formaður.
Þó allir landsfundarfulltrúar séu
sjálfkrafa í framboði þá hefur það
nú tíðkast að sumir eru pínulítið
meira í framboði en aörir og láta vita
aö þeir munu ekki leggjast gegn því
að þeir verði studdir til þeirrar for-
ystu sem kosið er um,“ sagði Davíð
Oddsson meðal annars á blaða-
mannafundi eftir aö hann hafði til-
kynnt fulltrúaráði Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavík að hann gæfi kost á
sér í kjöri til formanns á komandi
landsfundi flokksins.
Yfirlýsing Davíös kom fáum á
óvart en nær öruggt var talið að hún
yrði á þennan veg. Vangaveltum síð-
ustu vikna er lokið og við blasir
kosningabarátta milli Davíðs og Þor-
steins Pálssonar um formannssætið.
Þykir sýnt að þar verður ekkert gefið
eftir.
Davíð sagði að úr því sem komið
væri hefði hann metiö stöðuna svo
að réttast væri að kjósa um formann-
inn, láta landsfundinn skera á hnút-
inn. ítrekaði hann að ekki væri neinn
málefnaiegur ágreiningur milli hans -
og Þorsteins, aðéins yrði kosið um
þær persónur sem landsfundarfull-
trúar teldu líklegasta til að leiöa
flokkinn tii sigurs í kosningum.
Davíð vildi ekki spá í þá stöðu er
kæmi upp ef hann tapaði kosning-
unni fyrir Þorsteini, livort hann yrði
áfram varaformaður. Þá vildi hann
ekki spá í hvort hann héldi áfram
sem borgarstjóri ef hann færi með
sigur af hólmi eða um líkiegan eftir-
mann sinn í því embætti.
-hlh
Þorsteinn Pálsson:
Óbreytt forystuskipan
verður staðfest
„Ég átti ekki von á þessu og vissi
ekkert um mögulegt framboð Davíðs
fyrr en DV spurði mig um það fyrir
bráöum hálfum mánuði. Ég hef fund-
ið fyrir því mjög ákveðið á undan-
förnum vikum að fólkið í Sjálfstæðis-
flokknum hefur gert ráð fyrir að við
leiddum þessa kosningabaráttu sam-
an. Ég hygg að það mat sé stutt þeirri
augljósu staðreynd að við höfum ver-
ið í mikilli sókn og það tókst að sam-
eina flokkinn og ná sáttum," sagði
Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, við DV. Þorsteinn
var spurður um viðbrögð sín við yfir-
lýsingu Davíðs Oddssonar um að
hann byði sig fram til formanns á
landsfundi flokksins í mars.
Þorsteinn sagði kosningu um for-
mann taka mikinn tíma og orku frá
sjálfstæðisfólki og þaö sæist strax að
andstæðingarnir skemmtu sér. Hann
sagðist finna mikinn stuðning frá
flokksfólki og hinum almenna borg-
ara og að hann haggaðist ekki hið
minnsta þó þetta gengi yfir.
- Ertu uggandi um flokkinn eftir
harða kosningabaráttu um for-
mannssætið?’
„Ég geri ráð fyrir að landsfundur-
inn staðfesti óbreytta forystuskipan
og við náum okkur aftur á strik."
-hlh
Daviö Oddsson tilkynnir um framboð sitt til formanns Sjálfstæöisflokksins
á fréttamannafundi i gær. DV-mynd BG
Slysavarnafélag íslands vlll breytingar á sjóðshappdrætti:
Yfirlýsing fundar Fangavaröafélags íslands:
Öhæf a að loka
geðsjúka í
einangrun í
fangelsum
- ástandið í dag er yfirvöldum til vansæmdar
DV hefur borist eftirfarandi
ályktun frá fundi Fangavarðafé-
lags íslands sem haldinn var um
helgina:
í lögum um fangelsi og fangavist
nr. 48/1988 segir í 8. grein: „Fangi,
sem á við andlega eða líkamlega
fötlun að stríða eða þarfnast af öðr-
um ástæðum sérstaks aðbúnaðar,
skal afplána í því fangelsi sem upp-
fyllir þau skilyröi um slíkan að-
búnað.“
Ekkert fangelsi á íslandi uppfyll-
ir þau skilyrði sem þarna er átt
við. Það er skoðun félaga í Fanga-
varðafélagi íslands að hraöa verði
eins og kostur er stofnun sérstakr-
ar réttargeðdeildar fyrir geðsjúka
afbrotamenn. Yfirvöld hafa nú lýst
því yfir að opnun slíkrar deildar
sé í undirbúningi. í ljósi fyrri um-
ræðna og loforöa vill félagið skora
á hlutaðeigandi aðila að standa nú
við orð sín og hraða verkinu sem
mest.
Fangavörðum er fullkunnugt um
ástand þeirra einstaklinga sem
þurft hefur aö vista í fangelsum
landsins um lengri eða skemmri
tíma, án þess að þeir hafi hlotið
viðeigandi meðferð eða sérfræði-
þjónustu. í nútíma þjóðfélagi, sem
kennir sig við framfarir og þróun,
er óhæfa að geðsjúkt fólk sé lokað
inni í einangrunaklefum fangelsa,
beinlínis vegna sjúkdóms síns.
Það hlýtur að vera krafa okkar,
sem starfa við fangelsin, að þessir
skjólstæðingar okkar fái þá með-
ferð og þjónustu sem þeim ber sam-
kvæmt lögum. Ástandið í dag er
hlutaðeigandi yfirvöldum tfl van-
sæmdar.
Agóðinn renni til þyrlukaupa
Slysavarnafélag Islands hefur lagt
til við allsherjarnefnd efri deildar
Alþingis að frumvarpi um sjóðs-
happdrætti, sem þar er til meðferðar,
verði breytt á þann veg að allur ágóði
þess happdrættis renni til þyrlu-
kaupa fyrir Landhelgisgæsluna í
staö 60% eins og ráð er fyrir gert í
frumvarpinu.
Upphaflega var gert ráð fyrir því í
frumvarpinu að einungis LandSsam-
band flugbjörgunarsveita og Skák-
samband Islands væru aðilar að
þessu sjóðshappdrætti og að þau
fengju 40% af ágóða á móti 60% sem
færu til þyrlukaupa. Aðrar björgun-
ar- og hjálparsveitir voru ekki sáttar
við það og spruttu upp deilur vegna
þess. Þá var lagt til að frumvarpinu
yrði breytt þannig að allir yröu með
og er frumvarpið nú til meðferðar
hjá allsherjarnefnd.
I ályktun sem Slysavarnafélag ís-
lands sendi allsherjarnefnd segir að
fundur stjórnar og varastjórnar,*
umdæmisstjóra, varaumdæmis-
stjóra og starfsmanna SVFÍ, telji
miður að félagssamtök nýti sér það
ástand sem er í þyrlumálum Land-
helgisgæslunnar sér til fjárjöflunar.
„Því telur fundurinn eðlilegt að
hugsanlegar tekjur af væntanlegu
sjóðshappdrætti safnkvæmt frum-
varpi til laga sem nú liggur fyrir
Alþingi gangi óskiptar til þyrlukaupa
Landhelgisgæslunnar a.m.k. næstu
fimm árin.“
Örlygur Hálfdánarson, forseti
Slysavarnafélagsins, segir að hann
telji að þessi aðferð komi til með að
höfða mest til þjóðarinnar í stað þess
að skipta ágóðanum á milli aðila.
Guðmundur Ágústsson, formaður
allsherjárnefndar, segir að tillaga
Slysavarnafélagsins sé nýr flötur á
málinu og sér finnist hún skynsam-
leg.
„Spurningin við þessa tillögu er sú
hver eigi að sjá um framkvæmd
happdrættisins ef allur ágóðinn á að
renna til þyrlukaupa. Og önnur
spurning, sem við verðum að taka
afstöðu til varðandi þetta happ-
drætti, er hvort leggja eigi í enn eitt
happdrættið þar sem sá happdrættis-
markaður sem fyrir er, er að fullu
mettaður. En tillaga Slysavarnafé-
lagsins kemur mér ekki á óvart því
ég hef vitað lengi að félagið hefur
talið þyrlukaup eitt af brýnustu
hagsmunamálum björgunarsveita."
Guðmundur segir að hann búist viö
að frumvarpið verði afgreitt frá alls-
herjarnefnd í vikunni.
-ns
Ósamið um sölu á loðnuhrognum:
Verðhrun á Japansmarkaði
„Loðnan verður ekki hæf til
hrognatöku og vinnslu fyrr en á
fimmtudag. Það er ekki búiö að
ganga frá neinum samningum við
Japani um kaup á loðnuhrognum og
verður ekki gert fyrr en við sjáum
hvernig vertíðin þróast. En við telj-
um aö við getum selt þeim verulegt
magn af hrognum. Það er heldur
ekki ljóst á hvaða verði Japanir
muni kaupa hrognin. Norðmenn
hafa boðið þeim að kaupa kílóið af
loðnuhrognum á 126 krónur. Við telj-
um aö þaö hafi ekki verið ástæða hjá
Norðmönnum að bjóöa svo lágt verð
þar sem markaðurinn í Japan er
nánast tómur en það mun skýrast á
næstu dögum hvernig samið verð-
ur,“ segir Gylfi Þór Magnússon,
framkvæmdastjóri hjá Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna.
í fyrra fengu íslendingar 144 krón-
ur fyrir kílóið af hrognum og 82 krón-
ur fengust fyrir kílóið af heilfrystri
loðnu.
„Hvað varðar sölu á heilfrystri
smáloðnu þá var búið að semja við
Japani um kaup á um 800 lestum en
við óttumst að ekki verði hægt að
framleiða upp í þá samninga því ekki
hafa verið fryst nema um 100 tonn
það sem af er vertíðinni.“
-J.Mar